Vísir - 11.04.1981, Qupperneq 35
Fundur í Fjfiieign:
KRISTJANA MILLA
INN FVRIR ALFREB
IFLUGLEHIAST JðRN
Laugardagur 11. april 1981
Á hluthafafundi Fjöleignar h.f.
ifyrrakvöld var ákveðið að vinna
að gagngerum breytingum á
stjórn Flugleiða á næsta aðal-
fundi.
„Við viljum breyta valdahlut-
föllunum i Flugleiðum, þannig að
núverandi meirihluti sé þar ekki
til eillfðar. Meirihlutinn saman-
stendur nú af Flugfélagsarmin-
um, Eimskipafélaginu og Sigurði
Helgasyni, og við viljum að Loft-
leiðaarmurinn fái meiri völd inn-
Kristjana Milla Thorsteinsson
talar á fundi Fjöleignar i fyrra-
kvöld. (Vfsism. EÞS)
an félagsins” sagði Martin Peter-
sen, einn talsmanna Fjöleignar.
Martin sagði, að Fjöleignar-
menn myndu stuðla að kosningu
Kristjönu Millu Thorsteinsson i
stjórnina. Eiginmaður hennar,
Alfreð Eliasson, ætlaði að draga
sig i hlé og stefnt yrði að þvi að
koma Kristjönu Millu i stjórnina i
hans stað. Þar að auki væri stefna
þeirra að koma fleiri ungum
mönnum i stjórnina.
„Það væri rétt að eldri menn-
irnir sæju sóma sinn i að draga
sig i hlé. Okkur finnst þeirra dag-
ur kominn að kvöldi i stjórn Flug-
leiða og þeir ættu að hliðra til
fyrir yngra og friskara fólki til að
glima við vandamálin.
Stjórn Flugleiða virðist ekki
hafa getað leyst þau vandamál,
sem upp hafa komið. Mörg þeirra
hafa komið upp aftur og aftur og
virðast eins konar eilifðar vanda-
mál, og má þar tilnefna flug-
mannadeiluna”.
Martin sagði, að svo virtist sem
sú stefna væri rikjandi hjá Flug-
leiðum að hætta Norður-Atlants-
hafsfluginu smátt og smátt.
Fjöleignarmenn væru þvi ekki
sammála, þeir vildu berjast
meira á þeim vettvangi og koma
þar fram með nýjungar. — ATA
Nýja hraunið úr Heklu. (Visism. Helgi Torfason).
Goslð f Heklu:
Sjónvarpið
fær Dallas
MIKIL LÆTI
IEINIIM GÍG
í gærdag var sam-
þykkt i útvarpsráði að
taka til sýningar banda-
riska myndaflokkinn
„Dallas”, sem sýndur
hefur verið við miklar
vinsældir bæði i Banda-
rikjunum og viða i
Evrópu.
Ekki var þó eining um þá sam-
þykkt i ráðinu, fjórir voru með-
mæltir en þrir andvigir.
Þættirnir munu samtals vera
Stúdentaráð:
Finnur
lormaður
„Við lögðum áherslu á að ná
gó’ðum málefnasamningi og ég
tel, að við umbótasinnar getum
verið mjög ánægöir með þann
árangur sem náðist þar.
Fyrsti fundur hins nýja
stúdentaráðs var haldinn i gær-
kvöld, og siðan var haldinn svo-
kallaður skilafundur, þar sem
fráfarandi stúdentaráð skilaði af
sér. Núverandi formaður er Finn-
ur Ingólfsson úr röðum umbóta-
sinna. Auk hans fengu þeir full-
trúa menntamálanefndar i stjórn
og varagjaldkera. Vaka fékk aðra
fulltrúa i stjórn, fjóra talsins.
Sagði Kjartan enn fremur, að
umbótasinnar heföu komið öllum
helstu málum sinum inn i mál-
efnasamninginn, og mættu þvi vel
við una.
-JSS
VtSlSDfð
Hetjur á hestbaki heitir myndin
sem sýnd verður i Vísisbiói á
morgun og er hún i litum. Sýning
hefst klukkan 13 í Regnboganum.
um áttatiu talsins, og enn er verið
að bæta við.
Reiknað er með, að þeir verði
fyrst settir á dagskrá næsta
haust.
