Morgunblaðið - 22.03.2004, Side 4
KNATTSPYRNA
4 B MÁNUDAGUR 22. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
JÓHANNES Karl Guðjónsson var
ekki í leikmannahópi Wolves sem
töpuðu fyrir Liverpool á Anfield.
HEIÐAR Helguson misnotaði þrjú
gullin marktækifæri fyrir Watford
sem steinlá fyrir Ipswich, 4:1, í
ensku 1. deildinni. Heiðar lék allan
leikinn í framlínu Watford og nældi
sér í gult spjald í síðari hálfleik. Ung-
ur framherji í liði Ipswich, Dan Bow-
ditch, skoraði þrennu fyrir Ipswich.
ÍVAR Ingimarsson lék allan leik-
inn í vörn Reading sem tapaði á
heimavelli fyrir Sunderland, 2:0.
Mörkin komu með mínútu millibili á
73. og 74. mínútu leiksins.
BJARNI Guðjónsson var með all-
an tímann í liði Coventry sem varð
að játa sig sigrað fyrir Wigan, 2:1.
Mark Coventry kom eftir horn-
spyrnu Bjarna og litlu munaði að lið-
inu tækist að jafna metin undir lokin
eftir hornspyrnu Skagamannsins.
BRYNJAR Björn Gunnarsson
fékk ekki að spreyta sig með Stoke
City á nýjan leik því leik liðsins gegn
WBA sem fara átti fram á Britannia-
vellinum í Stoke var frestað vegna
hávaðaroks á vellinum.
ÞÓRÐUR Guðjónsson sat allan
tímann á varamannabekk Bochum
sem gerði 2:2-jafntefli við Kaisers-
lautern á útivelli í þýsku 1. deildinni.
HELGI Sigurðsson var ekki í leik-
mannahópi AGF sem gerði 3:3-jafn-
tefli á útivelli gegn Esbjerg í dönsku
úrvalsdeildinni í knattspynu í gær.
Helgi á við meiðsl að stríða.
HELGI Kolviðsson lék síðustu
mínútuna í liði Kärnten sem sigraði
Austria Vín, 2:0, í austurrísku 1.
deildinni í knattspyrnu í gær. Þrátt
fyrir sigurinn er Kärnten í neðsta
sæti deildarinnar.
FÓLK
FÁTT virðist geta komið í veg fyrir að
Werder Bremen verði Þýskalandsmeist-
ari í knattspyrnu í vor en eftir leiki helg-
arinnar er forysta Brimarbúa 11 stig.
Werder Bremen lagði Wolfsburg á út-
velli, 2:0, með mörkum Ivan Klasnic og
Johans Micoud, í gær og komst þar með
11 stigum fram úr úr meisturum Bayern
München sem urðu að láta sér lynda
jafntefli gegn Herthu Berlin.
Brasilíumaðurinn Ailton, markahæsti
leikmaður Bundesligunnar með 22
mörk, misnotaði vítaspyrnu á 67. mín-
útu en það varð bara til þess að stappa
stálinu í liðsmenn Bremen.
„Ef við höldum áfram að einbeita okk-
ur leik fyrir leik og hugsum ekki nema
um okkur sjálfa þá fer þetta vel,“ sagði
Thomas Schaaf, þjálfari Bremen, eftir
leikinn.
Hollenski markakóngurinn Roy
Makaay kom Bæjurum yfir með sínu 18.
marki á leiktíðinni en Brasilíumaðurinn
Marcelinho jafnaði fyrir Berlínarliðið
með marki úr vítaspyrnu sem hann fisk-
aði sjálfur.
„Við erum ekki búnir að gefast upp en
eins og staðan lítur út þá verðum við að
vinna þá leiki sem við eigum eftir og
vonast til að Bremen hlekkist á,“ sagði
Ottmar Hitzfeldt, þjálfari Bæjara, eftir
leikinn.
Stuttgart náði aðeins jöfnu gegn botn-
liði Köln, 2:2, jafnaði varnarmaður Köln
metin fyrir Stuttgart með sjálfsmarki
stundarfjórðungi fyrir leikslok.
„Leikurinn markaðist af því að mínir
menn voru hræddir um að tapa og Köln
réð ferðinni á miðsvæðinu. Við höfðum
vænst þess að bera meira út býtum en
bara eitt stig en við verðum að leggja
Bremen að velli um næstu helgi í stað-
inn,“ sagði Felix Magath, þjálfari Stutt-
gart.
