Morgunblaðið - 22.03.2004, Qupperneq 8
HANDKNATTLEIKUR
8 B MÁNUDAGUR 22. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
CELJE Lasko frá Slóveníu og
þýska liðið Flensburg leika til úr-
slita í Meistaradeild Evrópu í hand-
knattleik en Íslendingaliðin Magde-
burg og Ciudad Real eru fallin úr
leik.
Magdeburg sigraði Flensborg,
36:26, í frábærum leik í Bördel-
andhalle í Magdeburg í gær en það
dugði ekki liðinu til að komast
áfram. Liðin stóðu jöfn eftir leikina
tvo, 56:56, en þar sem Flensburg
skoraði fleiri mörk á útvelli komst
liðið í úrslitin. Magdeburg var grát-
lega nærri því komast í úrslitaleik-
inn. Hálfri mínútu fyrir leikslok
kom Christian Schöne Magdeburg í
11 marka forystu með marki úr
horninu en danski landsliðsmað-
urinn Lars Krogh Jeppesen skaut
Flensburg áfram þegar hann
minnkaði muninn í 10 mörk 17 sek-
úndum fyrir leikslok. Síðasta tæki-
færi lærisveina Alfreðs Gíslasonar
til að komast áfram fór
út um þúfur þegar skot
pólska landsliðsmanns-
ins Gregorz Tkaczyk
fór framhjá.
Magdeburg hafði
19:13 yfir í hálfleik og
komst sjö mörkum yfir í
byrjun seinni hálfleiks.
Flensburg náði að
minnka muninn í eitt
mark en þá tóku heima-
menn heldur betur við
sér. Hvattir áfram af
8.000 stuðnings-
mönnum sínum tókst
þeim að komast 11 mörkum yfir en
Flensborgarar sluppu með skrekk-
inn og þeir stigu villtan stríðsdans í
leikslok.
Joel Abati átti stórleik fyrir
Magdeburg og skoraði 10 mörk,
Stefan Kretzcshmar 6
og Tkaczyk 5. Sigfús
Sigurðsson skoraði 2
mörk og var greini-
lega sárþjáður vegna
meiðslanna í hnénu.
Hjá Flensburg skor-
uðu Danirnir Sören
Stryger og Lars Krogh
Jeppesen 7 mörk hver.
Celje Lasko lagði
Ciudad Real frá Spáni
að velli, 34:32, í síðari
leik liðanna en Lasko
vann fyrri leikinn á
Spáni með einu marki,
36:35. Ólafur Stefánsson náði sér
ekki á strik í liði Ciudad Real og
skoraði aðeins eitt mark og misnot-
aði eitt vítakast.
Magdeburg sat eftir með sárt ennið
Joel Abati sækir
hér að marki
Flensburg.
FÓLK
JALIESKY Garcia skoraði 5 mörk
fyrir Göppingen sem tapaði á heima-
velli fyrir Hamborg, 29:28, í þýsku 1.
deildinni í handknattleik. Göppingen
er í harðri fallbaráttu en liðið er með
15 stig í 14. sæti deildarinnar.
PATREKUR Jóhannesson skoraði
7 mörk fyrir Bidasoa og Heiðmar
Felixson 2 þegar lið þeirra tapaði
fyrir Cantabria, 24:23, í spænsku 1.
deildinni.
RÓBERT Gunnarsson skoraði 7
mörk fyrir Århus GF og Þorvarður
Tjörvi Ólafsson 2 þegar liðið vann
stórsigur á Silkeborg, 31:19, í
dönsku úrvalsdeildinni. Þetta var
fimmti sigur Århus GF í röð og er
liðið í sjötta sæti deildarinnar.
ALEXANDER Petersson skoraði
8 mörk fyrir Düsseldorf sem sigraði
Konstanz, 35:19, í suðurriððli þýsku
2. deildarinnar. Düsseldorf er í efsta
sæti með 49 stig og er sjö stigum á
undan Osweil.
ARNAR Geirsson skoraði 3 mörk,
þar af eitt úr vítakasti, þegar lið hans
Gelnhausen tapaði, 27:23, fyrir Ba-
yer Dormagen í suðurriðli þýsku 2.
deildarinnar í handknattleik.
GÍSLI Kristjánsson, fyrrum leik-
maður Gróttu/KR, skoraði 8 mörk
fyrir Frederica sem sigraði Ajax,
35:25, í dönsku úrvalsdeildinni í
handknattleik í gær. Frederica er í
áttunda sæti deildarinnar.
DAGUR Sigurðsson, þjálfari og
leikmaður Bregenz, skoraði 2 mörk
fyrir lið sitt sem burstaði Wolfhouse,
30:19, í úrslitakeppni í austurrísku 1.
deildinni í handknattleik í gær. Bre-
genz er með fimm stiga forskot á
toppi deildarinnar. Dagur og læri-
sveinar hans hafa 17 stig, Superfund
Hard hefur 12 og Wolfhouse 11 en
átta lið taka þátt í úrslitakeppninni.
