Morgunblaðið - 26.03.2004, Blaðsíða 10
10 | FÓLKIÐ | FÖSTUDAGUR 26|3|2004 MORGUNBLAÐIÐ
http://logan.simnet.is/
„Ég hjólaði til vinnu í morgun í blíð-
skaparveðri með harmakvæði
Brimklóar um Nínu og Geira í eyr-
unum. Eins og venjulega klökknaði
ég undir lokin þegar Geiri snýr aftur
heim í sveitina til að ganga að eiga
Nínu en er of seinn því Nína hefur val-
ið vin hans, Jón. Quelle Damage.
Þess má til gamans geta að í upp-
haflegri útgáfu lagsins eftir Conway
Twitty hét Nína Joni, Geiri var Jimmy
en vinurinn Jón hét bara John. Og
hana nú.“ 24. mars 11.51
http://acl.heida.klaki.net/dagbok/
„Þrátt fyrir frekar lin hné, mikla syfju
og almennt slen er heilsan á blúss-
andi uppleið og litla tröllínan komin
aftur í skólann sinn. Mikið er ég feg-
in.Týndi sonurinn er óðum að gerast
varanlega týndur, enda er dótið hans
óðum að týnast líka (sagði ég ekki
að það væri lööööv?) ... það er að
verða eitthvað tómlegt í kotinu. ;)
Spurning hvað maður á að gera við
herbergið – ég er ekki alveg viss um
að ég treysti mér til að taka sénsinn
á að þurfa að aðlagast nýrri mann-
eskju einmitt í próflestrinum. Sjá til
býst ég við, kannski yrði ég bara
klikkuð af því að hanga ein yfir bók-
unum í 6 vikur. Já, það verður víst
ekki á allt kosið í þessu lífi...“ 24.
mars 9.24
http://tinytota.blogspot.com/
„Var við jarðarför í dag. Fjölmenni,
veðrið fallegt, athöfnin falleg.
Svona dagar kenna manni að meta
meir það sem manni hefur hlotnast -
þessa hluti sem eru svo hverdagslegir
að manni hættir til að taka þá sem
sjálfsagða.
Megi nóttin verða ykkur svefnsöm og
góð.“ 25. mars 0.59
Kæri
blogger.com…
Allir þekkja útskrift-
arsýningar Listahá-
skóla Íslands, sem
hafa getið sér gott
orð hvort sem um
er að ræða mynd-
listar- og hönn-
unarnema eða
leiklistardeildina.
Núna hefur einn viðburður bæst við sem
vert er að veita athygli og það eru útskrift-
artónleikar tónsmíðanema. Fimm nem-
endur eru í þessum fyrsta útskriftarárgangi
en þrír þeirra standa fyrir tónleikum í Saln-
um í Kópavogi í kvöld af þessu tilefni. Tón-
leikarnir hefjast klukkan 20 og er athygli
vakin á því að aðgangur er ókeypis og allir
velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Flutt verða verkin Upplausn eftir Ólaf
Björn Ólafsson, Morula eftir Gest Guðna-
son og - sundrung - eining eftir Önnu S. Þor-
valdsdóttur.
„Þetta eru útskriftartónleikar tón-
smíðadeildar LHÍ. Við erum fyrsti árgang-
urinn sem er að útskrifast af þessari braut.
Þarna verða flutt þrjú frumsamin tónverk fyr-
ir kammersveit,“ segir Óli Björn sem tekur
að sér að svara fyrir hópinn en um 7–15
hljóðfæraleikarar taka þátt í flutningnum.
Flestir hljóðfæraleikaranna eru samnem-
endur en einnig koma atvinnumenn við
sögu.
RAFTÓNLIST FYRIR HLJÓÐFÆRI
Óli Björn útskýrir verk sitt nánar en hann
spilar á tölvu í því. „Ég er að búa til einn
hljóðheim úr hljómsveitinni og rafhljóðum.
