Morgunblaðið - 22.03.2004, Síða 11
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. MARS 2004 11
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri í vor til að dveljast við
frábærar aðstæður á suðurströnd Spánar í 24 nætur á
ótrúlegum kjörum. Beint flug til Benidorm þar sem þú nýtur
þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann og getur valið um
spennandi kynnisferðir á
meðan á dvölinni stendur.
Við bjóðum við þér góð
íbúðarhótel á meðan á dvölinni
stendur.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Vorferð til
Benidorm
25. apríl - 24 nætur
frá kr. 29.995
Verð frá kr. 19.990
Flugsæti með sköttum, netverð.
Verð frá kr. 29.995
M.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára,
stökktutilboð, 25. apríl, 24 nætur. Netverð.
Verð kr. 39.990
M.v. 2 í íbúð, stökktutilbð, 24 nætur. Flug,
gisting, skattar. Netverð.
Tryggðu þér síðustu sætin
FULLTRÚAR frá samkeppnisyfir-
völdum Evrópusambandsríkjanna
hittast í dag á fundi í Brussel og
taka þar að öllum líkindum ákvörð-
un um að sekta hugbúnaðarfyrir-
tækið Microsoft um hundruð millj-
óna dollara, tugi milljarða íslenzkra
króna, vegna meintra brota gegn
evrópskri samkeppnislöggjöf. Talið
er að sektin geti orðið sú hæsta,
sem ákveðin hefur verið í sam-
keppnismáli. Fundurinn er haldinn
til undirbúnings fundi fram-
kvæmdastjórnar ESB á miðviku-
dag, en þar kann að verða tekin
lokaákvörðun um sektina.
Reglur ESB heimila fram-
kvæmdastjórninni að sekta fyrir-
tæki, sem brjóta samkeppnislög,
um allt að 10% af veltu þeirra á
heimsvísu. Hæsta sekt, sem beitt
hefur verið, var í máli fram-
kvæmdastjórnarinnar gegn Roche
Holding AG, einu af nokkrum fyr-
irtækjum sem fundin voru sek um
samráð um verð á vítamínum. Sú
sekt nam innan við 2% af veltu fyr-
irtækisins. Ef sama hlutfalli væri
beitt í málinu gegn Microsoft yrði
fyrirtækið að reiða fram 700 millj-
ónir dollara, nærri 50 milljarða ís-
lenzkra króna.
Aðgangur að
grunnkóðanum
Heimildarmenn í Brussel telja
líklegt að Microsoft verði fundið
sekt um að misnota markaðsráð-
andi stöðu sína á sviði stýrikerfa til
að auka hlutdeild sína á markaði
fyrir margmiðlunarhugbúnað og
netþjóna. Búizt er við að ESB skipi
Microsoft að gefa keppinautum sín-
um aðgang að stærri hluta grunn-
kóða Windows-stýrikerfisins og að
bjóða ódýrari útgáfu af Windows án
Media Player-hugbúnaðarins,
a.m.k. tölvuframleiðendum í Evr-
ópu.
Eins og greint var frá í Morg-
unblaðinu á laugardag náðist ekki
samkomulag í viðræðum fram-
kvæmdastjórnarinnar og Microsoft
í síðustu viku, þar sem Microsoft
vildi ekki fallast á kröfur fram-
kvæmdastjórnarinnar um að fyrir-
tækið takmarkaði þær nýjungar
sem það bætti við Windows-stýri-
kerfið í framtíðinni.
Microsoft hefur hótað að áfrýja
ákvörðun framkvæmdastjórnarinn-
ar, sem gæti enn tafið málið, en það
hefur nú verið til meðferðar í fimm
ár.
Búizt við ákvörðun ESB í máli
Microsoft í vikunni
Gert ráð
fyrir millj-
arðasektum
Brussel. AP.
SKÝRR hf. hefur kært Umferð-
arstofu til Samkeppnisstofnunar
vegna meintra brota á samkeppn-
islögum. Í kæru Skýrr kemur fram
að kæran er lögð fram í framhaldi
af því að Umferðarstofa hefur lok-
að fyrir aðgang Skýrr að upplýs-
ingum úr ökutækjaskrá. Deila
Skýrr og Umferðarstofu snýst
meðal annars um uppflettingu í
ökutækjaskrá eftir kennitölum, en
þær upplýsingar eru að sögn Skýrr
þær verðmætustu í skránni. Skýrr
gat áður veitt aðgang að uppflett-
ingum eftir kennitölum, en Um-
ferðarstofa hefur nú ákveðið að hún
ein skuli veita þá þjónustu. Afleið-
ingarnar segir Skýrr vera þær að
viðskiptavinir fyrirtækisins þurfi að
leita til Umferðarstofu um upplýs-
ingarnar og Skýrr hafi því tapað
viðskiptum.
