Pressan - 17.11.1988, Síða 9

Pressan - 17.11.1988, Síða 9
Fimmtudagur 17. nóvember 1988 9 Hafskipsmálið ALBERT ER EKKI SLOPPINN Jónatan hefur ákært fleiri starfsmenn Hafskips en Hallvarður Einvarðsson gerði, en fækkað ákæruatrið- um, og hann virðist ætla að láta reyna meira en Hall- varður á ábyrgð bankaráðsmanna Útvegsbankans. í Hafskipsmálinu, einhverju umfangsmesta sakamáli fyrr og jafnvel síðar, virðist stjórn Hafskips, kjörnir fulltrú- ar eigenda fyrirtækisins, ætla að sleppa við að bera ábyrgð á gjörðum undirmanna sinna og gildir það ekki síst um Albert Guðmundsson, fyrrum stjórnarformann Hafskips, bankaráðsformann Utvegsbankans og fjár- málaráðherra. Ýmsir hafa velt því fyrir sér hvers vegna Albert Guðmundsson er ekki ákærður af Jónatan Þórmunds- syni. Fjölmiðlar, ekki síst Halldór Halldórsson, hafa ítrekaðgreint frá greiðslum til Alberts Guðmunds- sonar af svokölluðum leynireikn- ingum Hafskips. Skattrannsóknar- stjóri hafði einkum 10 greiðslur til Alberts til rannsóknar; afsláttar- greiðslur, ferðakostnaðargreiðslur, gjaldeyrisgreiðslur og fleira. Greiðslur þessar voru ekki taldar fram til skatts af Albert. Afsláttar- greiðslurnar til Alberts, ferðakostn- aður vegna hans, greiðsla vegna farmflutninga Helenu Albertsdótt- ur og greiðsla sem annaðhvort rann til Alberts eða Björgólfs Guð- mundssonar, forstjóra Hafskips, námu samtals að núvirði um 1,6 milljónum króna á 5 ára tímabili, 1981 — 1985. Á tímabili stjórnar- formennsku Alberts í Hafskip og eftir það. VIÐTAKENDUR í GÓÐRI TRÚ Af þessum greiðslum munu 1,3 milljónir króna að núvirði hafa runnið til Alberts sjálfs eða einka- fyrirtækis hans (sem út af fyrir sig er hann sjálfur). Þeirra á meðal er fræg 117.000 króna greiðsla 1983 (núvirði 286 þúsund), flokkuð sem afsláttur, sem Albert fékk vegna flutninga á áfengi með Hafskip, en þá var Albert fjármálaráðherra sjálfur og um leið yfirmaður ÁTVR. í yfirheyrslum munu þeir Björgólf- ur Guðmundsson og Páll Bragi Kristjónsson hafa viðurkennt að fé þetta hafi verið notað til áfengis- kaupa þegar Albert bauð til mörg hundruð manna veislu í tilefni af 60 ára afmæli sínu í október 1983. Hafskip fjármagnaði einnig aðra „afmælisgjöf" til Alberts, ferð til Nice í Frakklandi, sem Albert fór aldrei. Ástæðan fyrir því að Albert er ekki ákærður nú fyrir að taka við þessum greiðslum úr leynireikning- um Hafskips er einfaldlega sú, að hann hefur borið því við að hann hafi tekið við fénu í góðri trú og ekki vitað að þeir væru ættaðir úr ólöglegum leynireikningum. Gegn slíkum framburði er ekki hægt að sanna að Albert hafi brotið af sér. Þannig sleppa fleiri viðtakendur við ákæru vegna skorts á sönnun- um. Til dæmis Kjartan Gunnars- son, framkvæmdastjóri Sjálfstæð- isflokksins, sem framseldi ávísun úr leynireikningi sem styrk til flokks- ins. Ekki vissi hann að féð væri illa ættað. ALBERT ER í HÖNDUM SKATTYFIRVALDA Albert er þó ekki sloppinn, þó hann fái ekki ákæru á sig nú. Fyrir liggur eftir rannsókn að greiðslurn- ar til Alberts voru ekki gefnar upp til skatts. Þessi angi málsins fór til skattrannsóknarstjóra og áfram rétta boðleið eftir því sem næst verður komist, en enn er málið óafgreitt. Ekki verður Albert heldur ákærður fyrir að hafa verið milli- göngumaður þegar Hafskip og