Morgunblaðið - 22.03.2004, Síða 6
SUND
6 B MÁNUDAGUR 22. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÖRN Arnarson, ÍRB, og Kolbrún
Ýr Kristjánsdóttir, ÍA, fengu bik-
ara fyrir bestu afrek á Innanhúss-
meistaramótinu í sundi á lokahófi
mótsins í gærkvöldi.
Kolbrún Ýr fékk samtals 1.792
stig fyrir árangur sinn í 50 m
skriðsundi og 100 metra skrið-
sundi og Örn fékk samtals 1.829
stig fyrir árangur sinn í 50 m flug-
sundi og í 100 metra fjórsundi.
Bringusundsbikarinn fyrir besta
árangurinn í bringusundi hlaut
Erla Dögg Haraldsdóttir, ÍRB.
Efnilegasta sundfólk mótsins var
valið. Í kvennaflokki varð Sigrún
Brá Sverrisdóttir, Fjölni, fyrir val-
inu og Ágúst Júlíusson, ÍA, hjá
körlunum en þjálfarar stóðu fyrir
valinu. Þátttakendur á Evr-
ópumeistaramótinu í 50 metra
laug í Madrid 10.–16. maí voru
valdir en hægt verður að ná lág-
mörkum til 19. apríl svo fleiri geta
bæst í þennan hóp. Þátttakendur
verða: Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir
ÍA, Íris Edda Heimisdóttir ÍRB,
Örn Arnarson ÍRB, Hjörtur Már
Reynisson KR, Anja Ríkey Jak-
obsdóttir SH, Lára Hrund Bjarg-
ardóttir SH, Ragnheiður Ragn-
arsdóttir SH og Jakob Jóhann
Sveinsson Ægi.
Þá var tilkynnt val á unglinga-
landsliði Íslands, keppir á al-
þjóðlegu unlingamóti, CIJ, í Lúx-
emborg 16.–18. apríl nk. Liðið er
þannig skipað: Sigrún Brá Sverr-
isdóttir Fjölni, Aþena Ragna Júl-
íusdóttir ÍA, Gunnar Smári Jón-
björnsson ÍA, Birkir Már Jónsson
ÍRB, Erla Dögg Haraldsdóttir ÍRB,
Guðni Emilsson ÍRB, Helena Ósk
Ívarsdóttir ÍRB, Karítas Heim-
isdóttir ÍRB, Andrea Ösp Karls-
dóttir Óðni, Hjalti Rúnar Oddsson
Selfossi, Ásdís A. Björnsdóttir SH,
Garðar Snær Sverrisson SH, Kjart-
an Hrafnkelsson SH, Bragi Þor-
steinsson Vestra, Árni Már Árna-
son Ægi, Auður Sif Jónsdóttir
Ægi, Baldur Snær Jónsson Ægi,
Jóhanna Gerða Gústafsdóttir Ægi,
Jón Símon Gíslason Ægi og Oddur
Örnólfsson Ægi. Þjálfarar eru Ey-
leifur Jóhannesson og Sigurlín
Þorbergsdóttir.