Umferðarstofa fer í sam-
keppni
Í kæru Skýrr segir að eftir að
Umferðarstofa var sett á fót með
lögum árið 2002 hafi stofnunin
fljótlega ákveðið að reka tölvu- og
upplýsingakerfi fyrir ökutækjaskrá
innan veggja stofnunarinnar, en
fram að þeim tíma og frá árinu
1984 hafi Skýrr hýst og rekið öku-
tækjaskrá fyrir dómsmálaráðuneyt-
ið. Skýrr hafi veitt viðskiptavinum
sínum aðgang að ökutækjaskrá og
hafi sá aðgangur verið að mestu
óbreyttur til febrúar í fyrra. Þá
hafi Umferðarstofa og Skýrr samið
um aðgang Skýrr að upplýsingum
úr ökutækjaskrá, en ekki hafi verið
gert ráð fyrir því samkvæmt þess-
um samningi að hægt væri að leita
að ökutækjum eftir kennitölum eig-
enda og þá þjónustu hafi Umferð-
arstofa ekki heldur boðið.
Í júní í fyrra hafi Umferðarstofa
farið að bjóða þessa þjónustu, sem
sé sú langverðmætasta sem hægt
sé að bjóða í tengslum við öku-
tækjaskrá. Fyrir hverja fyrirspurn
eftir kennitölu innheimti Umferð-
arstofa 700 króna gjald, en 14
krónur fyrir aðrar fyrirspurnir.
Skýrr telur að með þessari gjald-
töku sé stofnunin að misnota mark-
aðsráðandi stöðu sína og verðlagn-
ingin sé ekki rökstudd á grundvelli
raunverulegs kostnaðar sem af
þjónustunni leiðir. Af þessum sök-
um fer Skýrr í kæru sinni fram á
fjárhagslegan aðskilnað innan Um-
ferðarstofu.
Tap viðskipta
Í kæru Skýrr kemur fram að
með því að Umferðarstofa fór að
bjóða þessa þjónustu hafi aðrir að-
ilar á markaðnum ekki átt mögu-
leika á að veita stofnuninni sam-
keppni á jafnréttisgrundvelli og
myndu því missa öll viðskipti sín til
stofnunarinnar, en auk Skýrr mun
Lánstraust hafa boðið þessa þjón-
ustu. Skýrr hafi brugðist við þessu
með því að gera viðskiptavinum
sínum mögulegt að leita eftir
kennitölu, en í ágúst í fyrra hafi
Umferðarstofa bannað þetta. Skýrr
telur að með því að bjóða sjálf
meiri þjónustu en hún heimilar
einkaaðilum, sem hún hafi samið
við um að veita þjónustu á þessu
sviði, brjóti Umferðarstofa sam-
keppnislög.
Auk þess að krefjast í kæru sinni
fjárhagslegs aðskilnaðar innan Um-
ferðarstofu krefst Skýrr þess að
samkeppnisráð grípi þegar til að-
gerða til að tryggja samkeppni á
þeim markaði sem veiting upplýs-
inga úr ökutækjaskrá sé. Þá verði
Umferðarstofu gert skylt að semja
við þá sem vilja veita þessa þjón-
ustu um aðgang að öllum leitareig-
inleikum og gögnum í ökutækja-
skrá og að gjald fyrir það verði í
samræmi við kostnað.
Skýrr kærir Umferðarstofu
Krafa um aukinn aðgang að ökutækjaskrá og fjárhagslegan aðskilnað
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● ÚRSKURÐARNEFND um upplýs-
ingamál hefur skyldað Landmæl-
ingar Íslands til að sýna Loftmyndum
afnotasamning um hæðarlíkan af Ís-
landi, svo og lista yfir viðtakendur
dreifibréfs frá því í desember í fyrra,
þar sem boðað var til kynning-
arfundar um fyrirhugað útboð á gerð
hæðarlíkansins.
