Vísir - 06.08.1981, Síða 9

Vísir - 06.08.1981, Síða 9
Fimmtudagur 6. ágúst 1981 • > 9 Einokun eða frjáls samkeonni? Að undanförnu hafa mikil blaðaskrif átt sér stað vegna gossölu Sanitas á þjóðhátiðinni i Vestmannaeyjum og fleiri stöðum. Bæði ölgerðin og Vifil- fell hafa ásakað Sanitas um ólögmæta viðskiptahætti og ein- okun. Slikar ásakanir eiga ekki við rök að styðjast og þvi varla svara verður. En siendurtekinn áróður hinna tveggja stóru gos- framleiðenda gagnvart Sanitas að undanförnu gæti hins vegar orkað eins og áróður Göbbels hér áður fyrr, þ.e. þvi oftar sem áróðurinn er endurtekinn þvi trúverðugri verður hann. Þjóðhátiðin i Vestmanna- eyjum er ávallt i höndum iþróttafélaga er byggja fjár- hagslega afkomu sina, 2 ár i senn, á Þjóðhátiðinni. Flest iþróttafélög i landinu eru fjár- vana og þurfa þvi iðulega að leita eftir fjárhagslegri aðstoð, t.d. i formi auglýsinga á bún- ingum o.fl. Með það markmið i huga að styrkja fjárhagslegan grundvöll sinn sem best næstu 2 árin leitaði þjóðhátiðarnefnd eftir sölusamningum við hina ýmsu aðila t.d. i sambandi við öl- og gossölu, sælgætissölu, pylsusölu, húfusölu o.s.frv. Ekkert er við þetta að athuga, þar sem slik viðskipti eiga sé stað á öllum sviðum viðskipta- lifsins daglega. Sanitas sóttist eftir samningi við þjóðhátiðarnefndina um sölu á bæði öli, gosdrykkjum og sæl- gæti. Samningar tókust um sölu á öli og gosdrykkjum eins og kunnugt er en ekki um sælgætis- sölu. Vöruúrval Sanitas á öli og gosdrykkjum hefur eflaust haft mikið að segja að samningar tókust. En Sanitas getur boðið alla öl- og gosdrykki, sem til eru á markaðinum. Bæði ölgerðin og Vifilfell voru beðin um sölu- samning á öl- og gosdrykkjum. ölgerðin svaraði ekki þessu boði og sölusamningur Vifilfells, sem kom mjög seint, var talinn óhagstæðari en samningur Sanitas. Einnig má geta þess, að vöruúrval Vifilfells er mjög takmarkað. Allur áróður hinna tveggja stóru um ólögmæta viðskipta- hætti og einokun á þvi ekki við rök að styðjast. Hér er um frjálsa samkeppni að ræða, sem greinilegt er að hinir tveir stóru eiga erfitt með að þola, slik er taugaveiklunin. Þeir benda á, máli sinu til stuðnings, að hér áður fyrr hafi hlutirnir verið öðru visi og betri, þ.e.a.s. þá hafi rikt frjáls samkeppni en nú votti fyrir einokun. Þetta kemur spánskt fyrir sjónir, þvi nær væri að segja að nú rikti frjáls samkeppni en „einokun” hér áður fyrr. Fyrir einu til tveimur árum skiptu ölgerðin og Vifilfell markaðinum á milli sin, Vifilfell var með kóla- markaðinn og ölgerðin svo gott sem afganginn. En þessi tvö fyrirtæki höfðu þá rúmlega 90% af heildarmarkaðinum. Svo þegar Sanitas tekur sig á og byrjar að auka markaöshlut- deild sina þá hrópa hinir tveir stóru „einokun”, einokun” og allt ætlar um koll að keyra. Það er til ótal staðir á landinu, sem Sanitas fær ekki að selja sinar vörur á, svo sem Húsafell, Galtalækjarskógur og flest öll bió landsins svo eitthvað sé nefnt. Sanitas hefur hingað til ekki séð ástæðu til að væla um það i fjölmiðlum, heldur mun heyja sina baráttu á markaðnum og láta hann dæma. Reykjavik, 30. júli 1981. Kagnar Kirgisson forstjóri Sanitas. Ragnar Birgisson, forstjóri Sanitas, skrifar um það sölustríð sem geisað hefur milli Ölgerðarinnar og Vífil- fells og þá staðreynd að Sanitas náði einkarétti á sölu gosdrykkja á Þjóð- hátíðinni í Ey jum. Ragnari finnst það undarlegt, að loks þegar Sanitas gerir slikan samning, þá skuli keppi- nautarnir hrópa „ein- okun, einokun." w Hr. f jármálastjóri