Morgunblaðið - 22.03.2004, Blaðsíða 30
HESTAR
30 MÁNUDAGUR 22. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
SAGÐI Þorvaldur að við værum kannski ekki
alveg komin að þeim mörkum en hins vegar
væri orðið vel tímabært að fara að huga alvar-
lega að þessum málum. Í erindi hans kom fram
að svokölluð virk stofnstærð hefði minnkað úr
365 hrossum í 97 frá 1989. Útskýrði Þorvaldur
til samanburðar að ef einn hestur væri tekinn
og klónaður hundrað sinnum væri virk stofn-
stærð þess stofns eitt hross. Með erindinu birti
Þorvaldur lista yfir þau hross sem mesta út-
breiðslu hafa í stofninum og trónir þar að sjálf-
sögðu efstur Hrafn frá Holtsmúla með 9,65%
erfðahlutdeild en næst koma:
Síða frá Sauðárkróki 6,36
Sörli frá Sauðárkróki, 6,18
Sörli 71 frá Svaðastöðum, 5,66
Orri frá Þúfu, 4,90
Hervar frá Sauðárkróki, 4,31
Fengur frá Eiríksstöðum, 3,96
Léttir 137 frá Svaðastöðum, 3,89
Otur frá Sauðárkróki, 3,82
Ragnars-Brúnka, 3,81
Nökkvi frá Hólmi, 3,71
Blakkur frá Hofsstöðum, 3,52
Ófeigur frá Flugumýri, 3,49
Sokki frá Syðra-Vallholti, 3,30
Skuggi frá Bjarnanesi, 3,50
Þáttur frá Kirkjubæ, 2,95.
Tölu virka erfðahópsins sagði Þorvaldur ekki
mega fara undir 50 hross og taldi hann hrossa-
rækt á Íslandi komna í veruleg vandræði ef
skyldleikinn ykist svo mikið. Þá gæti farið að
draga úr erfðaframförum og líkur á skyldleika-
ræktarhnignun að aukast en hana þarf að kanna
til hlítar í stofninum.
En hvað er þá til ráða?
Sagði Þorvaldur að í fyrsta lagi þyrfti að
reyna að taka tillit til skyldleika hrossa í út-
reikningum á kynbótamatinu þannig að þeir ein-
staklingar sem eru mjög skyldir stofninum rað-
ist lægra og nefndi hann sem dæmi að ef tveir
einstaklingar væru jafnir skyldi þeim er meiri
skyldleika hefði við stofninn raðað lægra. Þá
þarf að finna jafnvægi fyrir mikilli erfðaframför
og erðabreytileika.
Hann sagði að hafa bæri í huga að þegar úr-
val er stundað í ræktun ætti sér alltaf stað
minnkun á erfðafjölbreytileika. Eðli málsins
samkvæmt sæktu flestir í bestu einstaklingana í
öllu ræktunarstarfi.
Þá taldi hann vera möguleika á að frysta sæði
úr hestum á leið úr landi eða flytja inn erfðaefni
erlendis frá. Þetta byggðist að sjálfsögðu á því
að menn næðu fullum tökum á frystingu sæðis
úr hestum, sem virðist nú vera í sjónmáli.
Ágúst Sigurðsson hrossaræktarráðunautur
hélt einnig erindi á ráðstefnunni þar sem hann
leit til framtíðar og kom hann víða við í erindi
sínu. Ræddi hann meðal annars hugmyndir sín-
ar um breytt vinnubrögð við dóma þannig að
mat á huglægum atriðum yrði hlutlægara, eins
og til dæmis að vinna meira út frá mælingum á
skrokki hrossanna, tímatöku á skeiði í kynbóta-
dómi og láta tölvur mæla og meta mýkt og takt
hrossa svo eitthvað sé nefnt. Hann gerði rækt-
unarmarkmiðið að umtalsefni og lagði áherslu á
að hross væru ræktuð bæði fyrir keppni og
ferðalög og nefndi þar til sögunnar þol og fót-
vissu og einnig ratvísi. Einnig lýsti hann áhuga
sínum á innflutningi á erfðaefni úr íslenskum
hrossum erlendis.