Eimskip styrktu Guðmund J. Guð- mundsson í veikindum verkalýðs- foringjans. Guðmundur taldi „styrkinn" kominn frá sínum per- sónulega vini, Albert, og ekki verð- ur sannað að Albert hafi vitað af hvaða reikningum féð kom. í FRIÐRIK ÞÓR GUÐMUNDSSON ákæruskjali Jónatans er fjárhæð þessi tilgreind sem 120.000 krónur, að núvirði um 332.000 krónur. Samkvæmt ákæruskjalinu virðist Eimskip hafa endurgreitt Hafskip helming þessarar fjárhæðar en hin- ir ákærðu dregið sér. í þessu sam- bandi má rifja upp að Guðmundur endurgreiddi Albert 100.000 krónur (ásamt vöxtum) og hafa margir spurt í kjölfarið: Hvað varð af 20 þúsundunum sem á milli ber? Fékk einhver milligöngumaður þessa upphæð í „umboðslaun“? Hér verður ekki farið náið út í ákæruatriði á hendur starfsmönn- um Hafskips eða bankamönnun- um. Talið er víst að Jónatan Þór- mundsson telji þar aðeins upp ákæruatriði sem hann telur óyggj- andi, enda hefur ákæruatriðum fækkað frá því Hallvarður Ein- varðsson hafði málið með höndum. Til að mynda er talið að nú sé ákært vegna greiðslna úr leynireikningun- um þar sem beinlínis var reynt að fela tilganginn með greiðslunum, þær flokkaðar á rangan hátt. BRÚDKAUP, SUMARBÚSTAÐUR, TRYGGINGAR, BÍLL Saksóknari telur að forráðamenn Hafskips hafi vísvitandi blekkt hluthafa fyrirtækisins og Útvegs- bankann með rangfærslu skjala upp á hundruð milljóna króna. Þannig sýndi ársreikningurinn fyrir árið 1984 neikvæða eiginfjárstöðu upp á um 250 milljónir króna að núvirði, en raunveruleikinn var nei- kvæð eiginfjárstaða upp á ríflega 600 milljónir króna. Leynireikningana virðast for- ráðamennirnir hafa notað til mjög alvarlegs fjárdráttar, samkvæmt ákæruskjalinu. Nefna má umtals- verðar fjárhæðir sem þeir Björgólf- ur og Ragnar létu Hafskip greiða, en voru vextir af hlutabréfakaupum þeirra sjálfra. Um 45 þúsund að nú- virði voru vegna utanlandsferðar sonar Björgólfs. 37 þúsund fóru í hreinsun á teppum Björgólfs. 374 þúsund fóru í að greiða persónuleg- ar vátryggingar Björgólfs og fjöl- skyldu. 228 þúsund fóru i að greiða ferðakostnað manna tengdra Ragn- ari en fyrirtækinu óviðkomandi. 67 þúsund fóru í að greiða kostnað vegna brúðkaups dóttur Ragnars. 223 þúsund fóru í húsgögn til Ragn- ars og greiðslu á aðflutningsgjöld- um þeirra vegna. 42 þúsund fóru í viðgerð á sumarbústað Ragnars. 820 þúsund fóru í að borga upp i Chrysler New Yorker-bifreið Björg- ólfs. Og er þá fátt eitt talið af því sem Jónatan Þórmundsson telur þá forráðamenn Hafskips seka um. HVADMEÐ SÓL, KÓKOGDV? Veigamiklar spurningar hljóta að vakna um ábyrgð stjórnar Hafskips í þessu máli, kannski þó sérstaklega stjórnarformanns. Albert Guð- mundsson var stjórnarformaður Hafskips 1979 — 1983 (og stjórn- Hinn sögulegi aðalfundur Hafskips i júní 1985. Albert Guðmundsson i ræðustól, þá fjármálaráðherra, en ekki leng- ur stjórnarformaður fyrirtækisins né bankaráðsformaður Útvegsbankans. Til hægri frá honum er Friðrik Sophus- son, hluthafi, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og ráðherra til skamms tima, þá Ragnar Kjartansson stjórnarfor- maður, Björgólfur Guðmundsson forstjóri en lengst til vinstri á myndinni er Páll Bragi Kristjónsson, þáverandi framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Hafskips. Á borðum manna er