Vísir - 11.04.1981, Qupperneq 16
16
Laugardagur XI. aprii 1981
vism
Dyrir og ódýrir
matsölustadir
Eins og áöur hefur komiö
fram hér á Sælkerasiðunni hef-
úr matarmenning okkar íslend-
inga breyst mjög til batnaöar á
siöari árum. Margir nýir veit-
ingastaöir hafa veriö opnaðir á
sl. 2 árum og nokkrir nýir mat-
sölustaðir munu bráölega verða
opnaöir. Æ fleiri fara nú út að
boröa og einkum þá i hádeginu,
enda er hægt að fá ödýra máltiö
á flestum veitingastöðum. Með
hinni auknu samkeppni hefur
verölag á mat á veitingahúsun-
um lækkað og orðið jafnara.
Heilbrigð samkeppni er sem
sagt neytandanum til góðs.
Gróflega mætti flokka Reykv-
iska veitingastaði i þrennt. t
fyrsta lagi „grillstaði”, eins og
Ask við Suðurlandsbraut, i öðru
lagi matsölustaði sem hafa vin-
veitingaleyfi, eins og t.d. Torfan
og i þriöja lagi svo kallaðir
„finni stáðir”, eins og Grillið á
Hótel Sögu eða Naustið. Sæl-
kerasiðan hefur lauslega kann-
að verðlag á mat i hádeginu á
nokkrum matsölustöðum, þó
ekki matsölustöðum sem flokka
mætti undir fyrsta flokkinn hér
að ofan. eöa hina svökölluðu
„grillstaði” Athugað var verð
á fiskrétti dagsins með súpu,
eða þá rétti dagsins ef ekki var
um fiskrétt að ræða. 1 ljós kom
að verðmunur á hádegisverði á
þeim veitingastöðum sem fella
mætti undir flokk númer tvö,
eða staði eins og Torfuna eða
Hornið og veitingastaði sem til-
heyra flokki númer þrjú, eða
veitingastaöi eins og Grillið á
Hótel Sögu, Holt og Naustið, svo
einhverjir séu nefndir.
Verðmunur reyndist sáralitill
milli þessara staða eða 7.00
krónur. Það er sem sagt aðeins
um 7.00 krónum dýrara að
snæða á hinum svokölluöu
„fínni stöðum”. Það skal þó tek-
ið fram, að þessi könnun er ekki
á nokkurn hátt fullkomin. Þetta
er þó á margan hátt athyglis-
verð niöurstaða. Hinir svoköll-
uðu „finni staðir” hafa, að þvi
er viröist, aðlagað sig að breytt-
um timum. Það skiptir neytand-
ann sáralitlu, i krónum séð,
hvort hann borðar i hádeginu á
Grillinu á Hótel Sögu eða á
Horninu. Þessiþróun á verðlagi
er mjög jákvæð. Það mætti
mögulega álykta af þessari
verðkönnun Sælkerasiðunnar að
óhætt væri að leggja niður öll
opinber mötuneyti, i það
minnsta hér á Höfuðborgar-
svæðinu og útvega starfsfólkinu
nokkurs konar matarmiða, sem
gætu gilt á flesta eða alla veit-
ingastaði i Reykjavik eins og
áður hefur verið bent á hér á
siðunni. Kostirnir eru margir.
Fólk sem er lokað inni allan
daginn myndi fara út úr húsi,
mönnum gæfist kostur á mun
fjölbreyttara mataræði og þessi
nýi markaður yrði veitingahús-
unum mikil lyftistöng, sém
myndi þýða'betri afkomu, lægra
verð, meira úrval, fleiri nýjung-
ar og betri matsölustaði. Það
húsnæðisem nú fer undir mötu-
neyti væri hægt að nýta til ann-
ars. En hver svo sem þróunin i
þessum málum verður, þá er þó
eitt staðreynd, að allir ættu að
geta snætt úti i hádeginu fyrir
litinn pening.
Ljómandi ávaxta- og grænmetistorg I Austurveri.
Austurver vid
Háaleitlsbraut
— á grænni grein
Ef ykkur vantar góða ávexti
eða gott grænmeti, sælkerar
góðir, þá ættuð þið að fara i
verslun Sláturfélags Suöurlands
i Austurveri, Háaleitisbraut 68.
