Morgunblaðið - 19.03.2004, Qupperneq 67
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MARS 2004 67
Í JÚLÍ 1969 steig Neil karlinn
Armstrong fyrstur manna á tunglið,
á meðan fólk um allan heim horfði
agndofa á. Til að standa að útsend-
ingunni þurfti gervihnattadisk, og
sá sem varð fyrir valinu stendur á
miðjum akri í smáþorpi í Ástralíu í
góðum félagsskap nokkurra kinda.
Þessi mynd segir sögu viðburðarins
og fólksins sem að honum kom í
ástralska þorpinu Parks.
Myndin gerist mestmegnis í út-
sendingarstöðinni undir gervi-
hnattadisknum, þar sem Cliff
(Neill) og hans menn Glenn og
Mitch, auk útsendara NASA Al,
takast á við verkefnið og þau vanda-
mál sem upp koma. Myndin yrði
svakalega leiðinleg ef einungis
væru sýndir tæknileg vandamál og
lausnir á þeim, svo handritshöfund-
ar hafa skapað skemmtilega flóru
karaktera, og vefja þeim saman við
og allt í kringum viðburðinn mikla.
Og tekst sá vefnaður skemmtilega
vel. Persónurnar eru vel skrifaðar,
margar þeirra bráðfyndnar og und-
irsögur þeirra rata aldrei langt frá
viðburðinum. Það sem gerir mynd-
ina hvað skemmtilegasta er hversu
léttúðlega allir taka viðburðinum.
Hér ræður hin vinalega sveita-
mennska ríkjum í hvívetna sem
stangast skemmtilega á við hrok-
ann í Al NASA manninum frá Tex-
as.
Aðalfléttan sjálf er ekki alveg eft-
ir formúlunni þar sem hér er (að öll-
um líkindum!) um sanna sögu að
ræða, og er það vel. En þannig
vantaði átök í myndina, þau vanda-
mál sem upp koma, eru vissulega
stór og sköpuðu vissa spennu á
meðan þau voru óleyst, en leystust
of fljótt og auðveldlega. Því varð
myndin full átakalaus fyrir minn
smekk. Því hefði mátt skapa innri
spennu hjá einhverri persónanna til
að hreyfa ekki við staðreyndum.
Diskurinn er eftirtektarverð fyrir
látleysi sitt, sjálfhæðni og þá
skemmtilegu og hrokalausu mynd
sem hún gefur af fólkinu sem stóð á
bakvið eitt merkilegasta augnablik
sögunnar. Ég sé okkur Íslendinga í
anda gera slíkt hið sama! Og þótt
grínið í henni sé býsna gott, þá hefði
myndin verið enn áhugaverðari með
smá frumleika og átökum.
Í sambandi við tungliðKVIKMYNDIRHáskólabíó – Eyjaálfudagar
Leikstjórn: Rob Sitch. Handrit: Rob
Sitch, Santo Cilauro, Tom Greisner og
Jane Kennedy. Kvikmyndataka: Graeme
Wood. Aðalhlutverk: Sam Neill, Kevin
Hrrington, Tom Long, Patrick Warburton
og Eliza Szonert. 101 mín. Ástralía 2000.
THE DISH / DISKURINN Hildur Loftsdóttir
Hrappur í Malibu
(Malibu’s Most Wanted)
Grínmynd
Bandaríkin 2003. Sammyndbönd VHS/
DVD. Öllum leyfð. (86 mín.) Leikstjórn
John Whitesell. Aðalhlutverk Jamie
Kennedy, Ryan O’Neill.
EFTIR að hafa farið með einstaka
lítt merkilegt aukahlutverkið sló
Jamie Kennedy í gegn í sjónvarpi,
sem óborganlegt og hrekkjótt kam-
eljón í þáttunum The Jamie Kennedy
Experience. Þar
ítrekar hann ótví-
ræða grínhæfileika
sína sem ættu vel að
geta nýst í kvik-
myndum. En það
þarf greinilega
betri myndir til en
þessa því hún er
ekki mikið meira en
einn brandari, ein skissa í gaman-
þætti, teygð í fulla lengd – því miður.
