Lesbók Morgunblaðsins - 02.02.2002, Side 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 2. FEBRÚAR 2002 15
MYNDLIST
Árnastofnun, Árnagarði: Handrita-
sýning opin þri.–fös. frá 14–16. Til
15.5.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg: Ljós-
myndasýning Inger Helene Bóasson.
Til 3.2.
Gallerí Skuggi: Ljósmyndasýning
Orra Jónssonar. Klefinn: Ragna Her-
mannsdóttir. Til 3.2.
Gallerí Sævars Karls: Helga Kristrún
Hjálmarsdóttir. Til 24.2.
Gerðarsafn: Leirlistafélag Íslands. Til
3.2.
Gerðuberg: Þýskar tískuljósmyndir,
1945–1995. Til 17.2.
Hafnarborg: Inge Jensen. Ásgeir
Long. Til 11.2.
Hallgrímskirkja: Þórður Hall. Til
20.2.
Hönnunarsafn Íslands, Garðatorgi:
Stólar Péturs B. Lútherssonar. Til
12.2.
i8, Klapparstíg 33: Helena Hietanen.
Til 2.3.
Íslensk grafík, Hafnarhúsinu: Ásrún
Tryggvadóttir. Til 16.2.
Listasafn Akureyrar: Íslensk mynd-
list 1965–2000. Til 24.2.
Listasafn ASÍ: Stólar Péturs – Stóla-
hönnun í 40 ár. Til 12.2.
Listasafn ASÍ – Ásmundarsalur:
Ragna Sigurðardóttir, Sigríður Ólafs-
dóttir, Inga Þórey Jóhannsdóttir. Til
17.2.
Listasafn Einars Jónssonar: Opið alla
daga, nema mánudaga, kl. 14–17.
Listasafn Íslands: Úr eigu safnsins –
fjórar sýningar. Til 14.4.
Listasafn Reykjavíkur – Ásmundar-
safn: Svipir lands og sagna. Til 10.2.
Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús:
Bernd Koberling. Til 3.3.
Listasafn Reykjavíkur – Kjarvals-
staðir: Innsetning Hannesar Lárus-
sonar. Til 1.4. Myndir úr Kjarvals-
safni. Til 31.5. Níels Hafstein og
Sólveig Aðalsteinsdóttir. Til 24.2.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Kyn-
legir kvistir. Til 5.5.
Norræna húsið: Veflistarkonan Ann-
ette Holdensen. Til 17.2.
Safnahús Borgarfjarðar: Þöglar kon-
ur. Til 27.2.
Þjóðarbókhlaða: Eygló Harðardóttir.
Til 9.2. Bækur og myndir 35 erlendra
höfunda. Til 17.2.
Þjóðmenningarhúsið: Landafundir og
ragnarök.
Upplýsingamiðstöð myndlistar:
www.umm.is undir Fréttir.
TÓNLIST
Laugardagur
Salurinn, Kópavogi: Myrkir músík-
dagar. Raftónleikar. Kl. 20.
Sunnudagur
Hallgrímskirkja: Orgelspuni Mattias
Wager. Kl. 17.
Ýmir við Skógarhlíð: Arriaga-
strengjakvartettinn. Kl. 16.
Mánudagur
Salurinn, Kópavogi: Kuran Swing-
kvartettinn ásamt strengjakvartett.
Kl. 21.
Miðvikudagur
Norræna húsið: Kvennakórinn Vox
feminae. Kl. 12.30.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið: Anna Karenina, mið.,
fim. Syngjandi í rigningunni, lau. Cyr-
ano, sun., fim. Með fulla vasa af
grjóti, þrið., mið., fös. Hver er hrædd-
ur við Virginíu Woolf, fös. Karíus og
Baktus, sun.
Borgarleikhúsið: Boðorðin 9, fim.
Fjandmaður fólksins, sun. Blíðfinnur,
sun. Fyrst er að fæðast, fös. Beðið
eftir Godot, lau. Jón Gnarr, fim. Gest-
urinn, frums. mið., fös.
