Morgunblaðið - 22.03.2004, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. MARS 2004 B 9
Úrval Útsýn í Smáranum stendur fyrir Formúlu 1
ferð til Barcelona í byrjun maí
Beint flug til Barcelona með leiguvél Flugleiða á föstu-
dagsmorgni og til baka á mánudagskvöldi.
Gist á Malgrat við Costa Brava ströndina í 3 nætur á
4* hóteli, fylgst með kappakstrinum bæði laugardag
og sunnudag.
Ath. stuttar vegalengdir í þessari ferð - frá flugvelli í gist-
ingu og frá gistingu á brautina.
Aðalfararstjóri í ferðinni verður
Olafur Guðmundsson dómari í Formúlu 1.
Formúluáhugamenn, stöndum saman, fjölmennum í
þessa einstöku ferð og gerum hana að veruleika.
Verð 79.500
Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting í 3 nætur með morgunmat,
allur akstur erlendis, miðar á tímatökur og keppni,
íslensk fararstjórn.
* Háð því að lágmarksþátttaka náist fyrir 23. mars.
FORMÚLU 1 FERÐ
til Barcelona
7.-10. maí 2004
Allar nánari upplýsingar:
Úrval-Útsýn í Smáranum
sími 585 4100
eða á netinu urvalutsyn.is
„ÞAÐ er alveg grátlegt að vinna
tíu marka sigur í undanúrslitum í
Meistaradeildinni og það skuli
ekki duga til að fara áfram. Það
voru hrikaleg mistök að leyfa
Jeppesen að skjóta undir lokin.
Það átti bara að negla hann niður
í gólfið og ef það hefði verið gert
þá er ég sannfærður um að við
hefðum haft þetta,“ sagði Sigfús
Sigurðsson, leikmaður Magdeburg,
við Morgunblaðið skömmu eftir
leikinn við Flensburg í undan-
úrslitum Meistaradeildarinnar í
handknattleik í gær. Magdeburg
sigraði, 36:26, en það dugði ekki
til því að Flensburg komst áfram
á útimarkareglunni.
Spurður hvort skot Pólverjans
Tkaczyk hefði ekki verið óyf-
irvegað undir lok leiksins sagði
Sigfús; „Alls ekki. Hann var í
opnu færi en hann
var óheppinn. Boltinn
fór í stöngina og
framhjá í staðinn fyr-
ir stöngina og inn. Ég
var að vísu í dauða-
færi á línunni en ég
er samt þeirrar skoð-
unar að Tkaczyk
hefði átt að skjóta
sjálfur.“
„Alfreð gat svo sem
lítið sagt við okkur
eftir leikinn. Við
gerðum allt sem við
gátum og meira gat
hann ekki beðið um.
Það var allur handboltaheimurinn
búinn að afskrifa okkur en við
spiluðum frábæran leik og það var
sárt að það skyldi ekki duga til að
komast í úrslitaleikinn. Eins og við
spiluðum í dag þá á
ekkert lið möguleika í
okkur. En draum-
urinn um að vinna
Evrópukeppnina er
úti þetta árið en það
eru tveir titlar enn í
boði og við ætlum
okkur að sjálfsögðu
að taka þá.
Sigfús lék eins og í
síðustu leikjum
Magdeburg nánast á
annarri löppinni en
meiðsli í hné hafa
verið að angra kapp-
ann.
„Ég þarf ekki að fara í neina
aðgerð. Ég þarf bara að fá smáfrí
og ég verð örugglega hvíldur í
leiknum við Stralsunder á mið-
vikudaginn.
„Jeppesen átti aldrei að fá að skjóta“
Það er rétt sem Júlíus segir: Þettavar alvöru leikur þar sem liðin
leyfðu mótherjunum mjög takmark-
að að nýta hraðaupphlaup sem eru
orðin svo stór hluti af
handknattleiknum.
Bæði lið léku með
framliggjandi varn-
ir, gestirnir þó held-
ur framar og voru varnir liðanna
mjög ágengar og hreyfanlegar. Ef
bolti tapaðist voru menn fljótir til
baka þannig að hraðaupphlaup nýtt-
ust lítt. Einnig flautuðu dómararnir
mjög oft til að láta þurrka svita af
gólfinu og fyrir vikið varð leikurinn
ekki eins hraður og efni stóðu til.
Bæði Valur og ÍR töpuðu í síðustu
umferð og það var því mikilvægt að
endurheimta sjálfstraustið. Eftir
þessa þriðju síðustu umferð er allt í
hnapp á toppnum. Valur og Haukar
með 22 stig og KA og ÍR stigi þar á
eftir. „Það þurfti ekki að segja strák-
unum hvað þeir voru slakir í síðasta
leik, þeir gerðu sér allir grein fyrir
því, hver einn og einasti. Þá vantaði
alla baráttu, en núna var hún í lagi og
það má fara ansi langt á henni. Við
vissum hversu mikilvægur leikur
þetta var enda er allt í hnút í efri
kantinum og þetta datt okkar megin
í dag. Vörnin var fín og markvarslan
einnig,“ sagði Júlíus eftir leikinn.
Það var jafnræði með liðunum
nær allan leikinn þó svo að þau skipt-
ust á um að skora nokkur mörk í röð
án svars frá mótherjanum. Þannig
var ÍR tveimur mörkum yfir
snemma í fyrri hálfleik en Valur
þremur yfir undir lok hálfleiksins og
tveimur við upphaf þess síðari. Þá
lokaði Ólafur Gíslason, markvörður
ÍR, marki sínu með aðstoð varnar-
innar og ÍR gerði fjögur mörk í röð
og komst 14:12 yfir.