„Það hefur ákaflega litið hraun
bæst við, miðað við það sem við
sáum i gær”, sagði Sigurjón
Sindrason jarðfræðingur við Nor-
rænueldfjallastöðina, þegar Visir
ræddi við hann siðdegis i gær.
Þá flaug Sigurjón ásamt fleir-
um yfir gosstöðvarnar i Heklu.
Sagði hann, að hrauntaumarnir
beggja vegna við litlu-Heklu
hefðu ekki lengst um mikið meira
en hundrað metra á sólarhring.
Hins vegar hefði) hann séð, að
hraun hefði runnið austur úr f jall-
inu. Virtist straumurinn koma
upp nærri toppgignum.
„Ef miðað er við hraun-
rennslið, þá hefur gosið minnkað,
ef eitthvað er”, sagði Sigurjón.
„Það bendir allt til þess, að þetta
séalltkomiðuppúreinum gig,en
hins vegar voru mikil læti i hon-
um og mikill mökkur sem steig
upp. En mér virtist svo til engin
aska koma upp”.
Visir hafði einnig samband við
Stefán Pálsson bónda á Ásólfs-
stöðum og sagði hann að gos væri
alltaf öðru hverju og fylgdi þvi
sprengingar. Þær væru þó mikl-
um mun minni en i gærmorgun.
Ekki benti neitt til þess að gosið
væri að færast i aukana.
— JSS
Vortónleikar Tónskólans
Arlegir vortónleikar Tónskóla
Sigursveins verða haldnir I sal
Menntaskólans við Hamrahliö á
morgun og hefjast kl. 14.
Nemendur á ýmsum náms-
stigum koma fram auk fjölda
einleikara og hópa, en tónleik-
arnir munu gefa mynd af þeirri
starfsemi sem fer fram I skól-
anum. Tvö lög eftir Sigursvein
D. Kristinsson verða frumflutt
af blokkflautukór. Allir eru
hjartanlega velkomnir á tón-
leikana.
UM HELGINA UM HELGINA UM HELGINA UM HELGINA UM HELGINA UM HELGINA
Enskunám fyrlr ungt fðlk
Kynningarfundur um enska
málaskólann The Globe Study
for English verður haldinn i
dag, laugardag, að Hótel
Loftleiðum. Þar verða staddir
skólastjórinn, Steve Davis, og
umboðsmaður hans á islandi,
Böðvar Friðriksson.
Skólinn er i borginni Exeter I
suð-vestur Englandi og hafa
margir íslendingarnir sótt hann
þrjú siöustu sumrin. i sumar
verða tvö námskeiö fyrir ung-
menni á aldrinum 14—21 árs og
eru brottfarardagar eru 4. júli
og 1. ágúst. Lágmarksdvöl er
þrjár vikur, en nemendur geta
dvalið I allt að átta vikum i skól-
anum.
Nemendur eru hjá völdum
enskum fjölskyldum og er
aðeins einn nemandi af sama
þjóðerni hjá sömu fjölskyldu,
þannig að þeir verða að bjarga
sér á ensku innan veggja
Dóra Reyndal, sójiransöngkona
og Guðrún Kristinsdóttir, pianó-
leikari, halda Ijóðatónleika I
Norræna húsinu I dag klukkan
17. A efnisskánni veröa lög eftir
Haydn, Mozart, Beethoven,
Hugo Wolf og ýmsa islenska
samtiöarmenn.
heimilisins og er það stór þáttur
i enskunáminu.
Kynningarfundurinn að Hótel
Loftleiðum hefst klukkan 14 i
dag. —ATA
Laugardallshöll:
SkölafólK í
frjálsum
„Bindindi best” er kjörorð
skólakeppni frjálsiþróttasam-
bands tslands, en hún hefst i dag
laugardag I Laugardalshöll
klukkan 10—13 og i Baldurshaga
klukkan 13—17. Þeir 64 kepp-
endur, sem eru á aldrinum
12—14 ára^eru úr 8 fræðsluum-
dæmum landsins. Vinningsliðið
hlýtur farandgrip I verðlaun. A
siðasta ári sigruði keppendur
frá Vesturlandi, keppnina með
yfirburðum en keppendur frá
Reykjavik árið áður. Nú er þaö
spurningin hverjir verði hlut-
skarpastir? —AS
Nállúruverndarfélag
Suðvesturlands:
Aðalfundur
I dag
t dag klukkan 14 hefst I Arna-
garði, stofu 201, aðalfundur
Náttúruverndarfélags Suð-
vesturlands. Þar verður fjallað
um félagsmál, en sérefni á
fundinum verða frárennslismál
höfuðborgarsvæðisins og stefna
og starfsáætlun i náttúruvernd
næstu tvö ár. Fundurinn er op-
inn öllu áhugafólki um náttúru-
og umhverfisvernd.
