Vísir


Vísir - 27.07.1981, Qupperneq 9

Vísir - 27.07.1981, Qupperneq 9
9 Mánudagur 27. júli 1981 VV V VISIR „ísland er að verða banana lýðveldi í ferðamálum” Fyrr í sumar hélt sýslu- nefnd Austur-Skafta- fellssýslu aðalfund sinn, og skoraði þá á viðkom- andi stjórnvöld að „gera þegar í stað úrbætur í þá átt að eftirlit allt verði hert með ferjunni Smyrli og farþegum hennar, svo komið verði f veg fyrir ólöglegan útflutning nátt- úruminja og jafnvel inn- flutning ólögmæts varn- ings, en rökstuddur grun- ur er um hvort tveggja", eins og segir orðrétt í ályktun sýslunefndarinn- ar. Af þessu tilefni ræddi blaöa- maður Vísis nánar um málið við Friðjón Guðröðarson, sýslu- mann i Austur-Skaftafellssýslu, en hann á jafnframt sæti i náttúrverndarnefnd sýslunnar og í Náttúruverndarráði. — Hvert er tilefni þessarar ályktunar? „Við höfum lengi klifað á þvi i sýslunefndinni að það þyrfti að vera meira eftirlit með feröum erlendra ferðamanna inn i land- ið og frá þvi. Fyrst og fremst höfum við farið fram á þetta vegna útflutnings á náttúru- gripum, en við höfum lika rök- studdan grun um að ýmiss kon- ar ólögmætur innflutningur eigi sér stað kringum túrismann, og þar á ég einkum við lyf af alls konar tagi. Nú, það má lika nefna, aö maður er hræddur við allar þær veiðigræjur sem ferðamenn flytja með sér hing- aö — það veit enginn nema þær séu ósótthreinsaðar og geti bor- ið meö sér smit sem fer i ár og vötn. Og þá þarf auðvitaö ekki aö spyrja um afleiðingarnar. bað er einnig fjarska auðvelt að fela gæludýr i bilunum sem koma með Smyrli, þó við höfum ekki oröið varir við þau. Sá möguleiki er vissulega til stað- ar.” Eftirlit í lágmarki — En er svo mikiö um tilfelli af þessu tagi, að nauðsynlegt sé að gripa til sérstakra ráðstaf- ana umfram það sem þegar er? „Mergurinn málsins er sá, að eftirlit með ferðum og athöfnum túrista hefur verið i lágmarki, og ástandiö er alls ekki nógu gott. Það virðist einkum tvennt hafa ráðið ferðinni gagnvart Smyrli, og hlýtur að teljast óverjandi, þegar þessi mál eru höfð i huga. Hið fyrra er sparnaður á sviði tollgæslu. Sá mannskapur sem verður að vera til staðar við tollgæslu vegna Smyrils verður að koma frá Reykjavik, enda getur litið embætti eins og sýslumanns á Seyðisfiröi alls ekki haldið uppi þeim mannafla sem til þarf. Hér á Austurlandi er enginn lærður tollgæslumað- ur, og þó að lögreglumenn séu sendir á námskeið i tollgæslu- störfum, þá hefur það litið að segja. Hér er nefnilega um að ræða leit, sem aðeins er á færi sérþjálfaös fólks að fram- kvæma. Þarna verður því yfir- stjórn þessara mála á landsvisu að koma til skjalanna. Ekkert embætti utan Reykjavikur ræö- ur viö svona mál. Siðara atriðið er, að það hefur um of verið látið undan kröfum útgerðarinnar um að ekki megi tefja feröir ferjunnar og trufla farþega, sem eru i sumarfrii sinu. bessi undanlátssemi hefur leitt til þess, aö sáralitil leit er framkvæmd, einkum þó hjá þeim sem eru á ferð út úr land- inu. A tveimur til þremur klukkustundum fara um 100 bil- mmrnkz. ,Viö erum of sólgnir I peninga ferðamannanna til aö þora aö styggja þá með sómasamlegu eftirliti”, segir Friðjón Guðröðarson sýslumaöur. - rætl vlð Friðjón Guðröðarson. sýslumann á Höin um ágang erlendra ferðamanna á nátlðru landsins ar frá borði og siðan fer annar eins fjöldi um borð.” Þetta er við- kvæmt land — Er mikið um það að ferða- menn komi hingað til iandsins i þeim tilgangi að flytja út með sér náttúrugripi? „Auðvitað eru flestir þeir ferðamenn sem hingað koma vandað fólk og umgengnisgott. En svo er alltaf i hverri ferð með Smyrli nokkir bilar sem eru beinlinis gerðir út af erlend- um aðilum til að safna islensk- um steinum, jurtum og jafnvel eggjum, sem siðan er selt i verslunum erlendis. Texti og myndir: Jakob S. Jónsson. Við hérna i Austur-Skafta- fellssýslu þekkjum það of vel, að útlendingar eru á ferli um náttúru öræfanna. Þetta er við- kvæmt land, og ef fram heldur sem horfir, verður þetta eins og með sildarstofninn — það verður búið að flytja alla þá steina, sem á einhvern hátt eru sérstakir eða sjaldgæfir út úr landinu. Þarna er verið að ganga i fjársjóði óspilltrar nátt- úru, og þessi rányrkja er hrika- leg.” — Kanntu einhver ákveöin dæmi um þetta? „Blessaður vertu, alltof mörg. Það hefur komið fyrir, að lögreglan