Lesbók Morgunblaðsins - 22.09.2001, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 22.09.2001, Blaðsíða 8
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 22. SEPTEMBER 2001 K YRRSTAÐA, einangrun, brostnar vonir, myrk fortíð og getuleysi til að hefja nýtt líf eru leiðarstef í fimm íslenskum leikritum sem komu fram á síð- asta áratug og fjalla á einhvern hátt um líf fólksins í landinu ut- an höfuðborgarinnar. Verkin sem um ræðir eru Hafið og Kennarar óskast eft- ir Ólaf Hauk Símonarson, Í hvítu myrkri eftir Karl Ágúst Úlfsson, Óskastjarnan eftir Birgi Sigurðsson og Kaffi eftir Bjarna Jónsson. Öll voru þessi verk frumsýnd í Þjóðleikhúsinu á tímabilinu 1992–1998. Þrátt fyrir að efnistök þessara fjögurra höf- unda virðist ólík við fyrstu sýn eru viðfangsefnin giska lík þegar grannt er skoðað, form, stíll og persónusköpun kallast á í anda þess raunsæis sem íslensk leikritun hefur – að hluta – þreifað sig eftir á undanförnum árum. Öll gerast þessi fimm leikrit utan höfuðborg- arinnar, á ónafngreindum stöðum, þrjú sjávar- pláss (Hafið, Í hvítu myrkri, Kaffi), einn sveita- bær (Óskastjarnan) og eitt skólasetur (Kenn- arar óskast) og tími þeirra er samtíminn, utan Óskastjarnan sem gerist um miðjan 9. áratug- inn og fjallar að nokkru um þær breytingar sem urðu á landbúnaðarstefnu íslenskra stjórnvalda á þeim tíma. Hafið Drifrás Hafsins er yfirvofandi andlát aldraðs fjölskylduföður, útgerðarmanns af gamla skól- anum, og börn hans ásamt mökum þeirra hafa safnast saman á æskuheimilinu til að komast að samkomulagi um hvernig skipta skuli eignum fjölskyldunnar. Þar vegur þyngst kvótinn sem safnast hefur og tekist er á um hvort selja skuli kvótann og hirða hagnaðinn eða hvort bæjar- félagið eigi einhvern siðferðilegan rétt á að kvótinn sé kyrr í héraðinu. Enginn efast um eignarréttinn. Hér er vissulega tekist á um grundvallaratriði sem skekið hefur samfélagið allt nær undanfarna tvo áratugi en persónusaga verksins er skorin á annan veg, þar sem kemur fram ólík afstaða barnanna til búsetu á staðnum; öll hafa þau flust burt nema einn sonur sem hef- ur hálfpartinn dagað uppi heimafyrir vegna getuleysis til að skapa sér sjálfstætt líf annars staðar. Ekkert þeirra hefur áhuga á að halda áfram ævistarfi hins aldraða föður, virðingar- leysi þeirra fyrir lykilhlutverki fjölskyldunnar í atvinnusögu staðarins er algjört, þetta er rót- laust fólk sem tapað hefur sögu sinni og kann enga aðra leið til að skjóta rótum í nýju um- hverfi en að selja fortíð sína. Í hvítu myrkri Í hvítu myrkri gerist á lítilli veitingastofu í sjávarplássi um hávetur í myrkri og kulda. Áætlunarbíllinn teppist næturlangt á staðnum vegna óveðurs og með honum er farþegi, kona sem ætlar í næsta fjörð. Í ljós kemur að að- komukonan og einn heimamanna, gröfu- maðurinn sem hamast alla nóttina við að ryðja veginn, eiga sér sameiginlega fortíð ásamt geð- veikum bróður hans. Kærastan hans núverandi, sem starfar sem gengilbeina á veitingastofunni, dregst inn í upprifjun atburða fortíðarinnar og uppgjör sem fylgir í kjölfarið. Smám saman kemur sannleikurinn fram þótt allir reyni að halda fram sinni útgáfu af honum. Um morg- uninn hefur óveðrinu slotað, aðkomukonan og kærastan hverfa á brott en eftir sitja bræðurnir, annar dauður og hinn lifandi. Form leikrits Karls Ágústs Úlfssonar, Í hvítu myrkri, er mótað í hefðbundna umgjörð innilok- unar ákveðins hóps. Í textanum er endurtekið vísað til hins yfirþyrmandi umhverfis, óveðurs- ins og einangrunarinnar. Þó er í sjálfu sér ekk- ert við þetta verk sem