Vísir - 29.05.1981, Page 9

Vísir - 29.05.1981, Page 9
'Föstudagur 29. mal, 1981 VÍSIR Skallarnir ill- vígastir allra Skallar I átökuin viö moddara og lögreglu i Southend I London. Atvinnuleysi hefur farið stig- vaxandi i Bretlandi á undan- förnum árum og hefur það mest bitnað á ungu fólki. Þetta hefur leitt til þess að öfgahópum og kynþáttahöturum hefur stór- fjöigað. Glæpum hefur mjög fjölgað og ofbeldi aukist og stórir hópar glæpaklika vafra um göturnar i leit að einhverju, sem þeir ekki vita sjálfir hvað er, en láta timann liða með þvi að kvelja einhvern eða eyðileggja eignir. Colín Wills, blaðamaður Sunday Mirror, dvaldi i mánaðartima meðal krakka i illvigasta hópnum, ,,The Skin- heads”, eða „Skallanna”. Hann reyndi að komast inn i hugsunarhátt þeirra og skilja, hvað lá að baki gerðum þeirra. Fyrir marga þeirra er mesta skemmtunin að æsa upp og slást við aðra hópa, sérstaklega svertingja. Hvar sem skallarnir birtast, gripur um sig skelfing og hræðsla þvi þessir krakkar vila ekkert fyrir sér. Það hefur sömu áhrif á þá að slá mann með keðju eða stinga hann með hnif, eins og fyrir guðhrætt fólk að fara i kirkju. Þeim liður vel á eftir. Nasistakveðjur Tvö hundruð skallar voru eitt sinn króaðir upp við vegg af lög- reglunni. Með lögregluna allt i kringum sig hófu þeir hendurn- ar á loft og hrópuðu: „Sieg Heil — sieg Heil”. Þetta kom lögreglunni nokkuð á óvart og ekki bætti úr skák, að úr annarri átt kom hópur úr kliku, sem kallar sig „Mods”. Þeir eru með briljantinsleikt hár og i leðurjökkum. Þeir sungu „Við erum mods, við er- um mods”. Þetta var meira en skallarnir þoldu. Þeir stormuðu að lög- reglunni, sluppu frá henni og réðust að modsunum. Slegist var af mikilli hörku og grimmd og voru hnefar, fætur, barefli og glerbrot notuð sem vopn og fékk lögreglan lengi ekkert að gert. Einn skallinn lá ofan á andstæð- ingi sinum, keyröi hnefann i andlitið á honum og öskraði: „Nú skaltu deyja, helvitið þitt — moddarasviniö þitt”. Það óhugnanlegasta við skallana er i sjálfu sér ekki aö þeir skuli beita ofbeldi, heldur hvaö ofbeldisverkin viröast hafa litil áhrif á þá. Þaö skiptir þá jafnmiklu máli að slá gamla konu og að drepa flugu. Og þeir beita hvern sem er ofbeldi, ekk- ert tilefni þarf til. Þegar þeir eru i skapi til þess, þá dugar hvaða andstæðingur sem er — og yfirleitt eru skallarnir fleiri en andstæðingarnir: moddar, teddar, punkarar, svertingjar — allir eru þeir ágætis andstæð- ingar. Sadismi af verstu gerð Sum tilvik hafa gefið hugtak- inu „sadismi” nýja og dýpri merkingu. Eitt sinn hittu nokkr- ir skallar tedda, sem var einn á ferð. Þeir böröu hann og köstuðu honum svo út i sjó. Teddinn reyndi að halda sér á floti, en var grýttur af sköllun- um sem biöu eftir að hann drukknaði. Það varð teddanum til lifs, að hann komst um borð i árabát og gat róið i burtu. Eitt sinn reyndu þrir skallar að hengja niu ára gamalt barn uppi i tré vegna þess að það sagðist kunna vel við moddana. Saman við ofbeldið spinnst svo kynþáttahatrið. Alls staðar má sjá nasistamerki, skallarnir eru flestir með hakakrossa á sér eða armband og margir eru með hakakrossinn húðflúraðan á hálsinn eða handlegginn. 