Íslenska óperan: Leikur á borði, lau.,
fös.
Íslenski dansflokkurinn: Lore,
Through Nana’s eyes, frums. lau. Fös.
Möguleikhúsið v. Hlemm: Skugga-
leikur, þrið., mið. Völuspá þri., fös.
Nemendaleikhúsið: Íslands þúsund
ár, þrið., fös.
Leikfélag Akureyrar: Slavar, lau.
Upplýsingar um listviðburði sem ósk-
að er eftir að birtar verði í þessum
dálki verða að hafa borist bréflega
eða í tölvupósti fyrir kl. 16 á mið-
vikudögum merktar: Morgunblaðið,
menning/listir, Kringlunni 1, 103
Rvík. Myndsendir: 5691222. Netfang:
menning@mbl.is.
MENNING
LISTIR
N Æ S T U V I K U
NÆSTIR á dagskrá Myrkra músíkdaga eru
raftónleikar sem haldnir verða í Salnum í
Kópavogi í dag kl. 17. Á efniskránni eru ný
og nýleg raftónverk eftir Gunnar Kristins-
son, Ríkharð H. Friðriksson, Helga Péturs-
son, Hilmar Þórðarson og Kjartan Ólafsson.
Verk Gunnars Kristinssonar nefnist Nú-
Þá, samið á þessu ári fyrir eina hljóðrás.
Verkið er byggt á hljóðum úr steinaspili sem
er í eigu höfundar. Hljóðunum var hlaðið inn
í tölvu og unnið frekar úr þeim þar. Verkið
er samið í Basel þar sem höfundur er bú-
settur.
Kjartan Ólafsson samdi verk sitt 2 tilbrigði
á síðasta ári fyrir tvær hljóðrásir. „Efniviður
verkanna er fenginn úr tónsmíðum mínum frá
árunum 1982-2001. Örstutt brot voru tekin úr
tónverkum frá þessum tíma og meðhöndluð
stafrænt með ólíkum aðferðum og síðan sett
saman í hverja tónsmíð. Verkin tvö eru tekin
af disknum 7 tilbrigði sem kom út seint á síð-
asta ári,“ segir Kjartan um verk sitt.
Verk Hilmars Þórðarsonar heitir Sononym-
us III, samið á árunum 1998-200 og eru tölvu-
unnin hljóð. Flytjandi er Martial Nardau
flautuleikari. Um verk sitt segir Hilmar:
„Sononymus III er byggt á sólóflautuverkinu
Þula sem höfundur samdi fyrir bandaríska
flautuleikarann Dorothy Stone árið 1998.
Verkið er hugsað sem einhverskonar nætur-
þula þar sem verið er að syngja eða jafnvel
raula barn í svefninn. Það er barist milli
svefns og vöku þar sem ýmist berst söngurinn
eða fantasía draumanna inn um skilningavitin.
Í þessari útgáfu hefur tölvuunnum hljóðum
verið bætt við verkið og það fært í þá mynd
sem það var upphaflega hugsað.“
Helgi Pétursson nefnir verk sitt Organized
Wind (2000) og er það samið fyrir tvær hljóð-
rásir.
„Hugmyndin að verkinu varð til fyrir um 10
árum þegar ég var organisti á Húsavík. Eitt-
hvert kvöldið þegar ég var að æfa mig í
dimmri kirkjunni uppgötvaði ég að hægt var
að ná fram mjög óvenjulegum og spennandi
hljóðum úr pípum orgelsins með því að ýta
nótum ekki niður til fulls heldur ýta þeim of-
ur varlega og hægt minna en hálfa leið niður
og halda jafnframt á móti með öðrum fingri
undir sömu nótu. Þetta stafaði af því að loft
var að leika um pípurnar án þess að það fengi
að streyma af fullum krafti í gegn. Hljóðin
voru tekin upp í Húsavíkurkirkju í desember
1999 og flest heyrast þau í þessu verki í
mjög lítið umbreyttri mynd. Tölvan var því lít-
ið sem ekkert notuð til að breyta hljóðunum,
heldur fyrst og fremst til að blanda þeim sam-
an, styrkja þau og tímasetja,“ segir Helgi um
verk sitt.
