Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 23.11.2002, Qupperneq 3

Lesbók Morgunblaðsins - 23.11.2002, Qupperneq 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 23. NÓVEMBER 2002 3 M EÐAL þess sem mest var býsnast yfir um miðbik nóvember- mánaðar árið 2002 var að málverkum í eigu Búnaðarbanka og Landsbanka skyldi ekki skotið undan áð- ur en ríkið seldi þá. Nokkrir þingmenn og all- stór hópur fólks sem fjallaði um málið í fjöl- miðlum lét að því liggja að þetta væri reginhneyksli. Ég veit lítið um málverk og enn minna um einkavæðingu á bönkum og ætla þess vegna ekki að dæma um hvort betra hefði verið að bankarnir losuðu sig við einhver listaverk áð- ur en þeir voru keyptir. Ég ímynda mér þó að það væri heldur leiðinlegt fyrir starfsfólk og viðskiptavini ef myndir sem hangið hafa uppi í húsakynnum bankanna hyrfu þaðan nú þeg- ar þeir skipta um eigendur. En þetta er ekki viðfangsefni mitt hér heldur hugmyndir um ríkisvald og ríkisfyrirtæki sem fram komu í máli þeirra sem stórorðastir voru um mál- verk bankanna. Nokkrir sögðu blákalt að málverkin hefðu verið eign allra landsmanna og nú væru þeir sviptir þessari eign sinni. Einnig var fullyrt að tryggja bæri að almenningur gæti notið listaverkanna og til þess yrðu þau áfram að vera í eigu ríkisins eða stofnana þess. Þeir sem lengst gengu létu að því liggja að hvað- eina sem ríkið á sé til sameiginlegrar ráðstöf- unar fyrir alla landsmenn og ævinlega notað í almannaþágu. Fólk ætti þó að vita að engin þessara fullyrðinga nær því einu sinni að vera hálfsannleikur. Víst má til sanns vegar færa að eigur rík- isins tilheyri landsmönnum sameiginlega með einhverjum hætti. En þær eru ekki sam- eign í skilningi eignaréttar. Landsmenn eiga ríkisfyrirtæki ekki saman á þann hátt sem nokkrir menn geta átt t.d. bát eða hjón geta átt íbúð og innbú í sameiningu. Þeir sem eiga eitthvað í skilningi eignaréttar mega jafnan ráðstafa því, nota það, selja, leigja, lána, gefa, veðsetja, eftirláta erfingjum og njóta full- tingis lögreglu og dómstóla ef aðrir meina þeim að njóta þessara réttinda (t.d. með því að spilla eignum eða stela þeim). Sé mönnum fátt eða ekkert af þessu heimilt er ástæða til að vefengja að um raunverulegan eignarétt sé að ræða. Fallist menn á þennan skilning á eignarétti þarf varla að rökstyðja sérstaklega að eigur ríkisfyrirtækja eru ekki eign allra landsmanna í bókstaflegri merkingu. Ég get engan veginn haldið því fram að ég eigi brot af húsbúnaði Landspítalans eða munum Þjóðminjasafnsins nema ég noti sögnina að eiga um eitthvað annað en venju- legan eignarrétt. Með þessu er ég alls ekki að segja að það sé rangt að nota þetta orð um annað en eignarrétt. Það er oft gert, t.d. þeg- ar sagt er að börn eigi foreldra eða að Íslend- ingar eigi merkar bókmenntir. Þegar sagt er að landsmenn eigi ríkisstofnanir er sögnin að eiga líka notuð um annað en eiginlegan eigna- rétt. Það sem átt er við er líklega eitthvað í þá veru að: Æðstu yfirmenn ríkisstofnana eru ráðherrar í ríkisstjórn sem þjóðkjörið þing hefur samþykkt; Flestar ríkisstofnanir starfa samkvæmt lögum sem eiga að tryggja að þær þjóni almannahag; Samhugur