Morgunblaðið - 19.03.2004, Side 69
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MARS 2004 69
BRESKI tónlistarmað-
urinn Chris Clark frá
Warp Records spilar á
Warp-kvöldi sem Beat-
kamp-hópurinn stendur
fyrir á Kapital í kvöld.
Chris Clark er 23 ára,
kemur frá Brighton og
hefur gefið út nokkrar
plötur hjá Warp síðan ár-
ið 2001, meðal annars
Clarance Park og Empty
the Bones of You, en
sumir telja að hann sé
einhvers konar undra-
barn í tónlist. Með þung-
um töktum og mikið unn-
um dramatískum
hljóðum skapar Chris Clark sam-
blöndu af hip hop, electro, acid, drum
& bass, teknó og breakbeat.
Auk Clark koma fram Sunboy,
Einóma, Midijokers,
Mastermind og loks
mun Biggi veira spila
fram undir morgun.
Morgunblaðið náði
tali af Clark í gær-
morgun en hann virt-
ist frekar syfjaður í
röddinni. „Ég er gríð-
arlega syfjaður, var að
vakna og er að reyna
að fá mér kaffi til að
vekja mig en gengur
ekki vel,“ segir hann
og hlær.
Hann segist spennt-
ur að koma til Íslands
og hlakkar til að spila.
„Ég mun taka bæði efni af síðustu
plötu minni [Empty the Bones of
You] og nýtt efni sem hefur ekki verið
gefið út. Það er talsvert ólíkt því sem
ég hef gert áður, mun þyngra, meiri
taktur og hraðara, ég vil líka helst
spila slíkt efni á tónleikum, þeir eiga
að vera háværir og hraðir.“
Clark hefur verið að semja og taka
upp eigin tónlist í sjö ár en hann seg-
ist alltaf hafa haft áhuga á henni, m.a.
spilaði hann á trommur þegar hann
var yngri. Hann ætlar að vera hér
fram á sunnudag en hann hefur aldrei
komið til Íslands áður.
„Ég veit ekkert um landið, er það
þakið snjó? Ég hef alla vega heyrt að
þarna séu engin tré... jú, og um Bláa
lónið, mig langar til að fara í það. Er
það nokkuð langt í burtu?“
Chris Clark á Warp-kvöldi á Kapital
Eiga að vera háværir og hraðir
Skemmtunin hefst kl. 22 og
kostar 1.000 kr. inn.
Chris Clark frá Warp
spilar á Kapital.
bryndis@mbl.is
Nú stendur yfir sameiginleg póstatkvæðagreiðsla um nýjan
kjarasamning Eflingar-stéttarfélags, Verkalýðsfélagsins Hlífar og
Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis við Samtök
atvinnulífsins fyrir störf á almenna vinnumarkaðnum.
Atkvæðisrétt eiga allir þeir sem vinna eftir þessum samningi og
greiddu félagsgjöld til einhvers ofangreindra félaga í febrúar/mars
2004.
Kjörgögn og kynningarefni hefur verið sent út samkvæmt kjörskrá.
Fái einhver sem telur sig eiga atkvæðisrétt ekki send kjörgögn getur
viðkomandi snúið sér til skrifstofu síns stéttarfélags, fengið sig færðan
á kjörskrá og greitt atkvæði, enda leggi viðkomandi fram launaseðil
sem sanni afdregin félagsgjöld í febrúar/mars 2004.
Tekið er við kjörskrárkærum samkvæmt framansögðu til kl. 12.00
mánudaginn 29. mars en þá lýkur atkvæðagreiðslu um samninginn.
Atkvæðagreiðsla
um nýjan kjarasamning
Reykjavík, 17. mars 2004
Kjörstjórnin
Efling - stéttarfélag • Verkalýðsfélagið Hlíf
Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis
E
i
n
n
t
v
e
i
r
o
g
þ
r
í
r
4
1
.1
6
4
NORÐLENSKU hljómsveitirnar
200.000 naglbítar og Skytturnar
verða á meðal þeirra sem spila á
stórtónleikum í KA-
húsinu á Akureyri ann-
að kvöld. Auk þeirra
koma fram sjónvarps-
stjarnan Sveppi úr 70
mínútum, sem heldur
ógeðsdrykkjakeppni,
og Idol-keppendurnir
norðlensku Anna Katr-
ín og Jóhanna Vala.
„Tónleikarnir eru
hugmynd sem ég fékk
einhvern tímann um
síðustu jól og er búinn
að vera að undirbúa
síðan,“ segir Vilhelm
Anton Jónsson naglbít-
ur og skipuleggjandi
tónleikanna. „Ég vil
ekki vera væminn en
við erum svolítið að segja takk við
fólkið okkar fyrir norðan með þess-
um tónleikum.“
Hann bætir við að hann hafi líka
viljað sýna að hægt væri að halda
stóra og flotta tónleika í bænum,
með góðu hljóðkerfi og ljósabúnaði.
Hann segist hafa fengið mikinn
stuðning frá bæjaryfirvöldum og
fyrirtækjum. „Tónlistarlífið á Ak-
ureyri er orðið mjög blómlegt, mikil
gróska og fullt af flottum hljóm-
sveitum. Þetta er orðinn svo mikill
skóla- og menningarbær sem er frá-
bært fyrir tónlistina.
Aðstaðan hefur líka batnað mik-
ið. Þegar við vorum að byrja vorum
í sífelldum vanda með æfingahús,
vorum til dæmis fyrst í
gömlum bragga þar
sem snjóaði á okkur.“
Um þúsund manns
komast í húsið og segir
Villi að sala á miðum
hafi gengið mjög vel.
Ekkert aldurstakmark
er á tónleikana og eiga
þeir að höfða til allra
aldurshópa. Þegar hafa
nokkrar félagsmið-
stöðvar úr öðrum bæj-
arfélögum keypt miða,
m.a. á Húsavík og í
Garðabæ, en þar á bæ
keyptu menn um
hundrað stykki í einu,
að sögn Villa. Mikil ör-
yggisgæsla verður á
staðnum svo allt gangi vel fyrir sig.
Þá verður gestum boðið upp á pyls-
ur og kók. Sjálfir ætla naglbítarnir
að taka bæði lög af nýju plötunni og
eldra efni. „Svo röppum við kannski
eins og við gerum þegar við erum í
stuði. Þetta verða frábærir tón-
leikar og ball, ég lofa því.“
Stórtónleikar á Akureyri
Morgunblaðið/Jim Smart
Naglbítarnir ætla að trylla allt og tæta ásamt fleiri annað kvöld. Hér eru
þeir Villi, Benni, Kári hins vegar í mestu rólegheitum.
Hvaða göróttu ógeðs-
veigar mun Sveppi
brugga að þessu sinni?
Tónleikarnir hefjast kl. 18. Mið-
inn 1.000 kr. í forsölu en 1.300
kr. við innganginn. Forsala að-
göngumiða er í Pennanum-
Bókvali á Akureyri.
Mikil gróska í
tónlistarlífinu