Ráðstefnan þótti afar vel heppnuð en þar
mættu á milli sjötíu og áttatíu manns og var
góður rómur gerður að erindum þeim er flutt
voru.
Aldarafmælisráðstefna Hrossaræktarfélags Austur-Landeyinga
Tímabært að huga að skyldleika
innan íslenska hrossastofnsins
Austur-Landeyingar héldu
með veglegum og viðeigandi
hætti upp á aldarafmæli
hrossaræktarfélags síns á
föstudag með ráðstefnu í
Gunnarshólma um hrossa-
rækt. Meðal þeirra sem
fluttu erindi var Þorvaldur
Kristjánsson, meistaranemi
í kynbótafræði, sem fjallaði
um könnun sína á skyldleika
innan íslenska hrossastofns-
ins. Valdimar Kristinsson
ræddi stuttlega við Þorvald
og spurði hann hvort komið
væri að hættumörkum.
Morgunblaðið/Vakri
Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra setti ráðstefnuna og flutti skemmtilega ræðu í tilefni dagsins.
Næstur honum er Bergur Pálsson, formaður Hrossaræktarfélags A-Landeyja, þá Pétur Halldórsson
ráðstefnustjóri og svo Ágúst Sigurðsson, hrossaræktarráðunautur BÍ.
MÝVATN open var nú haldið öðru
sinni á ís á Mývatni.
Þá fór Kynjatölt íþróttadeildar
Fáks og hestavöruverslunar
Ástundar fram laugardagskvöldið
20. mars í Reiðhöllinni í Víðidal.
Það var Ástund sem gaf gullslegna
verðlaunagripi í kvennaflokkunum
en karlarnir fengu sína gripi silf-
urslegna, einnig gefna af Ástund.
Auk verðlaunagripanna fengu sig-
urvegarar hvers flokks folatoll en
þeir eru undir Hróa frá Skeiðhá-
holti, Kolvið frá Skeiðháholti,
Geisla frá Sælukoti og Óskahrafn
frá Brún.
Grillnestismót Harðar fór fram
á laugardag í blíðskaparveðri.
Mikil skráning var í öllum flokk-
um, sérstaklega hjá þeim yngri, og
mikið um góð hross í öllum flokk-
um.
Mývatn open haldið á Mývatni á
laugardag
Tölt A1
Björn Jónsson og Glampi frá Vatns-
leysu 7,83/8,012.
Sigurður Sigurðarson og Spönn frá
Hafsteinsstöðum 7,23/7,533.
Þorbjörn Hr. Matthíasson og Von frá
Halldórsstöðum 7,5/7,384.
Hans Kjerúlf og Ægir frá Móbergi
7,15/7,305.
Þórarinn Eymundsson og Kraftur
frá Bringu 7,30/7,20
Tölt B1.
Einar Víðir Einarsson og Spói frá
Halldórsstöðum 6,65/6,352.
Hallfreður Elísson og Glói frá Stóra-
Sandfelli 6,45/6,333.
Úlfhildur Sigurðardóttir og Haddi
frá Akureyri 5,80/6,104.
Hjörtur Magnússon og Glanni frá
Þverá 5,85/5,935.
Oddný Lára Guðnadóttir og Hraunar
frá Hrafnagili 6,23/5,08
100 metra skeið flugskeið
1. Magnús Skúlason og Stör frá Salt-
vík, 8,02 sek.
2. Atli Sigfússon og Týr frá Ak-
ureyri, 8,75 sek.
3. Höskuldur Jónsson og Rispa frá
Bólstað, 9,04 sek.
4. Anna Skúlason og Dýna frá Björg-
um, 9,29 sek.
5. Baldvin Ari Guðlaugsson og Sólar
frá Hóli II 9,90 sek.
Grillnestismót Harðar var hald-
ið á Varmárbökkum á laugardag
Pollar
Karen Sif Heimisdóttir og Strákur,
8v.
Þórólfur Sigurðsson og Hátíð frá
Torfufelli, 10v
Harpa Snorradóttir og Pjakkur, 13v.
