Vísir - 27.07.1981, Síða 3
3
Mánudagur 27. júli 1981
Steen Juul Mortensen nýkjörinn forseti Skáksambands Noröur-
ianda. Visism. EÞS t
„Skákáhugí á
ilslandi er ótrú-
lega mikiH”
- segir nýkjörinn forseti
Skáksambands Norðurlanda
„Ég er auðvitað mjög
ánægður með að hafa verið kos-
inn, annars vissi ég þetta fyrir.
Það er venjan, að forsetinn sé
frá þvi landi sem heldur
Norðurlandamótið i skák hverju
sinni”, sagði Steen Juul Morten-
sen, nýkjörinn forseti Skáksam-
bands Norðurlanda i samtali við
Visi, en hann tekur við þvi starfi
af Einari S. Einarssyni.
Steen Juul Mortensen er
kennari við menntaskóla i Her-
ning i Danmörku. Hann er mik-
ill áhugamaður um skák og
hefur um fimm ára skeið verið
forseti Danska skáksambands-
inSjhefur nýlega verið endur-
kjörinn i það starf. Þá er hann
annar dönsku fulltrúanna á
þingi Skáksambands Norður-
landa hér á landi, en á fundi
þingsins i gær var hann kjörinn
forseti.
„Þetta er töluvert mikið starf,
en vinnan felst einkum i að
skipuleggja Norðurlandamótið i
skák, sem haldið er annað hvert
ár. Næst höldum við það og
verður það haldið i Esbjerg 83”
— Hyggst þú beita þér fyrir
einhverjum nýjungum eða
breytingum i sambandinu?
„Ég á nú ekki von á þvi.
Starfið er tiltölulega fullmótað,
það væri ekki nema það að
fylgja eftir þeim nýju lögum,
sem komið hefur verið á. Svo
auðvitað að koma á meira sam-
bandi við önnur skáksambönd i
heiminum”.
— Er mikill áhugi á skák i
Danmörku?
„Ég verð eiginlega að segja,
að miðað við Island er hann
sáralitill. Það er ótrúlega mikill
skákáhugi hér. Sem dæmi þá
myndi engum dönskum blaða-
manni detta i hug að taka við
mig viðtal i tilefni af kjöri minu
sem forseti Skáksambands
Norðurlanda”, sagði Steen Juul
Mortensen.
— KÞ
visui
Skeljungur hf.:
Vill relsa benslnstðö
viö Reykjanesbraut
Bensinstöð við fyrirhugaða
Reykjanesbraut, ofan byggða i
Kópavogi, er á óskalista Oliufé-
lagsins Skeljungs hf.
Skeljungur hefur sótt um lóð
undir stöðina i Kópavogsdalnum,
en þar er fyrirhugað iðnaðar-
hverfi, að þvi' er Bjarni Þór Jóns-
son bæjarstjori sagði Visi. Hann
sagði að bæjarráð hefði sent
skipulagsnefnd umsóknina til at-
hugunar og umsagnar og taldi
ekki ósennilegt að hægt væri að
fella bensinstöð inn i skipulagið
þarna. Hann sagði ennfremur að
Skeljungur hefði kosið að senda
umsóknina timanlega til að
tryggja sér að ráðrúm yrði til að
ihuga máhð vel.
Gert er ráð fyrir að hafist verði
handa um byggingu vegarins
næsta vor.
Bjarni Þór var spurður um
reynsluna af „innanhúss” bensin-
stöðinni i Kópavogi og svaraði
hann að hún væri mjög góð, sér-
kvæmdir standa nú yfir á ísafirði
i sumar. Lagt verður malbik á
fimm götur i bænum. Samanlagt
þekur malbik um 35 þúsund fer-
metra á ísafirði.
Þá er Vegagerð rikisins að
staklega komi kostirnir i ljós að
vetrarlagi. j
leggja malbik a eins og hálfs kiló-
metra langan vegarkafla frá
kaupstaðnum að flugvellinum.
Þegar þessum framkvæmdum
lýkur verður komið bundið slitlag
á flestar götur á Isafirði.
ísafjörður:
Bundlð sllllag
á tlestar götur
Miklar malbikunarfram-
IBÍLINN
Útvarpíð með LB/MB og FM-stereó segu/band
auto reverse. Verð aðeins kr. 2.430.-
Þetta er aðeins eitt af mörgum tsakj- Fagmenn sjá um ísetningu á
um sem við bjóðum í bílinn ásamt staðnum. Komið þar sem úrvalið er
miklu úrvali af hátölurum, mögn- og verðið er hagstætt
umm og loftnetum.
PÓSTSENDUM
AHt til hljómflutnings fyrir:
HEIMILIÐ - BÍUNN
OG
DISKÓ TEKID
D__
ÍNdaiO
4ébl<
i r
ARMULA 38 iSelmúla megini 105 REVKJAVÍK
SIMAR: 31133 83177 PÓSTHOLF 1366
SttlÖÉ
Ævintýraleg
skemmtisigling um
Miðjarðarhafið
BROTTFÖR 1. SEPTEMBER.
Nú bjóðum viö skemmtisiglingu með lúxus-skipinu Mikhail Lermontov frá London til Miðjarðarhafs-
ins. Komið veröur við í Malaga á Spáni, Ajaccio á Korsíku, Civitauecchia (Róm) og Napólí á ítalíu,
La Gaulette í Túnis og Corunna á Spáni.
Flogiö verður til London aö morgni 1. september og siglt af stað kl. 19.00 sama dag. Komið er til
baka til London þann 16. september og flogið heim þann 17. september.
Mikhail Lermontov er 20.000 tonna skip og tekur 650 farþega. Um borð er allur sá lúxus, sem
hugsast getur, s.s. barir, setustofur, veitingasalur, kvikmyndasalur, verslanir, hárgreiðslustofur,
gufubað, leikfimisalur og sundlaug. Og aö sjálfsögöu mikiö og rúmgott dekk, sem sagt allt sem þarf
til gleði og skemmtunar, vellíðanar og afslöppunar.
Komiö á skrifstofu okkar og fáið nánari upplýsingar.
SÉRHÆFÐ FERÐAÞJÓNUSTA
ÁNÆGJA OG ÖRYGGI í FERÐ MEÐ
mTMTIK
FERÐASKRIFSTOFA
— Iðnaðarmannahúsinu — Hallveigarstíg 1. Símar: 28388—25850.