Vísir - 06.08.1981, Side 20
20 VlSWr* Fimmtudagur 6. ágúst 1981
idag íkvöld Illllliillililllllll
„Minning Brandshúsahjðnanna”
í Safnhúsinu á Selfossi
Byggða- og listasafn Arnes-
svslu er mjög skemmtilegt safn
og stendur fyllilega undir þvi
nafni að vcra safnhús sýslunnar.
Ein deild safrtsins er nefnd
..Minning Brandshúsahjónanna”
og er þar mikill fjöldi útskorinna
muna sem Halidór Einarsson
tréskurðarmeistari gaf Arnes-
sýslu og að ósk hans ber nafn
deildarinnar þess merki.
Halldór Einarsson fæddist i
Brandhúsum i Gaulverjabæjar-
hreppi 16. október 1893. Foreldrar
hans voru Einar Einarsson bóndi
i Brandhúsum og kona hans
t>órunn Halldórsdóttir frá Teigi i
Fljótshlið.
Halldór nam tréskurö hjá
Stefáni Eirikissyni myndskera i
Reykjavik, en 1922 hélt hann til
Vesturheims og starfaði lengst
ævinnar við tréskurð i Chicago.
Kona hans, sem nú er látin, var
Jósefina Jablonsky, af pólskum
ættum.
Halldór kom heim til Islands
1965, og dvaldist að Hrafnistu i
Reykjavik. Hann kom heim með
mjög fjölbreytt safn tréskurðar-
og marmaramynda, íristunda-
vinnu fjölmargara ára, er hann
dvaldist erlendis. Nú hefur sú
orðið raunin, að safn hans er
komið á tryggan stað til varð-
veislu um aldur og ævi.
Halldór Einarsson andaðist i
Reykjavik 26. janúar 1977.
—HPH
l'il hægri á myndinni er safnvörður Byggöa- og listasafns Arnessýslu, Pétur Sigurðsson. Svarla linan
(brautin) á gólfinu táknar lifsbraut Brandshúsahjónanna og er hún kinversk hugsun, tákn skjaldbök-
unnar, og heitir „FARÐU i HRINGI”. Hún er fyrst og fremst tákn hamingju og langlifis (varanleika).
(Vísismynd EJ).
I>að er mikið af útskornum munum i Safnhúsinu á Selfossi sem minna á
fyrri tima. Gjöf llalldórs Einarsonar tréskurðarmeistara til Arnes-
sýslu er þar i einni deild hússins sem nefnist „Minning Brandshúsa-
hjónanna.” (Visismynd EJ)
Samhygð kynnir sig
í framhaldi af kynningarher-
ferð Samhygðar um landið i júli
s.l. stendur nú yfir kynningar-
herferð i Reykjavik og
nágre nni. Þegar hafa fundir
vcrið haldnir i Arbæjarhverfi og
Breiðholti i. og II og III, cn á
næstu vikum verða kynningar-
fundir á þriðjudögum og
miðvikudögum á cftirtöldum
stöðum:
11. ágúst
h'ossvogur — Smáibúðahverfi i
Hvassaleitisskóla
12. ágúst
Háaleiti — Hliðar — Holt i Skip-
holti 70 (fundarsal Sambands
byggingarmanna)
18. ágúst
Kópavogur i Félagsheimilinu
19. ágúst.
Norðurmýri að Skólavöröuholti
að Freyjugölu 27 (fundarsal
Sóknar)
25. ágúst.
Vesturbær- Seltjarnarnes i
Hagaskóla
26. ágúst
Hingholt- Miðbær i Austur-
bæjarskólanum
Fundirnir heljast allir kl.
21.00.
Ilelgi J. Halldórsson kennir tslendingum réttan rithátt nokkurra sam-
settra orða i þættinum Daglegt mál i útvarpinu klukkan 19.35 i dag.
Jarðaber og lifrakæfa
í fjðlbrautarskðla
- Daglegt mál klukkan 19.351 dag
I umslá Helga J. Haiidórssonar
„Ég mun ræöa svolítið
um málfræöi sem ég hef
litið rætt um áður" sagði
Helgi J. Halldórsson um-
sjónarmaður þáttarins
Daglegt mál sem er á dag-
skrá klukkan 19.35 i dag og
siðan endurtekinn klukkan
8.55 á morgun.
„Þar er sérstaklega að nefna -
samsett nafnorð. Sem dæmi mun
ég tala um samsett orð þar sem
erri er sleppt úr fyrra orði sam-
setta orðsins sem er i eignarfalli
fieirtölu, svo sem þegar ritað er
lifrakæfa i stað lifrarkæfa,
jarðaber i staö jarðarber og svo
hins vegar þar sem r-i er bætt inn
i samsetta oröið eins og þegar
skrifað er fjölbrautarskóli i stað
fjölbrautaskóli. Nú, svo mun ég
tala eitthvað um notkun
orðtaka eins og orðtakið aö „vaxa
fiskur um hrygg”. En i þættinum
er sitt af hverju”.