Örn Arnarson og Kolbrún Ýr
Kristjánsdóttir með bestu afrekin
JÓ
un
D
sn
la
af
sl
fy
g
4:
St
sl
ha
æ
ha
JFullt af ungum sundmönnumstendur sig með prýði. Tuttugu
sundmenn hafa nú þegar náð lág-
marki til að fara á unglingamót í
Lúxemborg og mótið um helgina
var þeirra síðasti möguleiki til að
tryggja sér sæti á mótinu. Við erum
mjög ánægðir með þann árangur
sem unga sundfólkið sýndi.“ Stein-
dór bætti við að sjö sundmenn
hefðu tryggt sér farseðilinn til
Madrídar í maí en þá fer þar fram
Evrópumeistaramótið í 50 metra
laug. „Það má jafnvel búast við að
það fari fleiri því að enn er eitt mót
eftir til að ná þeim lágmörkum en
það fer hver að verða síðastur, það
er alveg ljóst.“
Bestu sundmenn landsins syntu
ekki á sínum bestu tímum um
helgina og er það alveg eðlilegt í
ljósi þess að í ár er ólympíuár. „Þau
toppakannski ekki núna og eru svo-
lítið einbeitt á 50 metra laug og
hafa æft stíft og ég get sagt þér
það að þau stefna hátt á Ólympíu-
leikunum.“ Spurður um mótið sagði
hann einnig gaman hversu jafnar
sumar greinarnar væru. „Þetta er
miklu jafnara en oft áður og mörg
sundin um helgina hafa verið
spennandi. Þá er spennustigið hátt,
bæði hjá keppendum og þjálfurum
og mjög gaman að horfa á slíkar
greinar.“ Þegar Steindór var spurð-
ur hvernig honum litist á að mótið
flyttist frá Eyjum til Reykjavíkur,
eins og allt stefnir í, sagðist hann
ekki trúa því að sundfólkið væri
hætt að koma til Eyja. „Þetta er
kannski í síðasta skiptið í bili þar
sem ný og glæsileg laug er að rísa í
Reykjavík en það er alltaf gaman
að koma til Eyja og ekki spillir
hversu góð laugin er og hröð,“
sagði Steindór.
Unga fólkið
stóð sig vel
STEINDÓR Gunnarsson landsliðsþjálfari var þokkalega sáttur við
mótið í ár. „Þetta er að mörgu leyti búið að vera gott mót. Það hefur
verið gaman að sjá framfarirnar í sumum greinum en reyndar höf-
um við verið svolítið fámenn í öðrumen góður árangur í heildina.“
Steindór sagði að sérstaklega áhugaverður væri árangur unga
fólksins á mótinu.
Það var gaman að setja fyrstaÍslandsmetið hérna í ár og ég
er mjög ánægð með hvernig mér
hefur gengið. Ég hef bætt mig í öll-
um greinunum sem
ég hef keppt í,“
sagði Ragnheiður,
sem stefnir að sjálf-
sögðu á Ólympíu-
leikana en er þar í harðri keppni
við Kolbrúnu Ýri Kristjánsdóttur í
50 metra skriðsundi. „Ég er búin
að ná b-lágmarki en Kolbrún er
með betri tíma en ég enn sem kom-
ið er og ég þarf að bæta hennar
tíma til að komast. Ég á ennþá
möguleika á því og er að fara að
keppa í fimmtíu metra laug eftir
tvær vikur en það verður að koma í
ljós.“ Strax í undanrásum á fyrsta
degi var sett nýtt telpnamet í 200
metra skriðsundi. Það var Sigrún
Brá Sverrisdóttir sem setti það
þegar hún synti á 2.07,54 og bætti
þar með met Kolbrúnar Ýrar Krist-
jánsdóttur, Akranesi, frá árinu
1997, 2.08,32. Erla Dögg Haralds-
dóttir ÍRB setti tvö stúlknamet,
bæði í 100 metra bringusundi, þeg-
ar hún kom í mark á tímanum
1.11,62 og 200 metra fjórsundi þeg-
ar hún synti á 2.19,13. Eldra metið
átti Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir,
2.20,02. Tími Erlu Daggar er undir
lágmarki á EM í 50 metra laug sem
verður í Madrid í maí, en sam-
kvæmt reglum SSÍ er Erla Dögg of
ung til að keppa á því móti. Nú hafa
tuttugu sundmenn náð lágmarki til
að fara til Madrid. Á laugardaginn
bárust þær fréttir svo til Eyja að
Lára Hrund Bjargardóttir, sem
synti um helgina á bandarísku há-
skólamóti, hefði sett nýtt Íslands-
met í 200 metra bringusundi á tím-
anum 2:30:64. Eldra metið var
einmitt sett í Vestmannaeyjum í
fyrra og átti Íris Edda Heimisdótt-
ir það, 2.30,93.
