Vísir - 12.11.1981, Blaðsíða 15

Vísir - 12.11.1981, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 12. nóvember 1981 vtsm „Borgin hefur veriö frekar rausnarleg við okkur held ég, en það veröur auðvitað að reyna að spara hér sem annars staðar”. þá ekki aðeins hina verklegu”, sagöi Guðrún. „Margir hafa haft neikvæða afstöðu til skólanna og þvl ekki sótt þá, eða ekki haft tæki- færi til skólagöngu. Þaö er ekki einsdæmi að fólk skipti um skoöun á þessum málum eftir að hafa notið þeirrar fræðslu Sem boðið er upp á hér. Þær launahækkanir sem i boði eru vegna þátttöku i námskeiöun- um virðast heldur ekki skipta svo miklu máli, þegar lengra er komið, þótt þær kunni að hvetja fólk til dáða I upphafi. Þaö eru margir fús- ir aö mæta hér á þriðja námskeiðið, án þess að fá hækkun á launum. Það virðist vera mikil þörf fyrir slika starfsemi, sem I mörgum til- vikum hvetur fólk til frekara náms. Mér er það ákaflega mikið áhugamál, að öll verkalýðsfélögin, sem hafa ófaglært fólk innan sinna vébanda nái þvi inn i sina kjara- samninga, að félagsmenn skuli stunda fræðslunámskeið sem þessi. Ef svo væri, væri menningarstaða allt önnur i landinu.” —JSS Sðknarkonur Ufilmenna Þegar Visismenn heimsóttu Námsflokkana sátu þar námskeiö um 90 konur úr starfsstúlknafélaginu Sókn. Hafa Sóknarkonur notfært sér þá fræðslu sem Námsflokkarnir bjóða upp á I æ rikari mæli og frá áramótum hafa um 200 konur sótt námskeiö I Miöbæjarskólan- um. Námskeiðin eru þannig skipulögð, að i byrjun eru haldin svoköll- uð kjarnanámskeið. Þar er námsefnið hið sama hjá öllum, það er almenn sálarfræði, vinnusálarfræði, heilsufræði, Hjálp i viölögum, næringarfræði og umönnun. Eins er fólki veitt innsýn i tryggingar- jmál, starfsstellingar og brunavarnir, svo eitthvað sé nefnt.- Að kjarnanámskeiðunum loknum taka sérnámskeiðin við. Þeim ,er skipti þrennt, eftir þvi hvert starfssvið viðkomandi er. Þannig fá jþeir er annast börn fræðslu við sitt hæfi. Sama máli gegnir um þá er starfa með þroskaheftum og hina sem annast langlegusjúklinga og aldraða. Visismenn náðu tali af nokkrum Sóknarkonum, sem voru raunar önnum kafnar viþ námsefnið, en tóku ónæðinu engu að siöur vel. Margrét Sighvatsdðttir starlsstúlka á Vífilsstöðum: ,Hef ekki oröiö vör viö neina hvatningu” ,,Ég heföi viljað byrja á þessu fyrir tiu árum”, sagði Margrét Sighvatsdóttir starfsstúlka á Vi'filsstöðum. „Það hefði á- reiöanlega ýtt á eftir mér til að fara i eitthvaö meira”. Margrét kvaðst vera alveg viss um að tækifæri sem þetta væri mjög örvandi fyrir fdlk. Hefði henni heyrst, einkum a1 yngra fólkinu á námskeiöinu að það hyggðist halda áfram tildæmis i sjúkraliðanám eða eitthvað álika. Aöspurð um hvort fólk á hennar vinnustað væri hvatt tilaö sækja námskeiðin, sagði Margrét: ,,Ég hef ekki orðið vör við neina hvatningu. En það er heldur dik- ert gert til aö aftra manni frá þvi að sækja námskeiöin. Ég tel að ráðamönnum liki þaö yfirleitt vel, að starfsfólkið skuli leita eftir fræðslu sem þessari. Enn fremur tel ég aö þaö mætti aö ósekju kynna þetta betur á vinnustööum. Maöur getur aö sjálfsögðu hringt niður I .Sókn og fengið upplýsingar, en ef til vill er þaö ekki nóg. Ég vissi til dæniis ekki nákvæmlega hvað var kennt hérna, þegar ég byrjaði. Og svo mætti alveg vera svolitið verklegt strax í upphafi námskeiðsins”. —JSS Margrét Sighvatsddttir. Eínarsdóttir og Jóhanna Gísladóttir: lámskeiö á Hugum tima” máli íttur, mar- g Jó- tarfs- li. Þær kváðust vera hjartanlega sammála um gagnsemi námskeiða sem þessa, Þau kæmu að góöu gagni i starfi auk þess sem þau væru mjög fræðandi. Jóhanna Gfsiadóttir. Aðspurðar um hvort nám- skeiðin þyrftu frekari kynningar við á vinnustöö- um, sögðust þær stöllur telja aö svo væri. „Ég held þó að kynningin skipti ekki höfuðmáli i þessu sambandi”, sagði Oddný. „heldur tima- setning námskeiðanna. Þetta er á afskaplega slæmum tima. Fólk sem vinnur svona störf eins og við erum i hefur einnig heimilin á si'num herðum. Þetta lengir daginn mjög mikið fyrir útivinnandi húsmæður. Um frekara nám kváðust þær stöllur ekki vera viss- ar. „Það er alveg óráðið hvort ég held eitthvað á- fram”, sagði Oddný. ,,Og ég reikna alls ekki mtíi frekara námi”, sagði Jóhanna. ,,Þó myndi ég trúlega sækja fleiri nám- skeið ef völ væri á þeim”. Snjólaug óskarsdóttir „ELmiög ánæoö með Della” - segír Snjólaug úskarsdóttlr startsstútka Fyrst tókum við tali Snjólaugu óskarsdóttur, sem starfar á bamaheimil- inu Austurborg. „Ég hef ekki sótt slfk námskeið áður”, sagöi hún, ,,en er mjög ánægö með þetta, bæði fyrirkomu- lagið og kennsluefnið. Ég býst þó við að framhalds- námskeiðið eigi erftir aö koma enn betur að gagni, en þaö sem komið er, þvi þá er námsefnið meira sniðið aö okkar starfi”. Snjólaug sagði enn frem- ur, að Sóknarkonur hækkuðu I launum að af- loknum námskeiðum I Námsflokkunum. Fengju Austurhorg þær 7% launahækkun eftir að hafa tekið þátt i kjama- námskeiðinu og4% hækkun að sérnámskeiðinu af- loknu. Aðspurð um hvort hún teldi hafa fremur hvetjandi áhrif á fólk að sækja slik námskeiö, fræðsluna sem I boði væri eða launahækkunina sagði hún að fólk tæki áreiðan- lega "hvort tvcggja með I reikninginn. ,,Maður hefur afskaplega gott af þessu”, sagöi hún, „og svo er alltaf gott að fá kauphækkun. Kaupiö hjá okkur er ekki það hátt, að þaö sakar ekki að bæta ein- hverju við það”. -JSS

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.