HK-liðið getur öðrum fremurþakkað markverði sínum,
Björgvin Páli Gústavssyni, sigurinn
á KA því að hann
varði sem berserkur
allan leikinn, ekki
síst á lokasprettin-
um þegar KA-liðið
hafði jafnaði leikinn og átti mögu-
leika á að komast yfir. Þá varði
Björgvin m.a. vítakast og skot úr
opnum færum og í framhaldinu
tryggði Már Þórarinsson HK-sigur,
32:30, með marki úr horni.
„Við erum fyrst og fremst búnir að
hreinsa loftið. Þessi sigur veitir okk-
ur síðan sjálfstraust og þegar það er
fyrir hendi í HK-liðinu þá er það ill-
viðráðanlegt,“ sagði Alexander Arn-
arson, fyrirliði HK, í leikslok og var í
sjöunda himni með sigurinn. „Við
höfum ekki unnið KA í háa herrans
tíð og við vorum staðráðnir í því frá
fyrstu mínútu að vinna leikinn, ekki
síst eftir að hafa lagt ÍR á föstudag-
inn. Sá sigur veitti okkur gríðarlegt
sjálfstraust,“ sagði Alexander sem
var óþreytandi í vörn HK.
Fátt var um varnir í fyrri hálfleik,
mörkin komu á færibandi og hraðinn
var mikill. Munurinn á liðunum í
fyrri hálfleik var fyrst og fremst sá
að Björgvin varði vel í marki HK,
tólf skot, á meðan félagar hans í KA-
markinu náðu sér ekki á strik.
Meiri ró var yfir leiknum í síðari
hálfleik, eftir mörkin 39 í þeim fyrri.
Varnir beggja liða bötnuðu og um
leið fór að bera á markvörslu hjá KA.
Sóknarleikur liðsins var hins vegar
mjög einhæfur og gekk að mestu út á
þrjá menn og því reyndist auðvelt að
stöðva þá. Ekkert kom út úr horna-
mönnum bikarmeistaranna og Einar
Logi Friðjónsson gerði vart tilraun
til þess að ógna marki HK.
„Það vantaði alveg baráttuna í
okkur, sérstaklega í fyrri hálfleik
þar sem ekki var einu sinni dæmt
aukakast á okkur fyrstu 11 mínút-
urnar. Í lokin vorum við óskynsamir
á því féllum við að þessu sinni. Nú
verðum við að gyrða okkur í brók
fyrir lokasprettinn. Það þýðir ekkert
að leika svo í síðustu leikjunum ef við
ætlum okkur að vinna úrvalsdeild-
ina,“ sagði Jónatan Magnússon, fyr-
irliði KA.
Björgvin Páll
átti stórleik
BARÁTTUGLAÐIR leikmenn HK komu í veg fyrir að KA tækist að
komast í efsta sæti úrvalsdeildarinnar síðdegis í gær þegar þeir
lögðu norðanmenn, 32:30, eftir að hafa verið þremur mörkum yfir í
hálfleik, 21:18. Þetta var annar sigur HK eftir að liðið skipti út þjálf-
ara sínum fyrir helgina og sigrarnir tveir hafa aukið möguleika liðs-
ins á að tryggja sér öruggt sæti í úrslitakeppninni.
Ívar
Benediktsson
skrifar
Haukar hófu leikinn af miklumkrafti. Í vörninni „klipptu“
þeir út besta leikmann Fram í síð-
ustu leikjum, Valdi-
mar Þórsson, og
lömuðu þar með
sóknarleik gestanna
til muna. Riðlaðist
sóknarleikur Fram svo mikið að
þeir færðu Haukum boltann upp í
hendurnar. Átta af fyrstu tólf
mörkum Hauka í leiknum voru
skoruð úr hraðaupphlaupum og í
raun má segja að þar hafi mun-
urinn legið því þá var staðan 12:4
eftir fimmtán mínútna leik. Leik-
mönnum Fram lánaðist aðeins að
laga leik sinn og bíta örlítið frá sér
og forðast þar með skell. Meiri yf-
irvegun færðist í sóknarleikinn
þegar Martin Larsen leysti Valdi-
mar af. Þá brugðu Framarar einnig
á það ráð að taka Ásgeir Örn Hall-
grímsson úr umferð, en hann var
allt í öllu í sóknarleik Hauka. Þá
tók Robertas Pauzolis við og skor-
aði hvert markið á fætur öðru með
þrumuskotum. Forskot Hauka
jókst á ný og var sex mörk í hálf-
leik, 20:14, og þess má geta að
helmingur marka Haukanna í hálf-
leiknum var skoraður upp úr
hraðaupphlaupum en Fram-liðið
skoraði fjögur mörk eftir hraða-
upphlaup.
Fram breytti vörn sinni í byrjun
síðari hálfleiks, byrjaði á því að
leika framliggjandi 3/2/1 vörn og
kom það Haukum í opna skjöldu.
