Vísir - 06.08.1981, Side 16
16
Fimmtudagur 6. ágúst 1981
VÍSIR
Þessi lax er veiddur i Hvitá i Borgarfirði, nánar tiitekið við Ferjukot. Nú veiða Færeyingar lax i sjónum
og bréfritari spyr hvort það sé lax, sem islenskir laxeldismenn hafa aliðupp. Visismynd GVA
Veiöa Færeylngar
„okkar” lax úr sjð?
Laxveiðimaður fyrir austan
skrifar:
Ég er mjög forvitinn um lax-
veiðarfrænda okkar i Færeyjum.
Eins og allir vita veiða þeir mikið
af laxi i sjó. En hvaða lax er það,
er það ef.til vill laxinn, sem við
erum að rækta hér i ám með æm-
um kostnaði og fyrirhöfn.
Færeyingar stunda þessar
veiðar á laxali'nu, sem er flotlína
með þriggja metra löngum öngul-
taumum ilrgirni. Siðan sigla þeir
meðfram linunni og háfa upp lax-
inn, sem hefur bitið á agnið, sem
mun að mestu vera sild.
Ég ersannfærðurum aðlaxinn,
sem þeir veiða er ekki allur
„þeirra” lax, þvi þeir veiða langt
norður i' höfum. Ég frétti t.d. af
færeyskum laxveiðibát, sem leit-
aði i var á Seyðisfirði i vor. Hann
sagðisthafa verið á veiðum norð-
austuraf landinu, fyrir utan land-
helgina, og hann var með eitthvað
J.J. hringdi:
Ég verð að segja það, að mér
fannst Öskar Magnússon,
blaðamaður hjá Visi ganga
heldur langt um daginn i skrif-
um, sem hann nefnir Sandkorn.
Þar var hann með dylgjur um
verkalýðsforingja okkar sem
hafa allir sýnt sig vera hinir
á annað þUsund laxa innanborðs.
Kannski getur veiðimálastjöri
eða jafnvel rikisstjórnin upplýst
hvernig á þessum veiðum stend-
ur.
mætustu menn, og hélt þvi nan-
ast fram, að þeir hefðu verið
kosnir til sinna trúnaðarstarfa
með svikum og prettum. Og
þetta birtist undir fyrirsögninni
„Skilgreining á verkalýðsfor-
kólfum”.
Mætti ég biðja um vandaðri
fréttamennsku.
Dvlgjur um verkalýðsforlngja
Koupír þú sófosett
ón þess oð skoðo stærsto úrvol londsins?
Komdu og gefðu þér góðon tímo
HÚS6AGNA
BÍLDSHÖFÐA 20 -110 REYKJAVÍK
HÖLLIN
SÍMAR: 91-81199 - 81410
Aróðursgrein
um Ufangarðs-
menn svarað
Tdnlistarunnandi skrifar:
Nýlega skrifaði „Tónlistar-
maður” leiðinlega áróðursgrein
gegn Utangerðsmönnum i Visi.
Máli sinu til stuðnings þurfti
maðurinn náttúrulega að bulla
heilu ósköpin. Ein kenningin var -
t.d. að músikantar sem hlypu úr
einu i annað gætu ekki komið i
veg fyrir stöðnun!!!
Onnur var á þá leið að musik-
antar sem reyna að þróa sig
áfram i eina og sama farinu þar
til yfir likur hljóti að vera frumle-
gir!!!
Þessarkenningar áttu aðsanna
að Utangerðsmenn væru staðnað-
ir og ófrumlegir. Þeir væru ein-
faldlega dcki nógu góðir hljóð-
færaleikarar til að hjakka i sama
farinu!!!
Ja, mikið leggja aðstandendur
Þeys á sig i baráttunni gegn vin-
sælustu hljómsveit landsins, Ut-
angerðsmönnum, guðferðrum is-
lensku nýbylgjunnar. En ég er
bara ekki frá þvi að svona bar-
áttuaðferðir verki þveröfugt.
Eins og glöggt kemur fram á
bestu islensku rokkplötunni,
„Plágunni”, þá skipa Rúnar og
Maggi bestu ryþma-sveit lands-
ins. Bubbi er jafnframt besti
rokksöngvari landsins ásamt Agli
Ólafs og besti lagasmiður lands-
ins ásamt Magnúsi Eirikss, Mike
og Danny hafa tvimælalaust
meiri rokk og reggitilfinningu i
gitarleik en islensku gitarleikar-
arnir. Saman mynda þessir piltar
stórgóða nýbylgjugrúppu eins og
platan „Geislavirkir” sannar.
öllum gagnrýnendum blaðanna
bar saman um að „Geislavirkir”
væri besta islenska rokkplatan i
mörg ár.
