Morgunblaðið - 26.03.2004, Side 5
Bjarni hefur einnig hannað vörumerki og snúið út úr þekktum
vörumerkjum, ef svo má segja. Í þessu er pólitískur undirtónn
líkt og í myndböndunum. Hann sér vissulega rúm fyrir pólitík í
hönnun. „Þetta hefur verið áberandi síðustu ár. Til dæmis hjá
adbusters.org. Þar er samfélagslegur áróður eins og áróður
gegn sölumennsku. Auglýsingum er breytt og Adbusters
standa líka fyrir einum degi á ári þar sem fólk er hvatt til að
kaupa ekki neitt. Þetta er eitthvað sem vantar algjörlega í graf-
íska hönnun sem iðnað. Flestir sem fara í grafíska hönnun sjá
fyrir sér níutilfimm-vinnu og eru minna að hugsa um samfélags-
legu hliðina á þessu. Markaðsfræðingar stjórna að mínu mati
auglýsingabransanum á Íslandi,“ segir Bjarni sem aðspurður
segist vilja hafa þetta öðruvísi.
„Já, það er bara spurning um að hafa þor. Þetta er svo lítið
samfélag og aðal óttinn er við að móðga fólk,“ segir Bjarni sem
segir hlutina með öðru móti í Bretlandi. „Auglýsingarnar eru all-
ar beittari.“
Bjarni er ófeiminn við að prófa sig áfram. „Mér finnst svo
gaman að skapa og vinna og búa til eitthvað nýtt. Ég þarf
alltaf að vera að prófa eitthvað.“
Fæðist fólk með teiknihæfileika? „Ég held að þetta sé
áhuginn númer eitt, tvö og þrjú. Maður þarf að hafa áhuga
og þolinmæði. Þótt maður geri eitthvað vont þá er alltaf
hægt að gera betur næst. Margir gefast upp strax en hjá
mér var það ekki möguleiki. Það þarf stundum að pína sig
aðeins til að komast yfir hæðina,“ segir Bjarni sem segir
mikilvægt að gefa hlutunum tíma. „Það er um að gera að
lesa, skoða hvað aðrir eru að gera og hafa bara áhuga á
öllu. Maður veit aldrei hvar uppsprettan er,“ segir Bjarni um
innblástur.
SALERNI ALLRA LANDA SAMEINIST
Eitt af því sem Bjarni hefur áhuga á eru salerni,
sem hann hefur myndað víðs vegar um heiminn.
Hvað skyldi hafa vakið þennan áhuga?
„Þetta kom til af miklum áhuga á bjórdrykkju,
en henni fylgja tíðar klósettferðir. Ég keypti mér
litla, rússneska myndavél, LOMO, og af því að hún
er svo lítil og þægileg þá var maður alltaf með
hana í vasanum. Ég fór að taka eftir því smám
saman að ég var með mikið af myndum af klósett-
um og fór að gera eitthvað við þetta, “ segir Bjarni
sem hefur myndað klósett á Íslandi, í Tyrklandi,
Finnlandi, Englandi, Danmörku, Svíþjóð og Frakk-
landi.
Hann hefur áhuga á að mynda fleiri hérlendis.
„Ég ætla að reyna að gera eitthvað úr þessu. Mig
langar til að gera bók þegar ég kem heim, jafnvel
fleiri en eina, með þessu viðfangsefni. Ein hug-
myndin er sú að fara hringinn í kringum landið og
mynda öll salerni við vegasjoppur.“
Salerni eru vissulega staður þar sem er ró og
friður og gott að setjast niður,“ segir Bjarni. „Þetta
er líka eini staðurinn þar sem fólk er eitt núorðið.
Það er yfirleitt ekki sjónvarp eða útvarp á klósett-
um og maður fer yfirleitt einn. Þetta er orðið einn
af fáum stöðum þar sem maður fær frí frá áreiti.“
SKEMMTILEG SLYS
LOMO-myndirnar heilla af mörgum ástæðum. „Það er að-
allega það að myndirnar hafa mikinn karakter, þær eru gróf-
ar. Það er bara hægt að hafa fjórar fókusstillingar. Maður
veit aldrei hvernig útkoman verður og hefur ekki alveg stjórn
á þessu. Það verða skemmtileg slys,“ segir Bjarni.
„Það er ekki alltaf sem maður vill missa stjórnina þannig
að það er gott að hafa betri vélar til að nota líka,“ segir
hann, sem kýs gamlar myndavélar fram yfir nýjar stafrænar.
Bjarni er langt því frá uppiskroppa með hugmyndir. „Það
er eitt annað sem ég væri til í að kæmi fram. Ég er að leita
mér að rithöfundi til að vinna með. Mig langar til að gera
stuttmyndir, stuttar teiknimyndir,“ segir hann en áhuga-
samir ættu endilega að kíkja á vefinn hans Bjadddna Hell
og hafa samband.
|ingarun@mbl.is
með klósettáhuga
LJÓSMYNDIR AF ÞÖGN SEM TENGJAST HLJÓÐINNSETNINGUNUM
SEM BJARNI ER AÐ VINNA Í SKÓLANUM UM ÞESSAR MUNDIR.
ATRIÐI ÚR MYNDBANDINU VIÐ LAGIÐ „HOMO SAPIENS“ MEÐ DR. GUNNA FRÁ ÞVÍ Í FYRRA.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26|3|2004 | FÓLKIÐ | 5
LOMO-MYND. HAMBORGARI Í PARÍS. 2000.
LOMO-MYND Í PARÍS. TEKIN ÁRIÐ 2000.
ENGINN VENJULEGUR HREINSILÖGUR.
VEGGSPJALD BYGGT A MYNDBANDINU VIÐ
LAGIÐ BIG BANG MED CORAL.
„Maður þarf að hafa áhuga og þolinmæði. Þótt
maður geri eitthvað vont þá er alltaf hægt að
gera betur næst. Það þarf stundum að pína sig
aðeins til að komast yfir hæðina.“
KLIPPTU OG SPARAÐU 1 4 4 4
w w w. g u l a l i n a n . i s
Búnir að opna
Allir velkomnir
Mýrargötu 2-8 // 101 Reykjavík
símar 534 5577 // 694 5577
Ge
gn
fram
vís
un
mið
ans
fæ
rðu
20%
af
slá
tt a
f
öll
um
há
rsn
yrt
ivö
rum
G i
l d i
r t
i l
1 .
j ú n
í
Smiðsbúð 1, 210 Garðabær
Pantanir í síma: 565 7040
Laufey
Þóra ValdísKatrín