Morgunblaðið - 19.03.2004, Síða 68

Morgunblaðið - 19.03.2004, Síða 68
FÓLK Í FRÉTTUM 68 FÖSTUDAGUR 19. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ „LANDIÐ leggst mjög vel í mig,“ hafði Morgunblaðið eftir írska tón- listarmanninum Damien Rice hann er staddur hér á landi og mun spila fyrir fullu húsi á Nasa við Austurvöll í kvöld. Miðar á tónleikana seldust upp á einum degi en fyrsta plata Rice, sem kom út á síðasta ári og heitir O, hefur fengið góðar viðtökur hérlendis og selst vel. Rice kom til landsins um miðjan dag á miðvikudag og fór þá, eins og venja er um erlenda tónlistarmenn sem hingað koma, beina leið í Bláa lónið, andaði að sér hreinu Suður- nesjaloftinu og skolaði af sér ferða- skítinn. Þá snæddi Rice kvöldverð á veit- ingahúsinu Við Tjörnina og endaði rólegt kvöld á Kaffibarnum í hópi góðra kunningja, m.a. íslenskra tón- listarmanna úr sveitum á borð við Sigur Rós og Vínyl. Í gær tók hann það svo rólega, notaði tækifærið og þvoði af sér föt, enda búinn að vera á stífu tónleika- flakki undanfarið og lítinn tíma fengið til slíkra nauðsynja. Að þvottatörn lok- inni gafst Rice svo færi á að skoða Þingvelli og fór svo á frum- sýningu á heim- ildarmynd Ang- elu Shelton í Regnboganum sem hann segir magnaða. Hann segist því vel úthvíldur fyrir tónleikana og hlakka mjög til að kynnast íslenskum tónleikagestum. Þeir megi vænta góðra tónleika og þar sem hann sé einn einn á ferð megi búast við ennþá aflslappaðri stemmningu en venjulega og að tek- in verði lög úr ýmsum áttu, auðvitað nokkur af plötunni góðu en einnig fullt af öðrum sem heyrst hafa mun sjaldnar. Rice fer af landi brott á sunnudag. Þvottadagur og Þingvallaferð Damien Rice er staddur á Íslandi. Damien Rice á Íslandi HÚN er engri lík, frök- en Norah Jones. Enn og aftur er hún á toppi Tónlistans, fimmtu vikuna í röð og enn er hún að selja tvöfalt meira en næstu titlar á eftir. Sama er að gerast víða annars staðar, eins og t.d. á heimaslóðum hennar í Bandaríkj- unum þar sem salan er komin yfir 2 milljónir eintaka. Fröken Jones hefur tónleikaferð sína um Evr- ópu nú í apríl en þess má geta fyrir heita No- ruh Jones unnendur að hún er dugleg við að ljá öðrum listamönnum rödd sína. Á OutKast- plötunni The Love Below/Speakaboxxx syng- ur hún í laginu „Take Off Your Cool“. Hún syngur flest lög á plötu leikfélaga síns Peters Malicks sem heitr New York City og kom út í fyrra og vinir hennar í dansgenginu Wax Po- ets fengu hana til að syngja tvö lög á nýju plötu sinni Nublu Sessions. Fröken Jones! KAFFIBAUNAKOKTEILL- INN frá Bretunum í Zero 7 virðist ætla að falla vel í geð kaffiþyrstra Ís- lendinga enda finnst vart hentugri tónlist til hljóma í bakgrunni og fullkomna þá upplifun sem er að sötra af rjúk- andi og nýmöluðu kaffi. Kannski þessvegna hljómar þessi einstaka og seiðmagnaða Zero 7-tónlist gjarnan á kaffihúsum og jafnvel einnig á hárgreiðslustofum – enda ákjósanlegt að láta kúnnanum líða eins og hann sé á kaffihúsi þegar hann er í klippingu. Zero 7 eru breskir eins og fyrr segir og When It Falls önnur plata þeirra. Tónlistin er róleg, raf- kennd en þó lífræn í senn. Djassinn svífur yfir vötnum, kvikmyndatónlistin líka. Allt ilmandi af kaffilykt. Ekkert núll og nix! ÞÆR