Tíminn - 13.11.1969, Page 9

Tíminn - 13.11.1969, Page 9
FIMMTUDAGUR 13. nóvember 1969. TIMINN 9 Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framfcvæmdastjóri: Kristján Benedifctsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb). Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði G. Þorsteinsson. Fulltrúi ristjómar: Tómas Karlsson Auglýs. ingastjóri: Steiingrímur Gíslason Ritstjórnarskrifstofur i Eddu húsinu, símar 18300—18306 Skrifstofur Bankastræti 7 — Afgreiðslusími: 12323. Auglýsingasími: 19523 Aðrar skrifstofur sími 18300. Áskriftargjald kr. 165.00 á mánuði, tnnaniands — f lausasölu kr. 10.00 eint. — Prentsmiðjan Edda h. f. Fyrirhyggja? Á blaðamananfundi í fyrri viku lýsti Bjarni Benedikts- son, forsætisráðherra, því yfir, að nú fyrst væri að verða ljóst með hvaða kjörum íslendingar gætu orðið aðilar að EFTA og því ættu menn núna að taka málið allt til ítarlegrar athugunar og kanna hvað vinnst á hverju sviði og hvað tapast, áður en endanleg ákvörðun verð- ur tekin. Lagði ráðherrann á það áherzlu, að menn yrðu að gefa sér nægan tíma til þessarar athugunar og mátti á honum skilja að þar yrðu allir, sem hagsmuna hefðu að gæta, að leggja sig fram. Sama daginn og forsætisráðherrann sagði þetta, vís- uðu íhaldið og kratar í borgarstjórn Reykjavíkur frá til- lögu Kristjáns Benediktssonar um að sérstök nefnd á vegum Reykjavikurborgar yrði látin kanna málið og þá sérstaklega stöðu hinna mörgu tollvernduðu iðnfyrir- tækja í Reykjavíkurborg. í framsöguræðu sinni skýrði Kristján það rækilega svo og Einar Ágústsson, að með þeim tillöguflutningi væri síður en svo verið að taka afstöðu gegn eða með aðild að EFTA heldur ætti 'slík athugun að gera mönnum auðveldara að taka skynsam- lega og yfirvegaða afstöðu til málsins og ekki sízt ef, af aðild að EFTA yrði að gera mönnum Ijósar en áður, hvaða ráðstafanir væri nauðsynlegt að gera af ríkisvalds og borgaryfirvalda hálfu til að auðvelda þeim fyrirtækj- um í Reykjavík sem 1 mestum erfiðleikum myndu lenda við EFTA-aðild að koma rekstri sínum í samkeppnis- fært horf og hjálpa þeim yfir örðugustu hjallana. En íhaldið í Reykjavík er samt við sig, hvað sem hin- um föðurlega tóni og skynsemisboðskap forsætisráð- herra líður. Þegar á reynir í afstöðu og afgreiðslu Sjálfstæðisflokksins á málum, stórum og smáum, kem- ur í ljós, að hér er aðeins um yfirborðshjal að ræða og gerðirnar verða oft þveröfugar við fögru orðin. Pilt- arnir hans Bjarna í borgarstjórn Reykiavíkur verða ekki ósjaldan til að sanna það, hve skynsemin og fyrirhyggj- an ristir grunnt í störfum Sjálfstæðisflokksins. Skattar og kaup í athyglisverðri grein, sem Stefán Jónsson ritaði í Tímann s.l. þriðjudag um skattamál bendir hann á. að tekjumark „hátekjuskatts“ sé nú við 77 þúsund króna skattskyldar tekjur. Af því sem umfram sé verði menn að greiða 60% í tekjuskatt og tekjuútsvar. Úr því fá menn með kauphækkunum ekki nema 40 krónur af hverjum 100, sem launin hækka um. Hins vegar nægja ekki 40% af kauphækkuninni til að mæta þeirri hækk- un nauðsynja, sem kauphækkunin og verðbólgan skapa. Þetta sannar reynsla síðustu ára. Kauphækkun í krónum og vísitölubætur geta því þýtt kaupmáttarskerðingu launa, ef persónufrádráttur og skattstigar eru samtímis frystir í óbreyttri krónutölu í bullandi verðbólguþróun. Það er vegna þessa, sem verkalýðsforingjarnir verða að játa það nú, að þeir hafi tvö ár í röð samið um „sjálf- virkt kauplækkunarkerfi“. Hagstjórnartæki núverandi ríkisstjórnar er að draga úr eftirspurn vöru og þjónustu með rýrnun kaupmáttar launa almennings Vegna þessa frystir hún persónufrádrátt og skattstiga í óbreyttri krónutölu. Leiðrétting persónufrádráttar og skattstiga þýddi raunhæfa aukningu kaupmáttar almennings frá því sem nú er. Þess vegna mælir ríkisstjórnin nú gegn frumvarpi Frar-isóknarmanna um hina sjálfsögðu leiðréttingu á álagningarreglunum. TK HENRY GINGER, New York Times: Servan-Schreiber hyggst endurnýja radikaia-flokkinn Telur auðveldara að endurnýja flokk en stofna nýjan EINN af kunnustu ritstjór- um og greinahöfundum í Frakklandi, Jean-Jacques Serv an-Schreiber, hefur valdið nokkru umróti í frönskum stjórnmálum með því að taka að sér að bláisa lífsanda í franska radikalaflokkinn, sem var að áliti flestra deyjandi flokkur. Servan-Schreiber hefur látið af ritstjórn L’Express um stundar sakir, en það er eitt merkasta og útbreiddasta vibu- blað í Frakklandi, en hann hóf