Morgunblaðið - 22.03.2004, Page 44

Morgunblaðið - 22.03.2004, Page 44
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MÁNUDAGUR 22. MARS 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. Áskriftarsími 881 2060 Í FORMI LIFANDI VÍSINDI Áskriftarsími 881 4060 NÆSTI sendiherra Bretlands á Íslandi, Alp Mehmet, sem kemur hingað í næsta mánuði, er að læra íslensku. Breska utanríkisþjón- ustan mun héðan í frá hvetja sendiherra sem hingað koma til að læra íslensku. John Culver, sendiherra Bretlands á Ís- landi, lætur af störfum í næsta mánuði. Arf- taki hans, Alp Mehmet, starfaði við sendiráðið hér á landi fyrir rúmum ára- tug. Þá byrjaði hann að læra íslensku, en að und- anförnu hefur hann bætt enn frekar við þekkingu sína. Hann sótti námskeið hérlendis í síðasta mánuði og hefur notið leiðsagnar kennara í London. „Tilgangurinn er að hann geti talað við fólk, lesið dagblöðin og skilið sjónvarpið þegar hann kemur hingað,“ segir Culver, sem sjálfur talar þrjú tungu- mál. Hann segir að þótt Íslendingar tali mjög góða ensku sé t.d. óhagræði að því fyr- ir sendiherra að geta ekki lesið dagblöðin. „Það er svo miklu betra ef maður getur ver- ið í tengslum við það sem er að gerast.“ Culver segir að framtíðarsendiherrum Bretlands verði því gefið tækifæri til að læra íslensku. Breska utanríkisþjónustan hafi gott orðspor á sér fyrir tungumálakunnáttu, en m.a. vegna þess hve stutt hver sendiherra hafi dvalið hér hafi þeir til þessa ekki lært tungumálið. „En stefnan nú er að hver sendi- herra læri tungumál landsins sem hann fer til,“ segir Culver. Sendiherrar Breta læri íslensku John Culver DAVÍÐ Oddsson forsætisráð- herra bauð til móttöku í Ráð- herrabústaðnum í gærkvöldi fyr- ir keppendur og aðstandendur atskákmótsins Reykjavík Rapid, sem lauk í gær með sigri Kasp- arsdóttir, varaforseti Skák- sambands Íslands, og aðstoð- armaður Kasparovs. arovs á Short í úrslitaviðureign. Á myndinni tekur Davíð í hönd Kasparovs, sterkasta skákmanns heims, og óskar honum til ham- ingju með sigurinn. Að baki þeim eru Guðfríður Lilja Grét- Morgunblaðið/Árni Sæberg Sigurvegara heilsað  Tefldi illa/10  Æsileg skák/31 EFNAHAGS- og viðskiptanefnd Alþingis leggur til, í nefndaráliti sínu um frumvarp um erfðafjárskatt, að allir erfingjar utan maka verði skattlagðir með sama skatthlutfalli, þ.e. með 5% skatthlutfalli. Í frumvarpinu er hins vegar gert ráð fyrir því að börn og aðrir niðjar arfleiðanda greiði 5% erfðafjárskatt en for- eldrar, systkini og aðrir greiði 10% erfðafjár- skatt. „Að skattleggja alla erfingja utan maka með sama skatthlutfalli leiðir til enn frekari einföld- unar en gert er ráð fyrir í frumvarpinu og ætti að gera lögin aðgengilegri fyrir almenning,“ segir í nefndarálitinu, sem lagt hefur verið fram á Alþingi. Áfram er þó miðað við að fyrsta milljónin í búi verði skattfrjáls, sem og arfur til maka, eins og áður sagði. Skv. núgildandi lög- um eru skattfrelsismörk hvers erfingja 60 þús- und krónur. oft ekki rétta mynd af hinu raunverulega verð- mæti hlutabréfa og er breytingum sem nefndin leggur til ætlað að taka á þessu. Allar eignir skulu metnar á markaðsvirði, jafnt hlutabréf sem aðrar eignir,“ segir í áliti nefndarinnar. Gert er ráð fyrir því að lögin, verði þau sam- þykkt, taki gildi 1. apríl nk., en í frumvarpinu var gert ráð fyrir því að þau tækju gildi 1. júlí. Stefnt er að því að afgreiða frumvarpið frá Al- þingi í næstu viku. Allir þingmenn nefndarinnar skrifa undir álitið, en þingmenn Samfylkingarinnar skrifa þó undir það með fyrirvara. Áskilja þeir sér rétt til að leggja fram og styðja breytingartil- lögu við málið. „Fyrirvari þeirra lýtur fyrst og fremst að brottfalli heimildar til handa ráð- herra til að undanþiggja kirkjur, opinbera sjóði, líknar- og menningarstofnanir eða félög greiðslu erfðafjárskatts,“ segir í álitinu. Á móti er í nefndarálitinu lagt til að jöfnun skatthlutfallsins í 5% verði mætt með breyt- ingum á eignamati hlutabréfa. Markaðsvirði bréfanna verður lagt til grundvallar við út- reikning skattsins en ekki nafnverð, eins og verið hefur. „Á þeim tíma sem nafnverð hlutabréfa var tekið upp í lög um erfðafjárskatt var það góður mælikvarði á verðmæti hlutabréfa. Frá þeim tíma hefur orðið mikil breyting með tilkomu virks markaðar með hlutabréf og breytingum á skattalegri meðhöndlun arðs af hlutafé. Þessar breytingar hafa leitt til þess að nafnverð gefur Allir erfingjar skattlagð- ir með 5% skatthlutfalli Markaðsverð hluta- bréfa lagt til grund- vallar skatti