Rafhljóðin eru tilkomin frá hljómsveitinni en
það er ekki undirbúið efni heldur gerist í
rauntíma. Ég spila hljóðin síðan til baka eft-
ir fyrirfram ákveðnum aðferðum. Það sem
hljómsveitin er að spila er eins og raftónlist
sem er skrifuð fyrir hljóðfæri. En það sem
nemi í Berlín og hefur hug á að fara í meira
nám. Hann er búinn að vera í tónlist lengi,
kemur úr rokkinu en hafði alltaf áhuga á
tónsmíðum og að skrifa fyrir stærri sam-
setningar.
Óli Björn lofar skemmtilegum tónleikum í
kvöld. „Þetta verður skemmtilegt. Fólk hef-
ur oft ákveðnar hugmyndir um nýja tónlist,
að hún hljóti að vera óaðgengileg. En alla-
vega mitt verk er „manifesto“, ekki til að af-
sanna það, heldur hljómar það ekki þannig.
Þetta er fyrst og fremst tónlist sem fólk
hlustar á og vonandi hreyfir við því. Það er
mín persónulega skoðun.“
|ingarun@mbl.is
Tónlist sem fólk hlustar á
Morgunblaðið/Golli
tölvan er að spila er eins og hljóðfæra-
tónlist sem aðeins tölva getur spilað,“ segir
hann en verkin eru öll á milli 15 og 20 mín-
útur að lengd.
„Það er spennandi við þetta að við erum
að gera þetta alveg sjálf. Þetta er okkar
verkefni. Hluti af því sem við þurfum að
gera til að útskrifast er að standa fyrir
svona tónleikum. Þetta verða „grand“ tón-
leikar.“
KEMUR ÚR ROKKINU
Námið tekur þrjú ár og segir Óli Björn
þetta búið að vera lærdómsríkan tíma.
Hann dvaldi á þessum tíma líka sem skipti-
ÓLI BJÖRN, ANNA
OG GESTUR.
26. mars
Tónleikar
útskriftarnema
LHÍ í Salnum
PLÖTUR
BONNIE PRINCE BILLY –
GREATEST PALACE MUSIC
Will Oldham, sem notar
helst listamannsnafnið
Bonnie Prince Billy, bind-
ur bagga sína ekki sömu
hnútum og sam-
ferðamennirnir. Meðal fjöl-
margra nafna sem hann
hefur notað yfir afurðir sínar er Palace-
nafnaröðin, en áratugur er síðan fyrsta skífan
kom út sem bar slíkt nafn, Palace Brothers
platan There Is No-One What Will Take Care of
You. Af því tilefni tók Oldan sig til og hljóðritaði
upp á nýtt helstu Palace-lögin og færði í leið í
kántrýbúning með mandólínum, fetilgíturum,
fiðlum og tilheyrandi, svona rétt til að undir-
strika uppruna sinn en hann er frá Kentucky.
FLEETWOOD MAC – RUMOURS
Það þótti sumum merki-
legt þegar breska blús-
rokksveitin Fleetwood
Mac varð allt í einu að vin-
sælustu rokkhljómsveit
heims með plötunni
Rumours. Miklu réð um
það vitanlega nýr mannaskapur á skútunni,
aðallega bandaríska parið gítarleikarinn og
söngvarinn Lindsey Buckingham og söng-
konan Stevie Nicks. Fyrsta platan með þeim
innan borðs hét einfaldlega Fleetwood Mac og
var vísir þess sem koma myndi og Rumours,
sem kom út í febrúar 1975, varð síðan
metsöluplata, svo mikil reyndar að lengi vel
var hún söluhæsta poppskífa allra tíma. Nú er
skífan endurútgefin mjög aukin og endurbætt.
Þannig hefur einu lagi, smáskífulagi, verið
bætt við upprunalega plötu, og með fylgir disk-
ur með átján aukalögum, þar á meðal tveimur
óútgefnum lögum, prufuupptökum og ámóta.
