Vísir - 11.04.1981, Qupperneq 22
Sprækur
og dýrin
á Lundi
i dag segir frá því f
máli og myndurri/ er
nokkrir krakkar á Dag-
heimilinu við Furugrund í
Kdpavogi heimsóttu býlið
Lund við Nýbýlaveg. Með
krökkunum var fóstra
þeirra, Helga Jónsdóttir.
Á Lundi býr Geir Gunn-
laugsson, bóndi/ og þar
hefur hann nú svínarækt/
hænsnarækt og hesta.
Krakkarnir fóru fyrst
að skoða svínin. Þeir sáu
gyltur með marga grísi/
sem fengu sér óspart
mjólkað drekka úr spen-
um mæðra sinna. Þarna
var líka einn risastór
göltur/ sem mun vera
einn stærsti göltur á is-
landi. Hann er nú orðinn
gamallog lúinn.
Frá svínunum var farið
til hænsnanna og ætlunin
var að skoða litlu fallegu
ungana/ sem við setjum
yfirleitt í samband við
páskahátíðina/ sem nú
nálgast. Ungarnir í
hænsnahúsinu á Lundi
voru reyndar fallegir/ en
samt ekki þess'er pínulitlu
gulu. Og hér á einhverri
myndanna má sjá
krakkana halda á nokkr-
um unganna, en flestir
voru þeir Ijósir á lit/ en
nokkrir brúnleitin enda
af öðru hænsnakyni en
þeir Ijósu.
Hænurnar tóku krökk-
unum vel og ein rauðbrún
hæna [eyfði Eiríki litla
Stefánssyni að klappa sér
á bakið. Hún kunni þvf
reyt\dar bara vel.
Hundurinn Sprækur
fylgdist með okkur allan
tfmann/ brúnn hundur
með hvítar og brúndílótt-
ar lappir.
Krakkarnir slepptu þvf
að skoða hestana/ þeir
voru langt niðri á túni.
Þeir bitu gras við bæjar-
mörk Reykjavíkur og
Kópavogs/ á friðsælum
stað á stórborgar-
svæðinu.
Laugardagur 11. aprll 1981
1
vísm
Brynhildur og Edda meö Iitla unga.
Krakkarnir skoöa gyltuna Viktorlu og grlsina hennar.
Eirlkur Stefánsson klappar rauöu hænunni. Maöurinn sem heldur á
hænunni sýndi krökkunum dýrin.
Hundurinn sprækur I hópi krakkanna af dagheimilinu og fleiri
krakka.
Krakkarnir sem fóruaöskoöa dýrin ILundi. Þauheita frá v.: Siguröur, Gunnar örn, Edda, Eiríkur, As-
laug, Brynhildur og Unnar Kári. Visismyndir Emil.
I