Maður og trd:
Rorgarafundur I
Norræna húslnu
Maður og trú er umræöuefni
borgarafundar, sem samtökin
Lif og land gangast fyrir I Norr
ana húsinu i dag. Fundurinn
hefst kl. 9 og stendur til kl. 16.30
siðdegis. Mikill fjöldi kunnra
manna flytja erindi um hið
margvislegasta efni og er ekki
annað að sjá af dagskránni, en
þetta verði forvitnileg umræða.
Meðal viðfangsefna ræöu-
mannanna má nefna hin ýmsu
trúarbrögð, menningaráhrif
kirkjunnar, sértrúarhópa,
kirkju og listgreinarnar flestar,
trúog sósialisma, kirkju og geð-
heilsu, kirkju og konur, trú og
markaðsskipulag, og margt
fleira. A meðal fjölmargra
ræðumanna eru Myako Þórðar-
son, Haraldur ölafsson, Ey-
vindur Erlendsson, Páll Skúla-
son, Björn Björnsson, Dalla
Þórðardóttir, Arni Bergmann
og Sigurður A. Magnússon, en
að loknum flutningi erindanna,
eða um kl. 15.30 verða pall-
borðsumræður, sem Gunnar
Kristjánsson stjórnar. En stjórn
fundarins er I höndum sr. Bern-
harðs Guðmundssonar árdegis
og Sigurlaugar Bjarnadóttui
siðdegis.
Kökubasar fóstra
Kökubasar þriðja bekkjar
Fósturskóla tslands veröur
haldinn laugardaginn 11. april
kl. 13 i Blómavali v/Sigtún. Hér
er kjörið tækifæri fyrir ykkur til
að spara tima og fyrirhöfn.
Komið, sjáið, sannfærist og ger-
ið góð kaup I eggjahallærinu.
—OS
Upplýslngafundur
um siálverksmiðlu
t kjölfar viðamikilla athugana
á arðsemi og rekstrargrundvelli
stálverksmiöju hérlendis, hefur
viðtæk söfnun hlutafjár til stofn-
unar siikrar verksmiöju verið
hafin. Stofnkostnaður er talinn
vera 100 milljónir króna, fram-
leitt verður steypustyrktarstál
og ráögert, aö starfsmanna-
fjöldi verði 63, fyrir utan starfs-
menn viö brotajárnsvinnslu.
Hlutafjársöfnun fer fram með
sérstökum hætti, þar sem safn-
að er hlutafjárloforöum, en
veröi ekki af stofnun slikrar
verksmiðju, fá hluthafar endur-
greitt með fullri verðtryggingu.
Til þess að kynna málefni stál-
verksmiöjunnar enn frekar,
hefur undirbúningsnefndin efnt
til opins fundar klukkan 16.30 á
morgun, sunnudag, I Húsi iðn-
aðarins við Hallveigarstig. Þar
munu menn geta fengið allar
þær upplýsingar, sem tiltækar
eru varðandi fyrirhugaðra
verksmiðju.
—AS
Kökubasarí
Hilóaskðla
Foreldrafélag Hiiðaskóla held-
ur kökubasar laugardaginn 11.
april kl. 14.00 I skólanum. Þetta
er 5. árið i röð, sem kökubasar
er haldinn á vegum foreldra-
félagsins. i fyrra var keypt
myndsegulband fyrir ágóðann,
en hagnaður i ár á aö renna i
sjóð til að safna fyrir litsjón-
varpi, tii að nota við mynd-
segulbandiö <sem mikið er notað
fyrir fötluð börn, sem eru I skól-
anum.