Pressan - 17.11.1988, Síða 2

Pressan - 17.11.1988, Síða 2
2 Fihnrtitíjdáðu'r'17. rKWe'mber'l'908 ENGLAR ÞRÁ MIG Jón Óskar opnaði sýningu á verk- um sínum í Gallerí Svörtu á hvítu á laugardaginn var. Þar var margt góðra gesta eins og fram kemur hér á myndum Helgu Vilhelms- dóttur, Ijósmyndara blaðsins. Sem fyrr er Jón Óskar upptekinn af manninum og upphafningu hans, andlegri nekt goðsögulegrar ímyndar, sem /istamaðurinn stœkkar og steypir yfir áhorfand- ann af gríðar/egum krafti. Um leið er skyggnst undir yfirborð ímyndar og upphafningar og hvort tveggja afhjúpað með af- gerandi hætti. lýr varaformaður tekur við á þingi Alþýðuflokksins um heigina, ef svo fer að Jólianna Siguróardótl- ir gefi ekki kost á sér til endurkjörs. Kratar eru reyndar margir efins um að hún hætti, en á meðan óvissan ríkir eru þeir knúðir til að finna arf- taka úr röðum kvenna í flokknum. Tvær hafa verið nefndar, Rannveig Guðinundsdóttir, aðstoðarmaður Jóhönnu í félagsmálaráðuneytinu, og Jóna Ósk Guðjónsdóttir, forseti bæjarstjórnar í Hafnarfirði... I Iþýðublaðið og hjóðviljinn voru ansi samstiga í fréttaflutningi sínum í gær. Blöðin birtu bæði grein um atvinnumál fatlaðra — og undir sömu lyrirsögninni: Sam- drátturinn bitnar á fötluðum. Tím- inn bætti svo um betur með því að birta mynd af Ijósmyndara og blaðamanni Alþýðublaðsins á for- síðu blaðsins við þessa sömu frétt: Það er því synd að segja að sam- vinna málgagna stjórnarflokkanna sé ekki eins og best verður á kosið... Tvenn hjón að stinga saman nefjum, Hulda Hákon og Jón Óskar annars vegar, hins vegar Halldór Björn Runólfsson listfræðingur og kona hans Margrét Auðuns, kennari og myndlistarmaður. Hulda Hákon, myndlistarkona og eiginkona sýnandans, tyllir sér á tá og skimar yfir höfuð skáldsins og rokkarans Sjóns og spúsu hans, Rögnu Sigurðardóttur. Bjarni Þórarinsson, myndlistarmaður og sjón- háttafræðingur, skyggnist um gættir undir ógnvænlegum haus sem gæti verið Stóri bróð- ir. Foreldrar listamanns- ins, þau Ragnheiður Jónsdóttir grafiklista- kona og Hafsteinn Ingvarsson tannlæknir, spjalla við myndlistar- manninn með nafnið sem felur í sér upphaf og endi alls, Hring Jóhannesson. I baksýn má sjá Gest Þorgríms- son myndlistarmann og Þórunni Hafstein, deildarstjóra í mennta- málaráðuneytinu. Jón Óskar ræðir eitthvað rosalega merkilegt við Tómas Þorvaldsson, lögmann og sérfræðing i höfundar- rétti. Listamaðurinn sveiflar hend- inni fagurlega, orðum sínum til áhersluauka. Enn einn úr tjölskyldunni, að þessu sinni yngri bróðirinn Þorvar Haf- steinsson, einn af eigendum Mynd- bandagerðar Reykjavíkur, sem hér er á tali við Finnboga Pétursson myndlistarmann. Finnbogi opnaði einmitt sýningu síðastliöið laugar- dagskvöld í Gallerii Birgis Andrés- sonar á Vesturgötu 20. Finnbogi sýnir þar ,,hljóð-installation“. Geggjað verk sem berst manni upp úr pappahólkum. velkomin i heiminn! 1. Ásta Einarsdóttir og Sigurjón Vilhjálmsson eignuðust þessa dóttur þann 11. þessa mánaðar. Hún var 16 merkur að þyngd og 51 sentimetri aö lengd. Hér sést hún sofandi, dálitið búttuð í framan —■ það er hinsvegar velmegunar- merki og sætt i bland. 2. Ekki var þessi litla stúlka minna sofandi en sú sem fyrst er nefnd. Undarlegt hvað börn þurfa að sofa mikið. Rétt eftir að þau eru komin í heiminn og ættu að vera eins og landkönnuðirnir, sem forvitnin rak áfram á nýjar slóðir, á vit ævintýra. Kannski það sé bara ekkert ævintýralegt að fæðast i þennan heim lengur. Aðalheiður Þorbergsdóttir og Garðar Guö- mundsson eiga þessa dóttur, hún fæddist 9. nóvember, var 51 senti- metri að lengd og 14 merkur. < ,ri * v * •***, V . *$t&y 4. Klókindalega er augunum rennt til hliðar um leið og tungan kemur fram á varirnar. Umhugsunarfrest- ur. Hvað er að gerast? Dóttir þeirra Berglindar Finnbogadóttur og Ingibergs Árnasonar, sem fæddist þeim þann 10. þessa mánaðar, frekar litil og nett, 14 merkur og 49 sentimetrar. <4:./ >•.< -í> fr" Ú&LZ& : 5. Strákur. Feministarnir myndu segja að hann væri strax farinn að vera í strákaleik, opnar ekki augun heldur rekur út úr sér tunguna. Stráksskapur. — Stráksskapur er lika svo skemmtilegur. Foreldr- arnir eru Arndís Þórðardóttir og Magnús Guöni Emanúelsson. Drengurinn var 49 sentimetrar og 121/2 mörk að þyngd og fæddist 11. nóvember. 3. Friðsemdin, róin, öryggið. Ekk- ert í heimi getur raskað þessu ástandi. Þetta er dóttir þeirra Sjafnar Helgadóttur Bachmann og Elíasar Guðmundssonar. Fædd 10. nóvember, var 16 merkur og 53 sentimetrar. Hún á fimm ára stóra bróður sem heitir Þór eins og ásinn forðum. Sá gat reyndar rofið friðinn... Pressan minnir alla nýbakaða foreldra á að þeir geta fengið birta mynd af barninu sínu í blaðinu, ef þeir senda okkur Ijós- mynd. Heimilisfangið er: PRESSAN, Armúla 36, 108 Reykjavík.

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.