mætu sveitir Todmobile og Sinfón- íuhljómsveit Íslands tóku höndum saman og héldu rómaða tónleika í Laug- ardalshöll á síðasta ári. Eðlilega bjuggust þeir hjá Skífunni frekar en ekki við því að útkoman yrði vel heppnuð og eft- irminnileg og ákváðu því að fanga bæði hljóð og mynd í stafrænt form. Tónleikaplatan Sinfónía er fyrsta útgáfan sem hefur að geyma afraksturinn, 16 lög sem flutt voru við rífandi undirtektir þennan 14. dag nóv- embermánaðar. Síðar í mánuðinum, 29. mars, kemur svo út mynddiskur, bæði með hljóði og mynd frá um- ræddum tónleikum, auk annars myndræns góðgætis frá ferli sveitarinnar. Todfónía! MÍNUS-liðar eiga mikið til af mörgu en seint verða þeir sagðir rómantískir fram úr hófi, í það minnsta gefa textarnir það ekki til kynna. Nú þegar Halldór Laxness gerir enn eina atlöguna að hæstu hæðum Tón- listans er allt að gerast hjá Mínus í Bretlandi. Tímaritið Q nýbúið að skella á þá fjórum stjörn- um, sem er hreint ekkert slor. Og þær koma út hver af annarri smáskífurnar af Halldóri. Síðast var það „Angel in Disguise“ og næst verður það „Romantic Exorcism“, sem kemur út á smáskífu þar í landi 22. apríl, en aldrei verður minnt nógu oft á snilld þessa forsmekks af plötunni. Rómantískar særingar!                   !  "   # $ % % & '     (   %  ) * %   +    & # ,  (- # ( ) % .  %!/* 0 *' 1 2  3  % 4 $ /     5 ) " $ 6  *'  &   * - 7 "      89:;<=>>; ? 4@ , ( (   5- 5 ! AB ;;  +   C " 1 5  =>>; ) *5 D C "   7 ) 'A  . ?  3/ ! &  , C   E&&/ %    "  45C " ( . . "  , F &&    C 5 G G 89 2 8 = 82 2 G9 = 82 => 8H H 8> 8= => : 8: ;= 88 =8 ;: 8 =: I == 2 8I =H (C E        E    - ,   - & ' (C ,   - - ! AB   (. (C   ,   - - ,   8="*  )- J  ,   -    (C -     8 I ; G F 8G 8I : H = 8: 8> ;2 2 == =; ;I HH 89 8= ;> 88 8H F =G ;8 2H 9 G8 ;9                            "*       C( ?      /$  -    'K  - L  )  & L  "L-%  L &5   L(/    !                                B B B C2  'D  E>3 3   Á FERLI sínum hefur Egill Sæ- björnsson komið víða við. Hann hefur m.a. sinnt tónlist og vakti hljómdiskur hans, Tonk of the Lawn mikla athygli árið 2000. Spurður um þennan þátt list- sköpunar sinnar segist Egill vera að draga sig til baka á tónlistar- sviðinu í dag en reynir aftur á móti að setja tónlistina inn í mynd- listina sína. „Það er mín leið til að koma henni á framfæri þó hún sé kannski ekki mjög áberandi,“ segir Egill í spjalli við blaðamann. Að vísu segist hann eiga eftir að gera eina plötu fyrir Smekkleysu, hún sé á stefnuskránni en ekkert sé búið að ákveða með útgáfu ennþá. Fyrir jólin 2002 gaf hann svo út heimabrennda plötu í fimm- tíu eintökum sem kallast Repro- duced & Deper. Egill segir að Smekkleysa hafi veitt honum leyfi til að koma henni „frá sér“. „Ég varð bara að koma þessu frá,“ segir hann. „Hún minnir á Tonk... en það er meira um gam- aldags melódíur og hefðbundna lagabyggingu. Á Tonk... var ég að leika mér dálítiðmeð R og B og hipp hopp.