Tíminn - 13.11.1969, Síða 6
6
TIMINN
FIMMTUDAGUR 13. nóvember 19G9.
Friðrik Þorvaldsson, framkvæmdasfjóri:
Að mylja mílljönir
Meðan íslendingar voru að
eágnast 900 metra langan veg
mó segja, að þeir hafi verið á
tímahæru námskeiði, því að
hivert skref í honum, kanta
milli, mun Qcosta á 4. millj. kr.
Svo sem búast má við um upp
lýsta nienn, vakna hjá þeim
spiurningar últ frá námsefninn,
og einmitt þess vegna hiugieiði
ég aú, iwont þjióðin hafi
efni á því að vega land sitt.
Það mó fullyrða, að væntan-
leg fól. fielgun bæti lítið úr.
ÞjóðfólagiS þarf að uppfylla
nýjar nauðþurftir þá, svo k»m
andi kynslóð kann að eigia nóg
með sig. Pólkið, sem býr í land
inu nú, mun því verða að leysa
þetta verkefni að mestu, og
hvernig má það ske, nema að
Ihrein umturnun komi til? Að
bjóða út ýmsar framkvæmdir
tel ég rétt, þótt 900 metra
ráðstöfunin spái ekki góðu.
Einstaklingar, sem fengizt
höfðu við vegagerð áður, reynd
ust hafa méira fjórmagn en
sjáift ríkið, og vélakostur
þeirra hefur sennilega vérið af-
kastadrýgri en ríkistækin.
Kannski eigum við eftir að
heyra, að vegamálastjóranum
verði skaffaðar prjónamaskin
ur!
Þegar ég segi, að umtumun
þurfi að koma til, er ég ekki
að dylgja um það, að vega-
málastjórnin sé óhæf eða vega
gerðarmenn. Ég hugsa fremur
um eins konar verkabýtti,
þannig áð vegamálaráðherra og
vegamálastjóri færu erlendis
og kynntu sér vegaframkvæmd
ir, en þeir sem mest hafa ferð-
azt í sambandi við önnur fjár
hagsmál væru látnir halda
kyrru fyrir. Þá gætum við í
næði íhiugað, hve bröltið við
Efna'hagsbandalagið var fárán
legt, og einnig gæti svo farið
að smá hlé við Eftatildrið
dygði þjóðinni til hins sama
skilnings. Það er óbjörgulegt
á að hlusta, að þeir sem mest
guma um væntanlegan aðgang
okkar að 100 milljón manna
markaði, skuli vera steinhljóð-
ir um það, að þessar 100 millj
ónir geta smeygt sér inn í okk
ar heimamarkað. Að visu á 10
ára aðlögunartlmabil að kippa
obkur svo fram á leið, að við
eigum að því loknu að geta
staðið jafnfætis við háþróaðan
iðnað þessara viðskiptaþjóða.
En ekki er mér grunlaust um,
að þær muni taka einhverjum
framförum sjálfar og trúlega
þeim mun meiri sem þær eru
betur á vegi staddar nú.
Eitt sinn gat að líta í Aiþ.bl.
hugleiðingar um það, að hér
vœri tilvalið að rækta blóm
plöntur til útflutnings. Sjálfur
hief ég haft aðstöðu til að fá
staðreynd um þetta, og
vera má, að hún sé vísbending
um annað meira. Vorið 1968
kom ég þar, sem verið var að
Friðrik Þorvaldsson.
selja í þýzkri_ stórborg garða-
blómplöntur. í pottum kostaði
þar Bláhnoða og Slavía tæpl.
4 kr. stk. (Ageratum Houstoni
anum og Salvia splendens.)
Þegar heim bom, athugaði ég
verðið á þessum tegundum. í
Alaska og við Sigtún kostuðu
þær í' pottum 40—60 kr. stk.
Svona höllum fæti stóðum við,
TRÚLOFUNARHRINGAR
Fljót afgreiðsla.
Sendum gegn póstkröfu.
GUÐM. ÞORSTEINSSON
gulismiður.
Bankastræti 12.