Að lokum þetta: Ef Utangarðs-
menn eru staðnaðir þá hljóta
Clash að vera það lika. Clash
byrjaði sem ekta pönk-hljóm-
sveit. Siðan fór hún út i bárujárn-
ið. Þvi næstR’n’B, djass, calypso
o.fl. Og nú að siðustu diskó, fönk,
soul, avant garde, þjóðlagarokk
o.m.fl. Hvað segir „Tönlistar-
maður” um þetta? Er Clash ekki
staðnaðasta hljómsveit heims
fyrst hún hefur hlaupið i svona
margar músiktegundir? Afram
„Tónlistarmaður”! Fleiri brand-
ara!!
Ferðalangur segir sinar farir ekki sléttar i skiptum við Hótel Húsavik
„Þurttl að skrfða
út um gluggann”
- terðalangur ðánægður með
Dlðnustuna á hötellnu á Húsavik
Ferðalangur skrifar:
Eftir allt auglýsingaskrumið
um ágæti þess að ferðast um eigið
land og svo framvegis og þó séri-
lagi hvað Húsavik sé kjörinn
ferðamannastaður vegna þess
hvað þar sé frábært hótel og önn-
ur þjónusta get ég ekki orða
bundist.
Ég kom á hótel Húsavik rétt
fyrir hálf tólf að kvöldi og bað um
herbergi. Jú það var til en ekki i
hótelinu sjálfu heldur i húsi rétt
hjá. Það varilagiog ég tók þvi og
greiddi fyrirfram kr. 152.00. fyrir
nóttina. Ég þurfti að komast
áfram til Akureyrar daginn eftir
og spurði eftir rútu, nei engin
rúta þann daginn. Þá ætlaði ég að
panta flug til Reykjavikur næsta
dag, en nei það var biðlisti með
fluginu. Jæja, ég fékk lykla og var
bent á húsiö þar sem ég gatvalið
milli tveggja herbergja og t jáð að
þar væri enginn heima.
Jú, ég fann húsið og herbergið,
fór inn og sneri lyklinum i
skránni, tók upp snyrtidót og ætl-
aði að bregða mér á snyrtinguna
sem ég haf ði séð'3 ganginum þeg-
ar ég fór inn.
En þá vandaöist máliö maður
minn. Lykillinn vildi ekki með
nokkru móti gera sitt gagn og
opna huröina. Ég beytti bæði illu
og góðu og ekkert gekk. Það var
enginn simi I herberginu enginn i
húsinu og enginn úti á götunni þvi
það var rigning og komið fram á
nótt
Nú eftir athugun á glugganum
sá ég aömeð þvi að skrúfa afhon-
um glugga járnið kæmist ég út um
hann ogþaðgekk furðu greiðlega,
mætti segja mér að þetta járn
hafi verið skrúfað af oftar. Nema
að út komst ég og inná hótel þar
sem ég fékk aðra lykla sem pöss-
uðu að skránni, svo ég þurfti ekki
að pissa á gólfið.
Ekki hef ðu allir getað skriðið út
um þennan glugga og það er ekki
alveg vist hvenærhefði verið far-
ið að athuga með gest þann er
þarna gisti næsta dag.
Eftir þessar trakteringar og
svefn á stuttum og sliguðum
divangarmi fór ég inná hótel
næsta morgun klukkan 9. Þá var
staddur i afgreiðslunni hótelstjóri
og hann spurði hvort ég væri að
skila lyklunum. Óvist um flugið
og engin bilferð væntanleg þótt
stúlkurnar i afgreiðslunni gerðu
sitttilað reyna að athuga það. Þá
var hann að visa útaf hótelinu
einhverjum gestum sem höfðu að
þvi er virtist verið með drykkju-
læti um nóttina og fannst mér ég
litið hærra skrifuö en þeir, þvi ég
hef alltaf vanist þvi að þurfa ekki
að fara úr hótelherbergi fyrr en
um hádegi, og gjarnan spurt
hvort ætti að hafa herbergið leng-
ur.
Ég tek það fram að ég drekk
ekki, hvorki á hótel Húsavik eða
annarsstaðar og hef aldrei gist
þar áður og mun aldrei koma þar
framar.
Ég tek þaö lika fram aðég tjáði
hótelstjóranum það að ég hefði
þurft aö skriða út um gluggann og
hann ansaði þvi engu og baðst
ekki afsökunar á þvi að þetta
skyldi koma fyrir.
Og með ósk um að útlendir
ferðalangar fái betri þjónustu
ætla ég að snúa mér aö ferðalög-
um annarsstaðar en á íslandi.