Pressan - 17.11.1988, Qupperneq 8
8
Fimmtudagur 17. nóvember 1988
PRESSÁM
VIKUBLAÐ Á FIMMTUDÖGUM
Útgefandi Blað hf.
Framkvæmdastjóri Hákon Hákonanson
Ritstjóri Jónína Leósdóttir
Fréttastjóri Ómar Friðriksson
Auglýsingastjóri Hinrik Gunnar Hilmarsson
Ritstjórn og skrifstofur: Ármúla 38, sími: 68 18 66. Auglýsingasími: 6818 66. Áskrift og dreifing: Ármúla 38, sími 6818 66. Setning og umbrot: Filmurog prent. Prentun: Blaðaprent hf. Áskriftargjald: 400 kr. á mánuði. Áskriftargjald: Pressan og Alþýðu- blaðið: 800 kr. á mánuði. Verð i lausasölu: 100 kr. eintakið.
Hafskipskærur og alþingi
Sakamálið vegna gjaldþrots Hafskips og Útvegsbankans
gamla verður þýðingarmikið prófmál yfir pólitískum afskipt-
um af verkefnum framkvæmdavaldsins. Meðal ákærðra eru
fjórir fyrrverandi fulltrúar alþingis í bankaráði Útvegsbank-
ans og einn núverandi þingmaður.
Bankaráðsmennirnir eru sakaðir um vanrækslu við yfir-
stjórn bankans og við eftirlit með starfsemi hans. Alþingis-
menn velja sjálfa sig eða pólitíska fylgisveina sína til að sitja
yfir ríkisbönkunum og verði hinir ákærðu bankaráðsmenn
fundnir sekir um ákæruatriðin er það um Ieið þungur áfellis-
dómur yfir þinginu.
Þegar alþingismenn greiða atkvæði um það hvort þing-
maður skuli sviptur þinghelgi vegna ákæru um saknæma
vanrækslu í starfi sínu sem kjörinn fulltrúi þingsins verða þeir
jafnframt minntir á að þingmenn eiga að sinna Iöggjafar-
störfuin en ekki pota sér í nefndir, stjórnir og ráð yfir bönk-
um og sjóðum framkvæmdavaldsins. Yfirstjórn og eftirlit
með bönkum og sjóðum eru verkefni fagmanna, ekki þing-
manna í fyrirgreiðslupólitík.
Hafskipskærurnar hafa enn á ný valdið því að árásir eru
gerðar að hlut fjölmiðla. Fréttir af ákærum saksóknara hafa
þó í alla staði verið eðlilegar. Ákærur í slíku stórmáli verða
ekki þaggaðar niður og ekki er við fjölmiðla að sakast þótt
trúnaðarupplýsingar Ieki til fréttamanna. Fjölmiðlar eru
valdastofnun sem hefur jafnþýðingarmiklum störfum að
gegna og aðrir valdatindar þjóðfélagsins.
Hafskipsmálið er ekki bara gjaldþrot aldarinnar. Haf-
skipsmálið er einn þyngsti dómur sem fallið hefur yfir fyrir-
greiðsluafskiptuin stjórnmálamanna. Hafskipsmálið er köld
áminning um mikilvægi þeirrar aldagömlu reglu að þing-
mönnum ber að virða landamæri löggjafarvalds og fram-
kvæmdavalds. Hafskipsmálið hefur betur en nokkurt annað
mál sýnt hversu þýðingarmikið það er að fréttamenn njóti
sjálfstæðis í starfi. Það hefur lýst upp brestina í stjórnkerfinu
og flett ofan af forneskjuhræsni í garð fjölmiðla.
Tökum okkur of hátíðlega
Það er mikill galli við okkur íslendinga hvað við erum upp
til hópa hátíðleg og lítum lífið alvarlegum augum. (Þeim, sem
eru ósammála þessari fullyrðingu, er bent á að líta í bak-
spegilinn í bílnum sínum næst þegar þeir stoppa á rauðu ljósi.
Það má mikið vera ef andlit fólksins í bifreiðinni fyrir aftan
eru ekki drunginn uppmálaður.) Af einhverjum ástæðum
virðumst við nefnilega setja jafnaðarmerki á milli léttleika og
léttúðar (sem er þó náttúrulega allt annar handleggur), hlát-
urs og heimsku. Þess vegna setjum við upp grafalvarlega
gáfumannssvipinn við öll hugsanleg tækifæri — ekki síst,
þegar myndavél er otað að okkur, eins og sjá má í fjölmiðl-
um. Við erum svo hrædd um að fólk fái þá hugmynd að við
séum einhverjir galgopar, sem ekkert mark er takandi á.