Rikisút- varpsins, liörður Vilhjálmsson, Rikisútvarpinu, Skúlagötu 4, 101 Reykjavik V/Tilboðs mins á innheimtu afnotagjalda Rikisútvarpsins. Móttekið svar yðar við tilboði minu frá 28. júli sl., þar sem þér teljið það eiga sér engan grund- völl, ég vilji sleppa þjónustu sem innheimtudeildin veiti að óþarfi sé fyrir Rikisútvarpið að spara 75% innheimtukostnaðar, þar sem aukin hagræðing inn- heimtudeildarinnar hafi þegar lækkað kostnað um 2% fyrstu 6 mánuði 1981 samanborið við 1980. Viðvikjandi vanathugun hjá mér, áður en ég gerði tilboð mitt, er það að segja, ef eitthvað hefir þar á skort, þá var það, að telja ekki fram ýmsa dulda kostnaðarliði við uppgefinn kostnað 1980, kr. 297 milljónir gamalla króna. Ég benti á að kostnaður óhófslegs verslunar- húsnæðis á jarðhæð virtist ekki innifalinn. Fyrir utan laun fast- ráðinna 16 starfsmanna inn- heimtudeildarinnar, þá virðast laun ótaldra samstarfsmanna eins og yðar, færð á aðra kostnaðarliði. Ekki veit ég, hvort óum- ræðanlegur fjöldi auglýsinga frá innheimtudeildinni i útvarpi séu færðar henni til gjalda og auglýsingadeildinni til tekna. Fleiri kostnaðarliðum mætti velta vöngum yfir en tilboð mitt var miðað við að vera nálægt 25% raunverulegs kostnaðar innheimtudeildarinnar árið 1980. Uppihald á bestu hótelum Það eina sem undan er skilið i tilboði minu er skráning nýrra tækja og afskráning tækja, sem hætt er að nota. Við innheimtuna myndi ég beita öðrum og jákvæðari að- ferðum, en innsigla tæki sem ekki hefur verið greitt af. Umskráning við erfða- og bú- skipti myndi ég annast með inn- heimtu hjá hinum nýja afnota- hafa og jafnframt tilkynna skráningardeild yðar. Það, að ég muni ekki veita sömu þjónustu viðskiptavinum útvarpsins og innheimtudeildin er sögð gera, visa ég algjörlega á bug sem órökstuddri full- yrðingu. Að visu myndi ég ekki senda fastlaunaða starfsmenn út- varpsins i sumarfri og það á kostnað þess, út um land með uppihaldi á bestu hótelum og auglýsa, að þeir yrðu þar stadd- ir þennan og þennan tima til móttöku á ógreiddum iðgjöld- um! (sic). Við innheimtu mina yröi festa og ákveðni eftir innheimtu- ákvæðum reglugerðar og laga um útvarpið. Þar yrði ekki beitt neinum Þarf ríkisútvarpiö ekki aö spara? happa- og glappaaðferðum með eftirlitslausu fjárbruðli og óþarfa spjátrungshætti. Að senda látnu fólki innheimtu- seðla allt að 5 árum eftir andlát þess, eins og dæmi eru um, myndi að sjálfsögðu hætt (sic). Hjá innheimtudeildinni eru ýmsir dragbitar, er hafa kostnað i för með sér, látnir haldast, þvi að þar viröist nú ekkert þurfa að spara. Undir stjórn hr. Jónasar Þor- bergssonar útvarpsstjóra, var fjárhagur Rikisútvarpsins það góður að raddir heyrðust að sjóðir Rikisútvarpsins væru sérstakt fjármálariki i rikinu. Þá var þar hvorki innheimtu- deild né fjármálastjóri. 1 Reykjavik innheimtu af- notagjöldin 2 duglegar konur á reiðhjóli. Með sjóði Rikisútvarpsins virðist óstjórn ekki siður hafa nagað en verðbólgan. Það munu hafa verið fleiri sem söknuðu Jónasar Þorbergs- sonar en Helgi Hjörvar. Þvoið spilið og sparið sjálfir Innheimtukostnað afnota- gjaldanna tel ég mig geta lækkað eins og tilboð mitt ber með sér. Rekstrarkostnað má oft minnka, ef rétt leið er valin til úrbóta. Sem dæmi nefni ég til- felli frá bankastjórnarárum Vil- hjálms Þórs. Glæsilegt veit- Eins og fram hefur kom- ið í fréttum Visis, hefur Þorvaldur Ari Arason hrl. gert Ríkisútvarpinu til- boð um aö annast inn- heimtu afnotagjalda gegn kr. 1 millj. greiðslu. Kostnaður við inn- heimtuna