Morgunblaðið - 19.03.2004, Qupperneq 72
72 FÖSTUDAGUR 19. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÖRN Elías Guðmundsson, öðru
nafni Mugison, semur tónlistina
fyrir Niceland, væntanlega mynd
Friðriks Þórs Friðrikssonar.
Að sögn Mugison benti handrits-
höfundur Niceland, Huldar Breið-
fjörð, Friðriki Þór leikstjóra á
hann. Einhvern tíma hittust hann
og Friðrik svo á förnum vegi og
ámálgaði Friðrik þá hugmynd við
hann að hann kæmi að vinnu við
tónlist myndarinnar. Síðan leið
u.þ.b. ár þangað til Friðrik hafði
samband aftur. Þá var ákveðið að
kýla á þetta og fékk Mugison einn
mánuð til að semja og taka upp.
„Mér fannst gott að fá svona
áskorun,“ segir hann blaðamanni,
þar sem hann situr í eldhúsi sínu
við Mjallargötu 1 á Ísafirði. „Mér
fannst þetta mjög lítill tími en síð-
ustu plötu mína (Lonely Mountain)
vann ég á hálfu ári. Pressan var
samt góð fannst mér.“
Tónlistin er blanda af stuttum
stemmum og hefbundnari laga-
smíðum og samdi Mugison tónlist-
ina á Ísafirði og notaðist m.a. við
orgelið sem er í kirkju staðarins.
Mugison hefur slegið næstu eig-
inlegu plötu sinni á frest vegna
vinnunnar við Niceland. Hún er þó
væntanleg seint á þessu ári og
kemur í kjölfar Lonely Mountain,
plötu Mugison frá 2002, frábæru
verki sem vakti á honum verð-
skuldaða athygli.
Niceland kemur svo í kvik-
myndahús á næstu mánuðum.
Framundan hjá Mugison er hins
vegar spilamennska í Bretlandi og
Frakklandi og meðal annars mun
hann spila erlendis með múm í
maí.
Þá er nýkomin út tólftomman
„Sea Y“ á merki Matthew Herbert,
Lifelike. Platan inniheldur fjögur
lög, tvö þeirra eru af Lonely
Mountain og síðan eru tvær endur-
hljóðblandanir af lögunum. Meðal
annars vélar Arto Lindsey um eitt
lagið en hann er að fara að vinna
með Björk að nýrri plötu hennar.
Semur tónlist fyrir kvikmyndina Niceland
Mugison er sem stendur búsettur á Ísafirði og tók hann upp tónlistina þar.
Góð pressa
Ísafjörður. Morgunblaðið.
arnart@mbl.is
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 5.50, 8 og 10.10.
KRINGLAN
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.10.
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5.50, 8 og 10.10.
FRUMSÝNING
Sprenghlægileg gamanmynd þar sem Ben Stiller og
Owen Wilson fara á kostum sem súperlöggur
á disco-tímabilinu!HJ. MBL
ÓHT. Rás2
Sýnd kl. 6.
Kvikmyndir.com
SV MBL
DV
Sýnd kl. 6, 8 og 10.05
Sean Penn
besti leikari
í aðalhlutverki
Tim Robbins
besti leikari
í aukahlutverki
Renée Zellweger
besta leikkona
í aukahlutverki
Sýnd kl. 5.30 og 9.15. B.i. 16.
Kvikmyndir.com
HJ MBL
Sýnd kl. 8 og 10.
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10.
J.H.H
Kvikmyndir.com
„Stórkostlegt
kvikmyndaverk“
HL. MBL
Síðustu sýningar á
þessum frábæru heimildarmyndum
SV MBL
Sýnd kl. 6. Sýnd kl. 8.15.
SV MBL
-Roger Ebert
„Bráðfyndin“
HJ. MBL
Skonrokk
Ó.H.T. Rás2
FULLT HÚS HJÁ ÖLLUM HELSTU
GAGNRÝNENDUM LANDSINS!
„Ótrúlega áhrifarík.
Frumleg, fyndin og
elskuleg.“
-BÖS, Fréttablaðið
„Hundrað sinnum
fyndnari en Ben
Stiller á besta degi.“
-VG. DV
FRUMSÝNING
Sýnd kl. 8.
Sprenghlægileg gamanmynd þar sem Ben Stiller og
Owen Wilson fara á kostum sem súperlöggur á disco-tímabilinu!
Sýnd kl. 10.20. B.i. 16.
www.landsbanki.is
sími 560 6000
Árlega veitir Landsbankinn ellefu námsstyrki til virkra
viðskiptavina Námunnar.
Styrkirnir skiptast þannig:
• 3 styrkir til framhaldsskóla- og iðnnáms á Íslandi, 100.000 kr. hver
• 2 styrkir til háskólanáms á Íslandi, 200.000 kr. hvor
• 2 styrkir til BS/BA-háskólanáms erlendis, 300.000 kr. hvor
• 2 styrkir til meistara/doktors-háskólanáms erlendis, 400.000 kr. hvor
• 2 styrkir til listnáms, 200.000 kr. hvor
Umsóknarfrestur er til og með 31. mars.
ÍS
L
E
N
S
K
A
A
U
G
L
Ý
S
IN
G
A
S
T
O
F
A
N
/S
IA
.I
S
L
B
I
2
3
5
9
5
0
2
/2
0
0
4
Námsstyrkir til Námufélaga
Kjörið tækifæri til að fá fjárhagslegan
stuðning meðan á námi stendur
Allar nánari upplýsingar
má finna á www.landsbanki.is
og þar má einnig nálgast
skráningarblað sem nauðsynlegt
er að fylgi hverri umsókn.
Umsóknum skal skilað í næsta
útibú Landsbankans, merkt:
Námustyrkir, Markaðs- og
þróunardeild Landsbankans,
Austurstræti 11, 155 Reykjavík.
Styrkirnir eru afhentir
í byrjun maí.