Vísir - 27.07.1981, Page 8

Vísir - 27.07.1981, Page 8
8 Mánudagur 27. júli 1981 VÍSIR Útgefandi: Reykjaprent h.f. Ritstjóri: Ellert B. Schram. Fréttastjóri: Sæmundur Guðvinsson. Aðstodarfréttastjóri: Kjartan Stefánsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur Pétursson. Blaðamenn: Axel Ammen- {irup, Árni Sigfússon, Friða Ástvaldsdóttir, Herbert Guðmundsson, Jóhanna Birgisdóttir, Jóhanna Sigþórsdóttir, Kristín Þorsteinsdóttir, Magdalena Schram, Sigurjón Valdimarsson, Sveinn Guðjónsson, Þórunn Gestsdóttir. Blaöamaðurá Akureyri: Gisli Sigurgeirsson. Iþróttir: Kjartan L. Pálsson, Sig mundur O. Steinarsson. Ljósmyndir: Emil Þór Sigurðsson, Gunnar V. Andrés son. útlitsteiknun: Magnús'Olafsson, Þröstur Haraldsson, Safnvörður: Eirikur Jónsson. Auglýsingastjóri: Páll Stefánsson Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson. Ritstjórn: Síðumúla 14, simi 86611, 7 linur. Auglýsingar og skrifstofur: Siðumúla8, simar 86611 og 82260. Afgreiðsla: Stakkholti 2-4, simi 86611. Áskrif targjald kr. 80 á mánuði innanlands og verð i lausasölu 5 krónur eintakið. Visir er prentaður i Blaðaprenti, Siðumúla 14. MJITLEIKUR FRIDRIKS Allt útlit er til þess að mál Kortsnoj fjölskyldunnar sé far- sællega til lykta leift. Friðrik Olafsson hefur látið hafa það eftir sér að lausn hafi fundist, sem hann, alþjóðaskáksam- bandið og Kortsnoj geti vel við unað. Ef þetta reynist rétt, er það ekki aðeins blóm í hnappagat Friðriks Ólafssonar heldur meiriháttar pólitískur viðburður. Allt frá því Viktor Kortsnoj f lúði föðurland sitt og settist að i Vestur-Evrópu hefur hann háð harða baráttu til þess að fá konu sína og son til síns nýja heimilis. Stjórnvöld í Sovétríkjunum hafa hinsvegar vísað öllum slíkum óskum á bug. AAæðginin hafa ekki fengið brottfararleyfi og fullyrt er að sonurinn hafi ekki farið frjáls ferða sinna. Smám saman hefur mál Korts- nojs orðið að meiriháttar alþjóðamáli, prófsteinn í þeirri mannréttindabaráttu, sem land- flótta Sovétborgarar, og skoðanabræður þeirra heima fyrir, heyja hetjulega. Stjórnvöld í Sovét hafa hundsað hverja þá viðleitni, sem höfð hefur verið í frammi til lausnar á málinu. Þau hafa gengið lengra og lagt fæð áKorts- noj sjálfan. Gert honum flest til miska. í bók skákmeistarans, sem út hefur komið í íslenskri þýðingu undir nafninu „fjand- skák", lýsir Kortsnoj, hvernig honum hefur verið gert erfitt fyrir í skákstarfi sínu. Síðast þegar hann háði heimsmeistara- einvígi gegn Karpov, lagði her manna á ráðin, til að brjóta hann niður með yfirgangi og jafnvel sálfræðilegum óþokkabrögðum. Kortsnoj hefur aftur unnið sér rétt til að heyja einvígi við Karpov um heimsmeistaratit- ilinn. Hann hefur hinsvegar og réttilega bentá, að hann sæti ekki við sama borð, meðan valda- menn í Sovétríkjunum, landi Karpovs, og föðurlandi Korts- nojs, héldu fjölskyldu hans í nokkurskonar gíslingu. Við komu Kortsnojs hingað til lands fyrr í vetur, fundu Islendingar til sam- úðar og samstöðu með skák- meistaranum. Undirskriftum var safnað honum til stuðnings, alþingis- menn og verkalýðsforingjar hafa fengið litla þökk fyrir kurteisis- heimsóknir til AAoskvu og Friðrik Ólafsson sætti ámæli fyrir aðgerðarleysi. Oll viðbrögð Sovétmanna, þá sjaldan þeir hafa verið til viðtals um mál Kortsnojs, hafa ein- kennst af hroka. Það þótti því meiriháttar bí- ræfni af hálfu Friðriks Ólafs- sonar, sem forseta alþjóðaskák- sambandsins þegar hann nánast upp á sitt eindæmi, tók þá ákvörðun að fresta fyrirhuguðu heimsmeistaraeinvígi. Þar var djarft teflt og heldur betur óvænt, en Friðrik lét engan bil- bug á sér finna og gaf Sovét- mönnum ótvírætt