Morgunblaðið - 22.03.2004, Síða 7
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. MARS 2004 B 7
LOKEREN lá fyrir
Cercle Brügge á heima-
velli í belgísku 1. deild-
inni í knattspyrnu í gær.
Rúnar Kristinsson og
Arnar Þór Viðarsson léku
allan leikinn fyrir Loke-
ren, Arnar Grétarsson
kom inn á í síðari hálfleik
en hann var að spila sinn
fyrsta leik frá því hann
gekkst undir aðgerð í
nára í byrjun desember.
Marel Baldvinsson var í
19. manna hópnum fyrir leikinn en
var ekki valinn í endanlegan leik-
mannahóp.
Lokeren fékk gullið tækifæri til
að jafna í 1:1 í síðari hálfleik en Ta-
ilson misnotaði vítaspyrnu
sem Arnar Grétarsson
hefði betur átt að taka því
hann sýndi mikið öryggi á
vítapunktinum á síðustu
leiktíð og skoraði úr átta
vítaspyrnum. Gestirnir
misstu leikmann út af í
kjölfarið en manni færri
tókst þeim engu að síður
að skora annað mark und-
ir lok leiksins. Lokeren er
í 15. sæti af átján liðum.
Indriði Sigurðsson var í
byrjunarliði Genk en var skipt út af
á 71. mínútu þegar liðið gerði 1:1
jafntefli við La Louviere. Genk er í
fimmta sæti deildarinnar, 21 stigi á
eftir toppliði Anderlecht.
Arnar Grétarsson
aftur á ferðina
Arnar
Grétarsson
Það var greinilegt á leik Íslands-meistaranna í byrjun að þeir
voru ragir við
Grindavíkurliðið og
gengu Grindvíkingar
á lagið og voru með
sjö stiga forskot eftir
fyrsta leikhluta, 26:19.
Keflvíkingar tóku að hressast og
spiluðu áfram svæðisvörn sem þeir
gerðu reyndar frá byrjun og út leik-
inn. Fátt markvert gerðist í öðrum
leikhluta.
Í þriðja leikhluta fóru leikmenn
Keflavíkur að bíta verulega frá sér
með besta mann liðsins fremstan í
flokki, Nick Bradford sem skoraði
jafnt og þétt fyrir gestina alls 28 stig
auk þess að spila fína vörn.
Meistararnir komust yfir um miðj-
an þriðja leikhluta og forysta Keflvík-
inga var orðin 6 stig í lok þriðja leik-
hluta. Byrjunin á síðasta leikhluta var
á svipuðum nótum en þegar rúmar
þrjár mínútur voru liðnar af fjórða
leikhluta fór allt í baklás hjá Keflvík-
ingum og Grindvíkingar breyttu stöð-
unni úr 75:80 í 91:80 á þremur mín-
útum og leikurinn var nánast
formsatriði það sem eftir lifði hans.
Keflvíkingar áttu engin svör við þessu
og urðu að játa sig sigraða, 99:84.
„Þetta var hörkuleikur og við vor-
um með leikinn í okkar höndum en
svo skora þeir 16 stig í röð í síðasta
leikhlutanum. Nick Bradford var góð-
ur og við spiluðum nokkuð vel. Við
ætluðum að keyra á þá en það gekk
ekki alveg, þannig að nú tekur næsti
leikur við,“ sagði Falur Harðarson,
annar af þjálfurum Keflavíkur.
„Þegar Nick Bradford missti flugið
fór að halla undanfæti hjá þeim. Hann
er einn albesti erlendi leikmaðurinn,
kann leikinn frá A-Ö. Það er enginn
tími til að velta fyrir sér sigri eða tapi,
nú er það bara næsti leikur. Keflavík
spilar mikið svæðisvörn þannig að
það kom ekki á óvart en þeir voru að
reyna að stjórna hraðanum í leiknum
og því hefur leikurinn verið eitthvað
rólegri fyrir vikið. Þeir voru að reyna
að setja miðherjann Derrick Allen inn
í leikinn en það gekk ekki hjá þeim,“
sagði Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari
Grindavíkur.
Jones með þrefalda tvennu
ÞREFÖLD tvenna Bandaríkjamannsins Anthony Q. Jones í liði
Grindavíkur lagði grunninn að fyrsta sigri liðsins í undanúrslita-
rimmunni gegn Keflavík í úrvalsdeild karla, Intersportdeild, en liðin
léku á laugardaginn. Íslandsmeistaralið Keflavíkur var með væn-
lega stöðu er skammt var liðið á þriðja leikhluta, en þá skoraði
Grindavík 16 stig í röð og landaði sigri, 99:84, en staðan í hálfleik
var 47:41.
Garðar
Vignisson
skrifar
Leikurinn fór hratt af stað og bæðilið spiluðu skemmtilegan körfu-
bolta. Njarðvík var samt alltaf einu
skrefi á undan Snæ-
fellingum. Greinilegt
var hvað Snæfell
ætlaði sér en það var
að stöðva aðalskor-
ara Njarðvíkur, Brandon Woudstra.
William Chavis réð ekkert við Corey
Dickerson, sem skoraði hverja körf-
una á fætur annarri í fyrsta leik-
hluta.