Maðurinn er vissulega fyndinn í
hlutverki hins dæmigerða hipp-hopp-
hrapps. Með alla taktana á hreinu og
alveg dásamlega hjátkátlegur svona
innilega hvítur á hörund og sál,
verndaði hvítþvegni pabbastrákurinn
sem þráir að vera eins hættulegur og
fyrirmyndirnar í hipp-hoppmynd-
böndunum. Og maður hlær að ein-
staka atriðum, upphátt meira að
segja. En bara einu sinni eða tvisvar.
Tvennt hefði getað bjargað henni fyr-
ir horn og hvorttveggja hefur með
fyndnara handrit að gera; annaðhvort
hefði verið betra að gera pólitíska
broddinn í myndinni beittari, eða þá
að sleppa honum alveg og keyra
fremur delluþáttinn upp í topp. Myndbönd
Hvítþvegið
háð
Skarphéðinn Guðmundsson
ÞAÐ er alltaf gaman þegar menn
æfa upp metnaðarfulla dagskrá eins-
og Óskar Guðjónsson og félagar hafa
gert nú. Það er rafmagnaða bíbopp-
sveit trommarans Paul Motian, er
hingað kom með frelsishljómsveit
Charlie Hadens, sem er fyrirmyndin
að þessari sveit Óskars, en Paul hefur
gefið út nokkra diska með þeirri sveit
þarsem leikin eru verk eftir meistara
á borð við Thelonius Monk, Bud Pow-
ell, Dizzy Gillespie og Charlie Parker.
Þetta hefur Óskar drukkið í sig og
mannar sveitina á sama hátt og Paul,
þótt Paul hafi ekki haft innanborðs
jafn gamalreyndan bíboppleikara og
Jói Pál Bjarnason.
Það er skemmst frá því að segja að
þessir tónleikar tókust frábærlega og
gamlir vinir manns frá æskuárunum
lifnuðu að nýju í glæstri túlkun
drengjanna. Að vísu hefur maður
heyrt sum þessara laga æði oft á tón-
leikum svo sem „Milestones“ og
„Half Nelson“ eftir Miles Davis eða
„Orinthology“ sem Benny Harris
samdi yfir hljómana í „How High The
Moon“, en er oftast eignað Charlie
Parker eða Parker og Dizzy Gill-
espie. Afturá móti var þarna leikið
verk sem hefur verið eitt af mínum
uppáhaldsverkum allt frá unglingsár-
unum, „Brilliant Corner“ eftir Thel-
onius Monk, og ég hef aldrei heyrt
áður á tónleikum. Það tókst þrusuvel
að flytja þetta magnþrungna verk,
sem erfiðlega gekk að hljóðrita á sín-
um tíma, í það minnsta gerðar 25 tök-
ur af því. Ómar gaf tóninn í blúsuðum
sóló og skiluðu allir sólistarnir sínu
með sóma. Það voru skemmtilegar
andstæður ríkjandi í sólóunum milli
rokktengdum hljómi Ómars og bí-
boppfestu Jóns Páls og rollínískum
kraftbirtingi Óskars og hefðbundnari
blæstri Ólafs. Eftir að „Brillant
Corner“ lauk var „Bebop“ Dizzy Gill-
espie flutt – eitt af fínustu númerum
klassíska bíboppsins. Afturá móti eru
Bud Powell ópusarnir „Celia“ og
„Blue Pearl“ svog „Shaw ’Nuff“ sem
Parker samdi yfir „I Got Rhythm“
öllu bragðdaufari. „Conception“
George Shearings angaði eilítið af
Tristano og „Barbados“ Parkers var
með heldur minna latínubragði hér
en í túlkun höfundar og svo var ópus
eftir Paul Motian af boppættinni,
„Brads Bag“, á dagskrá. Tvær ball-
öður spiluðu drengirnir: „It Never
Entered My Mind“ eftir Richard
Rodgers þarsem Jóhann Ásmunds-
son lék undurfagran bassasóló og „If
You Could See Me Now“ eftir Tad
Dameron.