Anja Ríkey Jakobsdóttir, einnig
úr Sundfélagi Hafnarfjarðar, setti
svo Íslandsmet í 100 metra bak-
sundi þegar hún synti á 1.03,10 og
bætti met Kolbrúnar Ýrar Krist-
jánsdóttur, 1.03,67. Fleiri stúlkna-
met féllu á sunnudeginum þegar
Erla Dögg Haraldsdóttir bætti tvö
stúlknamet, annars vegar fjögurra
ára gamalt met Írisar Eddu Heim-
isdóttur í 200 metra bringusundi.
Nýtt met er 2.32,90. Hins vegar í
50 metra bringusundi þegar hún
synti á 33,47 sekúndum en Íris
Edda átti einnig metið í þeirri
grein.
Krökkunum finnst gaman
að koma til Eyja
Sigrún Pálsdóttir, formaður
Sundfélags Vestmannaeyja, var
sátt við hvernig til tókst um
helgina. „Þetta gekk allt mjög vel.
Það var lítið af tæknilegum vanda-
málum og gekk vel að manna.“
Hún benti á að nú væru þrjátíu
fleiri keppendur en í fyrra og allt í
allt kepptu 150 manns á mótinu um
helgina. „Það segir mér það að við
eigum orðið fleiri góða sundmenn
og greinarnar eru jafnari en áður
og það sýnir sig líka í því að þú
þarft mun betri tíma en í fyrra til
að komast í úrslit.“ Var þetta fjór-
tánda árið í röð sem Íslandsmótið
er haldið í Eyjum en nú stefnir í að
breyting verði á vegna nýrrar
keppnislaugar í Laugardalnum.
„Síðasta skiptið? Nei, ekkert rugl,“
sagði Sigrún í léttum tón.
„Það stendur reyndar í lögum
Sundsambandsins að það eigi að
reyna að halda mótið annað hvert
ár utan Reykjavíkur og mér finnst
persónulega mjög eðlilegt að því
verði fylgt.“
Sigrún sagði einnig að aðstaðan
sem verið er að skapa í Laugar-
dalnum væri glæsileg og hlakkaði
hún til að fara með sundfólk frá
Eyjum í Laugardalinn. „Við skul-
um samt ekki gleyma því að krökk-
unum finnst gaman að koma hingað
og það er ákveðin stemmning að
vera öll svona saman, stemmning
sem líklega næst ekki í Reykjavík.
Þetta hefur ákveðna kosti og ég hef
trú á því að menn muni líka líta á
það. Svo má ekki gleyma þeirri
miklu reynslu sem er hérna í Eyj-
um í að halda svona mót.“
Morgunblaðið/Sigfús Gunnar Guðmundsson
Anja Ríkey Jakobsdóttir, SH, er hér að setja Íslandsmet í 100
metra baksundi – 1.03,10 mínútur. Gamla metið átti Skagamað-
urinn Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, 1.03,67 mínútur.
Tvö Íslandsmet
féllu í Eyjum
HIN efnilega sundkona úr Hafn-
arfirðinum, Ragnheiður Ragn-
arsdóttir, varð fyrst til að setja
Íslandsmet á Innanhússmeist-
aramótinu í sundi sem fram fór í
Eyjum um helgina. Ragnheiður
bætti fimm ára gamalt met Láru
Hrundar Bjargardóttur í 100
metra fjórsundi og var þetta
fyrsta Íslandsmet Ragnheiðar í
einstaklingsgrein. Örn Arn-
arson úr ÍRB fór mikinn á
mótinu og nældi sér í átta gull-
verðlaun, en hann vann allar
sex einstaklingsgreinarnar sem
hann keppti í og var í boðsund-
sveit ÍRB sem vann tvenn gull-
verðlaun.
Morgunblaðið/Sigfús Gunnar
Ragnheiður Ragnarsdóttir, Sundfélagi Hafnarfjarðar, setti Ís-
landsmet í 100 metra fjórsundi – 1.04,33 mínútur. Eldra metið
átti samherji hennar, Lára Hrund Bjargardóttir, 1.04,54 mín.
Sigursveinn
Þórðarson
skrifar
■ Úrslit B/10
Steindór Gunnarsson landsliðsþjálfari