Bremen stungið af í Þýskalandi
CLAUDIO Ranieri, knatt-
spyrnustjóri Chelsea, segir að
hann hafi áhuga á því að starfa
sem lengst í ensku knattspyrn-
unni en á hverjum degi birtast
fréttir í enskum fjölmiðlum
þar sem sagt er að Ranieri
verði látinn fara frá félaginu í
sumar. Allt frá því að Roman
Abramovich keypti meirihluta
í Chelsea sl. sumar hefur staða
Ranieri þótt veik, en umboðs-
maður hans segir að Ranieri
verði ekki lengi atvinnulaus –
verði honum sagt upp störfum
hjá Chelsea. Ranieri þjálfaði
Fiorentina í heimalandi sínu
en tók við spænska liðinu Val-
encia og fór síðan til Atletico
Madrid. „Við erum ekki farnir
að undirbúa brotthvarf Rani-
eris frá Chelsea en ég get stað-
fest að mörg lið hafa áhuga á
að fá hann til starfa. Ef sú
staða kæmi upp að hann yrði
ekki lengur starfandi hjá
Chelsea þá veit ég að Ranieri
hefur áhuga á að starfa áfram
á Englandi,“ segir umboðs-
maður Ranieri.
Enskir fjölmiðlar greina frá
því að Ranieri muni missa
starfið hjá Chelsea þó svo að
liðið myndi vinna Meist-
aradeild Evrópu, en þar leikur
liðið gegn Arsenal nk. mið-
vikudag í átta liða úrslitum
keppninnar.
Ranieri vill starfa sem
lengst á Englandi
Claudio Ranieri stjórnar sín-
um mönnum í leiknum gegn
Fulham.
Reuters
Arsene Wenger, knattspyrnu-stjóri Arsenal, sagði eftir leik-
inn gegn Bolton að liðið hefði slakað
á í síðari hálfleik og að leikmenn
liðsins hefðu ekki nýtt sér styrk-
leika þess til hins ýtrasta.
„Við lékum mun betur í fyrri hálf-
leik en í þeim síðari voru sending-
arnar ekki nákvæmar og Bolton
gekk á lagið. Yfirburðirnir sem við
höfðum í fyrri hálfleik voru ekki til
staðar í þeim síðari. Boltonliðið er
vel skipulagt og í þess röðum eru
margir góðir leikmenn. Við þurftum
því að grafa nokkuð djúpt til þess að
halda velli og sá eiginleiki hefur
margoft komið fram hjá okkur í vet-
ur.“
Sam Allardyce, knattspyrnustjóri
Bolton, sagði að það hefði verið sárt
að missa af tækifærinu til þess að
ná stigi gegn Arsenal á útivelli.
„Það leit allt út fyrir að við vær-
um búnir að missa af lestinni í stöð-
unni 2:0 en ég var afar ánægður
með baráttuna í liðinu á lokakafla
leiksins gegn efsta liði deildarinnar.
Við komumst inn í leikinn, en ef lið
ná ekki að skora í ensku úrvals-
deildinni þá er þeim refsað,“ sagði
Allardyce en Robert Pires og Denn-
is Bergkamp komu Arsenal yfir í
fyrri hálfleik en Ivan Campo minnk-
aði muninn rétt eftir leikhlé. Bolton
fékk fín færi í kjölfarið sem það náði
ekki að nýta.
Arsenal hefur nú jafnað met sem
var í eigu Leeds frá árinu 1973–
1974 sem Liverpool hafði jafnað
tímabilið 1987–1988, 29 leikir án
taps í efstu deild á sömu leiktíð.
Manchester United verður næsti
mótherji Arsenal í deildarkeppn-
inni, 28. mars nk., en margir áttu
von á því að sá leikur myndi verða
úrslitaleikur deildarinnar. En miðað
við stöðuna í dag er ólíklegt að úr-
slit leiksins hafi afgerandi áhrif á
lokaniðurstöðu mótsins.
Alan Shearer, fyrirliði Newcastle,
fór fyrir sínum mönnum gegn
Charlton en hann skoraði fyrsta
mark leiksins með skalla eftir að-
eins 54 sekúndur og bætti við öðru
marki í síðari hálfleik, eftir að víta-
spyrna frá honum hafði verið varin.
Lokatölur 3:1. Shearer segir við
enska fjölmiðla að hann hafi ekki
hug á því að breyta ákvörðun sinni
um að leggja skóna á hilluna í lok
næstu leiktíðar. „Ég á aðeins eftir
að leika eitt keppnistímabil til við-
bótar, eftir það er þessum kafla í lífi
mínu lokið,“ sagði hinn 33 ára gamli
framherji sem hefur nú skorað 22
mörk á leiktíðinni. Hermann Hreið-
arsson var að vanda í vörn Charlton
í leiknum.
Stuðningsmenn Manchester
United brostu breitt eftir 3:0 sigur
liðsins gegn Tottenham á Old Traf-
ford. Ryan Giggs skorað með hæl-
spyrnu, Ronaldo skaut í stöng og
inn, og Frakkinn David Bellion
skoraði þriðja markið. Leikmenn
liðsins fögnuðu vel er mörkin litu
dagsins ljós enda hafa undanfarnar
vikur verið liðinu erfiðar.
