Morgunblaðið - 22.03.2004, Page 36

Morgunblaðið - 22.03.2004, Page 36
DAGBÓK 36 MÁNUDAGUR 22. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Hanseduo kemur í dag Trinket fer í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Reksnes og Hanseduo koma í dag. Mannamót Aflagrandi 40. Vinnu- stofa og leikfimi kl. 9, boccia kl. 10, kl. 14 fé- lagsvist. Hársnyrting, fótaaðgerð. Árskógar 4. Kl. 9–12 handavinna, kl. 10 söngstund, kl. 13–16.30 smíðar, útskurður, kl. 13–16.30 handavinna, kl. 13.30 félagsvist, kl. 16 myndlist. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 9–16 handavinna, kl. 9–12 bútasaumur, kl. 10–11 samverustund, kl. 13–16 bútasaumur, kl. 13.30 dans. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist í Gullsmára 13 kl. 20.30. Fótaaðgerð kl. 10. Skrifstofan er opin í dag kl. 10–11.30. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9 fótaaðgerð, kl. 10–12 verslunin opin, kl. 13 föndur og handavinna. Félagsstarfið Dal- braut 18–20. Kl. 10 leikfimi, kl. 13 brids. Félagsstarfið Dal- braut 27. Kl. 8–16 handavinnustofan op- in, kl. 10–13 verslunin opin, kl. 11–11.30 leik- fimi. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Bað kl. 9– 12, opin vinnustofa, kl. 9–16.30, félagsvist kl. 13.30. Félagsstarf eldri borg- ara Mosfellsbæ, Dval- arheimilinu, Hlað- hömrum. Kl. 16 spænskunámskeið. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ. Kvenna- leikfimi kl. 9.30, kl. 10.20 og kl. 11.15, spænska, framhald, kl. 11.30, glerbræðsla og pílukast kl. 13, spænska, byrjendur, kl. 14. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Opnað kl. 9, pútt í Hraunseli kl. 10–11.30, billj- ardsalurinn opinn til 16, tréútskurður kl. 13, félagsvist kl. 13.30, kóræfing Gaflarakórs- ins kl. 17. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Brids í dag kl. 13. Handmennt, spjall og kaffi kl. 13.30. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9–17 handavinna, kl. 9.30 gler og postu- lín, kl. 13 skák, kl. 20 skapandi skrif. Gullsmári, Gullsmára 13. kl. 9 vefnaður, kl. 10 ganga, kl. 11 boccia, kl. 13 brids og búta- saumur, kl. 20.30 fé- lagsvist. Hraunbær 105. Kl. 9 postlín, keramik og fótaaðgerð, kl. 10 bænastund, kl. 13.30 skrautskrift, kl. 13 hárgreiðsla, kl. 13.30 skrautskrift. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9–15 handmennt, kl. 9– 10 og kl. 10–11 jóga, kl. 13–16 spilað. Fóta- aðgerðir virka daga, hársnyrting þriðju- til föstudags. Korpúlfar, Grafarvogi. Á morgun þriðjudag sundleikfimi í Graf- arvogslaug kl. 9.30. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16 fótaaðgerð, kl. 10– 11 ganga, kl. 13–16.45 opin vinnustofa, mynd- list. Vesturgata 7. Kl. 9–16 fótaaðgerð og hár- greiðsla, kl. 9–10 boccia, kl. 9.15–15.30 handavinna, kl. 9.30– 10.30 boccia, kl. 11–12 leikfimi, kl. 12.15– 13.15 danskennsla, kl. 13–16 kóræfing. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9 hár- greiðsla, kl. 9.30 bók- band, bútasaumur og morgunstund, kl. 10 fótaaðgerðir og boccia, kl. 13 handmennt, glerbræðsla og spilað. Þjónustumiðstöðin, Sléttuvegi 11. Opið frá kl. 9–16. Kl. 13.30 opið hús, m.a. söngur, fé- lagsvist. Þórðarsveigur 1–5 Grafarholti. Kl. 13.30 spiladagur, félagsvist, kaffiveitingar, allir vel- komnir. Félag eldri borgara, Suðurnesjum. Bingó í Selinu, Vallarbraut 4, Njarðvík öll mánu- dagskvöld kl. 20. Gullsmárabrids. Bridsdeild FEBK, Gullsmára, spilar í fé- lagsheimilinu, Gull- smára 13, mánu- og fimmtudaga. Skráning kl. 12.45. Spil hefst kl. 13. Sjálfsbjörg, Hátúni 12. Kl. 19 brids. Minningarkort Minningarspjöld Kristniboðssambands- ins fást á skrifstofunni, Holtavegi 28 (hús KFUM og K gengt Langholtsskóla), s. 588 8899. Í dag er mánudagur 22. mars, 82. dagur ársins 2004. Orð dags- ins: Berið hver annars byrðar og uppfyllið þannig lögmál Krists. Sá sem þykist vera nokkuð, en er þó ekkert, dregur sjálfan sig á tálar. (Gl. 6, 2.