lands- manna og tilfinning fyrir sameiginlegu þjóð- erni tengist ríkinu og stofnunum þess á ýmsa vegu. Allt er þetta merkilegt og mikilsvert en ekkert af þessu gefur samt tilefni til að ætla að málverk í eigu hlutafélags, þar sem ríkið á meira en helmings hlut, séu sameign allra landsmanna í skilningi eignarréttar. Ef þau tilheyra allri þjóðinni þá tilheyra þau henni eins og hver önnur menningarverðmæti sem ýmist eru ekki háð eignarrétti (tungumál, siðir, þjóðlög, þjóðsögur, gamlar bókmenntir) eða eru í eigu einstaklinga (höfundaréttur á nýlegum hugverkum, merkar byggingar, málverk o.fl.) eða hins opinbera (t.d. verk á ýmsum söfnum í eigu ríkis og sveitarfélaga). Þeir sem álíta að almenningur eigi eigur ríkisstofnana virðast, a.m.k. sumir, hugsa sem svo að almenningur eigi ríkið og þar með allt sem ríkið á. En þetta er álíka rökleysa og að halda að ef Nonni litli á stóra bróður og stóri bróðir á bíl þá eigi Nonni litli bílinn. Ríkið er ekki eign almennings í skilningi eignarréttar neitt frekar en stóri bróðir er eign Nonna litla. En væri réttur almennings til að njóta listaverka, sem nú eru í eigu ný- seldra banka, samt ekki betur tryggður ef þau væru seld eða gefin ríkisstofnun eins og t.d. Listasafni Íslands? Við þessari spurningu er ekkert einfalt svar. Eins og nú háttar eru sum af bestu listaverkum bankanna sýnileg almenningi sem heimsækir afgreiðslustaði þeirra. Sama má segja um verk í eigu rík- isrekinna menningarstofnana. Sum eru að- gengileg öllum, sum læst inni í geymslum. Þegar haldin er yfirlitssýning á verkum ein- hvers stórmeistara hanga jafnan hlið við hlið verk í opinberri eigu og verk í einkaeign sem lánuð eru til sýningarinnar. Svipað gildir þegar gefnar eru út listaverkabækur. Þær eru prýddar myndum af verkum í eigu ým- issa aðila. Hér hallast því lítt á. En þegar til langs tíma er litið er varðveisla mikilvægra listaverka trúlega best tryggð með því að þeim sé dreift nokkuð víða fremur en að einn aðili eigi þau flest eða öll. Sé bestu verkum stórmeistaranna safnað á einn stað getur slys eða voðaverk grandað þeim öllum í senn. Almenningur kýs fulltrúa á löggjaf- arsamkomu og í sveitarstjórnir. Lengra nær eiginlegt vald borgaranna yfir ríkinu ekki og það er hrein fjarstæða að hvaðeina sem gert er fyrir tilstuðlan ríkisvaldsins sé í allra þökk eða þágu. Í ríkisrekstrinum finnast ýmis skúmaskot þar sem klíkur hafa komið sér fyrir við kjötkatla sem flest venjulegt fólk fær aldrei að koma nærri. En jafnvel þótt slík spilling væri úr sögunni hlytu stofnanir rík- isins áfram að lúta sínum eigin lögmálum. Þær eru að miklu leyti undir stjórn embætt- ismanna og sérfræðinga og í flestum tilvikum er óhjákvæmilegt að reisa skorður við mögu- leikum almennra borgara á að hlutast til um rekstur þeirra eða ganga um þær eins og sína eigin eign. Það er því engan veginn augljóst að hver óbreyttur almúgamaður eigi þess betri kost að njóta listaverka sem ríkisfyr- irtæki eiga heldur en sams konar verka í eigu annarra fyrirtækja og stofnana. Ef ríkisstofnun eignast málverk, sem áður var í einkafyrirtæki, þá fer verkið úr einni stofnun, sem almenningur hefur eftir atvik- um greiðan