í skyn að f ram- kvæmd einvigisins væri í hættu, ef þeir kæmu ekki til móts við Kortsnoj. Þannig hefur málið staðið þar til nú, að þau ánægju- legutíðindi berast, að Sovétmenn hafi gefið eftir. Ef til vill er það eftirtektar- verðast við mál þetta, að það er þá fyrst, þegar Sovétríkjunum er boðið byrginn, hart látið mæta hörðu, sem þeir slaka á. Því hefur reyndar áður verið haldið fram, að Sovétríkin skildu ekkert nema hörkuna og festuna, sann- girnin væri ekki til í orðabók þeirra, enda gengju þeir á lagið í hvert skipti sem viðsemjendur þeirra sýndu þann veikleika að draga úr mætti sinum eða við- námi. Þessi kenning er lexía út af fyrir sig og hefur í það minnsta sannast áþreifanlega nú. Friðrik Ólafsson hefur svo sannarlega reynslu í manntafli. í þetta skiptið lék hann lifandi mönnum, á taflborði mann- réttinda. Hann hefur margsinnis áður sýnt og sannað snilld sína og séð marga leiki fram í tímann. Sú náðargáfa hefur komið honum að góðum notum í því mikla örlagatafli, sem hann hef ur háð við eitt voldugasta ríki veraldar. Hann hefur bæði skákað og mátað Sovétríkin. Sigurinn er ekki hans eins, heldur allra þeirra sem unna frelsi og mannréttindum. RíKísleynd gegn fjðlmiölafrelsi Ihaldssjónarmiö: Valdamenn þurfa umræöufrelsi James Burnham, i grein sem hann nefnir Baráttuna löngu, hefur þetta aö segja: t hvaöa fyrirtæki sem er verö- ur fólkiö sem stýrir þvi aö geta talaö i trúnaöi sin á milli um vandamál og stjórnmál þess, ef fyrirtækiö á aö þrifast vel. Og þab er sama um hvaöa fyrirtæki er aö ræöa, forrábamenn tala ekki á sama hátt i trúnaöi og þeir gera opinberlega. Stjórn verkalýössamtaka segir til dæmis ekki viö blaöamenn: „Við krefjumst 25 prósent kaup- hækkunar, en i gærkvöldi urö- um við sammála um aö ef nauð- synlegt yröi myndum viö sætta okkur viö 15 prósent”. Og hers- höfðingi tilkynnir ekki stjórn óvinahersins aö hægri siða hans eigin hers sé veikasti punktur- inn i fylkingu hans. Né heldur. segir maöur nágranna sinum allt sem maður segir viö matar- borðið. Ef vitað væri aö fjölmiölarnir gætu birt öll samtöl, myndu allir halda sér saman. Ef yfirmaður minn bæöi mig i sliku ástandi aö segja sér minar innstu hugsanir um eitthvert mál, þá myndi ég verða að haga orðum minum meö tillití til þess hvernig þaö gæti komið út i blöðunum dag- inn eftir. Ekki mundi ég mér að óþörfu setja stööu mina i hættu með þvi aö segja eitthvað óvin- sælt eða umdeilanlegt. betta viðhorf er ekki nýtt af nálinni i nútima lýðræðisrikj- um: Á átjándu öld i hinum ný- stofnuöu Bandarikjum N-Amer- iku, krafðist þingiö eitt sinn eiö- svarins framburðar af trún- aöarmönnum forsetans. Forset- inn, George Washington, bann- aöi þeim að vitna. Siðan hefur sú heföi haldist, þótt td. Nixon hafi verið tilneyddur aö láta af hendi spólur með sinum per- sónulegu embættissamtölum eftirá, eftir aö upp komst um Watergatehneykslið. bó virða fjölmiölar nútimans oftast engin takmörk fyrir upp- lýsingarétti sinum. beir viröast halda aö þaö sé svipað meö rik- isleyndarmál og meö kynlifið nú til dags, allt veröur að afhjúpa. Hófsemissjónarmiö: Rétturinn til að Ijúga Arthur Sylvester segir meöal annars i grein sinni Rikisstjórn- in hefur rétt til aö ljúga. Stundum veröur stjórnin að ljúga. Frægt er dæmiö þegar Bandarikjastjórn vissi um kjarnorkueldflaugarnar i Kúbu 1962. bá gaf Varnarmálaráöu- neytið út fréttatilkynningu þar sem það neitaði eindregiö vitn- eskju um þaö. betta var visvit- andi gert, til aö geta komið Sov- étmönnum i opna skjöldu hern- aðarlega, þegar þess yrði kraf- ist að þeir flyttu eldflaugarnar burt. Ef ráðuneytið heföi þagað, eða neitað