Vísir - 15.04.1981, Side 18

Vísir - 15.04.1981, Side 18
18 vtsm Miðvikudagur 1S. apríl 1981 Midvikudagur 15. aprfl 1981 vtsm o •> *■ 4*4 > t i * 4 * i- . i i • 24 bestu myndirnar i samkeppni Visis Hans Petersen hf og Ljósmyndara- félags Islands um skemmtileg- ustu barna- myndina ’81: Valid úr um tvö I þúsund myndum ATKVÆÐASEÐILL Barnamyndasamkeppni Visis, Hans Petersen hf. og Ljósmyndarafélag íslands um skemmtilegustu barnamyndina \81 Ég undirrit..mæli meö mynd merktri bókstafnum......sem skemmtilegustu barnamynd ársins. i Nafn •••••••#•••••••••••••••••••••••••••••••••••••#•••••••••• Heimilisfang. i i „Þaö var oftog tiöum erfitt aö velja myndir i aöalúrslitin, þetta voru yfirleitt mjög jafngóðar myndir, sem okkur bárust. Við reyndum að nota útilokunar- aðferðina og útkoman varð semsagt þessar 24 myndir,” sagði Leifur Þorsteinsson hjá Ljósmyndarafélagi Islands, i samtali við Visi, en hann er for- maður dómnefndar i Barna- myndasamkeppni Visis, Hans Petersen h.f. og Ljósmyndara- félags Islands um Skemmtileg- ustu barnamyndina '81. Nú hafa verið valdar þær 24 myndir, sem keppa til úrslita um Skemmtilegustu barnamyndina ’81 og birtast þær allar hér. Er nú komið til kasta lesenda Visis að velja skemmtilegustu myndina. „Fyrst og fremst góð [jósmynd af barni.” 1 dómnefnd eiga sæti Leifur Þorsteinsson, Gunnar V. Andrésson og Bryndis Schram. Við spurðum Leif um starf nefndarinnar. „Það hefur verið afskaplega skemmtilegt að vinna að þessu,” sagði Leifur, „Við val á myndunum lögðum við aðal- áhersluna á, að myndin væri fyrst og fremst góð ljósmynd af barni, mynd, sem segði eitthvað um barnið. Annars er mjög erfitt að lýsa þessu i orðum, það er svo óhemjumargt, sem þarf að taka tillit til.” — Nú er komið til kasta lesenda að velja skemmtilegustu mynd- ina, hvað vega þeirra atkvæði þungt? „Við i dómnefndinni eigum að hafa siðasta orðið. Lesendur eiga að velja eina mynd hver sem þeim finnst best, og siðan röðum við þeim þrem myndum, sem flest atkvæöi fá i fyrsta,annað og þriðja sætið. En það er nú svo, að þessar 24 myndir eru svo jafngóð- ar, að það verður mjög erfitt að gera upp á milli þeirra,” sagði Leifur Þorsteinsson. „Á annað þúsund mynda bárust.” „Keppninni hefur veriö geysi- lega vel tekiö,” sagði Ragnhildur Asmundsdóttir hjá Hans Peter- sen h.f., „og hingað inná borð til min bárust hvorki meira né minna en 1730 myndir og það eru náttúrulega ekki nándar nærri allar þær myndir, sem teknar voru i keppninni, þvi ljósmyndar- arnirá hverjum stað völdu aðeins nokkrar myndir af þeim sem þeir tóku til að senda i keppnina”. Keppninni um Skemmtilegustu barnamyndina ’81 var hleypt af stokkunum i byrjun febúar siðastliðnum. Það voru 16 ljósmyndastofur um allt land, sem þátt tóku og voru sérstakir myndatökudagar alla mánudaga meðan keppnin stóð. Fjórum sinnum var siðan dómnefnd falið að velja nokkrar myndir af þeim, sem höfðu borist i allt 24 myndir. .„Það má segja, að keppnin hafi farið rólega af staö, þvi fyrst þegar valið var úr innsendum myndum voru þær um 200, en siðan jókst þátttaka mjög og siðasta var valið úr tæpum 900 myndum”, sagði Ragnhildur. — Verður slik keppni að árleg- um viðburöi? „Ja, eftir þátttöku virðist grundvöllur fyrir þvi og geri ég frekar ráð fyrir, að slik keppni verði haldin aftur, ef ekki að ári, þá að tveimur árum liðnum”, sagði Ragnhildur Ásmundsdottir. Vegleg verðlaun i boði. Það verða vegleg verðlaun i boði fyrir þá er hreppa þrjú efstu sætin. Aðalverðlaunin verða til barnanna, en ljósmyndararnir, sem taka verðlaunamyndirnar fá viðurkenningu. Barnið, sem verð- ur á mynd, sem verður i fyrsta sæti,fær 5000 króna peningaverð- laun, auk Kodak-myndavélar, mjög fullkominnar. Þá fá börnin, sem verða i öðru og þriðja sæti sitt hvora myndavélina af sams konar tegund. Einnig verður dregið úr úrlausnum þeirra lesenda, sem valið hafa þá mynd, sem verður i fyrsta sæti og fær hann myndavél. Þá birtist hér og atkvæðaseðill og rennur frestur til að skila seöilinum út þann 23. april næst- komandi, en hann á að senda á ritstjórn Visis, Siðumúla 14. . Þess ber og að geta, að myndirnar verða til sýnis i sýningarglugga Hans Petersen i Bankastræti 4 yfir páskana. —KP

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.