í þessu tölublaði PRESSUNNAR er viðtal við Stefán Frið-
finnsson, aðstoðarmann utanríkisráðherra. Þar fer hæfi-
leikaríkur maður, sem náð hefur langt í lífinu og er kominn
í mikilvæga áhrifastöðu. í hans sporum hefðu margir sett sig
í landsföðurlegar stellingar og talað af þunga um landsins
gagn og nauðsynjar, án þess að slá nokkru sinni á létta
strengi. Það á ekki við um þetta skemmtilega viðtal við
Stefán. Hann hikar ekki við að gera góðlátlegt grín að sjálf-
um sér og þjóðinni allri og fyrir vikið verður þetta einkar
ánægjuleg lesning, sem maður meðtekur með bros á vör. Það
er gaman að kynnast fólki, sem tekur sjálft sig og tilveruna
ekki alltof alvarlega. Við þyrftum að eiga meira af því hér á
íslandi.
Kommúnistabaninn
„Spegill, spegill, herm þú mér!
Hvers ímynd er fegurst í landi hér.
Spegill, spegill, herm þú mér.
Hvert lítur sá maður sem ekkert sér?
Spegill, spegil/, — hérna, segð’eins og er.
Skóp sjónvarpið söguna af mér?“
hin pressan
„Sigur, tap, jafntefli og bið-
stték”
— Fyrirsögn í Tímanum um frammi-
stöðu íslensku ólympiuskáksveitar-
innar i 2. umferð skákmótsins.
„En það getur tekið langan tíma
að græða sárin eftir rikisstjórn
Þorsteins og co. Og margar beisk-
ar blöndur þarf að byrgja áður en
íslenska þjóðin nær sér eftir hina
skæðu hægri pest.”
— Einar Ingvi Magnússon i lesenda-
bréfi i DV.
„Ég kom til íslands fyrst og
fremst til þess aö græða peninga.
Hagkerfið í Svíþjóð styður ekkert
nema fullkomið jafnrétti þannig
að þér finnst þú brjóta af þér meö
þvi aö vinna mikið og eignast pen-
inga.”
— Björn Törnquist, landflótta Svii, i
viðtali í DV.
„Mér kemur mest á óvart aö
ekki skuli vera gerður greinar-
munur á góðri trú og vísvitandi
rangfærslum.”
— Ragnar Kjartansson, fyrrv. stjórnar-
formaóur og framkvæmdastjóri Haf-
skips, i DV um ákærurnar'i Hafskips-
málinu.
„Þetta var ekkert — eins og að
bakka á bil.”
— Hálfdán Ingólfsson flugmaður i DV
eftir að framhjólabúnaður flugvélar
sem hann stýrði gaf sig og vélin
stakkst á nefið i flugtaki.
„Ég held að þeirra mein sé inn-
anmein. Það brýst oft út í hinum
furðulegustu myndum.”
— Steingrímur Hermannsson um
Sjálfstæðisflokkinn i viðtali við Al-
þýðublaðiö.
„Það er Ijóst að ég mun sjálfur
mæla með þvi að ég fái sömu
meöhöndlun og aðrir sem sátu
með mér í bankaráðinu.”
— Jóhann Einvarðsson alþingismað-
ur I Morgunblaðinu um ákærur vegna
Hafskipsmálsins.
„Eins og flestum er kunnugt
ríkir nokkur samkeppni á milli
Stöðvar 2 og Ríkissjónvarpsins
og sýnist sitt hverjum.,#
— Ragnheiður Daviðsdóttir i viðtali sinu I Mannlifi við Ólaf H. Jónsson.
„Við leituðum til
sérfróðra manna
um þetta og svo
kemur í Ijós að
útreikningar þeirra
standast ekki og mér
er kennt um allt
saman”
— Guðjón B. Ólafsson i Þjóöviljanum
vegna kostnaðar við Kirkjusand, sem
kominn er 20% fram úr áætlun.
„Þaö er ekki nokkur maður svo
bláeygur að halda aö þaö sé nægj-
anlegt aö gera einhverjar skipu-
lagsbreytingar á Sjálfstæðis-
flokknum til þess að hann endur-
heimti aftur sinn fyrri styrk.”
— Guömundur Magnússon I samtali
við Morgunblaðió, en hann var ráðinn
til að sjá um skipulagsbreytingar á
flokknum.
„Ég hef tröllatrú á þessu stjórn-
arsamstarfi. Eftir að viö komum
vitinu fyrir Aldi-fyrirtækið í Þýska-
landi held ég að hægt sé að koma
vitinu fyrir alla.”
— Jón Baldvin Hannibalsson utanrík-
isráðherra i DV.