Lesbók Morgunblaðsins - 22.09.2001, Page 14

Lesbók Morgunblaðsins - 22.09.2001, Page 14
14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 22. SEPTEMBER 2001 Þ AÐ VAR lítil ástæða til að búast við fögrum degi, er Lousiana var helstur áfangi á mánudegi, himinn skýjaður og rigningar- suddi í lofti. En þetta átti eftir að breytast er til Humlebæk kom og í stað þess að halda áætlun og vera kominn aftur til borgarinnar um nónbil, og skoða sýningar í al- mennum listhúsum það sem eftir lifði dags, eyddi rýnirinn lungan úr honum á staðnum. Skoðaði báðar sýningarnar mjög vel, raunar aftur og aftur eftir því sem leið á daginn, naut þess á milli veitinga, veðurblíðu og einstaklega yndislegs andrúms á staðnum þá stundina. Mánudagarnir voru lengi heppilegastir til rólegra heimsókna á Lousiana-listasetrið, en nú hef ég komist að því, að fleiri og fleiri hugsa á svipuðum nótum. Strax er dyr voru opnaðar á slaginu tíu stímaði fólk að, hins vegar eru miðvikudagarnir drýgstir er svo er komið, einkum er hallar að degi, þá opið fram á kvöld á öllum stóru söfnunum. Eðlilega fámennt er líður að kvöldverði og „hjemlig hygge“ eins og Danir nefna yndið mesta. Meira en augljóst, að sýning Kiefers þykir drjúgur viðburður enda stefndi fólkið rakleiðis þangað, hins vegar var jafnaðarlega einungis slatti af fólki á hinni sérsýningunni. Virtist al- veg rétt athugað hjá einum listrýninum, að hún höfðaði ekki til hins breiða fjölda er venur komur sínar á Lousiana, gesta er Lars Nittve gaf langt nef á sínum stutta starfsferli í for- svari safnsins, með þeim árangri að aðsókn hrapaði úr öllu valdi. Um að ræða 222 riss í ýmsum tæknimeðölum, frá Picasso til Yoko Ono. Eins og réttilega stendur í sýningarskrá/ bók; … er listin að mörgu leyti dálítið sem er á leiðinni, erfitt að slá föstu hvar hún byrjar og hvar endar, kannski nægir að segja að hún sé á hreyfingu. Milli anda og handar frá höfði listamannsins og niður á blokkina, frá blokk- inni til efnisins og kannski aftur til baka. Og síðan frá verkinu sjálfu til höfuðs skoðandans. Þetta endalausa ferli tilheyrir listinni og hver einstök sýning á listasafni inniber ákveðin sér- tæk atriði, kjarna lifunar sem hafður skal til hliðsjónar og gengið útfrá … Sýningin kemur frá listasafninu í Björgvin, var þar aðeins viðameiri; þeir sýningarstjórar Gunnar B. Kvaran safnstjóri og John nokkur Hendricks völdu 250 myndir úr miklu safni Gilberts og Lila Silvermans í Detroit í Michig- an. Hjónunum má öðru fremur telja til tekna, að hafa áhuga á list sem ferli en hvorki vegg- skraut og/eða stöðutákn. Gilbert skilgreinir raunar vinnuferlið sem „instruktion drawn- ing“ sem mætti þýða sem sviðsetningarriss, verk með ólíkan mótun- argrunn en eiga það öll sameiginlegt að vera fyrsti liður í því ákveðna vinnuferli að skapa listaverk, raun- verulegt eða hugmynd, stórum frekar en hina hreinu og sígildu teikn- ingu í sjálfri sér. Í sinni ótvíræðustu mynd geta þessi verk verið nokk- urs konar rituð svið- setning, glósupár fyrir ákveðið verk. Er vel að merkja um leið æva- gömul og sígild aðferð myndlistarmanna til að nálgast viðfangsefni sín, en öllum ekki jafnt sýnt að halda til haga. Hins vegar er nær hvert strik á blað komið bókað skjalfest og varðveitt af sjálfhverfu kynslóðinni um og eftir 1970, sem og spor- göngumönnum hennar. Öll söfn eiga sér aðdraganda og þetta mjög nærtækan með upphafsreit á áttunda ára- tugnum. Hugmyndin vaknaði fyrir undarlega skikkan atburðarásar varðandi ferð á heims- sýninguna í Osaka 1970. Til að klófesta hót- elrými á Kyoto-Osaka-svæðinu urðu þau hjón- in að kaupa sextán daga böggul með fjögurra daga viðdvöl í Tókýó! Þangað komin lá leið þeirra að sjálfsögðu í hið einstæða Ueno- safnahverfi, hvar Þjóðlistasafnið er staðsett, og þar stóð tvíæringur samtímalistar einmitt yfir. Þrátt fyrir að sýningatímabilið væri hálfnað voru framkvæmdaaðilar ennþá að baksa við innsetningu eftir Sol Lewitt. Nokkr- um árum seinna sló það Gilbert, að listamað- urinn hefði að öllum líkindum ekki verið í Tók- ýó, en skoðað ljósmyndir og uppdrætti af staðnum. Skrifað leiðbeiningar hvernig staðið skyldi að verkinu, þannig að aðrir gætu útfært það og þetta vinnuferli vakti mikinn áhuga hans. En annað og nærtækara kom einnig til, fyrirtæki hans var á þessu tímaskeiði í miklum erfiðleikum og þannig af og frá að hann gæti fullnægt söfnunarástríðu sinni með því að kaupa hin dýrari verk á listamarkaðinum. Datt þá í hug að leita eftir frumrissum í nafn- kenndum listhúsum beggja vegna Atlantsála og kom þar ekki að tómum kofunum, sum áttu fullar skúffur bakatil og þar gat hann rótað að vild og fest sér hinar áhugaverðari fyrir lítinn pening. Pablo Picasso: Riss af konum, 9.–10. marz 1954. 26,9x20,8 cm. „Á LEIÐINNI“ Tom Wesselmann: Án titils, ódagsett, 29,3x47,8 cm. Morgunblaðið/Bragi Ásgeirsson Einna var líkast sem stytta Henris Laurens (1885–1954) í garðinum við Lousiana-listasetrið gengi í endurnýjun lífdaga í kristalstærum birtumögnum ágústmánaðar. Ray Johnson: Án titils, 1961, 35,5x21,6 cm og 10x21,2 cm. Á Lousiana stendur yfir sýning á því sem listamenn nefna gjarnan frumriss eða skissur sín á milli, hug- takið markar neistann, kímið og frumhugmyndina að myndrænu sköpunarferli, einu og öðru sem er á leiðinni. Sýningin stendur til 4. nóvember. BRAGA ÁSGEIRSSYNI tókst ekki að afgreiða hana um leið og sýningu á nýjum verkum Anselms Kiefers, en víkur að henni hér og ýmsu til hliðar.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.