DAVID BYRNE – GROWN BACKWARDS
David Byrne er með merki-
legri tónlistarmönnum síð-
ustu ára og þá ekki bara
sem frumkvöðull í lista-
spírupoppi með Talking
Heads heldur einnig fyrir
ötult starf við að kynna
tónlist frá öðrum heimsálfum og sem sóló-
listamaður eins og þeir vitna um sem sáu
tvenna framúrskarandi tónleika hans hér á
landi fyrir nokkrum árum. Nú kemur út ný sóló-
skífa Davids Byrnes sem fengið hefur fyrirtaks
dóma víðast. Á plötunni fléttar hann saman
ólíkum stefnum og straumum eins og honum
er einum lagið, suður-amerískum straumum,
mjúku poppi og framúrstefnurokki.
JOSH RITTER – HELLO STARLING
Bandaríski tónlistarmað-
urinn Josh Ritter vakti
talsverða athygli fyrir
fyrstu sólóskífu sína,
Golden Age of Radio, og
varð meðal annars popp-
stjarna á Írlandi. Það ætti
svo sem ekki að koma á óvart því Ritter er
bæði mjög lipur laga- og textasmiður og svo er
hann líka framúrskarandi flytjandi, gítarleikari
og söngvari, þykir ekki minna svo lítið á Bob
Dylan og fleiri listamenn sömu sortar. Ný plata
hans, Hello Starling, sem kemur út um þessar
mundir, hefur ekki vakið minni athygli en fyrri
platan, enda þykir mönnum sem hann sé enn
að styrkja sig sem tónlistarmaður á henni, lög-
in sterkari og textarnir dýpri svo dæmi séu tek-
in.
BÆKUR
DONNA LEON – DOCTORED EVIDENCE
Donna Leon er fræg fyrir
bækur sínar um feneyska
lögreglumanninn Brunetti
og þá ekki bara fyrir per-
sónuna Brunetti og
glæpamálin sem hann
upplýsir heldur einnig fyrir
það hve sterka og lifandi
mynd hún dregur upp af
Feneyjum og lífinu þar.
Iðulega eru brotalamir í ítölsku þjóðfélagi,
spilling og skipulags- og kæruleysi, áberandi í
bókunum og jafnvel í aðalhlutverki. Í bókinni
nýju glímir Brunetti við mál sem virðist liggja
ljóst fyrir, gömul kona er myrt af þjónustu
sinni, en smám saman kemur sannleikurinn í
ljós.
URSULA K. LE GUIN – CHANGING PLANES
Einn helsti höfundur vísindaskáldsagna er
bandaríski rithöfundurinn Ursula K. Le Guin
sem hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir verk sín.
Lítið hefur komið út eftir Le Guin síðustu ár og
því þykir vísindaskáldsagnavinum fengur að
því að fá í hendurnar nýja
bók eftir hana þótt ekki sé
sú mikil að vöxtum. Í bók-
inni leikur Le Guin sér
með ferðir í tíma og rúmi,
því söguhetjan kemst að
því þar sem hún situr og
bíður á flugvelli að hún
getur ferðast hvert sem er
hvenær sem er. Bókinni
hefur verið lýst sem samsteypu af ferðum Gull-
ivers og The Hitchhiker’s Guide to the Galaxy,
enda ekki bara skemmtisaga heldur einnig
vangaveltur um tíðarandann og mannfólkið.
RICHARD MORGAN – MARKET FORCES
Margir muna eflaust eftir
bókinni Altered Carbon
eftir Richard Morgan sem
hrinti af stað einskonar
vakningu í vísindaskáld-
sagnaheiminum enda
óhemju hugmyndarík og
spennandi saga. Síðan sú
kom út hefur Morgan skrif-
að laustengt framhald af
henni og svo nú nýja bók sem gerist einnig í
framtíðinni, sömu framtíð og sagt er frá í Alter-
ed Carbon. Í Market Forces segir frá því
hvernig viðskiptalíf er orðin eiginleg barátta
upp á líf og dauða, sérstaklega þar sem fyr-
irtækið sem aðalpersónan vinnur hjá þrífst á
því að spá fyrir um hvar næsta stríð eigi eftir
að brjótast út og hverjir eigi eftir að sigra í því
stríði því þá má selja þeim vopn og verjur gegn
prósentuhlut af stríðsgóssi. |arnim@mbl.is
ÚTGÁFAN – BÆKUR – GEISLAPLÖTUR – TÖLVULEIKIR