Úlfar D. Lúthersson og Prinsessa frá
Stóra-Hofi, 7v
Katarína Guðmundsdóttir og Glófaxi
frá Viðvík, 25v
Aníta Björnsdóttir og Blesa frá Bæ,
18v
Guðmundur Hreiðar og Ófeigur frá
Reykjavík, 10v
Sigdís L. Sigurðardóttir Vaka
Magnea R. Svansdóttir Gaukur
Börn
1. María G. Pétursdóttir og Blesi frá
Skriðulandi, 14v
2. Sebastian Sævarsson og Strengur
3. Sigurgeir Jóhannsson og Blæting-
ur frá Byrgisgerði, 10v
4. Hildur Kristín Þorvarðardóttir og
Pipar, 9v
5. Saga Guðmundsdóttir og Kolur,
16v
Unglingar
1. Sigríður Ingvarsdóttir og Geisli
frá Blesastöðum 6v
2. Þórhallur D. Pétursson og Embla
frá Mosfellsbæ, 7v
3. Halldóra Ingvarsdóttir og Geysir
frá Stóru-Hildisey, 5v
4. Heiðdís Snorradóttir og Þór frá
Álfhólahjáleigu, 12v
5. Halldóra M. Sigurðardóttir og
Blesi frá Mosfellsbæ, 14v
Ungmenni
1. Ragnhildur Haraldsdóttir og Spói
frá Blesastöðum, 8v
2. Ari Jónsson og Þytur frá Kross-
um, 11v
3. Gunnar M. Jónsson og Embla frá
Miklabæ, 8v
4. Halldóra S. Guðlaugsdóttir og
Mökkur frá Björgum
5. Steinþór Runólfsson og Brandur
frá Hellu, 12v
Konur
1. Helle Laks og Spaði frá Kirkjubæ,
8v
2. Rakel Sigurhansdóttir og Strengur
frá Hrafnkelsstöðum, 11v
3. Berglind Árnadóttir og Vikivaki
frá Enni, 8v
4. Ásta B. Benediktsdóttir og Snót
frá Akureyri, 8v
5. Birgitta Magnúsdóttir og Mörður
frá Efri-Rauðalæk, 7v
Karlar
1. Úlfar Guðmundsson og Gullfoss
frá Gerðum, 10v
2. Birkir Hafberg Jónsson og Gyðja
frá Vindási, 7v
3. Ingvar Ingvarsson og Sesar frá
Blesastöðum, 5v
4. Játvarður Ingvarsson og Sál frá
Búlandi, 6v
5. Guðmundur Þór og Skuggi 7 vetra
Kúskerpi, 10v
Atvinnumenn
1. Elías Þórhallsson og Elva frá Mos-
fellsbæ, 8v
2. Þorvarður Friðbjörnsson og Dropi
frá Dalbæ, 9v
3. Halldór Guðjónsson og Sjóður frá
Dallandi, 7v
4. Þórir Grétarsson og Brá frá Stóra-
Hofi, 6v
5. Súsanna Ólafsdóttir og Flugar frá
Hvítárholti
100 metra flugskeið
1. Halldór Guðjónsson og Dalla frá
Dallandi, 10v
2. Jón Styrmisson og Skafl frá Norð-
ur-Hvammi
3. Jóhann Þór og Gráni frá Grund,
11v
4. Þórir Grétarsson og Skundi frá
Svignaskarði, 16v
5. Björgvin Jónsson og Eldur frá
Vallarnesi, 13v
Kynjatölt Fáks og Ástundar
Karlar II
Karl Á. Sigurðsson á Ögra frá
Laugavöllum, Sleipni, 6,62
Árni Guðmundsson á Öðlingi frá
Langholti, Fáki, 5,65
Gunnar M. Jónsson á Dropa frá Sel-
fossi, Herði, 5,61
Guðjón G. Gíslason á Snúð frá Lang-
holti 2, Fák, 5,58
Ari B. Jónsson á Skafli frá Norður-
Hvammi, Herði, 5,53
Konur II
Anna Sigurðardóttir á Roða frá
Finnastöðum, Fáki, 5,86
Ásdís B. Guðmundsdóttir á Stjörnu-
fáki frá Miðkoti, Fáki, 5,82
Auður Möller á Gyðju frá Þorsteins-
stöðum, Fáki, 5,78
Susi Haugaard á Kolskör frá Ármóti,
Fáki, 5,54
Camilla Friis á Mekki frá Skarði,
Fáki, 5,51
Karlar I
