Tíminn - 11.12.1969, Blaðsíða 2

Tíminn - 11.12.1969, Blaðsíða 2
TÍMINN FIMMTUDAGUR 11. desember 1969.' Jóiakort til ágóða fyrir sumarbúðir Nýlega eru komin á markað- inn jólakort gefin út af sumar- búðanefnd Prestafélags Austur- lands. Eru þau seld til ágóða fyrir byggingu sumarbúða, við norðan- vert Eiðavatn á Fljótsdalshéraði. Á kortum þessuin eru forkunn arfagrar litmyndir gerðar af list- málaranum, fní Grétu Björnsson í Reykjavík. Einnig eru á kort- um þessum sálmvers eftir herra Sigurbjörn Einarsson biskup. Þessi fögru jólakort eiga að safna saman fyrstu krónunum til sumarhúðanna við Eiðavatn. Aust- firðingar eru hvattir til að kaupa þau ríkulega fyrir þessi jól og senda vinarkveðju í þessum gull- fögru umbúðum. Eru þau til sölu hjá öllum austfirzkum sóknar- prestum, en þeir sjá um söluna, hver í sínu héraði. Kolbeinn Þorleifsson. Mannfræðifélags- fundur í kvöld AK, Rvík, þriðjudag. — íslenzka mannfræðifél-agið heldur umræðu- fund um uppruna íslendinga í 1. kennslustofu Háskólans, fimmtu- ★ Tveir varaþinigmenn tóku sæti á Alþingi í fyrradaig. Eru það þeir Sigurður Grétar Guffmunds- son, sem tekur s-æti Gils Guð- mundsson^ír og Þorsteinn Gísla- son, sem tekur sæti Óiafs Björns- sonar. ★ Ásgeir Bjarnason, Björn Fr. Björnsson og Bjami Guðbjörns- son, hafa lagt fram frumvarp tii laga um breyting á vegalögum, þar sem þeir gera ráð fyrir þvi, að sýsluvegasjóðir beri kostnað af vegalagningu til býla, það sem er umfram 200 metra. Þá er laigt til, að heimila sýsiuuefndum að miða tekjur sýsluvegasjóðann'a við andvirði fjögurra d-agvinnu- stunda í stað þriggja. ★ Sigurður Bjarnason hefur beint eftirfarandi fyrirspum til utanríkismálaráðherra: 1) Hvaða upplýsingar liggja fyrir um verð- mæt jarðefni, föst eða fljótandi, í hafsbotni íslenzika landgmnns- ins? 2) Hafa íarið fram eða em í vændum skipulegar vísindalegar rannsóknir á landgrunninu mieð könnun auðlinda þess í huga? 3) Hafa íslenzkum stjómvöldum borizt óskir um það frá erlendum aðiium að fá að kanna, með bor- unum eða á annan hátt, hvort olíia eða önnur verðmæt jarðefni sé að finna í landigrunninu? ★ Haildór E. Sigurðsson hefur lagt fram eftirfarandi fyrirspurn til iðnaðarmálaráðherra: Hvenœr verður auglýst laust til umsófcn- 'ar forstjóra'starf viS Semients- verfcsmiðju ríkisins og það veitt sfcv. 6. gr. laga um Semenrtisverk- smiðju? ★ Við umræðu um fj'árlögin í gær, töl-uðu þessir þingmenn: Jón Árnason, Halidór E. Sigurðs- son, Geir Gunnarsson, Magnús Jónsson, Magnús Kjiartansson, Ein ar Ágústsson, Stefán WLgeirsson, Jónas Pétursson, Lúðvík Jóseps- son og Karl Guðjónsson. Er fundi lauk kl. 17,30 höfðu verið lagðar fram margar breytinigatiliögur. SuKKA- BuXÖR LIV eru ótrúlega endingargóðar. Þær fást víða í tízkolit og þremur stærðum. Reynið þessar tegundir og þér mnnið koniast að raun um framúrskar- andi vörugæði. 30 den LIV kosta kr. 136,00. 