' BIJNAÐARBANKINN
W er l»anUi fólksins
Augfýsið í Timanum
þótt sjálfur jarðhitinn væri
okkar megin.
En þótt Eftamálið sé á viss-
an hátt vegur eða óvegúr út í
framtíðina, var það þó önnur
vegagerð, sem ég hafði í huga.
Það verður engum tölum talið,
hve núverandi vegaástand hef
ur leitt mikinn skaða og auka-
strit yfir þjóðina, en sem and-
stæðu má nefna, hversu góðir
vegir gætu gert henni léttara
að lifa og starfa í landinu. Samt
er vegagerð einnig hugsjóna
mál, og ef framherjar hennar
eignuðust æskilegan ákafa
mætti svo fara, að landsmenn
sýndu líka hvað í þekn býr.
Við, sem erum svo heppnir að
hafa komizt í bjanmann, er lék
um þjóðina þegar Eimskipafél-
agið var stofnað, höfum
reynslu og enn trú á samtaka
máttinn og nýja þjóðarvakn-
ingu, því það mega ailir vita,
að vegagerð er ekki fyrir einn
flokk né éina sveit.
Þótt ég vilji ræða um vega
málin í friðsamlegum tóni dett-
ur mér ebkií hug að að þeim
hafi verið staðið með forsjálni.
Það er mikill siður að tala um
þau sem útgjöld, en þess síður
gætt, að þau eru verðmæta
sköpun, sem spar- annan eigin
dóm og heilsu. Þess vegna er
á því skilsmunur, hvernig hand
bæru fé er varið. Nýlega var
fómað stórfé til að skipta um
akstursstefnu. Englendingar
flytja á hverri klukbustund á
annað þúsund bíla með ferj-
um o>g loftpúðum yfir til megin
landsins, og með sama hætti
kemur þaðan svipuð tala. Allir
aka „rétt“ ino í ferjurnar en
„öfu«. úx á vegir. ., en hér
varð að steypa stömpum út af
nokkur hundruð bílum á ári.
Ekki munu ráðamenn kalla
þettr. e; slu, en við höfum á
því réttnefni, og til þess að
vera við öllu búinn er bezt að
segja aðeins þáð, að dálagleg
an vegarspotta befði mátt
leggja fyrir tilstandið.
Það þjónar engum tilgangi
að telja það skammsýni dreif-
býlismanna að færa aðdrætti
meira og meira á bíla og flug
kost. Slíkt gerist af bví að
þetta er 'iróua, og að leggja illt
til hinna afkastamiklu bíla,
sem raunar eri- boðberar nýrra
hátta, er sarna og að skynja
ekki sinn vitjunartíma. Þegar
hraði flugs og bílaaldar mót
ar sviðið. stoðar iafnlítið að
tala um nauðsyn skipa vegna
snjóalaga eins og að teikna
hitaóra á haf;ijaka. Snjóruðn-
ingur er að vísu dýr en ég fæ
ekki séð, hvernig þau gætu af
stýrt honum öllum, því varla
mun áformað að leggja niður
vegasambönd innan héraða eða
setja jpp vatnaleið milli Forna
hvamms og Grænumýrar. í
mörgum löndum er fannburð-
ur meiri en hér, og það er
þáttur í rekstri þjóðfélaganna
að ryðja vegina, ekki aðeins í
byggðum heldur einnig um
eýðisbóga, fjallas'kriður og
hrikabjörg. Auðvitað koma hér
vegatálmar og flugveður bregzt.
Stundum sikiptir það aðeins
Wwkkustundum og dægrum, en
hafís tökur líka sinn tíma. Ég
rökræði ekki nú tillögu mína
um birgðakjarna í öllum lands
hlutum. Það er ekki einasta
samgöngiumál heMur oy verzl-
unarhættir og rekstrarsparnað
ur.
S'é það atfhugað, að hin mi'ka
bílaeign kallar eftir gjaldeyr
issparandi vegum má þáð furðu
legt heita, hiversu þau málefni
eru látin ríða við einteiming,
þó að fé liggi á lausu. Það er
tómt mál um að tala nú, að
ihátt á 3ja hundrað millj. er
varið í hafrannsóknarskip, sem
verður svo rekið með tugmillj.