formlega að tjá sig um málið, heföi það gilt á sama hátt og játningundir þeim spenntu kringumstæöum sem þá riktu. Bandarískir blaðamenn reiddust þessari lygi stjórnar- innar, og af varö dæmigerð mis- túlkun á orðum stjórnvalda: Höfundur orösendingarinnar hafði veriö Arthur Sylvester, sem þá var aðstoðarvarnar- málaráöherra Bandarikjanna. Sem blaðamanni var honum boðið á árshátiö þeirra, og þar var hann spurður um álit sitt á pólitiskum lygum. Aðeins eitt blað reyndi ekki aö snúa útúr. Hann svaraði samkvæmt þvi: „Rikisstjórnin má ekki láta frá sér fara ósannar upplýsingar,” en ,,Ég held að rikisstjórnin hafi eðlislægan rétt til aö ljúga þegar henni er ógnað með karnorku- árás”. Hjá öðrum blöðum var þessi fyrirsögn dæmigerð: „Aðstoð- armaður ríkisstjórnarinnar ver rétt hennar til að ljúga að þjóð- inni”. Siðan, i upphafi greinar- innar: „begar öryggi þjóöar er ógnað, þá er réttlætanlegt fyrir leiðtogum hennar að ljúga að fólki sinu”, og svo framvegis, án þess aö skýra málið frekar. Kennedy forseti kom eitt sinn beint aö kjarna málsins er hann hélt ræðu fyrir hópi af útgefend- um: „Sérhver blaöamaður spyr nú sjálfan sig varðandi hverja sögu: „Er þetta fréttnæmt?” Ég bið ykkur aðeins að bæta við þessari spurningu: „Ógnar þessi frétt hagsmunum þjóðar- innar?” Róttæk afstaða: Fólkiðtrúir ekki lengur stjórninni David Wise hefur þetta að Tryggvi V. LTndal skrifar um f jölmiðlafrelsi og þær hömlur sem stjórnunar- stofnanir setja til að verj- ast frétta og frásagna. Tryggvi rekur umsagnir nokkurra manna, þar sem fjallað er um sam- skipti f jölmiðla og stjórn- valda. Hversu langt mega stjórnunarstofnanir í lýð- ræðisríki ganga i því að verjast frétta um athafn- ir sinar? Og hversu langt mega f jölmiðlarnir ganga i því að knýja fréttir úr þeim án þess að lýðræði, öryggi eða vel- sæmi sé ógnað? Um þetta hafa margir tjáð sig, og er skemmtilegt að athuga nokkrar af litrikari af- stöðunum sem hafa kom- ið fram, bæði með og á móti fjölmiðlafrelsi. segja i grein sinni Stjórnmál lyganna: t Bandarikjunum hefur dregið svo mikið úr trú almennings á sannsögli stjórnarinnar, að samkvæmt skoðanakönnun trúði talsverður fjöldi manna þvi ekki að Bandarikjamenn hefðu lent á tunglinu, tæpu ári eftir að það gerðist. bannig stóð td. maöur i Mac- on fast á þvi að myndirnar af tunglgöngunni i sjónvarpinu hefðu raunverulega verið tekn- ar i „steinrunnum skógi i Ari- zona”. Og húsfrú i Charlotte lýsti yfir þvi að ef Guð hefði vilj- að að menn kæmust til tungls- ins, þá hefði Hann auðveldað þeim það: „Hann hefði lagt ' tröppur þangað”, sagði hún. begar menn voru spurðir að þvi hversvegna slik geysileg blekking hefði átt aö geta við- gengist, svöruðu flestir að stjórnin hefði gert þetta til að blekkja Rússana og Kinverjana, eöa til að réttlæta hinn mikla fjáraustur i geimferöaaætlun- ina. bað er staðreynd að ósann- sögli Bandarikjastjórnar hefur aukist samfara stækkun rikis- báknsins, aukinni miöstýringu og aukningu valds og ábyrgðar Bandarikjanna út á við. bar við bætist tilhneiging sérfræöinga sem halda að stjórnmál séu of flókin fyrir almenning, og að út- skýringar þeirra verði mis- túlkaðar hvort sem er. betta stuðlar að þeirri venju að ljúga reglulega að kjósendum. betta kom óvenju skirt fram i Vietnam-striðinu, þegar stór- felldum aðgerðum á vigvellin- um var haldið leyndum fyrir al- menningi heima fyrir, þótt óvin- irnir á vigvellinum vissu mæta vel hverjir voru að skjóta á þá. Spurningin er: Hvernig má endurheimta trú almennings- á sannsögli stjórnvalda sinna? Svari hver sem betur getur. .1

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.