ársskýrslan fræga. í henni var efna- hagsreikningur sem sýndi að núvirði um 250 milljóna króna neikvæða eiginfjárstöðu, en saksóknari telur nær lagi að tala um 600 milljónir króna. Of taldar eignir hér og vantaldar skuldir þar. Til dæmis þykir bókfært verð skipastóls- ins hafa verið ofmetið um 100 milljónir króna að núvirði. Allir eru saklausir þar til annað hefur verið sannað, en kunnugir telja að Jónatan Þórmundsson hafi aðeins tint það til í ákæruskjalið sem hann telur fullsannað... arformaður Útvegsbankans 1981 — 1983). Rannsóknin á ársreikn- ingum Hafskips nær einvörðungu til ársins 1984 og var það gert af hagkvæmnisástæðum vegna þess hve umfangsmikil rannsóknin yrði, enda skiptir ekki höfuðmáli með tilliti til refsinga hvort bókhalds- brot, fjárdráttur, skjalafals eða annað slíkt hefur átt sér stað í mörg ár eða eitt, refsingin þykir það þung. Árið 1984 var Ragnar Kjart- ansson tekinn við sem stjórnarfor- maður Hafskips. Aðrir í stjórn Hafskips á þessu örlagaríka ári voru: Ólafur B. Ól- afsson, útgerðarmaður í Miðnesi hf. og Keflavík hf., Sveinn R. Eyjólfs- son, stjórnarmaður í Frjálsri fjöl- miðlun hf. (DV) og Hilmi hf., Bjarni V. Magnússon i íslensku umboðssölunni, Davíð Scheving Tliorsteinsson, forstjóri í Sói hf., Smjörlíki hf. og víðar, Guðlaugur Bergmann, forstjóri i Karnabæ, Gunnar Þór Ólafsson í Fiskiðjunni hf., Hilmar Fenger, framkvæmda- stjóri Nathans og Olsens hf. og stjórnarmaður í Tollvörugeymsl- unni með meiru (tengdasonur Vil- hjálms Þórs fv. Seðlabankastjóra), Jón Helgi Guðmundsson í BYKO, Jón Snorrason I Húsasmiðjunni, Jónatan Einarsson, forstjóri hjá Einari Guðfinnssyni hf. á Bolung- arvík, Páll G. Jónsson, forstjóri Polaris, Sana og Sanitas, Pétur Björnsson, forstjóri Vífilfells hf. (Coca Cola), og Víðir Finnbogason í Teppalandi. ÞÁTTUR STJÓRNARINNAR í ÓSTJÓRNINNI Þetta eru þeir 14 stjórnendur og varastjórnendur Hafskips, sem töldust sérlegir fulltrúar og ábyrgð- armenn hluthafa á þessum tíma. Þetta eru þeir eigendur fyrirtækis- ins sem kjörnir voru til að stjórna fyrirtækinu af öðrum eigendum þess og þeir réðu því hvaða menn höfðu prókúru fyrir fyrirtækið. Áttu þeir að fylgjast með því að ráðnir framkvæmdastjórar færu að öllu leyti að lögum? Samkvæmt ákæru ríkissaksóknara gerði Ragn- ar Kjartansson stjórnarformaður það ekki og á að hafa tekið fullan þátt í sakarefnunum. Hvað þá þegar Albert Guð- mundsson var stjórnarformaður. Var hann ekki eins virkur og arftak- inn? Fyrir þremur árum lýsti Björg- vin Björgvinsson, fyrrverandi starfsmaður Hafskips í Bandaríkj- unum, afskiptaleysi stjórnar fyrri ára: „Stjórn Hafskips var mjög afskiptalítil. Þótt ég viti það ekki milliliðalaust, þá voru stjórnar- fundir meira formsatriði en raun- verulegur þáttur í rekstrinum, þannig að það má segja, að stjórnin eigi sinn þátt í þessari óstjórn." Sjálfur sagði Albert Guðmunds- son í viðtali í Helgarpóstinum síðla árs 1985, þegar hann var spurður hvort hann yrði ekki yfirheyrður sem fyrrverandi stjórnarformaður: „Ég var ekki eini stjórnarmaður- inn. Það hvílir ekkert minni ábyrgð, út af fyrir sig, á stjórninni í heild. Hvað með alla hina sem eru i stjórninni?