tengir það við íslenskar aðstæður, hvorki landfræðilega né félagslega, nema þá tilvísanir í myrkrið og kuldann; per- sónusaga verksins snýst ekki um tengingar við íslenskan veruleika sérstaklega heldur er til- finningaleg forsaga persónanna þungamiðjan og því gæti verkið gerst hvar sem er. Bygging verksins er hefðbundin á þann hátt að í sam- tölum persónanna bætast sífellt nýjar upplýs- ingar við þannig að áhorfandinn fær smám sam- an fyllri mynd af forsögunni; til að skilja stöðu persónanna í nútíðinni þarf að upplýsa tengsl þeirra í fortíðinni. Sumpart er þetta hefðbundið spennuleikrit þar sem persónurnar hafa ýmsar ástæður til að fela atburði fortíðarinnar og veita misvísandi upplýsingar um rétta atburðarás. Formið er staðlað, þar sem hópur fólks er inni- lokaður á sama stað og ljóst er að einn úr hópn- um hefur framið glæp. Frávikið felst í því að glæpurinn var framinn í fortíðinni og atburða- rásin snýst um að upplýsa glæpinn og koma fram einhvers konar refsingu. Þegar öll kurl eru komin til grafar er ljóst að dramatísku réttlæti hefur verið fullnægt með því að refsing kom fyr- ir voðaverk í fortíðinni með vondum örlögum hins seka og dauða hans í lokin. Áhorfandinn getur sæst á niðurstöðuna þótt ljóst sé að lausn- in er bundin við hópinn, opinberir aðilar hafa hvergi komið nærri, hvorki við upplýsingu né úrlausn. Þannig sver verkið sig á vissan hátt í ætt við hið sígilda ameríska kvikmyndaþema þar sem einstaklingurinn hefur tekið lögin í eig- in hendur og forsjónin sér svo um að útdeila réttlætinu. Kennarar óskast Í Kennarar óskast fæst Ólafur Haukur Sím- onarson aftur við vanda sem steðjar að íslensku samfélagi á ritunartíma verksins; brottflutning- ur af landsbyggðinni og tilraunir heimamanna til að halda uppi sömu lífsgæðum og annars staðar, við fremur vonlitlar aðstæður. Ung kennarahjón úr höfuðborginni hafa ráðið sig að sveitaskóla og um veturinn gerist ýmislegt sem verður til þess að þau skilja og hann snýr aftur suður en hún verður eftir, reiðubúin að takast á við lífið á þessum stað. Persónur verksins eru kennararnir við skólann, dæmigerður samsetn- ingur af fólki sem hefur safnast saman á slíkum stað, sumir eru þar fæddir og uppaldir og vilja hvergi annars staðar vera, aðrir hafa gefist upp og flúið í fásinnið; upp kemur að gamall kennari sem enn kennir við skólann hefur gerst sekur um sifjaspell á ungri stjúpsonardóttur sinni, af- staða hinna til þessa atburðar litar samskipti þeirra í seinni hluta verksins. Sifjaspell, uppgjör milli hjóna, árekstrar landsbyggðar og höfuð- borgar, bil milli kynslóða, að því augljósasta ónefndu, nefnilega kennaraskorti á landsbyggð- inni, er hugsanlega efni í mörg leikrit en hér er það allt tekið til meðhöndlunar og raunar án þess að úr fjölþættum efniviðnum sé unnið á við- unandi hátt. Í Kennarar óskast eru dregnar upp skýrar myndir af aðstæðum og persónum er lýst í gegnum knöpp og hnitmiðuð samtöl. Þróun persóna er hinsvegar lítil, reynslan sem at- burðarásin ætti að hafa fært þeim hefur lítil Kaffi (1998) eftir Bjarna Jónsson Í hvítu myrkri (1994) eftir Karl Ágúst Úlfsson. R Kennarar óskast (1997) eftir Ólaf Hauk Símonarson. Leikarar: Örn Árnason, Þröstur Leó Gunnarsson og Ólafía Hrönn Jónsdóttir. Óskastjarnan (1998) eftir Birgi Sigurðsson. Leika ÁTÖK Á LANDS- BYGGÐINNI Hlutverk landsbyggðarinnar er viðfangsefni HÁVARS SIGURJÓNSSONAR í grein þar sem skoðuð eru nokkur leikrit frá síðasta áratug sem öll eiga sér landsbyggðina að sameiginlegu baksviði.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.