Morgunblaðið - 26.03.2004, Blaðsíða 2
2 | FÓLKIÐ | FÖSTUDAGUR 26|3|2004 MORGUNBLAÐIÐ
Queer Eye for the Straight Guy: Eiginlega ætti enginn að þurfa að gifta sig án þess að fá að-
stoð frá hommum. Ekki þarf að horfa lengi á Queer Eye for the Straight Guy til að átta sig á
því. Auðvitað eru hommarnir í
þættinum erkitýpur, en í vikunni
tókst þeim að beisla ýfingaþrá-
hyggju Kevins, búa til boom
boom-herbergi heima hjá honum,
fá hann til að vefja bindi um belt-
ið og segja klámbrandara um
konuna sína á sviði. Það var
breyttur maður sem bar upp bón-
orðið, enda lýsti hann sjálfur
upplifuninni sem endurfæðingu.
Auðvitað skýtur það skökku við
að þrátt fyrir yfirburðaþekkingu á
þessu sviði hjá hommunum í umræddum þætti megi
þeir ekki gifta sig nema þeir búi í San Fransiskó…
The No. 1 Ladies’ Detective Agency: Hjartnæm
stund í Botswana. Mma Ramotse situr við dánarbeð
föður síns, sem segir henni að taka ævisparnað
sinn, stofna eigið fyrirtæki, sláturhús, flöskugerð,
hvað sem hún vill. Augu hennar fyllast tárum og hún
segir: „Ég ætla að gerast einkaleynilögreglumaður. Í
Gaborone. Það verður besta leynilögreglustofan í
Botswana. Stofa númer eitt.“ Eitt augnablik opnast augu föður hennar upp á gátt og hann virð-
ist berjast við að tala: „En … En …“ En hann deyr áður en hann kemur upp orði… Dýrðlegt
fjöldasjálfsmorð: Dásamleg lýsing á finnsku þjóðinni, sem er í anda mynda Aki Kaurismaki.
Upphafsorðin tala sínu máli: „Skæðasti óvinur finnsku þjóðarinnar er óhamingja, depurð, botn-
laus deyfð. Þunglyndið grúfir stöðugt yfir aumingja fólkinu og hefur í aldanna rás grafið sig inn í
alla Finna svo að þjóðarsálin er döpur og alvörugefin. Depurðin hefur náð þvílíku heljartaki á
þjóðinni að mörgum Finnum finnst dauðinn eina lausnin. Bölsýnin er töluvert erfiðari andstæð-
ingur en Rússar.“ |pebl@mbl.is
Hjartnæm stund í Botswana
FRÁ FYRSTU HENDI
FÓLKIÐ Umsjón Pétur Blöndal pebl@mbl.is| Blaðamenn Ívar Páll Jónsson ivarpall@mbl.is|
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is |Bryndís Sveinsdóttir bryndis@mbl.is | Sæbjörn Valdimarsson saebjorn@mbl.is | Árni Matthíasson arnim@mbl.is
Hvað er Jónsi að segja við félaga sína í Sigur Rós, Kjartan
og Orra, á þessari mynd? Tillögur er hægt að senda á Fólk-
inu á mbl.is, með því að smella á „Besti myndatextinn“.
Bestu þrjár tillögurnar verða verðlaunaðar með plötunni
Greatest Palace Music með Bonnie Prince Billy í boði 12
tóna og bol merktum Fólkinu. Í síðustu viku bárust tæp-
lega 600 tillögur og sigurvegarinn varð Haraldur Sturluson
með myndatextann „Mun þessi félagsskapur hafa var-
anleg áhrif á mig sem manneskju?“. Að auki eru verð-
launaðar tillögur Hörpu Jónsdóttur: „Ég hefði átt að fara í
nærbuxur í morgun!!!“ og Hlyns Bárðarsonar: „Ég hef engar ennishrukkur, ég nota
nefnilega hrukkukrem.“ Þau hljóta að launum eintak af geislaplötunni Todmobile og
Sinfó og bol merktan Fólkinu.
HVAÐ ER JÓNSI AÐ SEGJA?
„MUN ÞESSI FÉLAGSSKAPUR
HAFA VARANLEG ÁHRIF Á MIG
SEM MANNESKJU?“
VERÐLAUN VIKUNNAR.
Við vissum ekki fyrir viku...
…að bananar gætu borið svip
eins og þennan, en þetta er
listaverk Brasilíumannsins
Tonicos Lemos Auads. Hann
er einn 10 listamanna sem
keppa um „Beck’s Fut-
ures“-verðlaunin í London.
…að kínverski jurtasérfræð-
ingurinn Chen Jianmin
myndi reyna að slá met Dav-
ids Blaine og fasta í 49
daga í þessum glerturni.
Blaine fastaði í 44 daga á
síðasta ári.
