Morgunblaðið - 22.03.2004, Síða 12

Morgunblaðið - 22.03.2004, Síða 12
Íslands- og bikarmeistarar ÍBV tryggðu sér á laug- ardaginn deildarmeist- aratitilinn í handknattleik kvenna eftir sigur á Fram, 29:19, í íþróttahúsi Fram í Safamýri. ÍBV hefur 36 stig og á þrjá leiki eftir en Stjarnan er í öðru sæti með 32 stig en á aðeins einn leik eftir. Þetta var fjórði deild- arleikur meistaranna á fimm dögum en þeir leika alls sjö leiki á tíu dögum. ÍBV hafði aðeins eins marks forystu gegn Fram eftir fyrri hálfleikinn, 14:13, en í þeim síðari tóku Eyjakonur öll völd á vell- inum. Anna Yakova skoraði 12 mörk fyrir ÍBV og Nína K. Björnsdóttir 6. ÍBV deild- armeistari  SVEINN Margeirsson varð í 79. sæti á heimsmeistaramótinu í víða- vangshlaupi sem þreytt var í Brussel í Belgíu um helgina. Sveinn hljóp skeiðið, sem var 4 km, á 12,40 mín- útum. Björn Margeirsson varð í 118. sæti á 13,20 mínútum og Sigurbjörn Árni Arngrímsson hafnaði í 136. sæti á 14,02 mín. Sigurvegari varð Kenenisa Bekele frá Eþíópíu á 11,31 mín.  FYRRVERANDI landsliðsmaður Þýskalands í knattspyrnu, Oliver Bierhoff, vildi ekki taka fram skóna að nýju og leika með 1860 München í þýsku 1. deildinni það sem eftir er keppnistímabilsins en hinn 35 ára gamli framherji hætti sem atvinnu- maður sl. sumar.  BIERHOFF var aðalmarkaskorari þýska landsliðsins sem varð Evrópu- meistari árið 1996 en hann lék með Hamborg og Gladbach í heimalandi sínu áður en hann hélt til Ítalíu og lék þar með Udinese og AC Milan  SKOTINN Colin Montgomerie sigraði á Singapore Caltex Masters- golfmótinu sem fór fram í Singapúr en mótið var hluti af evrópsku móta- röðinni. Með sigrinum tryggði Montgomerie sér þátttökurétt á Pla- yers Championships um næstu helgi en þar leika 50 efstu kylfingarnir á heimslistanum. „Ég ætlaði mér að leika lokahringinn á 65 höggum og það gefur mér mikið sjálfstraust í næstu verkefni að hafa gert það sem ég ætlaði mér,“ sagði Montgomerie en hann hafði ekki sigrað í evrópsku mótaröðinni frá árinu 2002. „Ég hef náð að sigra á einu móti á ári frá árinu 1993 allt þar til á síðasta ári og ég er bjartsýnn á framhaldið,“ sagði Montgomerie.  AJAX á meistaratitilinn næsta vís- an í Hollandi en eftir leiki gærdags- ins, þar sem Ajax burstaði Vitesse, 5:0, er forysta Ajax 11 stig. Bras- ilíumaðurinn Maxwell, Wesley Sneijder og Rúmeninn Nicolea Mi- tea skoruðu í fyrri hálfleik og í þeim síðari bættu þeir John Heitinga og Zlatan Ibrahimovic við tveimur mörkum.  SVÍINN Henrik Larsson hélt upp- teknum hætti með liði sínu, Celtic, í skosku úrvalsdeildinni um helgina. Larsson skoraði tvívegis þegar Cel- tic burstaði Hibernian, 4:0, og er for- ysta liðsins á Rangers nú 19 stig. Larsson komst í þriðja sæti yfir markahæstu leikmenn Celtic frá upphafi en hann hefur skorað 231 mark fyrir félagið. FÓLK um sigur við Schumacher. Er hann var spurður hvort Barrichello væri sekur um „skítlegt bragð“ á þessu stigi svaraði Montoya játandi. „Já. Um leið og ég hóf atlögu sveigði hann einnig og það var tilgangslaust að reyna framúrakstur. Eftir voru 12 hringir, ég var á nýjum dekkjum svo ég hægði ferðina og krusaði heim,“ sagði Montoya en hann sagði mikilvægara að skila liðinu 8 stigum en taka áhættu á árekstri og engum stigum. Langflestir ökuþóranna reyndust hafa lagt upp með sömu keppn- isáætlun, tóku keppnina í fjórum lot- um; stoppuðu þrisvar til að skipta um dekk og taka bensín. Reyndi Montoya að sækja á Schumacher á fyrstu þremur aksturslotunum en komst aldrei í tæri við hann; minnst munaði 3,5–4,0 sekúndum. Fyrri helmingur kappakstursins var mjög fjörlegur, mikið um fram- úrakstur á fyrstu hringjunum og hjálpaði til í þeim efnum að á köflum var brautin hál vegna lítils háttar úr- komu áður en kappaksturinn hófst auk þess sem dropar féllu við og við. Button tók Räikkönen á herfræðinni Button vann sig fram úr Kimi Rä- ikkönen hjá McLaren er hann kom Ekkert bendir á þessu stigi til aðdrottnun Ferrari-liðsins muni ljúka heldur – ef eitthvað er – eigi liðið eftir að fagna hverjum sigrinum á fætur öðrum á næstu mánuðum. Keppinautar þeirra, Williams, Renault og McLaren, eiga sem stendur á brattann að sækja til að komast með bíla sína á sama stall. Kappaksturinn í Sepang árið 2002 var annar tveggja sem liðið vann ekki það árið er það vann 15 mót ársins af 17. Sigur Schumachers var þó ekki með sömu yfirburðum og í fyrsta móti ársins, í Melbourne fyrir hálfum mánuði. Þakkaði hann dekkjafyrirtækinu Bridgestone sig- urinn og sagði dekk þess hafa tekið miklum framförum