Lesbók Morgunblaðsins - 22.06.2002, Qupperneq 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 22. JÚNÍ 2002 15
LEIFUR Breiðfjörð sýnir um þessar mundir
myndröðina „Sigur lífsins“ í Vídalínskirkju í
Garðabæ. Um er að ræða fimm ný verk frá
þessu ári sem unnin eru með vatnslitum og
pastellitum og eru þau sýnd í anddyri kirkj-
unnar.
Leifur Breiðfjörð er vel þekktur fyrir
myndlist sína, einkum steind glerlistaverk
sem hann hefur gert fyrir fjölmargar op-
inberar byggingar og kirkjur, bæði hér á
landi og erlendis. Meðal þekktustu verka
hans eru steindur gluggi í St. Giles dómkirkj-
unni í Edinborg, Hallgrímskirkju og stórt
glerlistaverk í Grafarvogskirkju. Þá gerði
Leifur nýlega sjö steinda glugga í Vídalíns-
kirkju.
Þó svo að Leifur sé best þekktur fyrir gler-
listaverk sín segist hann hafa fengist við mál-
un og teikningu allt frá því að hann lauk
námi í Myndlista- og handíðaskólanum og
hélt til framhaldsnáms í steindri glerlist í Ed-
inborg. „Ég mála mikið og teikna í tengslum
við glerlistaverkin og textíllistaverkin sem
ég vinn í samvinnu við Sigríði Jóhannsdóttur
konu mína. Ég hef jafnframt steinda glerinu
m.a. unnið málverk, vatnslita- og past-
elmyndir. Við gerð steinda gluggans í Hall-
grímskirkju sótti ég til Opinberunarbók-
arinnar og í framhaldi af þeirri heimilda- og
skissuvinnu vann ég sjálfstæða myndröð sem
sýnd hefur verið víða,“ segir Leifur.
„Myndröðina Sigur lífsins hef ég verið að
vinna sjálfstætt, en þó í nokkru framhaldi af
glerlistaverki sem ég gerði í Grafarvogs-
kirkju þar sem sigurboginn er grunnminni
og form sem ég vinn með. Sigurboginn er
fornt trúartákn sem vísar til sigurs andans í
minni túlkun en ég hef verið nokkuð upptek-
inn af honum síðan ég kom fyrst til Rómar. Í
myndröðinni blanda ég saman þessum fornu
táknum, vísunum í texta Biblíunnar og áhrif-
um úr samtímalist. Ég hef mikinn áhuga á að
sækja gömul tákn og setja þau í nýtt sam-
hengi, tengja þannig saman gamalt og nýtt.“
Sýningin „Sigur lífsins“ eftir Leif Breið-
fjörð er haldin á vegum Listanefndar Garða-
sóknar. Hún var opnuð um hvítasunnuhelg-
ina og stendur fram í miðjan júlí.
GÖMUL TÁKN Í NÝJU SAMHENGI
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Leifur Breiðfjörð við sýningu sína í Vídalínskirkju.
KRISTJÁN Þorgeirsson er upprenn-andi íslenskur leikhúsmaður, sem ný-verið hefur lokið BA-námi í leiklist ogleikstjórn við Dartmouth-háskóla í
Bandaríkjunum. Lokaverkefni Kristjáns
fjallaði um sviðssetningu leiksýninga sem
byggðar eru á þjóðsögum og eldri skáldverk-
um. Af því tilefni setti hann upp sýningu við
Dartmouth í vor sem byggð er á Egils sögu og
ber hún heitið Egil’s Saga, Depictions of a
Viking Poet. Var Kristján, sem er uppalinn í
Bandaríkjunum, þar í hlutverki höfundar,
leikstjóra og leikara.
„Ég skrifaði handbók um uppsetningu á
leiksýningum sem byggðar eru á gömlum sög-
um, eins og til dæmis Egils sögu, sem fylgdi
verkefninu. Hugmyndina fékk ég fyrst þegar
ég stundaði nám í Kaliforníu við Dell’ Arte
International School of Physical Theater,“
segir Kristján um tildrög og þróun verkefn-
isins. „Það nám snerist að mestu um hvernig
hægt væri að taka ljóð og breyta þeim í hreyf-
ingar. Í vetur fór ég til Rússlands og dvaldi
þar í nokkrar vikur. Þar leikstýrði ég verki
sem var byggt á gömlum rússneskum ævin-
týrum. Eftir það hélt ég til Íslands með vini
mínum, Joel Schudson, sem gerði tónlistina
við leikritið um Egils sögu. Við dvöldum í
mánuð í sumarbústað og unnum að verkinu í
sameiningu.“
Snemma í vor hófust æfingar á verkinu í
Dartmouth ásamt frekari þróun og útfærslu.
