Pressan - 17.11.1988, Blaðsíða 4

Pressan - 17.11.1988, Blaðsíða 4
4 Fimmtudagur 17. nóvember 1988 litilræði Af mánudegi Líf mitt er afar fjölbreytilegt og litríkt. Aldrei dauöur punktur. Ekki einusinni þegar ég _sef, hvaöþá eftir að ég er vaknaður. Ég hef grun um aö lífið og tilveran sé ósköp fábreytileg hjá mörgum samborgara minna, þetta sé endalaust sama jukkiö og juöiö frádegi til dags: vakna, éta, vinna, gera do-do og sofna. Þaö er nú eitthvaö annað hérna megin. Hvert andartak fyrirboöi, vettvangur eöa eftirköst stórtíðindaog stundum allt í sömu andránni. Mikil ósköp. Ef ég skynja aö tíðindalaust sé aö veröa í stórbrotnu lífi mínu verö ég ekki mönnum sinnandi og reyni þá, einsog venjulegt fólk, aö flýja í draumaland sjónvarps og kvik- mynda. Og í sporum aöalpersónunnar upp- lifi ég lífsháska, drýgi dáöir, djamma og dufla. Ég upplifi óskadraum samtíöarinnar um eftirsóknarvert mannlíf. Á þessum Ijúfu stundum erég venjulega grár fyrir járnum, með vélbyssu fretandi í allar áttir til aö freista þess aö drepa sem flesta í sem fæstum skotum, eðaþá meö skammbyssu í hulstri viö hjartastað í hópi fagurra kvenna nakinna aö ööru leyti en því aö þær eru meö mjóan mittislinda og segl- garnsspotta gegnum klobbann. Seglgarns- spottinn á víst aö hylja til málamynda rassinn og smánina. Og varla líður svo andartak að ekki sé drepinn maður eöa tveir, stundum margir í einu, og sjálf höfuðpersónan í tíma og ótíma veltandi sérsauödrukkin milli rekkju- voðanna í rókokkórúmi meö berrössuðum og fláráöum konum og sjampein í fötu við höföalagiö. Stundum hugsa ég sem svo, þegar ég er aö horfa á Dallas, Dynasty, Rambó eða James Bond. — Það er bara aldrei neitt aö ske hjá þessu fólki. Þaö er vegna þess aö fjölbreytni míns eigin lífs eru engin takmörk sett. Þó get ég ekki neitað því aö einn dagur vikunnar er mig oft alveg lifandi aö drepa. Rétt til getið, einmitt mánudagurinn. Mánudagurtil mæðu var einhverntímann sagt og síöan hefur þetta verið haft fyrir satt. Hvaö mig áhrærir er þetta staðreynd og hefur löngum verið. Hafiö þiö tekiö eftir því, góöir hálsar, aö þegar maður er haldinn fýlu, lunta og leið- indum lætur maður þaö strax — að hætti Guðrúnar Ósvífursdóttur — bitna á þeim sem maöur elskar mest? Mánudagar eru semsagt ekki skemmti- legir fyrir þá sem mér þykir vænst um, þaö er að segja ef þeir þurfa að veröa á vegi mínum. Ég er fréttafrík og mánudagshörmung- arnar hefjast á því að á mánudögum koma engin morgunblöð. Og ég er ekki mönnum sinnandi útaf því aö fá ekki á prenti síöustu gleðitíðindin frá Beirút í Líbanon, írak, Iran, Palestínu, Pakistan, fjárlagahallanum eöa Hafskip. A mánudagsmorgnum læt ég stúlkuna í 02 vekja mig kl. 7.00 til aö vera viss um aö missa ekki af fréttaúrdrættinum kl. 7.30. Síðan hlusta ég á sömu fréttirnar kl. 8.00, kl. 9.00, kl. 10.00 og kl. 12.20. Síðasta kortérið af matartímanum nota ég svo til aö hreyta ónotum í þá sem ég næ til, af þeim sem mér finnst vænst um. Eftirmat ferég svo í sérstakt bakarí hérna vesturí bæ, sem sérhæfir sig í því að hafa hvorki mjólk, rjóma, brauð né bakkelsi á mánudögum. Þetta geri ég til aö fá tækifæri til aö tuöa og rífast viö afgreiðslustúlkurnar í bakaríinu og fæ extra kikk útúr því aö ausa úr fýlu- pokanum yfir þær af því ég elska þær í raun og veru útaf lífinu. DV er eina dagblaöiö sem kemur út á mánudögum og biðin eftir því óborganlegt tilefni til að vera í svartnættisfýlu. Ég hringi venjulega nokkrum sinnum á mánudögum á afgreiðslu DV og tek svo til orða: — Ætlið þiö ekki að drulla þessum snepli til mín fyrir áramót? Ég hef alveg sérstaka ástæöu til aö vera andstyggilegur viö stúlkuna sem verður fyrir svörum, því hún er svo elskuleg að ég er farinn aö unna henni hugástum. Hún svarar alltaf því sama: — Fyrirgeföu vinur. Ég skal bara senda þér blaðið strax. Hún gerir þaö auðvitaö aldrei, enda þarf hún þess ekki, því þegar ég fer útá tröppur til aö kæla mig hitti ég lítinn snáða eða stelpuhnokka sem rogast milli húsa meö þunga blaðabyrði og sultardropa á nefinu. Og mig langar mest til aö taka litlu greyin í fangið, kyssa þau á