Halldór Svansson á Hugbúa frá
Kópavogi, Gusti, 6,13
Snorri J. Valsson á Eini frá Reykja-
vík, Ljúfi, 6,11
Jón Ó. Guðmundsson á Hvata frá
Saltvík, Andvara, 5,76
Aron M. Albertsson, Sörli, 5,63
Snorri Dal á Flugari frá Litlu-
Tungu, Sörla, 5,63
Konur I
Erla G. Gylfadóttir á Brúnku frá
Varmadal, Andvara, 6,60
Íris H. Grettisdóttir á Nubbi frá Hól-
um, Fáki, 6,15
Maríanna Gunnarsdóttir á Hyl frá
Stóra-Hofi, Fáki, 6,09
Rósa Valdimarsdóttir á Heiki frá Álf-
hólum, Fáki, 6,04
Anna B. Ólafsdóttir á Vöku frá Hafn-
arfirði, Sörla, 5,57
Hestamót sunnan heiða og norðan
AÐALFUNDUR Hestamanna-
félagsins Fáks verður haldinn í kvöld
og verða þá bornir upp reikningar fé-
lagsins sem að þessu sinni hljóða upp
á rétt tæplega fimm milljóna króna
hagnað. Er þetta annað árið í röð sem
félagið er rekið með hagnaði og verð-
ur það að teljast mikil og góð breyting
á þeim bæ. Í þessum hagnaði felast
engar sölur á eignum.
Staðan í rekstri Reiðhallarinnar í
Víðidal stendur ekki með eins miklum
blóma og rekstur félagsins en hún var
rekin með 700 þúsund króna tapi sem
er snöggtum betri útkoma en árið áð-
ur en þá var hún rekin með 1.500 þús-
und króna tapi. Telur formaður fé-
lagsins, Snorri B. Ingason, að þau séu
að ná tökum á rekstri hallarinnar og
ekki sé ólíklegt að hlutirnir komist í
jafnvægi á núlíðandi rekstraári.
Snorri hyggst gefa kost á sér áfram
til formannsstarfa og er svo um alla
aðra stjórnarmenn að Arnari Guð-
mundssyni frátöldum sem gefur ekki
kost á sér til frekari stjórnarsetu.
Einn stjórnarmanna Gunnar Maggi
Árnason lést á árinu og eru því tvö
sæti í stjórninni laus. Fundurinn hefst
klukkan 20:00 og verður hann að
sjálfsögðu haldinn í félagsheimili
Fáks.
Fákur rekinn
með hagnaði
HESTAMENN eru farnir að ger-
ast ansi fyrirferðarmiklir í skauta-
höllum landsins og verða á þessum
vetri haldin ein fjögur mót í
skautahöllum eftir því sem næst
verður komist. Ein keppnin, Bauta-
mótið í Skautahöllinni á Akureyri,
er þegar afstaðin. Næst er það
Stjörnutölt á Akureyri og að venju
í byrjun apríl Ístöltið í Skautahöll-
inni í Laugardalnum í Reykjavík.
Fyrir skömmu var haldin for-
keppni um þátttökurétt þar sem
áttatíu reyndu fáka sína á svellinu
og nítján þeirra unnu sig inn á
mótið.
Alls verða keppendurnir þrjátíu
en boðið verður upp á sérstakan
heimsmeistarariðil þar sem mæta
munu Berglind Ragnarsdóttir
heimsmeistari í fjórgangi, Sigurður
V. Matthíasson heimsmeistari í
fimmgangi og Jóhann Skúlason
heimsmeistari í tölti.
Í sérstökum riðli verða svo Hans
Kjerúlf Ístöltsmeistari 2003, sem
mætir til að verja titilinn sinn. Með
honum verða Ístöltsmeistari 2002
Sigurbjörn Bárðarson og Ístölts-
meistari 2001 Vignir Jónasson.
Spenna kraum-
ar fyrir Ístöltið
♦♦♦