Þaö er þvi öllum hollt að hlusta
á Helga vaxa fisk um hrygg og
éta jarðaberið sitt og lifrakæfuna
i fjölbrautarskólanum. —IIPH.
Ekki lifum við islendingar i lög-
regluriki og verðum vonandi
aldrei, þvi þær eru misjafnar
sögurnar sem maður heyrir af lifi
fólks þar. En við fáum að kynnast
þvi i lcikriti vikunnar i útvarpinu
i kvöld er heitir „Lifið er vega-
salt” <A Spread of Butter), eftir
Nuriddin Farah. Leikurinn gerist
i lögrcgluriki. Prófessor nokkur
situr inni fyrir að hafa ekki
hugsað og talað eftir kokkabókum
yfirvalda. Stjornarskipti verða I
landinu og liðsforinginn úr hinni
nýju stjórn hcimsækjir prófessor-
inn i fangelsiö og býður honum
„góða” stöðu.
Höfundurinn Nuriddin Farah er
Sómaliumaður, fæddur 1945.
Hann dvelst i „sjálfviljugri” út-
legð eins og hann orðar það, enda
á hann yfir höfði sér fangelsisdóm
ef hann snýr heim. Farah hefur
skrifað tvö önnur útvarpsleikrit
og þrjár skáldsögur á ensku, auk
ritverka á sómalisku.
Þýðingu leikritsins gerði Heba
Júliusdóttir, en leikstjóri er
Hallmar Sigurðsson. Meða aðal-
hlutverkin fara Arni Tryggvason
og Sigurður Karisson. Flutningur
leikritsins tekur um 40 minútur,
en það hefst klukkan 20.05.
Tæknimaður er Astvaldur
Kristinsson. —HPH
Þó að menn úr islensku lögreglunni séu hér uppstilltir þungir á brún
fyrir framan Alþingishúsið búum við ekki við lögrcgluríki. Lögreglu-
menn hér cru bestu menn en oft gegnir öðru máli i öðrum löndum alia-
vega þar sem rikinu er stjórnað með kúgunum og ofbeldi. En leikrit
vikunnar fjallar um álika atriði og nefnist það „Lifið er vegasalt”.
útvarp
Fimmtudagur
6. ágúst
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
14.0Ó Út i bláinn. Sigurður Sig-
urðarson og örn Petersen
stjórna þættium ferðalög og
útili'f innanlands og leika
létt lög.
15.10 Miðdegissagan: ..Prax-
is”eftirF'ay Weldon. Dagný
Kristjánsdóttir les þýðingu
si'na (24).
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Siðdegistónleikar_
17.20 Litli barnatiminn Dóm-
hildur Sigurðardóttir
stjórnar barnatima frá Ak-
ureyri.
17.40 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál. Helgi J.
Halldórsson flytur þáttinn.
19.40 A vettvangi
20.05 Lifið er vegasalt Leikrit
eftir Nuruddin Farah. Þýð-
andi: Heba Júliusdóttir.
Leikstjóri: Hallmar Sig-
urösson.
20.45 Píanóleikur i útvarpssal
21.20 Nátúira islands — 8.
þáttur Jökulskciö og hlý-
skeið I Islenskri jarösögu
22.00 Hljómsveit Rlkisóper-
unnar i Vinarborg leikur
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
■■■■«■■■■■■■■■■
Orð kvöldsins
22.35 Meistaramót islands i
frjálsum iþróttum á Laug-
ardalsvelli Hermann Gunn-
arsson segir frá.
23.00 Næturljóö Njöröur P.
Njarðvik kynnir tónlist.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Föstudagur
7.. ágúst
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn
7.15 Tónleikar. Þuiur velur og
ky nnir.
8.00 Fréttir. Dagskrá
morgunorð. Sigurlaug
Bjarnadóttir talar.
8.15 Veðurfregnir. Forustgr.
dagbl. (útdr.) Tónleikar.
8.55 Daglegt mál. Edurt.
þáttur Helga J. Halldórs-
sonar frá kvöldinu áður.
9.00 Fréttir
9.05 Morgunstund barnanna.
9.20 Tónleikar. Tilkynningar.
Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir.
10.30 islensk tónlist Sieglinde
’Kahmann syngur „Söngva
úr Ljóðaljóðunum” eftir Pál
Isólfsson með Sinfóniu-
hljómsveit tslands: Paul
Zukovský stj. /Kariakór
Reykjavikur syngur
„Svarað i sum artungl” eftir
Pál P. Pálsson með
Sinfóníuhljómsveit Islands:
höfundurinn stj.
11.00 ,,Ég man það enn”
Skeggi Asbjarnarson sér
um þáttinn. Magnús
Einarsson kennari flytur
minningarbrot frá bernsku-
dögum sinum.
11.30 Morguntónleikar
Leikrit vikunnar klukkan 20.05 i kvöifl:
„Líflð er vegasalt"
- eða bannig er bað i iðgregluríki