FRAMKVÆMDIR við fyrsta húsið á Arnarneslandi hefjast að öllum lík- indum í sumar. Það er 40 íbúða blokk sem rísa mun við Arnarnesveg, vest- ast á svæðinu. Árakrar ehf., sem nú er í eigu fjög- urra byggingarverktaka, keypti hluta Arnarneslands af Jóni Ólafs- syni í nóvember 2002. Síðan hefur verið unnið að undirbúningi upp- byggingarinnar. „Fyrirtækið lét breyta deiliskipulagi svæðisins svo nú er gert ráð fyrir 340 íbúðum í stað 275 íbúða sem miðað var við í fyrra skipulagi. „Við töldum nauðsynlegt að fá meiri nýtingu því landið var dýrt. Það voru ákveðnir möguleikar á því,“ segir segir Kristinn Kristins- son, framkvæmdastjóri Árakra ehf. Fækkað var íbúðum í sérbýli en fjölgað í fjölbýli þannig að rúm- metrafjöldinn eykst ekki í takt við fjölgun íbúða. Um þessar mundir er verið að ganga frá gatnahönnun og er gert ráð fyrir að lóðirnar verði bygging- arhæfar í haust. Þó segir Kristinn að möguleikar séu á að byggja á einni lóðinni fyrr. Hún standi þannig gagnvart því gatnakerfi sem fyrir er. Er það 40 íbúða fjölbýlishús sem reist verður á háhæðinni við Arnar- nesveginn, vestast á svæðinu. Ingi- mundur Sveinsson arkitekt er langt kominn með hönnun hússins og er reiknað með að framkvæmdir geti hafist um mitt sumar. Kristinn segir að þetta verði hágæðahús. Árakrar munu reisa þetta hús. 340 íbúðir verða á landi Árakra í Arnarneslandi Bygging fyrsta hússins hefst í sumar STJÓRN Íslandsbanka samþykkti á fundi sínum í gær nýtt skipurit fyrir bankann. Talsverð fækkun verður í framkvæmdastjórn bank- ans og er markmiðið með breyting- unum að gera stjórn hans skilvirk- ari. Bjarni Ármannsson verður einn forstjóri Íslandsbanka sem fyrr en hann mun fyrst og fremst beina kröftum sínum að erlendri útrás og fjárfestingarbankastarfsemi. Björn Björnsson mun áfram gegna starfi aðstoðarforstjóra og hafa yfirumsjón með lánaeftirliti og áhættustjórnun. Þá var Jón Þórisson ráðinn að- stoðarforstjóri Íslandsbanka og staðgengill forstjóra á fundinum í gær. Undir hann mun heyra öll við- skiptabankastarfsemi, sem nú verð- ur sett undir einn hatt. Með þeim í framkvæmdastjórn verða Finnur Reyr Stefánsson, Haukur Oddsson og Tómas Kristj- ánsson. Þá samþykkti stjórnin í gær að leggja til að Þorgils Óttar Mathie- sen yrði ráðinn forstjóri Sjóvár-Al- mennra, sem er dótturfyrirtæki Ís- landsbanka. Verður gengið frá ráðningu Þorgils Óttars á stjórn- arfundi félagsins í dag. Hann tekur við af Einari Sveinssyni, sem kjör- inn var stjórnarformaður Íslands- banka á aðalfundi fyrir skömmu. Skipulagsbreyting- ar hjá Íslandsbanka DÆMI eru um að fólk sem tekur þátt í SMS-leikjum, þar sem fólk sendir textaskilaboð úr farsímum sínum til að taka þátt í leiknum, sé rukkað fyrir skilaboð þótt ljóst sé að þau hafi ekki komist til skila. Í sumum tilvikum fara skilaboðin sem send eru í SMS-leikina ekki alla leið til viðtakenda, heldur fær eig- andi símans villuskilaboð þar sem fram kemur að skilaboðin hafi ekki borist viðtakanda. Í þeim tilvikum er engu að síður rukkað fullt verð fyrir skilaboðin, en algengt verð á skila- boðum er allt frá venjulegu gjaldi fyrir SMS upp að 100 krónum. Eva Magnúsdóttir hjá Símanum segir að alltaf geti gerst að hlutir misfarist, en ef viðskiptavinurinn komi með réttmæta kvörtun til Sím- ans sé honum endurgreitt. Hún kannast þó ekki við nein „stórkost- leg“ vandamál í þessa veru. Pétur Pétursson hjá Og Vodafone segir að þetta geti gerst, og segir tvær meginskýringar liggja þar að baki. Annars vegar geti það gerst að sá aðili sem sér um leikinn geti ekki tekið við öllum skeytum sem berast. Hins vegar gerist þetta þannig að þegar notandi fær staðfestingu um þátttöku, vinning eða annað komist það skeyti ekki til baka. Rukkað fyr- ir SMS-boð sem ekki skila sér FJÓRIR karlmenn eru í haldi hjá lögreglunni í Reykjavík vegna átaka þar sem hnífum var brugðið á loft í heimahúsi í miðbæ Reykjavík- ur aðfaranótt sunnudags. Mennirnir eru á aldrinum 25–50 ára og átti að yfirheyra þá í gærkvöldi. Málsatvik eru enn óljós en lögregla rann- sakar málið. Slegist með hníf- um í heimahúsi FERÐ um eitt hundrað starfsmanna Im- pregilo á milli Egilsstaða og vinnubúða í Kárahnjúkum í gær varð lengri en áætlað var. Fjórar rútur sem starfsmennirnir voru í sátu fastar á Kárahnjúkavegi í um þrjár klukku- stundir vegna snjókomu og skafrennings. Mennirnir voru væntanlegir í búðirnar um klukkan 23 en þá beið þeirra heit kvöldmáltíð sem eflaust hefur verið kærkomin. Löng rútuferð ♦♦♦ ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.