“ Egill Sæbjörnsson opnar sýn- ingu í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi á morgun. Nánar er rætt við Egil um hana í sérblaðinu Fólkinu. Egill Sæbjörnsson er Tónlist í myndlist ■ Veggurinn lifnar/Fólkið, bls. 8. Egill Sæbjörnsson. fjölhæfur listamaður SAKSÓKNARAR á Flórída hafa ákveðið að fella niður allar ákær- urnar tólf á hend- ur R’nB söngv- aranum R Kelly fyrir framleiðslu á barnaklámi, vegna galla á meðferð málsins. Dómari úrskurðaði að leitarheimild, sem lögregla notaði til að fara inn á heimili hans árið 2002 þegar ljós- myndir sem sýna hann hafa sam- farir við stúlku undir lögaldri fund- ust, hafi verið byggð á ónógum sönnunargögnum og því hafi lög- reglan ekki átt að hafa aðgang að myndunum. Saksóknarar ákváðu að fella niður ákærurnar í stað þess að áfrýja úrskurðinum. R Kelly á hins vegar yfir höfði sér fjórtán ákærur í Illinois fyrir að hafa gert myndband sem sýnir hann eiga kynmök við fjórtán ára stúlku en sjálfur er hann 36 ára. Hann hefur staðfastlega neitað öll- um ákærum. Þrátt fyrir að mála- ferlin hafi staðið yfir síðustu tvö ár virðist það ekki hafa haft áhrif á feril söngvarans, hann er vinsæll sem aldrei fyrr og hefur selt meira en 23 milljónir platna … COURTNEY LOVE var hand- tekin í næt- urklúbbi í New York í gærnóttfyrir að kasta frá sér hljóðnemastatífi en það lenti í höfði karlmanns. Mað- urinn var fluttur á sjúkrahús en líð- an hans er sögð vera eftir atvikum. Love hefur verið ákærð fyrir lík- amsárás og gáleysislega hegðun. Kvöldið áður kom Love fram í skemmtiþætti Davids Lettermans þar sem hún beraði brjóst sín ítrek- að. BBC segir, að Love hafi snúið baki í áhorfendur þegar hún kom inn í myndverið þar sem sjónvarpsþáttur Lettermans er tekinn upp. Hún lyfti blússu sinni nokkrum sinnum þegar hún gekk upp á sviðið. Síðan tók hún sér stöðu uppi á borðinu sem Letterman sat við, söng nokkr- ar línur úr laginu „Danny Boy“ og beraði síðan brjóst sín á ný. Love hefur verið ákærð í Kalíforníu fyrir að hafa lyfseðilsskyld lyf í fór- um sínum en hún var handtekin eft- ir að hún reyndi að brjótast inn í íbúð fyrrum kærasta síns … FÓLK Ífréttum MIÐASALA hefst á mánudaginn kemur, 22. mars, á tónleika þýsku hljómsveitarinnar Kraftwerk í Kaplakrika 5. maí og miðvikudaginn 24. mars á tónleika bandarísku rokksveitar- innar Pixies í Kapla- krika 26. maí. Gætt hef- ur sérlega mikils áhuga fyrir tónleikum Pixies og ættu áhugasamir því að gefa þeirri nýbreytni gaum að þeir sem kaupa sér miða á Kraftwerk-tónleikana frá og með mánudeginum næsta fá forkaupsrétt á jafnmörgum miðum á Pixies, tveim- ur dögum áður en miðasalan hefst á þá tónleika. Í fréttatilkynningu frá Hr. Örlygi, sem heldur hvora tveggja tónleikana, segir að þetta sé gert „til að koma til móts við þá viðskiptavini fyrirtækis- ins sem ætla á hvora tveggja tón- leikana en vilja ekki standa í tveimur löngum röðum í sömu vikunni“. Vilja aðstandendur tónleikanna ítreka að ekki verði hægt að kaupa staka miða á Pixies einvörðungu fyrr en frá og með miðvikudeginum 26. mars. Miðasalan fer fram í verslunum Skífunnar; Kringlunni, Smáralind og Laugavegi. Einnig verður miðasala í Bókabúð Andrésar Pennanum, Akra- nesi – Pennanum Eymundsson Gler- ártorgi, Akureyri – Hljóðhúsinu, Sel- fossi og á www.icelandair.is/haenan. Miðaverð er 4.500 kr. á hvora tón- leika. Kraftverk-farar fá forgang á Pixies Það lítur út fyrir að kraftaverk þurfi til að ná í miða á Pixies. Miðasala á Kraftverk og Pixies að hefjast

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.