20 den LIV kosta aðeins kr. 115,70. HEILDSALA: ÞÓRÐUR SVEINSSON & CO. H.F. Sími 18700. dagskvöldið 11. des. kl. 20.30. Séra Björn O. Björnsson hefur framsögu um kenningar Jóns Steff- ensens en Þór Magnússon, þjóð- minjavörður, ræðir um fornfræði- leg atriði varðandi uppruna ís- lendinga. Á eftir verða frjálsar umræður. Öllum er heimill að- gangur. íslenzka mannfræðifélag- ið hefur haldið tvo slíka umræðu- fundi í vetur, og voru þeir báðir mjög fjölsóttir. Lionsklúbbur Hafnar- fjarðar safnar fyrir lækningatæki Um þessar mundir er Lions- klúbbur Hafnarfjarðar að hefja hina árlegu fjársöfnunarstarfsemi sína. Að þessu sinni gefa klúbb- félagar út tvenns konar jólakort, sem gerð eru eftir tréskurðar- mynidum, er Gunnar Hjaltason, listmálari hefur skorið og eru kortin prentuð með frummynd- unum í Fjarðarprenti. Verð kort- anna er kr. 15. Auk þess hyggjast félagar klúbbsins bjóða Hafnfirðingum til sölu pakka, sem inniheldur jóla- pappír, límband og merkimiða. Öllum ágóða af sölu pakkans og kortanna í ár verður varið til Konan í Glenn kastala og Umsátin nm Mafeking Tvær spennandi skáld- sögúr frá Stafafelli FB-Reykjavík, miðvikudag Komnar eru út hjá Stafafelli, tvær skáldsögur, Konan í Glenn- kastala eftir Liz Summer og Um- sátin um Mafeking eftir Dorothy Eden. Konan í Glenn-kastala er um unga enska stúlku, Barböru Car- vel, sem verður fyrir vonbrigðum er æskuvinur hennar yfirgefur England, án þess að játa henni ást sína. Skömmu seinna verður ungur og glæsilegur íri á vegi hennar. Hún giftist honum eftir stutta viðkynningu og fer með honum til írlands, til Glenn-kast- ala. En þar reynist ýmislegt vera öðru vísi en hún hafði búizt við. En allt fer vel að lokum, og ham- ingjan brosir við söguhetjunni. Umsátin um Mafeking er úr Búastriðinu um síðustu aldamót, en umsátin er minnisstæð aðal- lega vegna hetjulegrar varnar Col. Baden-Powells og hinnar fá- mennu en hugdjörfu liðsveitar hans. En hvað um konur og börn, sem voru innilokuð í horginni í sjö langa mánuði? Þessi saga seg- ir frá þeim, einkum tveim kon- um, Lizzie Willoughby og Alice Patridge, sem báðar eru nýkomn- ar frá Englandi. Jónas Guðmundsson, stýrimaður kaupa á lækningatæki, sem af- hent verður St. Jósepsspítala í Hafnarfirði. Vænta félagar í Lions klúbbi Hafnarfjarðar sér góðra undirtekta bæjarbúa við málaleit- an þeirra í ár eins og undanfarin 'ár. Vetrarhjálpin í Hafnar- firði tekin til starfa Vetrarhjálpin í Hafnarfirði er nú að hefja starfsemi sína. Þetta er 32. starfsár hennar. Hún er starfrækt á vegum safnaðanna í bænum. S.l. ár var úthlutað í hundrað staði peningum að fjár- hæð 131,800,00. Framlag bæjar- sjóðs Hafnarfjarðar nam s.l. ár 50 þús. kr. Skátar söfnuðu 43 þús. kr. og nefndarmenn söfnuðu hjá fyrirtækjum bæjarins 48. þús. kr. Skátar í Hafnarfirði munu ganga í hús, miðvikudaginn 10. þ.m. og næstu kvöld og veita fjár- framlögum móttöku. Nefndin ósk- ar eftir að ábendingar og um- sóknir um framlög berist Vetrar- hjálpinni eigi síðar en mánudag- inn 15. des. n.k. Framlögum verð- ur veitt móttaka hjá einstökum nefndarmönnum og á skrifstofu framfærslufulltrúans í Hafn- arfirði. í stjórn Vetrarhjálparinnar í Hafnarfirði eru þessir menn: Séra Garðar Þorsteinsson, form., séra Bragi Benediktsson, Gestur Gam- elíusson, trésmíðameistari, Snorri Jónsson, kennari og Þórður Þórð- arspn, framfiærslufulltrúi. Falsaðir tékkar OÓ-eRykjavík, miðvikudag. Nokkrar ávísanir, sem stílaðar eru á Búnaðarbankann eru í um, ferð. Var ávísanahefti stolið í