„Þegar Ryan Giggs er í þessum
ham er hann einstakur,“ sagði Alex
Ferguson, knattspyrnustjóri Man.
Utd. „Við búumst kannski við of
miklu af honum þar sem hann hefur
verið á vinstri vængnum hjá okkur í
14 ár samfleytt. Við lékum vel. Þess
er krafist af okkar stuðningsmönn-
um og ég tel að gæðin hafi verið
framúrskarandi,“ sagði Ferguson.
Sami Hyypia var á allra vörum í
Liverpool eftir leik liðsins gegn
Wolves, en finnski varnarmaðurinn
skoraði eina mark leiksins eftir
hornspyrnu frá Steven Gerrard á
90. mínútu og tryggði Liverpool
þrjú dýrmæt stig. Enskir fjölmiðlar
greina frá því að Wolves hafi átt síst
minna í leiknum og Liverpool hafi
haft heppina með sér að þessu sinni.
„Þetta var þriðji leikur liðsins á
sjö dögum og við höfum oft staðið
okkur betur. En menn eru lúnir eft-
ir þessa törn. Ef það tekst ekki
snemma að brjóta á bak aftur vörn
þeirra liða sem líkar það vel að verj-
ast, þá er ávallt erfitt að skora, en
markið sem við skoruðum var mik-
ilvægt,“ sagði Gerard Houllier,
knattspyrnustjóri Liverpool.
Blackburn hristi af sér atburði
vikunnar þar sem Dwight Yorke og
Graeme Souness, knattspyrnustjóri
liðsins, stóðu í ströngu á æfingu
liðsins, en Blackburn lagði Aston
Villa, 2:0, á útivelli en Villa hafði
gert sér vonir um Evrópusæti í lok
leiktíðar. Gary Flitcroft og Jon
Stead skoruðu mörkin en Yorke sat
á varamannbekknum frá upphafi til
enda.
Áhorfendur á Riverside, heima-
velli Middlesbrough, fengu að sjá
átta mörk í viðureign Middles-
brough gegn Birmingham en Mark
Schwarzer, markvörður Boro, átti
stórleik og þótt ótrúlegt sé þá kom
hann í veg fyrir að Birmingham
færi með þrjú stig til næststærstu
borgar Englands í farteskinu.
Leicester hefur verið mikið í fjöl-
miðlum á undanförnum vikum
vegna mála sem upp komu í æf-
ingaferð liðsins til La Manga á
Spáni. Wayne Rooney kom Everton
yfir í leiknum á 75. mínútu, Duncan
Ferguson fékk rautt spjald á 40.
mínútu og var róðurinn því þungur
fyrir gestina. Bent jafnaði fyrir
Leicester en fyrirliði liðsins, Paul
Dickov, tók þátt í leiknum en hann
var einn af þeim sem hnepptir voru
í varðhald á Spáni. Keith Gillespie
og Franc Sinclair komu ekki við
sögu.
Arsenal er enn í
hæstu hæðum
ARSENAL þurfti að hafa mikið
fyrir hlutunum gegn Bolton í
ensku úrvalsdeildinni á laug-
ardag þar sem Lundúnaliðið
landaði sigri, 2:1, og jafnaði þar
með met sem var í eigu Leeds og
Liverpool, 29 leikir í efstu deild
án þess að tapa. Það er fátt sem
bendir til þess að Arsene Weng-
er og lærisveinar hans muni ekki
fagna enska meistaratitlinum í
vor en liðið er sem stendur með
73 stig í efsta sæti deildarinnar,
Chelsea er þar næst með 64 stig
og Manchester United er því
þriðja með 61 stig.
Reuters
Alan Shearer, sem hér á í höggi við Chris Perry, skoraði tvö í sigri Newcastle á Charlton.
■ Úrslit/B10
■ Staðan/B10
„ÉG stífnaði upp í vöðvanum aftan í
lærinu og til að taka ekki neina
áhættu þá bað ég um skiptingu,“
sagði landsliðsmaðurinn Hermann
Hreiðarsson, leikmaður Charlton,
við Morgunblaðið í gær en Her-
mann fór af velli á 89. mínútu í
leiknum við Newcastle sem Lund-
únaliðið tapaði, 3:1.
„Ég stífnaði upp í lærinu eftir
sprett sem ég tók og mér fannst
rétt að biðja um skiptingu áður en
eitthvað gæfi sig í lærinu. Ég er enn
svolítið stífur en við höldum að ekk-
ert hafi gefið sig í vöðvanum. Það
kemur samt ekki í ljós fyrr við
læknisskoðun á morgun (í dag),“
sagði Hermann.
Charlton féll niður í sjötta sæti
með tapinu gegn Newcastle.
Hermann varð
að biðja um
skiptingu