Í fjórða leikhluta tóku Hólmarar
heldur betur við sér og spiluðu mjög
góða vörn og voru skipulagðir í sókn-
inni og skoruðu fyrstu átta stigin í
leikhlutanum. Þessi kafli kom Njarð-
víkingum í opna skjöldu og brugðu
þeir á það ráð að taka leikhlé og fara
betur yfir sín mál.
Lítið breyttist við þetta leikhlé og
gestirnir héldu uppteknum hætti og
söxuðu hægt og bítandi á forskot
Njarðvíkinga. Corey Dickerson átti
skínandi leik í fjórða leikhluta og
William Chavis, leikmaður Njarðvík-
ur, réð ekkert við Dickerson sem
skoraði þegar hann vildi og mataði
samherja sína vel. Þegar innan við
mínúta var eftir af leiknum fékk
Brandon Woudstra dæmda á sig
sóknarvillu og fékk sína fimmtu villu.
Woudstra sparkaði í vatnsbrúsa á
bekknum og fékk dæmda á sig
tæknivillu. Snæfell fékk fjögur víti
og skoraði úr þremur þeirra og var
komið þremur stigum yfir. Unnu
þeir boltann á ný og var brotið á
Dondrell Whitmore sem fékk tvö
vítaskot og skoraði úr öðru.
Njarðvíkingar geta kennt sjálfum
sér um tapið því þeir skoruðu ekki
stig í fjórar síðustu mínútur leiksins
og töpuðu fjórða leikhluta 10:28.
Besti maður vallarins var Corey
Dickerson sem skoraði 26 stig og
stjórnaði eins og herforingi.
„Það er mjög erfitt að spila hér í
Njarðvík, en við sýndum mikinn
styrk að koma til baka og vinna upp
21 stigs forystu og það hér í Njarð-
vík. Undir lokin á leiknum fórum við
að vera harðari í vörninni og
ákveðnari í sókninni og á sama tíma
voru þeir hættir að sækja að okkur.
Þeir féllu á eigin bragði; að hætta að
sækja á körfuna,“ sagði Bárður Ey-
þórsson, þjálfari Snæfells.
„Þetta var algjör gjöf að gefa þeim
þennan sigur, við eigum ekki að tapa
14 stiga forystu á 10 mínútum. Við
spiluðum mjög vel í 30 mínútur en
leikurinn er í 40 mínútur. Undir lok-
in frusum við algjörlega og vorum
alltof kærulausir. Á þessum tíma-
punkti stilltum við ekkert upp og það
var ekkert í gangi í sókninni. Við er-
um heldur betur búnir að stilla okk-
ur upp við vegg, en við tökum einn
leik í einu og mætum á þriðjudaginn
til að berjast fyrir lífi okkar,“ sagði
Friðrik Pétur Ragnarsson, þjálfari
Njarðvíkur.
Snæfell
skellti í lás
DEILDARMEISTARARNIR úr Stykkishólmi, Snæfell, eru með væn-
lega stöðu gegn Njarðvík að loknum tveimur leikjum liðanna í und-
anúrslitum úrvalsdeildarinnar í körfuknattleik. Í gær áttust liðin við
í Njarðvík þar sem heimamenn skoruðu ekki stig á síðustu fjórum
mínútum leiksins og leikmenn Snæfells gengu á lagið og sigruðu,
83:79. Í upphafi fjórða leikhluta voru Njarðvíkingar með 14 stiga
forskot sem gestirnir náðu að vinna upp. Staðan er því 2:0 og þurfa
Njarðvíkingar að vinna þrjá leiki í röð og þar af tvo í Stykkishólmi
ætli liðið sér að leika til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn.
Davíð Páll
Viðarsson
skrifar
ÓHANNES B. Jóhannesson tapaði í
ndanúrslitum fyrir Englendingnum
Daniel Ward, 4:3, á Eystrasaltsmótinu í
nóker nú stendur yfir í Riga í Lett-
andi.
Ásgeir Ásgeirsson og Sumarliði Gúst-
fsson komust í 16-manna úrslit en voru
legnir þar út. Sumarliði beið lægri hlut
yrir Dananum Rune Kampe, 4:3, og Ás-
eir lá fyrir Mats Eriksson frá Svíþjóð,
:0.
Jóhannes vann hins vegar Frakkann
tephane Ochoiski, 4:0, í 16-manna úr-
litunum og í 8-manna úrslitinum hafði
ann betur á móti Mats Eriksson, 4:1.
Undanúrslitaleikurinn við Ward var
æsispennandi þar sem Englendingurinn
afði betur í sjöunda rammanum.
Jóhannes tapaði í
undanúrslitunum
Morgunblaðið/Sigfús Gunnar
Örn Arnarson var sigursæll á Íslandsmótinu í Eyjum.
LÁRA Hrund Bjarg-
ardóttir úr Sundfélagi
Hafnarfjarðar setti Ís-
landsmet í 200 metra
bringusundi á laugardag-
inn á bandaríska há-
skólameistaramótinu, en
hún kom í mark á tímanum
2.30,64 mínútum. Lára
keppir fyrir hönd Univers-
ity of California Irvine.
Gamla metið átti Íris
Edda Heimisdóttir sem
hún setti á ÍMÍ í Vest-
mannaeyjum fyrir ári,
2.30,93 mínútur.
Met hjá
Láru
Hrund