Tíminn - 11.12.1969, Blaðsíða 4

Tíminn - 11.12.1969, Blaðsíða 4
4 TIMINN FIMMTUDAGUR 11. desember 1969. Bótagreiðslur almannatrygginganna í Reykjavík Laugardaginn 13. desember verður afgreiðslan opin til kl. 5 síðdegis og greiddar verða allar tegundir bóta. Bótagreiðslum lýkur á þessu ári á hádegi 24. þ. m. og hefjast ekki aftur fyrr en á venjulegum greiðslutíma bóta í janúar. TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS LAUGAVEGI 114 AÐVÚRUN Frá Verkamannafélaginu Dagsbrún Vegna þess, hve alvarlega horfir í atvinnumálum verkamanna í Reykjavík, vill Verkamannafélagið Dagsbrún vara utanbæjarmenn við að koma til Reykjavíkur í atvinnuleit. Jafnframt vill félagið minna atvinnurekendur á skýlausan rétt Dagsbrúnarmanna til vinnu á félagsvæðinu. STJÓRN DAGSBRÚNAR. SNJÚKEÐJUR Keðjuþverbönd — krókar í þverbönd. Keðjutangir og sjálflokandi hlekkir í þverbönd. Æ A VIÐA Efling Framsóknar- flokksins í bæjunum f ræðu, sem Einar Ágústs- son, varafonnaður Framsókn- arflokksins, flutti 15. f. m. á Kjördæmisþingi Framsóknar- manna í SuBurlandskjördæmi, sem haldið var í Vestmannaeyj um, ræddi hann m. a. um hlut- verk stjómarandstöðu í lýðræð isþjóðfélögum og framgang og eflingu Framsóknarflokksins í kaupstöðum og kauptúnum landsins. Einar sagði m. a.: „Þegar við lítum til bæj- anna í dag, sjáum við, að Fram sóknarflokkurinn nýtur þar vaxandi trausts - og áhrifa. Við þurfum ekki lengi að ieita að sönnunum þessa, eða er ekki forseti bæjarstjórnarinnar hér í Vestmannaeyjum úr okkar flokki? Hvernig hefur okkur tekizt til dæmis í Keflavík? Þannig, að okkur vantaði í síðustu kosningum aðeins ijMÉ nokkra tugi atkvæða tU að fá þar hreinan meirihluta. For- seti bæjarstjómarinnar í Kópa- vogi er Framsóknarmaður, sama er að segja um Sauðár- krók, bæjarstjórinn á Akur- eyri er Framsóknarmaður, já, meira að segja í höfuðvígi íhaldsins, sjálfri Rvík, höfum við undanfarin átta ár áfct tvo menn í borgarstjórn og mann í borgarráði og erum þar nú ámóta stórir og hinir minni- hlutaflokkamir, — bæjarflokk amir — eins og við sjálfir köll uðum þá fyrir aðeins nokkrum ámm til aðgreiningar frá Fram sóknarflokknum. Nei, við skulum hætta að hengja hausinn yfir því. að okkur hafi orðið svo afskap- Iega lítið ágengt á undanförn- um árum.“ Ennfremur sagði Einar: „Hitt er svo auðvitað annað mál, að þótt okkur hafi vegn- að eins og ég hef verið að reyna að lýsa, þá er engan veirinn Jiominn tími til þess að halla sér afturábak og hvilast á lárviðarsveignum, enn er mikið verk óunnið. Ég hef þá trú, að ekki muni langt um líða þangað til okkar flokki verði trúað fyrir meiri ábyrgð og stærri verkefnum en þeim, sem við gegnum í dag, en ég undirstrika að það að halda uppi stjórnarandstöðu í lýð- frjálsu landi er veglegt og vandasamt lilutverk, sem hvar- vetna með menningarþjóðum þykhr miklu varða, hvemig rækt er. Ilvort sem við verðum þannig utan stjómarráðsins eða innan veggja þess í næstu framtíð, stjórnendur sveitar- félaga eða í minnihlutahópnum er það skylda okkar að halda ótrauðir þá braut, sem við vit- um að leiðir þjóðina fram. Við skulum halda áfram eins og við höfum gert að móta stefnu okkar með hliðsjón af verkefn- um líðandi stundar og með hagsmuni framtíðarinnar fyrir augum, en látum ekki glepj- ast af áróðri andstæðinga okk- ar, minnugir þess, að þann dag, sem óvinirair hrósa okkur er heill okkar fyrst í alvarlegri hætfrii. Við höldum áfram að kynna stefnu flokksins og afla henni fylgis, tið getum þurft að beita nýjum aðferðum, við get- um þurft nýja menn ,slíkt er eðli framvindunnar ,en við skulum ekki vanþakka þeim, sem leitt hafa samtök ok’»r þangað, sem þau em í dag, slíkt væri ómaklegt. , Við lifum á tímum mikilla breytinga, byltinga væri víst réttara að segja. Framundan eru nýjungar jafnvel stórfelld- ari en okkur getur órað fyrir. Þess vegna er það knýjandi nauðsyn íslendingum að leggja höfuðkapp á menntunina, því án þekkingar og sérhæfingar gefcur ekkert þjóðfélag gert sér Framhald á bls. 11 Nú er rétti tíminn til að athuga ratgeyminn SÖNNAK RAFGEYMAR — JAFNGOÐIR ÞEIM BEZTU — Viðurkenndir at Volkswagenverk A.G. I nýja VW bíta, sem fluttir eru *il Isiands Yfir 30 mismunandi teffundir 6 og 12 v jafnan fyrirliggiandi — 12 mán. ábyrgð S M Y R I L L - Ármúla 7 - Sími 84450. SMYRILL, Armúla 7. Sími 84450. Viðgerða- og ábyrgðarbiónusta SONNAK-raf- geyma er i Dugguvogi 21 Simi 33155. FRA HAPPDRÆTTI FRAMSÖKNARFLOKKSINS: FENGIZT HEFUR LEYFI TIL AÐ DREGIÐ VERÐI fl ÞORLÁKSMESSU - 23. DESEMBER VINSAMLEGAST GERIÐ SKIL SEM FYRST FYRIR HEIMSENDA MIÐA Á SKRIFSTOFUNA HRINGBRAUT 30 - SÍMl 24483 EÐA Á AFGREIÐSLU TÍMANS BANKASTRÆTI 7

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.