Morgunblaðið - 19.03.2004, Page 65
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MARS 2004 65
DONDRELL Whitmore, Banda-
ríkjamaður í herbúðum Snæfells,
hefur ekkert æft með deildarmeist-
araliðinu í körfuknattleik frá því að
hann sneri sig á ökkla í öðrum leik
liðsins gegn Hamarsmönnum í átta
liða úrslitum Intersportdeildarinnar
sl. laugardag. Bárður Eyþórsson,
þjálfari Snæfells, sagði í gær að allt
yrði gert til þess að Whitmore yrði
leikfær gegn Njarðvíkingum í kvöld
er liðin mætast í fyrstu rimmu lið-
anna í undanúrslitum keppninnar,
en leikurinn fer fram í Stykk-
ishólmi. „Ég er bjartsýnn á fram-
haldið þrátt fyrir að menn séu
meiddir. Við höfum ekki náð að vera
10 á æfingum undanfarna daga þar
sem smámeiðsli eru að hrjá nokkra
leikmenn. Corey Dickerson lenti í
samstuði gegn Hamarsmönnum og
hefur lítið getað æft og Lýður Vign-
isson mun einungis leika með liðinu
það sem eftir er, en hann er meiddur
á ökkla og hefur lítið sem ekkert
getað æft eftir áramót. Dondrell
hefur leikið gríðarlega vel í sókn
sem vörn eftir áramót og staða okk-
ar væri vissulega betri ef hann næði
sér fyrir leikinn í kvöld,“ sagði
Bárður en neitaði því að hann væri
að beita þekktum sálfræðibrögðum í
íþróttum með því að gera meira úr
meiðslum leikmanna liðsins en efni
stæðu til.
„Nei, ástandið gæti verið betra en
ég er alltaf bjartsýnn,“ sagði Bárður
Eyþórsson.
Óvíst hvort Whitmore
leikur gegn Njarðvík
Markareikningurinn hjá Armen-íu var opnaður eftir 1 mínútu
og 25 sekúndur í gær. Síðan rak
hvert markið annað
þrátt fyrir að Arm-
enía pakkaði sínum
mönnum í vörnina.
Fyrir vikið átti Ís-
land nokkur góð færi er þeir voru
einum færri og Armenar urðu að
hætta sér frá marki sínu.
„Við höfum aldrei lent í svona áð-
ur, höfum hinsvegar verið hinum
meginn og þetta var í raun erfitt,“
hélt Ingvar fyrirliði áfram. „Við
þurftum bara að vinna leikinn og
markatalan skipti ekki máli en í lokin
held ég að allir nema einn hafi skor-
að.“
Tvö efstu liðin komast upp í 2.
deild en ef þrjú eru jöfn að stigum
gilda innbyrðis leikir og markatala.
Tyrkir unnu Mexíkó 3:2 með sigur-
marki rúmri mínútu fyrir leikslok og
þar sem Ísland vann Tyrkland 7:5
má búast við hörkuleik þegar Ísland
mætir Mexíkó á sunnudaginn. Fyrst
þarf þó að leggja Írland að velli en
Ingvar var bjartsýnn. „Ég held að
Írland verði ekki mikið vandamál en
leikurinn við Mexíkó gæti orðið stór-
skemmtilegur og í raun úrslitaleikur
fyrir okkur og við hlökkum til,“ sagði
Ingvar Jónsson.
Morgunblaðið/Sverrir
Patrik Erikson og James Devine fagna einu af mörkum ís-
lenska landsliðsins gegn Armeníu í Laugardal í gærkvöldi.
Stórsigur
á Armeníu
„OKKUR líður alls ekki vel og erum nánast orðlausir,“ sagði Ingvar
Jónsson, fyrirliði íslenska íshokkílandsliðsins, í gærkvöldi – eftir
31:0 sigur á Armeníu í 3. deild heimsmeistaramótsins, sem fram fer
í Skautahöllinni í Laugardal. Skyldi engan undra – Armenar höfðu
ekki neitt að segja í klær íslensku kappanna.
Stefán
Stefánsson
skrifar
Samningur Arnórs við
Magdeburg klár
ÞÝSKA handknattleiksliðið Magdeburg gerði það opinbert á
heimasíðu sinni í gær að samningur við KA-manninn Arnór Atlason
væri í höfn og félagið hefði gert þriggja ára samning við hann. „Það
er nokkur tími liðinn frá því ég gerði samkomulag við Magdeburg
en með því að gera þetta opinbert í dag (í gær) þá eru allir hlutir
komnir á hreint og samningurinn klár. Samningurinn tekur gildi 1.
júlí og ég reikna með að halda utan fljótlega eftir að ég útskrifast
úr skólanum hinn 17. júní. Þetta verður rosalega spennandi og ég
er fullur tilhlökkunar,“ sagði Arnór við Morgunblaðið í gær.
HJÖRTUR Harðarson er hættur
störfum sem þjálfari kvennaliðs
Keflavíkur í körfuknattleik. Á
heimasíðu
Keflvíkinga í
gærkvöldi
kom fram að
ástæðan væri
ágreiningur
milli leik-
manna og
þjálfara um
starfsaðferðir
og bauðst
Hjörtur til að
víkja til að
leysa þann
ágreining.
Keflvíkingar
hafa unnið alla
þá fjóra titla
sem í boði hafa verið í vetur undir
stjórn Hjartar.
Sigurður tekur við
Sigurður Ingimundarson, lands-
liðsþjálfari karla í körfuknattleik
og fyrrum þjálfari karla- og
kvennaliðs Keflavíkur, mun stjórna
liði Keflavíkur út leiktíðina og
fyrsti leikurinn sem liðið leikur
undir hans stjórn verður gegn
Grindavík í kvöld en sá leikur sker
úr um hvort liðið kemst í úr-
slitarimmuna um Íslandsmeist-
aratitilinn gegn liði ÍS, sem lagði
KR að velli.
Hjörtur
hættur
með
Keflavík
Sigurður Ingi-
mundarson
stjórnar Kefla-
víkurstúlkunum
í kvöld.