Morgunblaðið - 19.03.2004, Side 71
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MARS 2004 71
Á MIÐVIKUDAGINN kynntu að-
standendur tónlistarhátíðarinnar
„Aldrei fór ég suður“ dagskrána
með pomp og prakt. Byrjað var á
því að tónlistarmaðurinn Mugison,
hugmyndasmiður hátíðarinnar, tók
lagið fyrir blaða- og sjónvarpsmenn
í beitingarskúr við Ísafjarðarhöfn.
Eftir það var farið í nærliggjandi
fiskvinnsluhús, sem er autt sem
stendur, en þar mun hátíðin fara
fram laugardaginn 10. apríl. Þar
var boðið upp á sushi en efri hæð
hússins hýsir víst sushiverksmiðju!
Mikið umfang
Á þessum formlega blaðamanna-
fundi kynnti Mugison svo hátíðina
en hugmyndina fengu hann og faðir
hans. Hátíðin gengur út á það að
bjóða upp á samslátt þekktra ís-
lenskra tónlistarmanna og lista-
manna frá Ísafirði og nágranna-
byggðum. Þannig koma
hljómsveitir eins og Singapore
Sling, gusgus og Trabant vestur og
listamenn eins og Steindór And-
ersen og Kjartan Sveinsson úr Sigur
Rós, en hann kemur með nýja sveit
sína, Lonesome Traveller. Með þeim
munu svo heimamenn troða upp,
rokksveitir eins og BMX, 9/11 og
Apollo, æringinn Dóri Hermanns,
Flateyringurinn Siggi Björns og
hljómsveit og bæjarstjórinn mun
þeyta skífur sem Haddi bæjó.
Mugison sagði að umfangið væri
sannarlega mikið og í raun hefði
aldrei verið ráðist í viðlíka hátíð áð-
ur. Framhald yrði á svona hátíð ef
vel gengi. Aðrir sem koma fram eru
Borko, Dr. Gunni og hljómsveit,
Funerals, Gjörningaklúbburinn,
Muggi (faðir Mugison), Kira Kira,
Hudson Wayne, Jóhann Jóhannsson,
Jói 701, Kippi Kanínus, Óli Palli,
Mugison, Skúli Þórðar, Tristian,
Villi Valli, Þórhallur á Þingeyri og
Olavi.
Greipur Gíslason, framkvæmda-
stjóri hátíðarinnar, sagði að þetta
væri að sjálfsögðu kjörið tækifæri
fyrir fólk að slá tvær flugur í einu
höggi og kynna sér lífið á Ísafirði
um leið, enda kemur bærinn að
framkvæmd og fjármögnun hátíð-
arinnar. Menningarlíf Ísafjarðar sé
með allra líflegasta móti og þessi
hátíð sé skemmtileg viðbót við það.
Boð hafa verið send til um tutt-
ugu erlendra blaðamanna og á há-
tíðina kemur m.a. sex manna hópur
frá Kaliforníu til að gera heimild-
armynd um hana.
Dagskrá hátíðarinnar er frá
16.00 til 00.00 og er enginn að-
gangseyrir.
Þess má geta að á sama tíma og
hátíðin er fer fram skíðavikan á Ísa-
firði (7.–12. apríl). Nánari upplýs-
ingar um „Aldrei fór ég suður“ eru
vistaðar á vef skíðavikunnar eins og
sést hér að neðan.
Vestfirsk skemmtan
Morgunblaðið/Arnar Eggert Thoroddsen
Þrír forkólfar hátíðarinnar á gangi
við Ísafjarðarhöfn. F.v. Rúnar Óli
Karlsson, ferðamálafulltrúi Ísa-
fjarðarbæjar, Mugison og Greipur
Gíslason, framkv.stj. hátíðarinnar.
Morgunblaðið/Þorkell
Kjartan Sveinsson, hljómborðsleik-
ari Sigur Rósar, kemur með sveit
sína The Lonesome Traveller á há-
tíðina. Mögulega verða fleiri Sigur
Rósar meðlimir með í för.
Aldrei fór ég suður – tónlistarhátíð á Ísafirði 10. apríl
Ísafjörður. Morgunblaðið.
arnart@mbl.is
www.skidavikan.is/festival
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.15
Sýnd kl. 6, 8.30 og 11. B.i. 16 ára. Sýnd kl. 4, 6 og 8
Sýnd kl. 10.15. B.i. 16.
Sýnd kl. 4. Íslenskt tal.
Charlize Theron:
fyrir besta leik í aðalhlutverki.
Charlize Theron:
Golden Globe verðlaun
fyrir besta leik í
aðalhlutverki.
FRUMSÝNINGFRUMSÝNING
Ekki eiga við
hattinn hans.
Kötturinn
með hattinn
Frábær mynd fyrir alla
fjölskylduna. Byggð á hinni
sígildu bók sem komið hefur
út í íslenskri þýðingu.
Hinn frábæri Mike Myers
(Austin Powersmyndirnar)
fer á kostum í myndinni.
Ein umtalaðasta og aðsóknarmesta mynd
allra tíma
Skonrokk
Jack Black fer
á kostum í
geggjaðri
grínmynd sem
rokkar!
SV Mbl
LÆRÐU
AÐ ROKKA!!
MIÐAVERÐKR. 500.
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
Allir þurfa félagsskap
Sýnd kl. 10.10.
Besta frumsamda
handrit
Sýnd kl. 5.40 og 8.
Sýnd kl. 6.
www .regnboginn.is
Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 14.
Fleiri börn...meiri vandræði!
Frumsýning
HP. Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 6, 8.30 og 11.
Sýnd kl. 6, 8.30 og 11. B.i. 16 ára.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
2
40
52
03
/2
00
4 Nokia 3200
Myndavélasími
Stærð myndar 352 x 288 punktar
Litaskjár 4.000 litir
Minni 1 MB
Verð 19.900 kr.
Verslanir Og Vodafone: Kringlunni, Smáralind, Síðumúla 28, Skífunni Laugavegi 26,
Hafnarstræti Akureyri og umboðsmenn. Þjónustuver sími 1414, www.ogvodafone.is
Frítt að senda Myndskilaboð til 1. sept. 2004.
Símann er eingöngu hægt að nota með símkorti frá Og Vodafone.
Risapáskaegg fylgir!
M
yndskilab
oð
Frí
tt að senda