útgáfu blaðsins og hefur verið ritstjóri þess. Ætlar hann að gerast framkvæmda- stjóri radikalaflokksins og semja nýja stefnuskrá á næstu þremur mánuðum ,og er það fyrsta skrefið í endurlífgun flofcksins. Servan-Schreiber er fjörutíu og fimm ára gamall g mikill áhugamaður um nýbreytni. Stjórnmálamönnum og áhuga- mönnum um þau þykir því all miklum tíðindum sæta að hann skuli taka að sér að endur- lífga deyjandi flokk, sem áður fyrr var þó allrar eftirtektar- verður. SERVAN-SCHREIBER er höfundur bókarinnar ,,Banda- rísk ögrun“, sem út kom 1967. Þar eggjaði hann íbúa Vestur Evrópu lögeggjan að sameina kraítan-a og koma öUum iðn- rekstri í nútímahorf, ef þeir vildu komast hjá því að álfan yrði bandarisk nýlenda í efna- hagsmálum. Servan-Schreiber lét svo um mælt í opinberu viðtali, að hann hefði verið að velta því fyrir sér, hvort unnt væri að boða stjórnmálahugmyndir og vinna að framgangi þeirra án þess að hafa stjórnmálasamtök á bak við1 sig. Hann hefði komizt að þeirri niðurstöðu, að þetta gæti ekki lánazt, og þá hefði verið um það tvennt að ræða að stofna ný samtök eða halla sér að starfandi sam- töfcum. Hann valdi síðari kost- inn og komst að raun um, að radikalaflokkurinn þarfnaðist endurnýjunar, en hann var skráður í flokkinn á árunum eftir 1950, þegar Pierre Mendés France — eitt af átnínaðargoð um Servan-Schreibers í stjórn málurn — reyndi að betrum- bæta flokkinn og hressa hann við ,en tókst ekki. „Þetta er sögufrægur flokk ur. Og ég hefi bæði trú á áframhaldi og sögulegri hefð. Það er mjög mikilvægt, að samræma nýjar hugmyndir gam alli hefð“. SAGA fadikalaflokksins sýnir, að hann efldi frelsið á síðari hluta nítjándu aldar, prentfrelsið og samkomufrels- ið, námsfrelsi og réttindi verka lýðsfélaga. Radikala-flokkurinn var meginstoð lýðræðisstefnu og andstöðu gegn klerkavaldinu. Flokfcurinn ýmist réði eða átti þátt í hverri einustu ríkis- stjórn þriðja lýðveldisins, þar á meðal stjórninni, sem sat að vöildum þegar Frakkland féll 1940. Þegar fjórða lýðveidið var sett á laggirnar eftir síðari heimsstyrjöldina var radikala- flokkurinn orðinn máttvana og naut lítillar virðingar, en hafði eigi að síður mátt til að láta til sín taka í þinginu og þeim ríkisstjórnum, sem myndaðar voru eða felldar eftir því sem til tókst um skammvinn sam- töfc í þinginu. Flokkurinn vanð einsbonar „lubkupoki", sem vinstri-, mið- og hægri straum ar veltu sitt á hvað og „tæki- færisstefnan", sem Servan- Schreiber nefnir svo, tók við af eða kom í staðinn fyrir samfellda stefnu. Flokksmönnum fækkaði smátt og smátt og flokkurinn varð i auknum mæli að heim- kynni gamlaðra „hefðarmanna" borgarstjóra og héraðs- og deildarráðgjafa. Þingmenn flokksins námu eitt sinn hundr- uðum, en nú eru þeir ekki orðnir nema 13, en það er færra en svo, að hann geti tal- izt þingflokkur samkvæmt regl um þingsins, þar sem þing- menn verða að vera minnst þrjátíu til þess að geta heitið þingflokkur. FLOKKURINN háði flokks- þing sitt fyrir skömmu ! Nant- es og þar voru gerðar fyrstu ráðstafanirnar til þess að hefta hnignunina. Þingmaðurinn Maurice Faure var kjörinn for maður flokksins, en hann er 47 ára að aldri og nýtur mik illar virðingar bæði fyrir góf- ur og fraimsýni i fangbrögðum við vanda þjóðarínnar Hann var einn af höfundum Rómar- sáttmálans 1957. þegar Efna- hagsbandalagið var stofnað. Faure hvatti til breytingar á flokknum í lýðræðis- g jafnað- ar-hreyfingu í líkingu við Verkamannaflokkinn í Bret- landi og Jafnaðarmannaflokk- inu í Vestur-Þýzkalandi og and mælti sameignarstefnu franskra sósíalista og kommúnista, sem flokkurinn hefir láti'ð vel að um sinn. Hann fór fram á þriggja mánaða frest til þess að endurskipuleggja flokkinn, og leggja fram ákveðin stjórn- málamarkmið. Framkvæmdanefnd flokksins kom saman að flokksþinginu loknu og þar var Servan- Schreiber kjörinn framkvæmda stjóri. Hann kvaðst vilja vinna með fámennum hópi manna, sem flestir eru 25—35 ára. Ætlunin er að efla á ný frum herja- og endurbóta-andann, sem einkenndi flokkinn fyrst framan af. SER VAN -SCHEIBER kvað sig dreyma um a« gera flokk- inn að burðarási vinstrihreyf- ingar andspænis íhaldsstefn- unni, sem nú færi með völd. Hann sagði gaullismann á fallanda fæti sem hreyfingu og spáði því, að þeir, sem þar eru á vinstri jaðri. gengju til samstarfs við radikala flokk- inn. Hann lýsti samsteypunni, Framhald á . bls. 15. «9

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.