Þessi verslun er með þeim betri
i Reykjavik, en sérstaklega vill
Sælkerasiðan mæla með græn-
metis- og ávaxtadeildinni. Já,
það er óhætt að tala um heila
deild i þessu sambandi. Þar er
ekki eingöngu boðið upp á mikið
úrval af grænmeti og ávöxtum,
heldur fer vel um þessar við-
kvæmu vörur, fölnað og rusl-
aralegt grænmeti er ekki á boð-
stólnum. Einnig er hægt að
kaupa kartöflur i lausri vigt. Við
tslendingar borðum allt of litið ■
af grænmeti og ávöxtum og þarf
enginn að vera hissa á þvi, þar
sem yfirleitt er um litiö úrval aö
ræða og þessar nauðsynjavörur
eru dýrar. Sælkerasiðan skorar
hér meö á matvörukaupmenn i
Reykjavik, að skoða græn-
metisdeildina i Austurveri og
kynna sér rækilega rekstur
hennar. Þvi i þessari verslun er
úrval og meðferð á grænmeti og
ávöxtum frábærlega góð, en þaö
verður þvi miöur ekki sagt um
stóran hluta verslana i Reykja-
vik.
Frá sælkerahátið '81.
Ódýrt að borða á finu stööunum I hádeginu.
Vor-fiskisúpa
Nú er farið að vora og veður
að batna. Það ætti þvi að vera
auðveldara fyrir bátana að róa
eftir fiski og þvi ætti að aukast
úrvalið i fiskbúðunum. Hér
kemur uppskrift af Fiskisúpu,
sem hægt er að hafa sem aðal-
rétt.
Það ætti að vera tiltölulega
auðvelt að fá hráefnið i þessa
súpu, að minnsta kosti hér á
Reykjavikursvæðinu og þið vitið
nú hvar hægt er að fá gott græn-
meti. Það sem þarf i þennan rétt
er:
1 1/2 litri fiskisoð (teningur eða
soð af fiskibeinum)
1 bolli af niðursneiddum gulrót-
um
1 bolli af niðursneiddum púrr-
lauk
1 bolli af niöursneiddu sellerii
2 matsk smjör
2 tesk. karri
1 bolli hvitvin
4 tómatar
4 miðlungs stór rauðsprettuflök
salt/ pipar
Bræðið smjörið i potti og
setjið allt grænmetið, nema
tómatana i hann og látið malla
þar til grænmetið er orðið að-
eins lint. Stráið þvi næst karri-
inu yfir grænmetið, hellið hvit-
vininu i pottinn og þvi næst fisk-
soðinu. Látið þetta malla i fimm
minútur. Afhýðið tómatana á
meðan, en það er auðveldast
gert þannig að skorinn er kross i
þá og þeir settir undir sjóðheita
vatnsbunu. Hýðið flagnar þá
auðveldlega af þeim. Skerið þvi
næst tómatana i báta og setjið
þá i pottinn. Rauðsprettuflökin
eru nú skorin i hæfilega bita.
Þau eru sett i pottinn og fiskur-
inn látinn malla i súpunni i
u.þ.b. 5 minútur. Saltið svo og
piprið súpuna eftir smekk. Gæt-
ið vel að þvi að fiskurinn sjóði
ekki i mauk eða um of. Þessi
súpa er létt i maga og auðvitað
holl og góð fyrir þá sælkera sem
eru f megrun. Berið hrökkbrauð
fram með þessari vor-fiskisúpu.
Holl og góö vorfiskisúpa.
Sælkeraklúbburinn
Eins og áður hefur komið
fram hér i Visi, var haldin Sæl-
kerahátið Sælkeraklúbbsins i
veitingahúsinu Naustinu 28.
mars sl. og hófst hún með ágæt-
um. Kynnt var hin nýja lina i
matargerð. Timi er kominn til
að islenskir veitinga- og mat-
reiðslumenn fari að gefa hinni
nýju linu meiri gaum, það er að
segja, leggja meiri áherslu á
gæði hráefnisins en hinar upp-
bökuðu hveitisósur og allskonar
aukagums. A sumum veitinga-
húsanna er t.d. nýr og góður
fiskur eyðilagður i matreiðslu.
Fiskur verður á dagskrá hjá ~
Sælkera-klúbbnum á næsta fundi
hans, sem verður haidinn i lok
april á Hótel Loftleiðum. Hilm-
ar B. Jónsson veitingastjóri
mun halda sýnikennslu i mat-
reiðslu á fiski. Fundurinn verð-
ur auglýstur nánar siðar.