Ríkharður H. Friðriksson semur verk sitt
Líðan fyrir fjórar hljóðrásir.
Kveikjan að verkinu varð til í dimmasta
skammdeginu þegar höfundur þjáðist m.a. af
hálsbólgu og kvefi. Hljóðheimur bilaðra önd-
unar- og talfæra umlukti hann og heltók um
nokkurra daga skeið. Verkið var unnið nær al-
farið á Kyma/Cabybara hljóðvinnslukerfið í
Tónveri Tónlistarskóla Kópavogs veturinn
2001-2002.
Raftónlist á Myrkum músíkdögum
Ríkharður H.
Friðriksson
Hilmar
Þórðarson
Kjartan
Ólafsson
AÐ búa og rannsaka nefnist samsýning
þriggja listakvenna sem opnuð verður í
Listasafni ASÍ, Ásmundarsal v. Freyju-
götu, í dag, laugardag, kl. 14. Þær eru
Inga Þórey Jóhannsdóttir, Ragna Sigurð-
ardóttir og Sigríður Ólafsdóttir. Kynni
Ingu Þóreyjar, Rögnu og Sigríðar hófust í
Nýlistadeild MHÍ á níunda áratugnum en
síðan skildu leiðir. Inga Þórey lagði stund
á framhaldsnám í Vínarborg, Sigríður í
Frakklandi og Ragna í Hollandi. Allar
hafa þær tekið þátt í fjölda samsýninga
hér heima og erlendis og haldið einkasýn-
ingar. Það var svo fyrir tveimur árum að
fundum bar saman á ný eftir mislanga
dvöl í útlöndum. Um sýninguna í ASÍ segja
þær m.a.:
„Þættir þeir sem upp komu við endur-
fundi, endurspeglast í list okkar þriggja,
mismunandi sterkt og á ólíkan hátt. Hver
á sinn hátt höfum við fengist við að „búa“
og „rannsaka“. Búa á ýmsum stöðum, búa
okkur stað innan listarinnar, búa fjöl-
skyldum okkar heimili.“
Á sýningunni má sjá málverk unnin með
tölvutækni þar sem fjölskyldan er megin-
þemað, þrívíð verk og verk unnin í tölvu
sem velta fyrir sér sjóninni sjálfri og
byggja m.a. á litum sem notaðir eru í lit-
blinduprófum. Einnig er unnið með ís-
lenska útsaumshefð og kvenímyndina í
svokölluðum rennibrautarstólum.
Sýningin er opin alla daga, nema mánu-
daga, frá kl. 14-18, og stendur til 17. febr-
úar.
Morgunblaðið/Ásdís
Ragna Sigurðardóttir, Inga Þórey Jóhannsdóttir og Sigríður Ólafsdóttir í Listasafni ASÍ.
Fjölskyldan
í listinni
MATTIAS Wager, prófessor í
orgelleik og spuna við Tónlist-
arháskólann í Málmey í Sví-
þjóð, leikur á tónleikum í Hall-
grímskirkju á morgun,
sunnudag, kl. 21.10 og er öll
tónlistin leikin af fingrum
fram. Tónleikagestum gefst
tækifæri á að heyra margar
stíltegundir í leik af fingrum
fram en Mattias Wager er tal-
inn meðal hinna fremstu á því
sviði á Norðurlöndum.
Efnisskráin er þrískipt.