frá í fyrra og hittifyrra er Ferrarifákarnir áttu erfitt uppdráttar í Malasíu. Montoya hélt Schumacher við efnið allan tím- ann svo heimsmeistarinn gat hvergi slakað á. Á leið út úr síðasta þjón- ustustoppi missti Montoya hins veg- ar Rubens Barrichello hjá Ferrari fram úr sér og sagði hann hafa gert í því að halda aftur af sér. Því kaus hann að hægja ferðina til að komast heilu og höldnu í mark í öðru sæti. Sagði hann að Barrichello hefði svipt sig möguleikanum á að keppa út í brautina úr öðru þjónustustoppi í byrjun 27. hrings og vann sig vel fram úr honum. Reyndar sagðist Finninn hafa tapað tíma og misst Button fram úr vegna erfiðleika við að losa bensínslönguna úr bíl sínum. Räikkönen varð síðan fyrir því að Mercedes-mótorinn gaf sig svo hann féll úr leik á 40. hring. Þar með hef- ur Räikkönen ekki komist á mark það sem af er árinu. Eftir mótið sagði hann svartsýni ástæðulausa því að bíll McLaren hefði tekið mikl- um framförum vegna endurbóta í framhaldi af fyrsta móti. Jenson Button naut þess ærlega í Sepang að komast í fyrsta sinn á verðlaunapall frá því hann hóf keppni í Formúlu-1 í byrjun mars árið 2000 en þá ók hann fyrir Williams. Segist hann ekki ætla láta staðar numið heldur sé markmiðið að komast reglulega á pall. Kappaksturinn er sá 68. sem Button heyr en áður hafði hann fimm sinnum orðið í fjórða sæti á mark, bæði á Williams- og Renault- bílum. Mark Webber hjá Jagúar var mjög svekktur eftir kappaksturinn í Sepang og kenndi hann Ralf Schu- macher um að hann féll úr keppni. Sagði hann Ralf hafa ekið aftan á sig á fyrsta hring svo hjólbarði sprakk er þeir börðust um níunda sætið. Webber hóf keppni af fremstu rás- röð en svo framarlega hefur hvorki hann né Jagúar-bíll verið. Ræsingin snerist hins vegar upp í martröð er hann skreið hægt af stað miðað við aðra bíla og féll niður um mörg sæti. Á endanum snerist hann út úr brautinni og féll úr leik. Schumacher ók eins og sannur meistari og gaf Montoya aldrei færi á að komast í tæri við sig þótt Williams-þórinn reyndi það mjög. Sigur Schumach- ers er sá 72. á ferlinum og hefur hann nú 20 stig eða fullt hús í stiga- keppninni um heimsmeistaratitil ökuþóra. Hefur og 7 stiga forystu á Ferrari-félaga sinn Rubens Barri- chello sem er í öðru sæti með 13 stig. Montoya er þriðji með 12 stig og Button fjórði með 9. Þá er Fernando Alonso með 8 stig en honum tókst að vinna sig upp úr 19 sæti í það sjö- unda, færðist aftast vegna mis- heppnaðrar tímatöku í gær og mót- orskipta að henni lokinni. Félagi hans Jarno Trulli er með 6 stig, Ralf Schumacher – sem fyrstur ökuþóra féll úr leik í dag vegna vélarbilunar – er sjöundi með 5 stig og áttundi er David Coulthard hjá McLaren með 4 stig, en hann bætti sig frá síðasta móti og varð sjötti á mark í dag. Ferrari er þegar með góða forystu í keppninni um heimsmeistaratitil bíl- smiða, með 33 stig gegn 17 stigum William sem er í öðru sæti og í þriðja sæti er Renault með 14 stig. BAR í 4. sæti í keppni bílsmiða Með góðri frammistöðu Buttons í upphafi vertíðarinnar er BAR komið í fjórða sætið með 9 stig. Allt þar til fjórir hringir voru eftir af 56 leit út fyrir að félagi hans Takuma Sato myndi hreppa áttunda sætið og lokastigið en mótorinn gaf sig þá hjá honum. Minnstu munaði að Sato félli úr leik á sjötta hring er hann snar- sneri bílnum og flaug út í malar- gryfju. Tókst þó að halda ferðinni og komast aftur inn á malbikið. McLar- en er í fimmta sæti með 4 stig og Sauber í sjötta sæti með 1 stig sem Felipe Massa vann í dag. Önnur lið – Toyota, Jagúar, Jordan og Minardi – hafa ekki hlotið stig. Reuters Michael Schumacher á verðlaunapalli með þá Juan Pablo Montoya og Jenson Button sér við hlið. Aftur öruggur sigur hjá Schumacher ÖÐRU sinni á árinu, í öðru móti vertíðarinnar, vann Michael Schu- macher öruggan sigur er hann kom fyrstur á mark í Malasíukapp- akstrinum. Afsannaði hann spár sérfræðinga um að Ferraribíllinn myndi ekki þola loft- og brautarhitann í Sepang. Vann hann sinn 53. sigur á Ferraribíl og 72. sigurinn á ferlinum. Kappaksturinn mark- aði tímamót á keppnisferli Jenson Button hjá BAR sem komst nú í fyrsta sinn á verðlaunapall með þriðja sæti í keppninni. Annar varð Juan Pablo Montoya hjá Williams. Hitinn í Sepang, 35°C lofthiti og enn meiri brautarhiti, varð ekki til þess að halda aftur af Schu- macher eins og sérfræðingar töldu. Ágúst Ásgeirsson skrifar Ekkert bendir til á þessu stigi að drottnun Ferrari-liðsins muni ljúka heldur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.