…að þessi ungi maður myndi
fá sér hamborgara hjá nýj-
ustu skyndibitakeðjunni í
Perú, Bembos Burger Grill,
sem er sívaxandi og hyggur
á innrás í önnur lönd Suður-
Ameríku, Mið-Ameríku og
Bandaríkin.
…að Mikhail gamli Gorbach-
ev, fyrrverandi leiðtogi Sov-
étríkjanna, væri jafn glað-
vær og vel á sig kominn og
raun ber vitni, en hann var
myndaður á góðgerð-
arsamkomu í Las Vegas á
sunnudaginn.
…að til væru jafnefnismiklir
og skrautlegir brjóstahald-
arar, en Triumph-fyrirtækið
kynnti þessa nýju fram-
leiðslu sína í Tókýó á þriðju-
daginn.
…að þessi grís myndi leggja
þetta hart að sér í kapp-
hlaupi í Moskvu, en þar var
fyrsta keppni þeirrar teg-
undar í yfir 100 ár haldin á
sunnudaginn. Sigurvegarinn
hlaut að launum gulrætur
með rjóma, auk heiðursins.
Fyrsti hluti | eftir Knút Hafsteinsson
Í svefnrofunum skaut því upp í huga hennar að hún hefði gleymt
einhverju. Hún spratt upp úr fletinu, teygði sig í sígarettuna og
reyndi að róa taugarnar. Það var hægara sagt en gert að koma
kyrrð á hugann og reyna að hugsa skýrt. Hugsanirnar þvældust
hver fyrir annarri og atburðarásin virtist ekki ganga upp. Hún sá
fyrir sér skæri, það glampaði á skeið í huga hennar og einhvers
staðar í hugskotinu mátti heyra gler brotna. En hvaðan kom allt
þetta prúðbúna fólk? Og var þetta blóð á fingrum hennar? Hún reyndi að standa
á fætur en uppgötvaði um leið að hún kannaðist hvorki við fötin sem hún var í né
drungalegt og daunillt herbergið sem mótaði fyrir í skímunni.
Annar hluti | eftir Kristin Kristjánsson
Skærin, dropinn, fötin. Skeiðin í glasinu sem brotnaði þegar hún
varðist. Blóðið sem kom þegar hún stakk með skærunum í hvíta
skyrtuna. Hver var það sem hafði hjálpað henni út úr húsinu, lof-
að að brenna blóðug fötin og sagt henni að hér gæti hún falið
sig til að byrja með? Hana klæjaði undan peysunni sem hún var
í, hún var of þröng og hafði ekki verið þvegin nýlega. Af henni
var súr lykt. Pilsið var síðara en hún var vön að klæðast og lit-
urinn var rangur. Sígarettan hjálpaði henni að hugsa skýrar. Hún tók stóran smók
en fékk um leið heiftarlegt hóstakast. Hún stóð upp, var reikul í spori en náði að
vaskinum í dyrunum. Þegar hún var hálfnuð að þvo blóðið af fingrunum var tekið í
hurðarhúninn.
Þriðji og síðasti hluti | eftir Guðlaugu Gísladóttur
Hún vissi um leið að þetta var hann. Fann hvernig hás blótsyrð-
in hittu hana beint í hjartastað þar sem hann barði ruddalega á
hurðina. Vissi að hún sæi hvíta blóðuga skyrtu ef hún kæmi sér
ekki út hið snarasta. Hún leit snögglega í kringum sig og sá sér
til mikillar skelfingar að birtan þrengdi sér inn um örlitla glugga-
boru sem hún myndi aldrei komast út um. Ekki gat hún heldur
falið sig í þessari litlu kompu. Hún fann hvernig æðaslögin
börðu fastar á gagnaugu hennar þegar hún sá kámugan hnúa hans brjóta sér leið
í gegnum hurðina. Hún hnipraði sig saman við vaskinn og lokaði augunum. Þá
heyrði hún þungan dynk. Dauðaþögn umlukti hana þegar hún staulaðist á fætur.
Keðj
usag
an
ÍSLENSKUKENNARAR
Árið 1994 kom út breiðskífan Blóð með SSSól, sem
áður hafði heitið Síðan skein sól. Helgi Björnsson var
auðvitað aðalsprautan í hljómsveitinni, en Jakob
Smári Magnússon bassaleikari hafði hætt í bandinu í
janúar þetta ár og Björn Árnason, sem er í aftari röð til
vinstri, tekið við. Björn hafði áður verið í hljómsveit-
inni Deep Jimi and the Zep Creams. Trommuleikari var
Hafþór Guðmundsson, sem síðan hefur gert garðinn
frægan sem upptökustjóri hjá mörgum þekktustu ís-
lensku hljómsveitunum. Eyjólfur Jóhannesson lék á
gítar, en hann hafði verið með Björk Guðmundsdóttur
og fyrrnefndum Jakobi Magnússyni í Tappa tíkarrassi.
Úr safninu | 1994
SSSól