kinnina og segja eitt- hvaö reglulega fallegt, en kann ekki við þaö, því þaö gæti sést til mín. Og þessadaganaerekki í tísku aö látavel aö krökkum. Og sem ég hef fengið mánudagsdévaffiö færist yfir mig einhver friöþægingarró. Ég nýt til fullnustu þeirrar tilfinningar að öðlast á ný hlutdeild i stórtíðindum heims- kringlunnar, skynja öran æðaslátt og hrær- ingar samtíðarinnar og nema af síöum blaðsins það helsta sem mæöir á mann- kyninu og minni þjóö. Knúinn sannleikshungri og fréttaþorsta sökkvi ég mér niðurí lesninguna: Geithafur ræöst á rjúpnaskyttu. Bordeaux hefur keypt Jesper Olsen af Manchester United. Rauövínsbelgur klessukeyrir bíl rall- manna. Gul Mohammad segist þurfa konu af eðli- legri stærð. Mikið um sjaldséða fugla á Djúpavogi. Sean Penn heldur villt og galið framhjá Madonnu. Minkar beittir brögðum. Unnusta Rambós með sílikon í brjóst- unum. Loftmengun á lögreglustöðinni á ísafiröi. Og sálarheiII minni er borgið. Ég finn aö ég hef enn á ný eignast hlut- deild í lífinu og tilverunni. PRESSU MOLAR c ^^tarfsmönnum á Hótel Islandi þótti víst Kini Larsen ákaflega erfiður viðureignar og óstýrlátur mjög. Tvívegis gekk hann út afsvið- inu í upphafi tónleika vegna þess að tónleikagestum var ekki heimilt að komast á dansgólfið meðan á tón- leikunum stóð. Þegar aðeins tvenn- ir tónleikar voru eftir náðist loks samkomulag við Kim á fundi sem haldinn var á Hótel Borg, þar sem hann féllst á að halda dansgólfinu lokuðu fyrri helming tónleikanna. Hótel ísland var komið í vond mál vegna þessa, þar sem Kim Larsen hvatti gesti til að koma upp að svið- inu og byrgðu þeir matargestum þar með sýn. Varð það til þess að fjöl- margir tónleikagestir kröfðust end- urgreiðslu á miðunum, en Hótel ís- lands-menn gátu forðast skaða- bótamál með því að bjóða flestum þeirra ókeypis á rokkkvöldin, sem nú ganga á skemmtistaðnum, svona í sárabætur. Mun hótelið þó hafa borið talsverðan skaða af þessu öllu, enda er sagt að endurgreiðslu- kröfurnar hafi samanlagt numið a.m.k. 400 þúsundum króna... c ^^íðustu árin hefur helsta lausn- arorðið í Háskóla íslands verið: Að efla tengslin við atvinnulífið. Það hefur auðvitað legið í augum uppi að stúdentar í ýmsum raunvísind- um gætu lagt atvinnulífinu lið, en kannski liafa menn ekki verið jafn- trúaðir á að nokkurt gagn væri i nemum í heimspekideild. Sú hug- mynd hefur nefnilega vaknað að í stað ritgerðasmíðar sé nemendum í bókmenntafræði heimilt að þýða fræðigreinar undir handleiðslu kennara. Með í kaupunum fylgir að ekki verði bara þýtt eitthvað út í blá- inn, heldur er ætlunin að hinar þýddu bókmenntafræðigreinar komi á prent í samstarfi við Mál og menningu. Eldri og íhaldssamari kennarar munu þó ekki allir vera jafnhrifnir af þeirri tilhugsun að stúdentar losni með þessu móti undan þroskandi ritgerðasmíð.... f ■ yrir nokkrum árum var tölu- vert rætt um bágan rekstur Síldar- vinnslunnari Neskaupstað. Athygli hefur vakið, að nú á tímum harma- kveinsfrétta heyrist lítið austan úr Litlu-Moskvu. Kunnugir segja ástæðuna einfaldlega þá, að með góðri verkstjórn Finnhoga Jóns- sonar forstjóra hafi tekist að kom- ast út úr ógöngunum. Síldar- vinnslan, sem þriðja stærsta fyrir- tæki i sjávarútvegi á íslandi, hefur margþættan rekstur. Fyrirtækið á þrjá togara, bræðslu, tvö stór loðnuskip, saltfiskverkun og frysti- hús. Árið 1986 skilaði reksturinn 40 milljóna króna hagnaði og í fyrra var hann um 80 milljónir. Það sem af er árinu er talið að reksturinn í heild sé í nokkuð góðu jafnvægi, ekki síst vegna afkomu bræðslunn- ar. í dag benda Norðfirðiugar einn- ig á með nokkru stolti, að þeir hafi ekki látið góðæri fara til spillis, heldur nýtt það sem kostur var til mögru áranna... þ_ um síaukin umsvif Eimskipafélags- ins. Gamansamur Iesandi hafði samband við Pressuna í framhaldi af grein blaðsins um veldi Eim- skips. Hann vildi einfaldlega benda okkur á að ekki þyrfti að breyta nafni félagsins mikið til að það hæfði umfanginu. Nei, það þyrfti bara að setja eitt lítið H framan við nafnið og útkoman yrði Heiin...

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.