-4.)     Borgar Þór Einarssonskrifar í Deigluna um ósigur spurningaliðs MR. „Í gær urðu þau merku tíðindi að Menntaskólinn í Reykja- vík beið lægri hlut í spurningakeppni fram- haldsskólanna, Gettu bet- ur. Það kom í hlut skóla, sem er rúmlega 150 ár- um yngri en Lærði skól- inn, að binda enda á þessa lengstu sig- urgöngu í sögu keppn- innar, Borgarholtsskóla úr Grafarvogi. En þegar sigurganga MR hófst ár- ið 1993 var Borgarholts- skóli ekki til og Graf- arvogur frumstætt samfélag í raun.“     Borgar bendir á að síð-an hafi spurningalið Menntaskólans staðið af sér ótrúlegar samfélags- breytingar; lögfestingu EES-samningsins, einka- væðingu, netvæðingu, gsm-væðingu ungu kyn- slóðarinnar, DVD, sigur KR í Íslandsmótinu í fót- bolta, áður óþekkta upp- sveiflu í efnahagslífinu, hlutabréfaæði og -fall, alþjóðavæðingu og deilur um öryrkjadóma, brott- kast og miðlægan gagna- grunn.     Sigurganga MR í þess-ari vinsælu spurn- ingakeppni hefur þannig verið haldreipi á erfiðum og viðsjárverðum tímum – fasti sem hægt var að miða alla áætlanagerð við, klettur í hafi breyt- inga. Sigur Borgarholts- skóla er hins vegar tím- anna tákn; hið nýja ryður burt því gamla,“ segir Borgar. „Fyrir íhaldsmenn og MR-inga – en pistlahöf- undur er hvort tveggja – getur verið erfitt að kyngja þessu, en ef við lítum blákalt á málið var sigur Borgarholtsskóla á MR í gær ekki einungis sanngjarn og verðskuld- aður, heldur í raun nauð- synlegur fyrir íslenskt samfélag í heild sinni. MR-ingar verða víst, eins og aðrir menn, að sætta sig við að lífið er hverfult. Ósigur MR í gær markar vissulega endalok merks tímabils – end of an era, eins og kaninn segir – og menn verða einfaldlega að tak- ast á við það. En það sem kannski gerir þessi tímamót enn erfiðari að kljást við er sú stað- reynd, að árið 2004 virð- ist ætla að verða ár mik- ils umróts í íslensku samfélagi. Sem kunnugt er mun Davíð Oddsson láta af embætti forsætisráð- herra í haust, en hann tók við því embætti stuttu áður en sig- urganga MR í spurn- ingakeppninni hófst. Og nýlega lét Ari Teitsson af embætti formanns bændasamtakanna eftir áralangt og óeigingjarnt starf í þágu bænda. Það er auðvitað erfitt að tak- ast á við þessar breyt- ingar, þetta umrót, sér- staklega þegar allt virðist ætla að lenda á manni á sama tíma.“ STAKSTEINAR Spurningaliðið og þjóð- félagsþróunin Víkverji skrifar... Kona Víkverja ber óend-anlega virðingu fyrir þrem Íslendingum og allir birtast þeir okkur í sjónvarpi. Hvílík náð það er að eiga þessa menn, segir hún oft á kvöldin þegar bræður okkar í Kristi geisla kærleika inn á heimilið. Fremstur meðal jafningja er Ragnar Gunnarsson, sérlega hugþekkur maður sem ljómar af kærleika og innri friði. Hann er einkar fundvís á geðþekka, einlæga og kærleiksríka við- mælendur sem miðla okkur reynslu sinni af lífinu með Kristi. Gætu margir þáttastjórnendur mik- ið af honum lært, einkum allir aglarnir sem týna sér í dægurmálum en gleyma eilífðinni. Auðvitað væri Kvöldljós ekki til ef Guð hefði ekki gefið okkur Eirík Sig- urbjörnsson, sem fékk þá vitrun að stofna Omega. Með þrautseigju sinni, eldmóði og trúfesti hefur honum tekist að breyta lítilli sjónvarpsstöð, með 10 watta sendi, í stórveldi á íslenskum sjónvarpsmarkaði. Omega er brautryðjandi, varð fyrst íslenskra sjónvarpsstöðva til að senda út allan sólarhringinn, og hefur nú fært út kvíarnar svo um munar, sjón- varpar brátt til 77 landa. Samt er þessa kraftaverks aldrei getið þegar rætt er um útrás Íslendinga á sviði viðskipta eða menningar. Síðastur en ekki sístur í þessari ís- lensku þrenningu kraftaverkanna er Ólafur Jóhannesson, einstakt ljúf- menni sem þreytist aldrei á að boða fagnaðarerindið um hina útvöldu þjóð Guðs Ísraels, Jahve. x x x Þvílík kraftaverk eru auðvitaðóhugsandi án fjármuna og dyggra stuðningsmanna. Sannfær- ingarkraftur