hérna hefur oröið að liðsinna fólki, sem hefur lent i vandræðum meö bilana sina uppi á Lónsheiði. Þessi óhöpp stafa meðal annars af þvi, að fólk hefur ofhlaðið þá grjóti, og bilarnir gefast upp á heiðinni eða velta útaf veginum. Og þá hefur ótrúlegt magn af grjóti flætt út úr bilunum. Við getum hins vegar ekki gert neitt i málinu, enda er ekki um beint lögbrot aö ræða að hafa skrýtna og skemmtilega steina i bilnum sinum — en hins vegar er hægt að stöðva útflutn- inginn, þegar er ljóst að við- komandi er að fara úr landi, með t.d. geislasteina, silfurberg og slika náttúrugripi.” islensk farar- stjórn nauösyn — En hefur eitthvað gerst, sem telja má til úrbóta? „Já, það má til dæmis telja það skref i rétta átt, að leiðsögu- menn hafa sýnt þessu máli stuðning, enda er þetta þeirra hagsmunamál i leiöinni: hingað hafa verið fluttir bilar með ferðamannahópum og útlendum fararstjórum, en það þarf að verða skylt að hafa tslenskan fararstjóra meö öllum slikum hópum. Slik ákvörðun verður vis^ulega gleðiefni, en það verð- ur þó að hafa hugfast, að þessar ráöstafanir ná ekki til alls þess hóps, sem hingaö kemur I sk- úmmel tilgangi.” — En geta slíkar og e.t.v. aðr- ar ráöstafanir eins og hert toii- gæsla kringum Smyrii ekki spillt fyrir þvi að gera Isiand að eftirsóttu ferðamannalandi? „Það er verið aö reyna að gera Island að túristalandi og fjölga ferðamönnum hér. Ég tel þá stefnu i meira lagi vafa- sama, eins og sakir standa. Við veröum aö fara hægt i þetta. baö fjármagn, sem veitt er til Tollgæslu, Útlendingaeftirlits, Ferðamálaráðs og Náttúru- verndarráðs er langt undir þeim mörkum sem geta talist skyn- samleg. Þessir aöilar hafa með höndum veigamikið eftirlits- og upplýsingastarf en geta ekki sinnt þvi a áómasamlegan hátt af þessum sökum. Siðan þarf aö fá sérþjálfað fólk til að annast eftirlit með fikniefnum, það þarf að búa það að tækjum og leitarhundum, svo það geti haft með höndum bæði virkt eftirlit og kröftug fyrir- byggjandi áhrif. Það er nóg aö það spyrjist út að von sé á leit- arhundum við Smyril til aö hugsanlegir fikniefnasmyglarar hugsi sig tvisvar um. Það er nú loksins von á einum slikum á Seyöisfjörð, enda hefur rann- sóknardeild lögreglustjórans i Reykjavik, einkum varðandi fikniefnamál, verið efld um þrjá menn i tið núverandi dóms- málaráðherra. En s.l. tvö ár hefur enginn leitarhundur veriö til staðar, og með sliku fyrir- komulagi er bara verið að bjóða fikniefnin velkomin inn i land- iö.” Liggjum hundflatir fyrir útlendingum — En er nokkur möguleiki á aðframkvæma það eftirlit, sem þú ert aö biðja um? Ertu ekki i raun að predika lokun iandsins fyrir öllum erlendum feröa- mönnum? „Eins og ég sagði áöan, þá er langstærstur hluti þeirra ferða- manna, sem koma hingað með Smyrli hinn vandaði feröamað- ur, sem hefur raunverulegan áhuga á náttúru landsins og sem skoðar hana og umgengst af kurteisi. Auðvitaö viljum viö ekki loka landinu fyrir þvi fólki. Nú, það eftirlit sem ég og aör- ir áhugamenn um verndun Is- lenskrar náttúru erum að biöja um, er vel framkvæmanlegt. Þaö er ekkert óraunsæi i okkar hugmyndum, og viö erum með báða fætur á jöröinni. Sú aðstaða, sem byggð hefur veriö upp af bæjaryfirvöldum á Syeðisfirði er myndarleg og fullnægir þörfum til itarlegrar tollskoðunar án teljandi óþæg- inda eöa tafa fyrir ferðamann- inn. Mér er einnig kunnugt um, að sýslumaðurinn á Seyöisfirði, Sigurður Helgason, vill að Smyrilsmálin sáu i sem bestu lagi, og vonandi fær hann nægan mannafla og fé til þess að svo geti orðiö. Þá má lika benda á nauðsyn þess, að komið sé á fót fastri gæslu við þau svæöi sem mest er sótt i af ferðamönnum — en þaö veröur þó alltaf við tollskoöun úr landinu, sem veigamesta eftirlitið fer fram. En eins og málin standa i dag, hvert sem litið er, þá virðist staðreyndin vera sú, aö viö ís- lendingar liggjum ennþá hund- flatir fyrir útlendingum, og Is- land er að verða algert banana- lýöveldi aö þessu leyti — viö erum i raun að afhenda landið til skefjalausra nota fyrir út- lenda spekúlanta, sem geta valsaö hér um eftirlitslausir og svlfast einskis ef þvi er að skipta. Og allt hangir þetta á sömu spýtunni: Við erum of sólgnir i peninga ferðamannanna til aö þora aö styggja þá með sóma- samlegu eftirliti.” —jsj.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.