s.l. viku og þjófurinn hefur gefið út nokkrar ávísanir og er ekki nema - ein komin fram. Sá sem stal heft-' inu, gaf sig fram við rannsóknar- lögregluna og ber honum og eig-> anda ávísanaheftisins ekki sam-' an um hve mörg óútfyllt eyðublöð' voru í heftinu. Sá sem stal heftinu og gaf út ' fölsku ávísanirnar segir að í heft- i inu hafi verið sjö eða átta blöð, sem hann síðan útfvllti og seldi, að samtals að upphæð 12 til 15 þús- ' und krónur. Eigandi bókarinnar telur hins vegar að fleiri blöði hafi verið í heftinu. Aðeins ein þessarra fölsku ávfs ana er komin fram. Innistæðan e-r á hlaupareikningi í Búnaiðar-' bankanum og í heftinu voru núm' erin A85601 til A85625. Eru þeir sem hafa ávísanir með þessum númerum undir höndum, beðnir að skila þeim til rannsóknarlög- reglunnar. ÁvísanaheftinH var stolið s.L fimmtudag, úr íbúðarhúsi. MVRAMANNAÞÆTTIR eftir Magnús frá Hvítsstöðum FB-Reykjavík, miðvikudag. Prentsmiðja Jóns Helgasonar hefur sent frá sér bókina Mýra- mannaþætti eftir Magnús Sveins- son frá Hvítsstöbum. í bókinni er ýmis konar þjóðlegur fróðleikur, æviskrár, ævintýri, sögur og sagn- ir. í formála segir höfundurinn: „í bók þessari hefur verið reynt að tína saman nokkra fróðleiks- mola af ýmsu tagi um fólk í Mýrasýslu, en þó sérstaklega um næstvestasta hrepp sýslunnar, Álftaneshreppinn. Reynt hefur verið að kanna þær heimildir, sem tiltækar voru, en bæði er það, að heimildum ber oft ekki saman um ýmsa hluti og eins hitt, að margt getur orkað tvímælis þótt um samhljóða heimildir sé að ræða.“ „Um það bil þriðjungur þess- arar bókar er æviskrár, en hitt blandað efni eins og efnisskráin her með sér“. Magnús Sveinsson höfundur þess arar bókar er fæddur á Hvíts- stöðum í Álftaneshreppi á Mýr- um og ólst upp á Valshamri í sömu sveit. Hann stundaði nám í Alþýðuskólanum á Hvítárbakka og við lýðháskólann í Tárna í Svíþjóð, en lauk kennaraprófi við kennaraskólann ári'ð 1935. Einnig nam hann við landafræði- deild Stokkhólmsháskóla og flutti fyrirlestra um ísland í Stokkhólmi Og víðar á Norðurlöndum. Magnús Sveinsson frá Hvítsstöðum FYRSTA SMÁSAGNASAFN JÓNASAR GUÐMUNDSSONAR og viðtalsbók við Jón Otta eftir Jónas komnar út FB-Reykjavík, miðvikudag. Bókaútgáfan Hildur gefur nú út tvær bækur eftir Jónas Guð- mundsson stýrimann. Jónas er löngu kunnur af bókum sínum og skrifum í blöð ogt ímarit, og sem ævintýramaður og víðförull ferða- langur. Nú kemur hir.s vegar í fyrsta finn út eftir hann smá- sagnabók. Smásögur Jónasar heita Dáið á miðvikuilögum. í bókinni eru þrettán smásögur þar á meðal sú, sem bókin dregur sjálf nafnið af. Bókin^ er 112 síður 1 litlu broti. Hin ‘bókin, sem Hildur gefur nú út eftir Jónas, er sjóferðasaga Jóns Otta. Bók þessi er byggð á samtölum við Jón Otta Jónsson, einn kunnasta togaraskipstjóra eldri kynslóðarinnar, og segir frá uppvaxtarkjörum ungra drengja í Reykjavík um aldamótin og frá sérstæðum lífsstíl Vesturgötunn- ar. Ennfremur sjóferðasögu hins aldna sæfara, sem lengur hefur staðið á sætrjám en flestir aðrir menn íslenzkir. Áður hafa komið út eftir Jónas Guðmundsson tvær bækur, 60 ár á sjó, árið 1962 og Skip og menn árið 1963. i

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.