Framarar skoruðu fjögur fyrstu
mörk hálfleiksins og höfðu þar með
minnkað forskotið ofan í tvö mörk,
20:18 og síðan 21:19. Haukar blésu
til sóknar á ný og bættu aðeins í
forskotið, aðallega með yfirvegaðri
sóknarleik þar sem Ásgeir Örn lék
aðalhlutverkið. Hann lék samherja
sína uppi. Barátta Framara kostaði
sitt og á fimm mínútna kafla eftir
að tíu mínútur voru liðnar af síðari
hálfleikmisstu þeir Haukana end-
anlega fram úr sér. Þá misstu
Framarar þrjá leikmenn út af
skömmum tíma, suma fyrir smá-
vægilegar sakir. Haukar færðu sér
liðsmuninn í nyt, komust átta
mörkum yfir, 28:20, og þar með má
segja að úrslitin hafi verið ráðin.
Haukar héldu sjö til átta marka
forskoti um tíma en síðustu tíu
mínúturnar gaf Páll Ólafsson flest-
um lærisveinum sínum tækifæri til
að spila. Fengu þá Pauzuolis og Ás-
geir t.d. að hvíla sig. Fyrir vikið fór
mesti broddurinn úr sóknarleik
Hauka, leikurinn leystist aðeins
upp en sigur Íslandsmeistaranna
var þó aldrei í hættu þótt Fram
tækist aðeins að klóra í bakkann og
minnka muninn, sigri Hauka tókst
Frömurum hins vegar aldrei að
ógna.
Ásgeir Örn átti frábæran leik hjá
Haukum. Auk þess sem hann skor-
aði sjö góð mörk þá átti hann
hverja snilldarsendinguna á fætur
annarri á samherja sína. Pauzolis
var einnig sterkur, svo sterkur að
Framarar fengu ekkert við ráðið.
Þórir Ólafsson var sprækur, eink-
um í fyrri hálfleik. Þá mætti Aliks-
andr Shamkuts sterkur til leiks og
rak smiðshöggið á margar fallegar
sendingar Ásgeirs með marki.
Birkir Ívar Guðmundsson átti einn-
ig ágæta spretti í marki Hauka.
Eins og fyrr hefur verið getið þá
kom slök byrjun Framara þeim í
koll þegar á leið. Mikil orka fór í að
vinna upp óþarflega stór forskot
Hauka, fyrst í fyrri hálfleik og síð-
an aftur í byrjun þess síðari, meiri
orka en Fram-liðið hafði yfir að
ráða, ekki síst þar sem Héðinn
Gilsson og Valdimar Þórsson náðu
sér ekki á strik. Valdimar tók
reyndar sprett undir lokin þegar
fokið var í flest skjól en Héðinn
virtist meiddur og lék ekkert í síð-
ari hálfleik. Þá kom Hjálmar Vil-
hjálmsson ekkert við sögu. Vörnin
var slök og fyrir vikið átti Egidijus
Petkevicius markvörður á brattann
að sækja, sérstaklega í fyrri hálf-
leik þegar bylgja hraðaupphlaupa
skall á honum. Guðlaugur Arnar-
son og Martin Larsen létu óvenju-
mikið að sér kveða í sókninni og
Guðlaugur var að vanda duglegur í
vörninni. Ungir og efnilegir leik-
menn innan raða Fram, Jón Björg-
vin Pétursson, Jóhann G. Einars-
son og Jón Þór Þorvarðarson, eiga
enn nokkuð í land til að geta boðið
uppi leik gegn Haukum en víst er
að framtíðin er þeirra.
Meistararn-
ir tylltu sér
á toppinn
HAUKAR létu gullið tækifæri til að komast í efsta sæti úrvalsdeildar
sér ekki úr greipum ganga í gærkvöldi þegar þeir tóku á móti Fram
að Ásvöllum. Unnu þeir örugglega, 37:33, eftir að hafa verið sex
mörkum yfir í hálfleik, 20:14. Slök byrjun Framara varð þeim öðru
fremur að falli að þessu sinni, þá þeir færðu Haukum boltann á silf-
urfati skipti eftir skipti, og kom það í veg fyrir að liðið blandaði sér
af meiri alvöru í keppnina um eitt af fjórum efstu sætum deild-
arinnar, en sigur hefði óneitanlega komið Safamýrarpiltum í
skemmtilega stöðu.
Ívar
Benediktsson
skrifar
ÍBV til Þýska-
lands, Pól-
lands eða
Rúmeníu
Íslandsmeistarar ÍBV mæta
þýska liðinu Nürnberg, Vit-
aral Jelva frá Póllandi eða
Universitatea frá Rúmeníu í
undanúrslitum í Áskor-
endakeppni Evrópu í hand-
knattleik kvenna en dregið
verður á morgun.
Nürnberg sló út Anadolou
frá Tyrklandi samanlagt með
22 marka mun, Viteral Jelva
sló út Bayer Leverkusen frá
Þýskalandi. Liðin stóðu jafnt,
45:45, eftir leikina tvo en
Jelva fór áfram á útimarka-
reglunni. Universitatea sló út
þýska liðið Dortmund með
fjögurra marka mun.