Vísir - 27.07.1981, Blaðsíða 28
28
Mánudagur 27. júli 1981
SAMVINNUTRYGGINGAR
Ármúla 3 - Reykjavik - Sími 38500
Tilboð óskast
í eftirtaldar bifreiðar sem
skemmst hafa
í umferðaróhöppum:
Toyota Starlet
Austin Allegro
Fíat P.
B.M.W. 316
Range Rover
Trabant
Maveric
Ford Cortina
Austin Allegro
V.W. Sendif.
Mazda 626
Mazda 929
Fíat132
Citroen GS
Morris Marina
Fíat128
Datsun 260C
Kawasaki 650
Yamaha MR50
árg. 1981
" 1976
" 1978
" 1977
" 1975
" 1979
" 1970
" 1970
" 1979
" 1975
" 1974
" 1975
" 1977
" 1976
" 1973
" 1978
' 1978
" 1980
" 1979
Bifreiöarnar verða til sýnis aö Skemmuvegi 26, mánudag-
inn 27/7 ’81 kl. 12-17.
Tilboðum sé skilaö tii Samvinnutrygginga Bifreiöadeiid
fyrir kl. 17, þriöjudaginn 28/7 ’81.
J.H. PARKET
auglýsir:
Er parketið
orðið ljótt?
Pússum upp og lökkum
PARKET
Einnig pússumvið
upp og lökkum
liverskyns
viöargólí.
Uppl. i sima 12114
Urval af
bílaáklæðum
(coverum)
Sendum
í póstkrofu
Altikabúðin
Hverfisgotu 72 S 22677
Nauðungaruppb oð
sem auglýst var í 110. ’80 og 1. og 5. tbl. Lögbirtingablaðs-
ins 1981 á eigninni Fjóluhvammur 6, (lóö) Hafnarfiröi,
þingl. eign Þorsteins Garðarssonar, fer fram eftir kröfu
Ínnheimtu rfkissjóös, og Hafnarfjaröarbæjar, á eigninni
sjálfri fimmtudaginn 30. júli 1981 kl. 14.00.
Bæjarfógetinn i Hafnarfiröi
Nauðungaruppboð
annaö og siöasta á eigninni Hringbraut 65, ris, Hafnar-
firöi, þingl. eign Hálfdans Guðmundssonar, o.fl. fer fram
á eigninni sjálfri fimmtudaginn 30. júli ’80 kl. 13.30.
Bæjarfógetinn i Hafnarfirði
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 110. ’80 og 1. og 5. tbl. Lögbirtingablaös-
ins 1981 á eigninni Breiövangur 2, 4. h.t.h., Hafnarfirði,
þingl. eign Stefáns Bergssonar, o.fl. fer fram eftir kröfu
Innheimtu rikissjóös, Gjaldheimtunnar [ Reykjavik og
Hafnarfjaröarbæjar, á eigninni sjálfri fimmtudaginn 30.
júli 1981 kl. 15.00.
Bæjarfógetinn i Hafnarfiröi
vtsnt
Fara fram á rannsðkn
á Húsavíkurrallinu
Bræðurnir Gunnlaugur og
Ragnar Bjarnasynir, sem lentu
i ööru sæti i Húsavikurrallinu og
Eggert Sveinbjörnsson og
Magnús Jónasson, sem hrepptu
þriöja sætiö, hafa ákveöiö aö
biöja stjórn Landssambanda is-
lenskra akstursiþróttaklúbba
(LÍA) um rannsókn á hvort úr-
slit i keppninni hafi verið I sam-
ræmi viö lög og reglur um slika
keppni.
„1 þessari beiðni felst engin
óvild i garö Ómars og Jóns”,
sagði Gunnlaugur Bjarnason
við fréttamann Visis. „En við
teljum að allir veröi að sitja við
sama borð og taka afleiðingun-
um af bilunum sem þeir verða
fyrir.”
Ómari og Jóni Ragnarssyni
var dæmdur sigur i keppninni
en nokkrar deilur hafa orðið um
réttmæti þess. Sjónarvottur og
timaverðir við upphaf einnar
ferjuleiðarinnar bera að þeir
hafi fengið timasett kort fyrir
þá ferjuleið, en skilað þvi aftur
og fengið annað óútfyllt. A þess-
ari ferjuleið brotnaði öxull i bil
þeirra og töfðust þeir við viö-
gerðina. Siðar var ákveðið að
fella niðurrefsistig fyrir þá leið.
Þeir sem biðja um rannsókn-
ina byggja á þessu vætti, en
reglur gera ráð fyrir að
keppendur fullvissi sig um að
kortin séu rétt útfyllt. Þeir eigi á
hættu að verða visað úr keppni
ef þeir taka við rangt eða ófull-
nægjandi útfylltu korti.
Einnig visa þeir til greinar i
reglunum, þar sem kveðið er á
um að keppandi sem tefst meira
en 30 minútur á ferjuleið, skuli
falla úr keppni.
Niðurstaðan i þessu máli getur
skipt sköpum i keppninni um ís-
landsmeistaratitilinn.
—SV
Nýr söiuskáli á Egiisstöðum
t afgreiöslusalnum. Hér fæst, auk allrar venjulegrar sjoppuvöru, mjólk
og ýmis önnur matvæli, sem henta i feröalagiö. Visism.—jsj.
Þ0RSKVEI6IBANN
n
i
i
i
Sjávarútvegsráöuneytiö hefur
gefiö út reglugerö um bann við
þorskveiðum timabiliö frá og
meö 26. júii til og meö 4. ágúst
n.k.
Bann þetta tekur til allra
veiöa annarra en togveiðiskipa,
er falla undir „skrapdagakerf-
ið” og handfæraveiöa báta, sem J
eru 30 rúmlestir og minni.
Það að þorskveiðar eru bann- I
aðar þýðir, aö hlutfall þorsks i I
afla hverrar veiðiferðar má I
ekki nema meiri en 15%. j
„Gamli skálinn/ sem
reistur var 1962 var fyrir
löngu hættur að fullnægja
þörfum KHB, og því brýn
þörf á nýjum skála, sem
fullnægt gæti þörfum
þeirra ferðamanna, sem
hér líta við", sagði Þor-
steinn Svavarsson kaupfé-
lagstjóri í stuttu spjalli við
Vísi, en Kaupfélag Héraðs-
búa opnaði nýjan söluskála
á Egilsstöðum fyrir
skömmu.
Nýi skálinn, sem er hin mynd-
arlegasta bygging er hönnuö á
teiknistofu Sambands islenskra
samvinnufélaga, en hann hefur
veriö um tvö ár i byggingu.
Auk almennrar þjónustu er
starfrækt veitingasala i söluskál-
anum, og sér Gunnar Björgvins-
son matreiðslumaður um þá hlið
mála.
Ekki er að efa að lúnir ferða-
langar kunni vel að meta að geta
gætt sér á indælis steikum Gunn-
ars i veitingasal söluskálans, auk
annarra veitinga, sem þar fást.
—jsj
Ef þig vantar góða
og ódvra veggskápa
HUSGAGNA
HOLLIN
BÍLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK EES3233 SÍMAR:
91-81199-81410