Fyrst leikur Mattias partítu
yfir íslenskt sálmalag sem
hann rammar inn í hefðbundið
tónmál barokktímans. Annar
hlutinn tengist gregórskum
kirkjusöng en rík hefð er fyrir
spuna í kringum hann í helgi-
haldi kirkjunnar. Gregórsku söngstefin verða
sungin af litlum sönghóp. Að lokum mun Matt-
ias fá uppgefin sálmalög úr íslensku sálmabók-
inni til eigin útfærslu. Tónleikarnir mynda há-
punkt á meistaranámskeiði sem Mattias Wager
heldur á vegum Tónskóla þjóðkirkjunnar og fer
fram í Hallgrímskirkju dagana á undan.
Meðal þeirra verðlauna sem Mattias Wager
hefur hlotið eru þrenn fyrstu verðlaun í org-
elspunakeppnunum í Strängnäs 1991 og í París
1995 og í orgelkeppninni í St. Albans í Englandi
1995. Hann er mjög eftirsóttur sem orgelleikari
og hefur komið fram um alla
Evrópu og í Brasilíu. Þá hefur
hann leikið inn á margar
hljómplötur og fyrir útvarp.
Auk þess kemur Mattias
Wager reglulega fram með
kammerkórunum Erik West-
bergs Vokalensemble og
Schola Cantorum Scaniensis
og einnig með slagverksleik-
aranum Anders Åstrand. Fyr-
ir nokkrum árum hljóðrituðu
þeir m.a. hljómdisk hér í Hall-
grímskirkju en á honum má
meðal annars heyra Mattias
spinna yfir íslenska sálma-
lagið „Víst ertu, Jesús, kóngur
klár“.
Frá haustinu 1998 hefur
Mattias Wager verið kennari í
orgelleik og spuna við Tónlist-
arháskólann í Malmö en áður hafði hann kennt
sömu fög við Tónlistarháskólann í Piteå. Hann
er gestakennari við Tónlistarháskólann í Gauta-
borg og við Tónskóla þjóðkirkjunnar auk þess
sem hann hefur kennt á námskeiðum víða um
heim.
Tónleikarnir eru á dagskrá Listvinafélags
Hallgrímskirkju og eru haldnir í samvinnu við
Tónskóla þjóðkirkjunnar.
Tónleikarnir áttu að vera kl. 17 á morgun en
var seinkað vegna Evrópumótsins í handknatt-
leik.
Orgelspuni í
Hallgrímskirkju
Mattias Wager
NOKKRIR góðir dagar án Guðnýjar eftir
Davíð Oddsson kom nýverið út í Þýskalandi
hjá Steidl. Dómar þarlendra blaða og tímarita
hafa verið lofsamlegir.
Í Spiegel Kultur Extra
segir m.a.: „Í þessum sög-
um er ekki sagt frá atburð-
um sem breyta heiminum
en Davíð Oddsson veitir
okkur óvænta innsýn í sál
þjóðar sinnar.“ Greinina
skrifar Peter Henning.
Hann ritar einnig í vikuritið
Weltwoche ýtarlegri um-
sögn um bókina þar sem
hann segir að þessi innsýn í sál þjóðarinnar
geri bókina „að sannkölluðum happafundi“.
Dagblaðið taz (Die Tagezeitung) gerir að
umtalsefni að það gangi sjaldan upp að blanda
saman stjórnmálum og listum en að á Íslandi
sé þessu öðruvísi farið, þar sé nánast hefð fyrir
því að stjórnmálamenn komi úr listaheiminum.
taz segir að í bókinni séu „ákaflega gamansam-
ar og kyndugar smásögur“ og ennfremur að
hún sé skemmtileg og í henni myndist „hríf-
andi andrúmsloft. Það sýnir að það getur opn-
að jafnvel stjórnmálamanni ótæmandi mögu-
leika ef hann hefur skilið gangvirki starfs síns
og dregur ekki fjöður yfir það sem hann hefur
lært“.
Í Literatur-Report segir að sögur Davíðs
einkennist af skopskyni og samúð og þannig
dragi hann upp fallegar mannlífsmyndir.
Smásögur
Davíðs fá
góða dóma
Davíð Oddsson