Omega-manna er mest- ur þegar hörgull er á peningum til að halda þessari góðu starfsemi gang- andi. Þá benda þeir okkur á hvílík for- réttindi það eru að fá að gefa í ríki Guðs, sem endurgeldur gjafirnar þúsundfalt. Þeir sem sá í akur Guðs uppskera ríku- lega og öðlast það sem við vilj- um öll, eilíft líf. Kona Víkverja er hagsýn hús- móðir og hefur ekki talið eftir sér að láta nokkra þúsundkalla af hendi rakna sér til sáluhjálp- ar. Það er mikil synd að kat- ólska kirkjan skuli hafa hætt að bjóða þessa þörfu þjónustu. x x x Kona Víkverja er reyndar svoupp numin af þessu góða en vanþakkaða starfi að hún vill að Omega-menn líti sér nær. Hvers vegna stofna þeir ekki kristilegan stjórnmálaflokk hér á Íslandi, því ekki er vanþörf á stjórnmálamönnum sem hafa náungakærleika, bræðra- lag, jöfnuð, frið og sannleikann að leiðarljósi á þessum síðustu tímum græðgi, misréttis, ofbeldis og mamm- onsdýrkunar. Í stað þess að greiða skatta með ólund eða nauðung mynd- um við þá ekki sá í ríki Guðs með glöðu geði og öll íslenska þjóðin upp- skera þúsund sinnum ríkulega? Og væri það ekki góð byrjun að virkja Bessastaði í þágu Guðs? Kraftaverkamenn og rabbíni. Skemmtilegt verk MIG langar að lýsa yfir ánægju minni með Leik- félag Mosfellssveitar og verkið Lú barinn sem leik- félagið sýnir. Þetta verk er tær snilld og mikil gleði og gaman að horfa á það. Ég hló alla sýninguna og fannst öllum sem með mér voru þetta mjög skemmtilegt verk. Sigríður. Biðskýli strætó ÞAÐ eru margir hættir að taka strætisvagna á vet- urna út af skýlunum en þar verður fólk rennandi blautt af því að þau halda hvorki vatni né vindi. Ég vona að það verði tekið til alvar- legrar athugunar að láta laga biðskýlin. J.H. Alltaf að metast FRÉTTABLAÐIÐ er allt- af að metast um að það sé mest lesna blaðið en ég tel að helmingur blaðsins lendi í ruslinu án þess að vera borinn út. Það hefur verið þannig hjá okkur að við höfum bara stundum fengið blaðið, alls ekki á hverjum degi og erum við margbúin að kvarta undan því en ekk- ert lagast. Lesandi. Tapað/fundið Brúnir kvenhanskar týndust BRÚNIR kvenhanskar týndust á svæðinu frá horni Skólavörðustígs og Berg- staðastrætis, nánar tiltekið frá Bílahúsinu á horninu og á leiðinni að Mokkakaffi, þriðjudaginn 16. mars. Skilvís finnandi hafi sam- band í síma 897 2949 eða skili þeim inn á Mokka- kaffi. Rúskinnshanski týndist LJÓSBRÚNN rúskinns- hanski týndist, líklega fyrir utan Nóatún í Lóuhólum. Skilvís finnandi hafi sam- band í síma 898 1305. Kvenúr í óskilum KVENÚR er í óskilum hjá Tryggingastofnun á Laugavegi. Konan sem spurði um úrið fyrir stuttu er beðin að hafa samband aftur í síma 560 4487. Gleraugu týndust GLERAUGU í ljósblárri og gulri plastumgjörð týnd- ust sl. þriðjudag. Sennilega í strætó nr. 3 á leiðinni af Nesinu á Hlemm. Gleraug- un voru í svörtu hulstri með rennilás. Fundarlaun. Skil- vís finnandi hafi samband í síma 894 3001. Vínrautt seðlaveski týndist BRÚNT seðlaveski með skilríkjum týndist við Bú- staðaveg eða í leið 7 12. mars sl. Skilvís finnandi hafi samband í síma 695 1238. Fundarlaun. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is LÁRÉTT 1 samfleyttur, 8 lélega spilið, 9 fjallstopps, 10 spil, 11 fiskur, 13 líf- færið, 15 hættulega, 18 ledda, 21 hreysi, 22 veð- ur, 23 hinn, 24 sambland. LÓÐRÉTT 2 líkamshlutar, 3 kona, 4 hljóðfærið, 5 alda, 6 draug, 7 espið, 12 skán, 14 smágerð sletta, 15 vit- ur, 16 hyggur, 17 ræktuð lönd, 18 framendi, 19 þekktu, 20 siga. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 kafli, 4 gusta, 7 rætin, 8 urðar, 9 arð, 11 aura, 13 hríð, 14 fimar, 15 stál, 17 ólga, 20 gró, 22 ormur, 23 lætin, 24 tunga, 25 asnar. Lóðrétt: 1 karfa, 2 fótur, 3 inna, 4 gauð, 5 siður, 6 afræð, 10 rómar, 12 afl, 13 hró, 15 skott, 16 álman, 18 lotan, 19 arnar, 20 gróa, 21 ólma. Krossgáta  Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.