“ BRAUT STJÓRNIN HLUTAFÉLAGALÖGIN? Stjórnarformaðurinn, Ragnar Kjartansson, virðist hins vegar alls ekki hafa verið afskiptalítill. Hvað með afganginn af stjórninni? Að sönnu er mjög mismunandi hve einstakar stjórnareiningar eru virkar við stjórn félaga. Stjórn fé- lags er þó almennt tengiliður við hluthafafund, hefur mikil völd og getur gefið framkvæmdastjórum fyrirmæli. Stjórnarmönnum ber skylda til að gæta hagsmuna félags- ins, en að öðru leyti er fjallað um hlutverk félagsstjórna í 52. grein hlutafélagalaga. Meginreglan er sú að stjórn félagsins er í höndum fé- lagsstjórnarinnar, en fylgir að öðru leyti fyrirmælum hluthafafundar. Stjórnunin er almennt fólgin í því að sjá um að skipulag félagsins og starfsemi séu jafnan i réttu og góðu horfi. Sé framkvæmdastjóri ráðinn fara félagsstjórn og framkvæmda- stjóri með stjórn félagsins. í lögun- um segir: „Hinn daglegi rekstur tekur ekki til ráðstafana, sem eru óvenjulegar cða mikilsháttar. Slíkar ráðstafanir getur framkvæmda- stjóri aðeins gert samkvæmt sér- stakri heimild frá félagsstjórn...“ Síðan segir: „Félagsstjórn skal annast um, að nægilegt eftirlit sé haft með bókhaldi og meðferð fjár- ntuna félagsins. Ef ráðinn er fram- kvæmdastjóri, skal hann sjá um, að bókhald félagsins sé fært í sam- ræmi við lög og venjur og meðferð eigna félagsins sé með tryggilegum hætti.“ í síðara tilvikinu bera báðir aðilarnir ábyrgð á rekstrinum, en stjórnin hefur það höfuðverkefni að gefa almenn og sérstök fyrir- mæli og hafa eftirlit með fram- kvæmdastjóra. FRÁ AFSKIPTALEYSI TIL ÁBYRGDAR Nú hafa bankastjórar og banka- ráðsmenn Útvegsbankans verið ákærðir fyrir stórfellda og ítrekaða vanrækslu og eftirlitsleysi sem op- inberir starfsmenn. Bankaráðs- mönnum er gefið að sök að hafa sýnt af sér „saknæma vanrækslu við yfirstjórn bankans og við eftirlit með starfsemi hans“, sem varðar við 141. grein hegningarlaga og ákvæða í lögum um Útvegsbank- ann. Ástæðan fyrir því að bankaráðs- menn eru ákærðir fyrir vanrækslu og eftirlitsleysi en ekki stjórnar- menn Hafskips er samkvæmt heim- ildum Pressunnar helst talin sú, að ákvæði laga um hlutafélög eru ekki eins ótvíræð og afgerandi og lög um opinbera starfsmenn hvað slíka ábyrgð varðar. Sem styður þá kenn- ingu að sérstakur saksóknari, Jón- atan Þórmundsson, sem vildi láta betur reyna á þessa ábyrgð en Hall- varður Einvarðsson, hafi almennt séð fellt niður þau fyrri ákæruatriði þar sem einhver vafi lék á sönnun- argildi. Lítt hefur reynt á lög um hlutafélög gagnvart ábyrgð félags- stjórnar, en lög um opinbera starfs- menn, skyldur þeirra og réttindi eru öllu ótvíræðari. Margan lærdóm- inn má draga af máli þessu. T.d. að betur fer á því að hluthafar fyrir- tækja fylgist betur en tíðkast hefur með gjörðum ráðinna fram- kvæmdastjóra. Þótt ekki hafi á það reynt nú má búast við því að i hluta- félagalögunum verði í kjölfarið ákvæðin um ábyrgð stjórnarmanna skerpt, til að taka af allan vafa. Greiðslurnar af leynireikningum Hafskips til Alberts voru ekki gefnar upp til skatts, angi málsins fór til skattrannsóknarstjóra og áfram rétta boðleið, en enn er málið óafgreitt. Ástœðan fyrir því að stjórn Hafskips er ekki ákœrð eins og bankaráð Otvegsbankans er talin liggja í að ákvæði hlutafélagalaga eru ekki eins ótvírœð og lög þau sem gilda um opinbera starfsmenn.

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.