árlegu tapi. Vitaskuld eru fiski
fræðingar obkar góðs maklegir,
og ég harma það að vera svo
takmarkaður að hafa ekki kom
ið auga á fúttið í véfréttum
þeirra. Ég fullyrði, að um sinn
hefði þjóðarheildinni verið
raunhetra að stofnkostnaður
þessi ásamt tapsfé hefði gengið
til að veita landinu þá búnings-
bót sem vegagerðin er.
Því er ekki að neita,
að vegagerð hér furðumikil,
en samt ótrúlega bágborin mið
að við álögurnar á farartækin
og við kröfur menningarþjóða.
Það var óþægileg spurning,
sem amerískur bókmenntafræð
ingur varpaði fram við mig í
för til Gullfoss og Geysis, hvort
ekki væri hægt að fara þjóð
veginn til baka. Okkar vegir
verka fjandsamlega á vegfar-
endur. Það ætti þó að hjálpa
til, ‘hive landið er vel fallið til
vegagerða. Hvarvetna eru
grjót og gosurðir, sem veita
möguleika til að undirbúa vega
ræmurnar, og auðn landsins
gerir vegalagninguna ódýrari
en ella, þar sem veglínu má
marka hvert sem stefnir án
þess að rekast á dýrar eignir,
sem bæta þarf- Ég veit, að
vegamálastjóra er vandi á hönd
um, ef sérstaklega stendur á
um jarðrask, en dómgreind
hans í sambandi við Mývatns-
veginn sýndi, að honum er
treystandi fyrir hvaða náttúru
fegurð serr er. Ég, sem alinn
er upp við kjörorðið: „íslandi
allt,“ er svo forstokkaður að
sjá ekkert athugavert við það,
þótt hraunbreiður séu skertar
eða hraungjótur fylltar. Ég sé
heldur ekkert hættulegt í því,
þótt nokkrir fuglar fái snert af ’
taugabilun um tírna, svo lengi '
sem svigrúm þeirra er ekki '
skert, því þegar frá líður eru '
þeir nánast orðnir að húsdýr
um. Það ágæta fólk, sem leitar ,
sér áhyggna út af slíku getur •
huggað sig við það, bve óendan
lega mikið er samt eftir af '.
ágætri náttúru landsins til Dess i
að elska og dýrka.
Aðrar þjóðir leggja alfara-
leiðir í gegnum sjálfa þjóðgarð
ana og bykir engin verðung
að. Það fer líka alltaf svo, að *
þegar staðið ar í driftum verð ,
ur eitthvað undan að láta. En •
vegagerð skilur eftir sig fleið- ;
ur, sem verður aö græða. Mik )
ið hefur verið rætt um þegn »
skyMu ungra manna. en það )
er líka tii annað afk sem gæti '
hjálpað í bessu efni Árlega '
falla úr störfum aldraðir
menn, sem enn búa yfir nokk
urri jrku. Þeim væri ljúft og
hollt að ganga hér að verki
með létt áhöld og frækorn.
Hönd i hönd gætu upprenn-
andi og fallandi menn sýnt, ’
að kynslóðimar eiga samleið '■
þegar ættjörðin s ' hlut. Og ■
fyrst begnsky.duvinna þykir
æskumönnum boðleg, ættu
eldri menn að bera henni vitni
sjálfir, einnig í verki.
Loftpressur — gröfur — gangstéttasteypa
Tökum að okkur allt múrbrot. gröft og sprengingar í
húsgrunnum og holræsum, leggjum skotpleiðsiur. Steyp-
um gangstéttir og innkeyrslur Vélaleiga Simonar Simon-
arsonar, Álfheimum 28. Simi 33544.
SÓLUN
Látið okkur sóla hjól-
barða yðar, áður en þeir
eru orðnir of slitnir.
Aúkið með því endingu
hjólbarða yðar um
helming.
Sólum ílestar teSundir
hjólbarða.
Notum aðeins úrvals
sólningarefni.
BARÐINN h\t
Ármúla 7 —- Sími 30501 — Reykjavík