eða ógreiðan aðgang að, í aðra stofnun þar sem almenningur hefur líka eftir atvikum takmarkaðan aðgang. Sé verkið í eigu banka getum við horft á það ef stjórn- endum bankans þóknast að setja það upp í af- greiðslu. Sé það hins vegar í herbergjum sem eru lokuð almenningi getum við ekki skoðað það. Sama gildir um verk sem Listasafn Ís- lands á. Ef stjórnendur safnsins láta setja það upp í sýningarsal þá getum við skoðað það að vild, annars ekki. Þó er munur hér á. Verk í afgreiðslusal banka getum við skoðað endurgjaldslaust en við þurfum að greiða að- gangseyri að listasafninu. Málverkið í bank- anum mætir augum fólks í daglegu amstri sem notar hádegishlé og kaffitíma til að skreppa með reikninga eða sinna öðrum er- indum. Það á sinn þátt í að leysa daglegt líf úr álögum lágkúrulegs hversdagsleika. Flest listasöfn standa því miður einhvern veginn til hliðar við vettvang dagsins og fjær því mann- lífi sem mest þarf á listrænum töfrum að halda. MÁLVERK BANKANNA RABB A T L I H A R Ð A R S O N atli@simnet.is LESBOK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING LISTIR 4 5 . T Ö L U B L A Ð - 7 7 . Á R G A N G U R Hvíldarlaus ferð inní drauminn nefnist smásaga eftir Matthías Johannessen sem var umræðuefni á ritþingi Matthíasar sem nýlega fór fram en í sögunni er fjallað um persónu sem liggur milli svefns og vöku og upplifir sig sem öskutunnuna sem verið er að tæma úr í öskubílinn fyrir utan gluggann. Söguna kvað Matthías öðrum þræði ævisögulega á þinginu. Verslunarmiðstöðvar hafa verið að breyta borgarlífinu hérlendis sem erlendis undanfarna áratugi. Úlfhildur Dagsdóttir fjallar um þróun og áhrif versl- unarmiðstöðva og spyr meðal annars hvort verslunarmiðstöðvar séu að koma í stað borga. Hvað eru góðar bókmenntir? er spurning sem hægt er að svara með ýms- um hætti. Í næstu þremur Lesbókum munu þrír höfundar gefa sitt svar, Þorsteinn Gylfason, Steinunn Sigurðardóttir og Ást- ráður Eysteinsson sem ríður á vaðið í dag. Sigvard Bernadotte var sænskur hönn- uður og prins en hann lést í febrúar síðastliðnum. Dagný Heiðdal fjallar um hönnun Sigvards sem var brautryðj- andi á mörgum sviðum og höf- undur margra hluta sem fólk höndlar daglega. ÍSAK HARÐARSON VIÐ ORÐFOSSA Alltaf magnast drunurnar í Orðfossum. Við stöndum á brúninni, heilluð af blaðrandi þvaðri, innantómum upplýsingum: upphrópunum beljandi zzzzzzzz- kvaldursins. Fjú, hér er kúl að vera! Úðinn myndar hjúp um höfuð okkar eins og visku: VIÐ erum þau upplýstu, þau sem vita best hvað er IN, vita allt um allt sem er að gerast og hvar, maður, HVAR! Mmm, Orðfossar, Orðfossar! Bara að ég gæti orðið einn af stjarnglitrandi dropum ykkar; þáttarstjórnandi, ritstjóri, gáfumenni einn af skráþurrum og skrælnandi dropum ykkar. Ísak Harðarson (f. 1956) hefur gefið út fjölda ljóðabóka, smásögur og skáld- sögu, auk þýðinga og annars. Ljóðið Við Orðfossa er úr nýrri ljóðabók Ísaks er nefnist Hjörturinn skiptir um dvalarstað. FORSÍÐUMYNDIN er tekin í Palestínu og er meðal mynda á sýningu Þorkels Þorkelssonar í Listasafni ASÍ sem hefst í dag. Ljósmyndari: Þorkell Þorkelsson. EFNI

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.