Skömmu síðar var einn leikmaður
úr hvoru lið sendur út af og leikmað-
ur Vals var ekki sáttur við það, braut
af sér á ný og fékk rautt spjald. Vals-
menn því einum færri en ÍR tókst
ekki að nýta það, Valur komst í
18:17, en svo þegar liðin voru full-
skipuð á ný gerðu gestirnir þrjú í
röð, staðan því 20:18 fyrir ÍR og
rúmar tvær mínútur eftir. Sá tími
dugði ekki Val því liðin skiptust á um
að skora til loka leiks.
Enn vantar lykilmenn hjá Val þó
það styttist í að þeir geti verið með.
Bjarki Sigurðsson verður frá í hálfan
mánuð til viðbótar að sögn Óskars
Bjarna, þjálfara Vals, og Markús
Máni Michaelsson verður frá keppni
viku lengur. Pálmar Pétursson átti
fínan leik í markinu, Heimir Örn var
lunkinn og stjórnaði leik liðsins
ágætlega en breiddina vantar hjá lið-
inu þannig að stöðug ógnun geti ver-
ið úr öllum stöðum.
Ólafur, markvörður ÍR, var góður
í gær, Bjarni Fritzson átti fínan leik,
eins og Hannes Jón Jónsson, sem þó
átti óvenju fá skot að marki. Einar
Hólmgeirsson var hins vegar
óhræddur við að skjóta. Annars háði
það ÍR hversu klaufalega sumir leik-
menn velja skot sín, alveg úr von-
lausum færum. „Hvað segir þú,
fannst þér við ekki nægilega vand-
virkir við að velja okkur skotfæri?
Mér fannst við mun agaðri í sókninni
í dag en oftast áður. Annars má alltaf
bæta sig, annars væri lítið gaman að
þessu,“ sagði Júlíus Jónasson.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Heimir Örn Árnason sækir að marki ÍR en til varnar er Einar
Hólmgeirsson sem tekur Heimi ekki neinum vettlingatökum.
Annað tap Vals-
manna í röð – nú
að Hlíðarenda
„ÞETTA var alvöru leikur, sterk-
ar varnir og markaskorið svipað
og fyrir mörgum árum þegar
sumir voru ungir,“ sagði Júlíus
Jónasson, kampakátur þjálfari
ÍR, eftir að lið hans lagði Val,
22:21, að Hlíðarenda í úrvals-
deildinni í handknattleik. ÍR-
ingar halda því sínu striki í bar-
áttunni og Valsmenn eru enn í
fyrsta sæti deildarinnar.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
Stjörnumenn byrjuðu leikinn afmikilli hörku, börðu á sókn-
armönnum Gróttu/KR og fengu
margar brottvísanir
af þeim sökum. Á
fimm mínútum í
fyrri hálfleik voru
fjórir Stjörnumenn reknir út af í
tvær mínútur og komust þá heima-
menn sex mörkum yfir. Stjarnan
sá aldrei til sólar eftir það og
Grótta/KR sigraði sem áður segir,
28:20.
Fjórir leikmenn Gróttu/KR sáu
um markaskorunina, Konráð
Olavsson, Magnús Magnússon,
Daði Hafþórsson og Kristinn
Björgúlfsson skoruðu allir sex
mörk.
„Ég er ánægður með mína
menn, við gáfum þeim nokkur
ódýr mörk en í heildina spiluðum
við vel. Nú er okkar fyrsta mark-
miði náð, að tryggja okkur í um-
spilið, og nú er næsta markmið að
sigra HK-menn. Þeir eru á mikilli
siglingu og koma vel stemmdir á
móti okkur þannig að við eigum
erfiðan leik fyrir höndum,“ sagði
Ágúst Jóhannsson, þjálfari Gróttu/
KR.
Sigurður Bjarnason, þjálfari
Stjörnunnar, er ekki í öfunds-
verðri stöðu. Hann sá þó ljósa
punkta í liði sínu.
„Það var allt annað að sjá til
liðsins, það stóð sig vel þrátt fyrir
þennan mikla mun. Við spiluðum
okkur í gegnum vörnina en klúðr-
uðum mörgum dauðafærum. Það
er skiljanlega smástreita í mönn-
um eftir marga tapleiki að und-
anförnu en þeir börðust vel í kvöld
og ég er ánægður með það. Við
höldum ótrauðir áfram, berjumst
til síðasta manns ef með þarf og
reynum allt til að vinna leik,“ sagði
Sigurður.
GRÓTTA/KR vann öruggan sigur á hrakfaraliði Stjörnunnar, 28:20,
á Seltjarnarnesi í gærkvöldi. Stjörnumenn sýndu langtum skárri
leik en í síðustu leikjum og héldu í við heimamenn í fyrri hálfleik –
staðan í hálfleik 14:10. Heimamenn voru þó fljótir að gera út um
leikinn í byrjun þess síðari. Þetta var níundi tapleikur Stjörnunnar í
röð og liðið situr sem fastast á botninum en Grótta/KR er einu sæti
ofar.
Andri Karl
skrifar
„Fyrsta mark-
miði náð“
Sigfús
HANDKNATTLEIKUR