Leikarar í verkinu voru nemendur skólans og
fór Kristján einnig með hlutverk sjálfur. Hann
segir verkið hafa þróast mjög mikið á æfinga-
ferlinu. „Textinn í Egils sögu er ekki færður
beint yfir í handrit,“ segir hann. „Til dæmis
nota ég mikið af myndlíkingum bæði í tónlist-
inni og einnig í sviðsetningunni. Ég reyni að
birta myndir á sviðinu sem segja áhorfendum
söguna í jafnmiklum mæli og orðin í sýning-
unni. Mikið af textanum sem við notuðum varð
til í spuna í stað þess að beinar tilvitnanir hafi
verið notaðar. Sýningin er því að mörgu leyti
sjónræn útfærsla á Egils sögu.“
Kristján hefur síðastliðið ár verið svokall-
aður senior fellow við Dartmouth-háskóla,
sem merkir að hann hefur stjórnað námi sínu
og ferðum að mestu leyti sjálfur. Hann stefnir
á framhaldsnám við Columbia-háskóla í New
York í haust og mun hann þar leggja aðal-
áherslu á leikstjórn. Aðspurður hvort hann
hyggist setja sýningu á borð við Egils sögu
upp á Íslandi svarar Kristján að hann hafi á
því mikinn hug. „Ég naut aðstoðar ýmiss góðs
leikhúsfólks þegar ég var á Íslandi; Valgarðs
Egilssonar, Þórhildar Þorleifsdóttur og Arn-
ars Jónssonar,“ segir hann. „Ég ræddi þetta
mikið við þau. Mér þætti mjög gaman að geta
sett fleiri Íslendingasögur upp á þennan hátt
þar. Margar þeirra eru svo áhugaverðar og
skemmtilegar! En þær áætlarnir eru hluti af
langtímaáætlun, svo úr því verður líklega ekki
í bráð,“ segir Kristján að síðustu.
SJÓNRÆN ÚTFÆRSLA
Á EGILS SÖGU
Frá sýningunni Egil’s Saga, Depictions of a Viking Poet.
MYNDLIST
Árnastofnun: Handritasýning. Mán. –
lau. kl 11 til 16. Til 25.8.
Gallerí@hlemmur.is: Heimir Björg-
úlfsson. Til 23.6.
Gallerí i8, Klapparstíg 33: Ólafur El-
íasson. Huginn Þór Arason. Til 22.6.
Gallerí Reykjavík: Nordic Network.
Ungir norrænir leirlistamenn. Til 26.6.
Elitsa G. Georgieva. Til 3.7.
Gallerí Skuggi: Mark Norman Bross-
eau. Til 23.6.
Galleríi Sævars Karls: Egill Prunner til
27.7.
Gerðarsafn: Úr einkasafni Þorvaldar
Guðmundssonar og Ingibjargar Guð-
mundsdóttur. Til 28.7.
Hafnarborg: Yoichi Onagi. Til 1.7.
Hallgrímskirkja: Húbert Nói. Til 29.8.
Handverk og Hönnun/Linsan: Philippe
Starck, Alain Mikli o.fl. Til 23.06
Hús málaranna, Eiðistorgi: Ari Svav-
arsson. Til 23.6.
Hönnunarsafn Íslands: Sumarsýning á
munum í eigu safnsins. Til. 31.8.
„ÍLÁT“. Sumarsýning. Til 15.8.
Listasafn Akureyrar: Akureyri í mynd-
list II. Til 21.7.
Listasafn ASÍ: Guðbjörg Lind Jóns-
dóttir, Guðrún Kristjánsdóttir og Krist-
ín Jónsdóttir frá Munkaþverá. Til 30.6.
Listasafn Einars Jónssonar: Opið laug-
ardaga og sunnudag kl. 14–17.
Listasafn Reykjavíkur – Ásmundar-
safn: Listin meðal fólksins. Til 31. des.
Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús:
Íslensk samtímalist. Til 11.8.
Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalsstað-
ir: Sumarsýning.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Ljóða-
og höggmyndasýning. Til 30.6.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur: Blaða-
ljósmyndir 1965–75. Til 1.9.
Mokkakaffi: Aaron Mitchell. Til 9.7.
Norræna húsið: Siri Derkert. Til 11.8.
LiST með LyST – yndi fyrir augað og
borðið. Til 25.8.
Nýlistasafnið: Hollenski listamaðurinn
Aernout Mik. Til 30.6.
Safnasafnið, Eyjafirði: Sigríður
Ágústsdóttir, leirlistaverk. Til 12.7
Sjóminjasafn Íslands: Jón Gunnarsson.
Til 1.7.
Skálholtsskóli: Kristín Geirsdóttir. Til
1.7.
Þjóðarbókhlaða: Yfirlitssýning á verk-
um Halldórs Laxness. Til 31. des.
Þjóðmenningarhúsið: Landafundir og
ragnarök. Bókmenntir Íslendinga í
Vesturheimi. Til ágústloka.
Upplýsingamiðstöð myndlistar:
www.umm.is undir Fréttir.
TÓNLIST
Sunnudagur
Norræna húsið: Lokatónleikarnir í nor-
rænni tónleikaröð Camerarctica. Á efn-
isskránni eru verk eftir Carl Nielsen,
Niels Gade, Øistein Sommerfeldt,
Sveinbjörn Sveinbjörnsson og Jón
Leifs. Flytjendur eru Örn Magnússon
píanóleikari og Camerarctica: Hallfríð-
ur Ólafsdóttir flautuleikari, Ármann
Helgason klarinettuleikari, Hildigunn-
ur Halldórsdóttir fiðluleikari, Sigurlaug
Eðvaldsdóttir fiðluleikari, Guðmundur
Kristmundsson víóluleikari og Sigurður
Halldórsson sellóleikari.
Tónleikarnir hefjast klukkan 14.00.
LEIKLIST
Hafnarfjarðarleikhúsið: Sellófón: mið.,
fim., fös.
Loftkastalinn: El Prumpos Pissos: fös.
Upplýsingar um listviðburði sem óskað
er eftir að birtar verði í þessum dálki
verða að hafa borist bréflega eða í
tölvupósti fyrir kl. 16 á miðvikudögum
merktar: Morgunblaðið, menning/listir,
Kringlunni 1, 103 Rvík. Myndsendir:
5691222. Netfang: menning@mbl.is.
MENNING
LISTIR
N Æ S T U V I K U
Eitt af verkum listakonunnar Siri Derk-
ert á sýningunni í Norræna húsinu.