Málsatvik eru í stuttu máli þau að í
desember var tilkynnt að fyrirhugað
væri að bjóða út gerð hæðarlíkans af
Íslandi. Kærandi, Loftmyndir, hefur
kvartað yfir því að Landmælingar láti
útbúa hæðarlíkan, þar sem Loft-
myndir hafi þegar útbúið slíkt líkan af
nær öllu landinu og hafi áform um að
ljúka því. Loftmyndir vildu fá upplýs-
ingar um afnotasamning sem Land-
mælingar hyggjast gera við nokkrar
ríkisstofnanir um hæðarlíkanið, auk
þess sem fyrirtækið vildi fá upplýs-
ingar um það hvaða stofnanir hefðu
fengið samninginn afhentan og hverj-
ar þeirra hefðu undirritað hann, en
Landmælingar höfðu synjað Loft-
myndum um þessar upplýsingar.
Landmælingum gert
að veita upplýsingar
● GÖRAN Persson, forsætisráð-
herra Svíþjóðar,
telur að Evrópu-
sambandið muni
ekki ná markmiði
Lissabonferlisins
svokallaða um
að ESB verði
samkeppnisfær-
asta hagkerfi
heims árið 2010.
„Við náum því
ekki í þessari tilraun en okkur miðar
áfram og við höfum búið til ferli,“
hefur Dagens Industri eftir Persson.
Forsætisráðherrann sagði að í
Lissabonferlinu hefði gengið vel að
skapa sterkan innri markað fyrir fjar-
skipti, orku og fjármálaþjónustu, en
hins vegar gengi hægt að koma á
ýmsum umbótum, jafnvel þótt
ákvarðanir um þær hefðu verið tekn-
ar. Hann nefndi sem dæmi áformin
um sameiginlegt evrópskt einka-
leyfi.
Markmið um
samkeppnisfærni
næst ekki
● VERZLANAKEÐJAN Wal-Mart er
þriðja árið í röð stærsta fyrirtæki
Bandaríkjanna og efst á lista tíma-
ritsins Fortune yfir 500 stærstu fyr-
irtæki landsins árið 2003. Listinn er
byggður á veltu fyrirtækjanna og olíu-
verðshækkun kom olíufélaginu Exx-
on í annað sætið að þessu sinni í
stað bílaframleiðandans General
Motors, sem verður að láta sér lynda
þriðja sætið. Í fjórða sætinu er Ford
Motor Co. og General Electric í því
fimmta, en þessi fyrirtæki voru í
sömu sætum á listanum fyrir 2003.
Olíufélagið ChevronTexaco Corp.
færðist upp um sæti og er sjötta,
annað olíufélag, ConocoPhillips,
færðist upp um fimm sæti og er sjö-
unda. Bankasamstæðan Citigroup
er í áttunda sæti, tölvufyrirtækið IBM
í því níunda og tryggingafélagið Am-
erican International Group tíunda.
Fyrirtækin 500 á listanum juku
hagnað sinn á árinu, andstætt því
sem ýmsir höfðu spáð. Hagnaður
jókst í 34 af 39 greinum, sem For-
tune fylgist með.
Wal-Mart stærst
þriðja árið í röð
ÞORVALDUR Egill Sigurðsson,
framkvæmdastjóri rekstrarlausna
hjá Skýrr, segir aðspurður að um
milljónir króna á ári sé að tefla og
Skýrr muni höfða skaðabótamál af
þeim sökum. Málið snúist þó ekki
um peninga, heldur meginsjón-
armið um samkeppni ríkisins við
einkafyrirtæki.
Þorvaldur segir að miðlun upp-
lýsinga úr ökutækjaskrá hafi verið
á samkeppnismarkaði og að Um-
ferðarstofa sé að einoka þjónustu
sem sé í eðli sínu á samkeppn-
ismarkaði. Hann segir að ríkisvæð-
ingin sé víða í kerfinu og hún sé
orðin þvílík að stjórnmálamönnum
og ráðherrum blöskri þróunin.
Hann segir sumar ríkisstofnanir
reka eigin stefnu um uppbyggingu
tölvudeilda í andstöðu við stefnu
ríkisstjórnarinnar, sem meðal ann-
ars birtist í innkaupastefnu ríkisins,
sem gefin sé út af fjármálaráðu-
neytinu, og í stefnunni um upplýs-
ingasamfélagið á árunum 2004–
2007, sem forsætisráðuneytið hafi
gefið út nýlega.
Gagnrýnir Umferðarstofu Þorvaldur E. Sigurðsson hjá Skýrr segir rík-
isstofnanir reka eigin stefnu um uppbyggingu tölvudeilda í andstöðu við
stefnu ríkisstjórnarinnar.
Ríkisvæðingin er víða
Aðalfundur Landssíma Íslands hf.
verður haldinn kl. 17 í húsnæði Sím-
ans í Ármúla 25.
Í DAG