17 ára drengur, sem hlaut ótima- bundinn gæsluvarðhaldsdóm (hann var of ungur til að fara i fangelsi) fyrir að myrða Pakistana á ruddalegan hátt, rétti upp höndina og skellti hæl- um saman er dómurinn var kveðinn upp. Félagar i National Front Nokkrir skallanna eru merkt- ir tveimur hægri öfgaflokkum, British Movement og National Front, en báðar þessar hreyf- ingar sækja mikiö stuðnings- menn til skallanna og ungra knattspyrnuáhugamanna. Maður nokkur tók ungan skalla, Richard Lewington, tali i pöbb nálægt Stamford Bridge fótboltavellinum i Chelsea. Hann sýndi skallanum eintak af blaðinu Bulldog, sem er blað ungliðahreyfingar National Front. Skallinn var spurður hvort hann vildi ekki kaupa blaðið. Annar ungur skalli var aö koma af knattspyrnuleik i Leeds og þá kom maður til hans og spurði, hvort hann heföi ekki á- huga á að ganga i National Front. „Nei”, svaraði skallinn, „eg Ungir skallar og aðdáendur nasistakveðjunni. hef engan áhuga á stjórnmál- um”. Þá þreif maðurinn i skallann og hrópaði: „Hver djöfullinn er að þér maður?? Ert niggarasleikja eða hvað?” Hitlersdýrkun Blaðamaðurinn ræddi við ungan skalla, Billy Howart frá Birmingham, um „pólitik”. Heima hjá skallanum var eitt rúm, óvarin ljósapera og stór mynd af Hitler á veggnum. — Hvers vegna dáist þú að Hitler? „Nú, hann hafði rétt fyrir sér, ekki satt? Hann leið gyðing- unum enga vitleysu”. — Hvað myndi hann gera ef hann yrði forsætisráðherra i Englandi i dag? „Hann myndi senda alla nigg- arana heim með næsta skipi. Hann myndi stilla öllum komm- um upp við vegg...” Richard Lewington ræddi málin af meiri skynsemi. Hann áleif skallana höfða til hvitra pilta, sem fannst þeir vera af- skiptir og gleymdir. „Þaö eru alltaf negrarnir sem þjást. Það eru alltaf þeir sem þarfnast hjálpar og hljóta samúð. En ég get sagt ykkur að hvitir krakkar þjást alveg eins mikið. Ég viðurkenni að skallarnir valda vandræðum, en allir halda að við séum einu þrjótarnir. Svörtu krakkarnir efna lika til uppþota, en enginn segir orð um það”. I þeim heimi, sem við höfum skapað okkur.leita afskiptir krakkar fróunar i tónlist, brennivini og eiturlyfjum. Aðrir finna froun i hryllilegu ofbeldi,, einu aðferðinni sem þeir kunna til að hefna sín á heimi, sem skiptir sér ekki af þeim og er sama um þau. meö knattspyrnufélagsins Chelsea heilsa upp á gamalkunnan hátt Axel Ammendrup skrifar: Erfitt að finna til samúðar Það er erfitt að finna til samúðar með þessum krökkum samt sem áður. Eftir að hafa heyrt skallastelpu monta sig af þvi að hafa stungið ungan negra á hol meö skærum i götubar- daga. Eftir að hafa heyrt ungan skalla ræða um málningar- vinnu sina, en hún fólst i þvi að skrifa á veggi i neðanjaröar- járnbrautarstöö i Tottenham setningar eins og: Brennið nigg- arana” og „svartur skitur”. Eitt sinn heyrði blaðamaður- inn til fjögurra skalla er þeir tóku ungt par i gegn á matsölu- stað. Þeir kölluðu stúlkuna mellu, sögðu að hún hefði sofiö hjá öllum i hverfinu og buðu henni svo i kynsvallsveislu. Stúlkan var miöur sin og piltur- inn kominn að þvi að gráta. Og þegar skallarnir voru spuröir hvers vegna þeir heföu gert þetta, svaraði einn þeirra: „Það kemur méri gott skap að fara illa með einhver fifl. Ég hef gaman af þvi”. Tómleikakennd Eftir að blaðamaðurinn hafði rætt um „pólitik” við Billy How- arth, fóru þeir á krá i Birming- ham. Eftir aö þeir höfðu skolað niöur nokkrum bjórkollum, kom ýmislegt fram hjá skallanum. Það haföi ekkert oröið úr iifi hans og allir vinirnir höföu yfir- gefið hann. „Ég er hreinlega búinn aö vera, ef þú vilt vita þaö — algerlega búinn að vera”. Hann sagði, aö ef ekki væri vegna niggaranna, Pakist- ananna og kommanna, þá væri allt I lagi. „Ég verð að sjá um mig sjálf- ur. Hvers vegna skyldu þeir þá fá allt á silfurfati. Ég hata þá, ég hata þá heitt og innilega”. Ab sögn blaöamannsins kreppti skallinn hnefunum svo fast saman, að hnúarnir hvitn- uöu. Og það undarlega geröist. Skallinn fór að hágráta þarna fyrir framan blaðamanninn. Úr augum hans skein ótti, vonleysi og tómleiki. ■

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.