Óskar fór á kostum allt kvöldið og
sólóar hans hver öðrum magnaðri og
Ómar bróðir hans gaf honum lítið eft-
ir. Ólafur Jónsson var traustur að
vanda og Jóni Páli óx ásmegin eftir
sem leið á tónleikana og sólóar hans í
„Half Nelson“ og „Orinthology“ voru
brilljant. Samspuni saxa og gítara,
milli þess sem spunnir voru fjórir
fjórir, setti skemmtilegan brag á
spilamennskuna og rýþminn var þétt-
ur þótt rafbassinn búi ekki yfir þeim
möguleikum til tónalitunar í þessari
tegund tónlistar sem kontrabassinn
gerir. Afturá móti er þetta rafbopp-
band og keyrt áfram sem slíkt.
Það var fjölmenni á tónleikunum
og þeim félögum fagnað innilega.
Full ástæða er að óska þeim til ham-
ingju með þennan listsigur og von-
andi að þessi tónlist heyrist sem víð-
ast.
Glæsidjass í bíboppstíl
DJASS
Hótel Borg
14. mars 2004. Fram komu Óskar Guð-
jónsson og Ólafur Jónsson tenór-
saxófónar, Jón Páll Bjarnason og Ómar
Guðjónsson gítarar, Jóhann Ásmundsson
rafbassi og Matthías M. D. Hemstock
trommur.
Rafmagnaða bíbopphljómsveit Óskars
Guðjónssonar
Vernharður Linnet
Ómar Guðjónsson fór á kostum á
bíboppæfingunni í Múlanum líkt og
hinir spilararnir í sveit bróður
hans, Óskars.
Morgunblaðið/ÞÖK
Veisluþjónusta
Ferminga- og brúðkaupsveislur.
Funda- og ráðstefnusalir
af öllum stærðum.
www.broadway.is - broadway@broadway.is
Sýningin sem er að gera allt vitlaust
á Hornafirði. Hljómsveitin Fjörmenn
og Glærurnar slá í gegn.
í kvöld
Öll laugardagskvöld!
Le’Sing (Syngjandi þjónar) alla laugardaga.
Sýning sem hefur slegið rækilega í gegn.
kynnir
Sími 533 1100 - broadway@broadway.is
www.broadway.is
Fegurðardrotting
Reykjavíkur
Góður matur og glæsileg
krýning á fegurstu stúlku Reykjavíkur
23. apríl
St
af
ræ
na
hu
gm
yn
da
sm
ið
ja
n
/4
35
4
Stórsýning
frá leikhúsborginni London. 2. og 3. apríl.
Forsala miða hafin.
Þessari sýningu má enginn missa af.
Verð: Sýning 2.500 krónur
Verð: Matur og sýning 6.400 krónur í forsölu.
Matseðill:
Indversk sjávarréttasúpa m/kúmen og kókostónuð .
Kjöttvenna; balsamickryddaður
lambavöðvi og púrtvínslegin
svínalund með camembert-grapesósu
og karamellueplum .
Súkkulaðiturn m/engifertónaðri kirsuberjasósu.
Yfir 70 sýningar stutt í 10.000 gestinn sem
verður leystur út með veglegum gjöfum.
Frábær skemmtun fyrir alla aldurshópa.
Glæsilegt happdrætti
1. vinningur:
- Ævintýraferð til Hornafjarðar fyrir tvo
Gisting á Hótel Höfn í tvær nætur ásamt morgunverði
Jeppaferð með Arctic Ice. - Sigling á Jökulsárlóni
Ljós, sauna og nudd í Sporthöllinni - Kvöldverður á Kaffihorninu
2. vinningur:
Saga Hafnar í tveimur bindum og árs áskift
að héraðsfréttablaðinu Eystrahorni.
3. - 5. vinningur:
Geisladiskarnir „Kæra Höfn“ og „Í jöklanna skjóli“
ásamt aðgöngumiðum fyrir tvo á Humarhátíð 2004.
Allir vinningshafar fá einnig hornfirskan sjóhatt.
Fimm rétta Thailenskur matur
Thailenskir dansar og söngur
Thailensk hljómsveit frá Noregi
Kalli Bjarni IDOL
Happdrætti, góðir vinningar.
Miðaverð kr. 3.000.
Sonkranhátíð laugardaginn 10. apríl
FARRELLY-BRÆÐUR eru ekki
lengur jafn yndislega óforskammað-
ir, farnir að nota mildari og kunn-
uglegri kryddtegundir í gaman-
myndirnar sínar. Þessvegna er
Fastur við þig og Shallow Hal, aft-
urför frá dæmalaust skemmtilegum
tímum Dumb and Dumber, Kingpin
og There’s Something About Mary.