nemur nú tæp- um 3 millj. kr. Tilboð Þorvaldar hefur verið hafnað af f jármálastjóra Ríkisútvarpsins. Vísir hefur fengið svarbréf Þorvaldar i hendur og birtir það hér með al- menningi til upplýsinga. ingahús tók þá til starfa og þurfti fljótlega stórt, langtima rekstrarlán. Vilhjálmur leit á reikninga þess og svaraði um hæl. Lánið er óþarft, ef þér sýn- ið hagkvæmni og sparnað. Kaupið þvottavél og fullkomið hljómflutningstæki með úrval hljómplatna. Þvoið,spilið og sparið sjálfir. Óvist er hvort afnotagjöld þyrftu að hækka, ef innheimtu- kostnaður lækkaði um allt að 75%. Aður en ég lýsi á hverju tilboð mitt er reist, þá minni ég á sög- una um Kólumbus og eggið. Ég itreka verði tilboði minu ekki tekið, þá verði innheimta afnotagjalda útvarpsins boðin út. Tilboðið miðast við að vera skaðlaus af innheimtunni, ef all- ir greiddu skilvislega á réttum gjalddaga. Ég fer fram á það að gjald- dagi verði einn og það i næsta mánuði eftir að greiðslum fast- eignagjalda er lokið þ.e. i mai eða júni. Bankaábyrgð tryggð Af reynslu vænti ég samt að um-10% jafnvel upp i 15%, af ið- gjöldum fari i vanskil. Af van- skilum vænti ég tekna. Vanskilafólki getur verið nauðsynlegt að veita greiðslu- frest með afborgunum og greiðslu dráttarvaxta. Vanskil verða ekki liðin lengur en 6 mánuði. Að þeim tima liðnum yrði gripið til viðeigandi fógetaaðgerða. Til innhein.tunnar hefi ég alla aðstöðu, en við hana yrði beitt nútima tækni. Tölva til yfirlits, skýrslugerða og til prentunar nafna afnotahafa með heimilis- fangi þeirra. Allt prentað efni væri staðlað og á þaö aðeins þrykkt nöfn með aðstoð tölvunnar. Hætt yrði algjörlega við notkun giróseðla. Ég hefi tryggt mér banka- ábyrgð ef á reynir, hjá rikis- banka. Innheimturnar færu þannig fram að afnotahafar greiddu eftir áöur sendum innleggs- eyöublöðum, þessa banka. Greiða mætti jafnt i bankan- um, útibúum hans, sparisjóðum eða umboðsbönkum og þá með milligöngu Seðlabankans. Allar innborganir sendi bank- inn jafnóðum til Rikisútvarps- ins með innleggi i reikning, sem það hefði hjá bankanum. Afrit innborgana fengi ég frá bankanum til færslu um greiðsluna en innborgunaraf- ritið sendi ég siðan til Rikisút- varpsins. Engar greiðslur kæmu til min af þvi, sem færi i gegnum bank- ann. Þóknun mina myndi ég sækja ársfjórðungslega til Rikisút- varpsins, en ekki draga hana frá innheimtufé er inn kæmi af vanskilum. Rikisútvarpinu að kostnaðarlausu Lögvarinn réttur, útvarpsins er það mikill til greiðslu afnota- gjaldanna að óþarfi er aö upp- hlaðist margra ára vanskil hjá einstaka notendum. Slik lenska yrði upprætt. 1 Þótt auglýsingar útvarpsins eigi að staðgreiöast, þá verða vafalaust einhver vanskil á greiðslum þeirra. Þá innheimtu er ég einnig reiðubúinn að taka að mér, Rikisútvarpinu að kostnaðarlausu. Ef ég þyrfti að nota aug- lýsingar i Rikisútvarpinu til innheimtu afnotagjalda þess, þá myndi ég greiða fullt gjald fyrir þær til auglýsingardeildar. ----oOo------- Að öllu ofansögðu vænti ég viðræðna og samninga svo framarlega að innheimtan verði ekki boðin út, þvi að óverjandi væri hjá Rikisútvarpinu að halda áfram ófremdarástand- inu með innheimtudeildina og fjárbruðli með hana. Ég minni á. að ég býð fram fullkomna bankaábyrgð fyrir framboðinni innheimtuþjónustu minni, sbr. bréf mitt frá 28. júli sl. og þá bankaábyrgð hefi ég siðan tryggt mér. Allar frekari upplýsingar er ég reiðubúin að veita. Virðingarfyllst Þorvaldur Ari Arason, hrl.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.