Bræðurnir voru tímamótamenn í
að matreiða jaðarspaug sem jafnan
rambaði á barmi smekkleysunnar, á
þann meinfyndna hátt sem fáum er
lagið og komust upp með það. Nú
nálgast þeir meðalmennskuna óð-
fluga. Að óséðu má velta fyrir sér
hvort hugmyndin, gamanmynd um
síamstvíbura, sé smekkleysa, en í
meðförum bræðranna kemst Fastur
við þig aldrei í námunda við móðgun
við bæklaða. Á hinn bóginn sýnir
hún fötlun sem eðlilegan hlut, and-
stætt við venjuna.
Walt (Greg Kinnear) og Bob
(Matt Damon), eru ekki aðeins sam-
vaxnir heldur bæði samhentir og
samrýndir, ef svo mætti að orði
komast. Reka saman skyndibita-
stað, keppa í íþróttum og njóta lífs-
ins eins og kostur er. Sem sjálfstæð-
ar persónur eru þeir ólíkir að mörgu
leyti. Bob er feiminn og hlédrægari,
Walt sá framfærni og listræni, æfir
leiklist af kappi á heimavígstöðvun-
um á eyjunni Martha’s Vineyard,
þar sem hinir þrítugu tvíburar eru í
miklum metum meðal samborgar-
anna.
Velgengni Walts á sviðinu verður
til þess að þeir pakka saman og
flytja til Holly-
wood, nú á að slá
í gegn með til-
þrifum. Bob verð-
ur vitaskuld að
bögglast með en
sér lítinn tilgang í
ferðalaginu ann-
an en að hitta
May (Wen Yann
Shih), pennavin
sinn til þriggja
ára sem veit ekk-
ert um fötlunina.
Walt eignast vin-
konuna April
(Eva Mendes),
síðan leikkonuna
Cher og lukku-
hjólið fer að snúast honum í vil en
um leið reynir á bræðraböndin.
Vissulega saknar maður óheflaðs
hugarflugsins í fyrri myndum
bræðranna, línudansins á örmjóum
mörkum þess að vera sýningarhæft
og sjálfsagt hafa bræðurnir gengið
fram af þeim viðkvæmustu í hópi
áhorfenda. Á hitt ber að líta að nú
eru þeir nánast fjölskylduvænir,
jafnvel uppbyggilegir, ekkert til að
hneykslast á, öðru nær. Á föstu er
góðlátlegt grín þar sem undirtónn-
inn er svolítið alvarlegur og minnir á
að enginn veit hvað átt hefur fyrr en
misst hefur.
Á föstu er hlaðin bröndurum og
tilvísunum um kvikmyndaheiminn
og taka þau Meryl Streep, Griffin
Dunne og Seymour Cassell þátt í
gamninu. Cher er rósin í hnappagat-
inu og kemur inn í fléttuna miðja á
sinn stormandi hátt. Damon er
greinilega takmarkaður gamanleik-
ari, það er Kinnear sem nokkuð á
óvart ber myndina uppi og er betri
helmingur tvímenninganna. Myndin
er áreynslulítil og bráðfyndin á
nokkrum köflum en vonandi finna
Farrellybræður fljótlega aftur
gamla, granna þráðinn sinn.
Sameinaðir stöndum vér
KVIKMYNDIR
Smárabíó, Regnboginn, Laug-
arásbíó, Borgarbíó Ak.
Leikstjórn og handrit: Bobby Farrelly og
Peter Farrelly. Kvikmyndatökustjóri: Dan
Mindel. Tónlist: Michael Andrews. Aðal-
leikendur: Matt Damon, Greg Kinnear,
Eva Mendes, Wen Yann Shih, Cher, Ray
„Rocket“ Valliere, Seymour Cassel, Griff-
in Dunne, Meryl Streep. 110 mínútur.
20th Century Fox. Bandaríkin 2003.
Á FÖSTU / STUCK ON YOU Sæbjörn Valdimarsson segir Á föstu gefa til kynna að
Farelly-bræður séu orðnir settlegri en hér áður fyrr.
Sæbjörn Valdimarsson