Pressan - 17.11.1988, Page 12

Pressan - 17.11.1988, Page 12
12 Fimmtudagur 17. nóvember 1988 Gjaldþrotabylgjan vekur spurningar um stöðu einstaklinga ígjaldþrotamálum. Hverjir sleppa og hverjir ekki? „ÉG VIL FÁ MÍNAR BARNABÆTUR" Við gjaldþrot hlutafélags geta hluthafar gengið frá þrotabúinu eins og ekkert sé hafi þeir ekki gengist í ábyrgð fyrir skuldum fyrirtækisins. Einstaklingar sem taka á sig persónulega ábyrgð eiga hins vegar enga undankomuleið. „Enginn labbar inn í skiptarétt, lýsir sig þar gjaldþrota og fer svo út aftur skuldlaus,“ segir Ragnar Hall, skiptaráðandi í Reykjavík. Ung kona sem álti verslun í Reykjavík er lýst var gjaldþrota fyrir einu og hálfu ári stendur í stappi við kerfið. „Fyrirtœki milt varlekið ti! gjaldþrotaskipta, mér tókst að semja við bankana um að greiða eftirstöðvar skuldanna upp á fimm til átta árum. En Gjald- heimtan vill sitt. Hún semur ekki og tekur nú af mér allar barna- bœtur upp í eftirstöðvar opin- berra gjalda. Af hverju má hún það?“ spyr hún í samtali við PRESSUNA. „Þegar ég lét lýsa mig gjald- þrota var það fyrst og fremst gert að ráðleggingu lögfræðings, sem sagði að ef ég léti gera mig upp þyrfti ég ekki að hugsa um skuldir við gjaldheimtuna frekar. Það mál myndi fyrnast og ég þyrfti ekki að hafa neinar áhyggjur. Eftir að málið hafði gengið í gegnum skiptarétt tókst mér að semja við alla aðra en hið opin- bera um greiðslu skuldanna. Mér tókst að lengja eftirstöðvarnar um nokkur ár og dæmið er hugsað þannig að ef allt gengur eins og hingað til ætti ég að vera búin að greiða það allt á þrem árum. Þá get ég losað mig út úr þessu. Upp- haflega námu eftirstöðvar skuld- anna rúmlega þremur milljónum, en ég ætti að geta greitt þær niður á skemmri tíma en um samdist við bankana og aðra lánardrottna. Ég er sem sagt gjaldþrota og eignalaus í dag. Ég bý vel og er í 200 fermetra einbýlishúsi, en á auðvitað ekkert í því fyrr en mér tekst að losa mig út úr þessu. Það sem hefur hins vegar valdið mér mestri gremju er það að gjald- heimtan tekur ekkert tillit til gjaldþrotsins. í hvert sinn sem sendar eru út barnabætur fæ ég bréf þar sem segir að þær hafi all- ar runnið til að greiða eldri skuld- ir. Ég spyr: Því í ósköpunum er verið að taka allar eignir mínar til gjaldþrotaskipta ef ríkið heldur bara áfram að innheimta skuldir sínar eins og áður. Af hverju getur einn aðili, gjaldheimtan, gengið í þessa peninga þegar aðrir lánar- drottnar geta það ekki eftir gjald- þrotaskiptin?" Hún segist vera með þetta mál hjá lögfræðingi og hafi auk þess sjálf gengið á milli opinberra stofnana til að fá svör. „Lögfræð- ingar hafa sagt mér að þetta geti ekki vcrið rétt skv. lögum. Ég hef hins vegar engin skýr.svör fengið hjá skattinum, gjaldheimtunni eða frá fjármálaráðuneytinu. Það er sko ekki fyrir hvern sem er að standa í þessu. Þetta hefur verið tómt stress, áhyggjur og leiðindi. Dóttir mín var aðeins fjögurra vikna gömul þegar gjaldþrotið átti sér stað og hún hefur fylgt mér í gegnum allt saman. Ég sat með hana í fanginu á biðstofum bankastjóra og hafði hana með mér þegar ég þeyttist eins og senditík á milli valdhafa í kerfiuu. Ég er skráð einstæð móðir, ég er eignalaus en bý með manni sem er sjálfur með fyrirtæki, en hans mál hafa ekkert blandast inn í mitt gjaldþrot. Ég er þegar búin að greiða skuldir mínar niður um rúmlega milljón og ætla mér að endurgreiða allt. Málið er bara það að geta samið við þá sem maður skuldar, þá verður eftir- leikurinn auðveldur og enginn tapar þegar upp er staðið. Ég vil fá mínar barnabætur eins og aðrir foreldrar. Er ekki tilgangurinn með því að veita barnabætur að styrkja fólk til að sjá fyrir börn- um sínum?“ Geslur Steinþórsson, skattstjóri í Reykjavík: „BARNABÆTUR GANGA ALLTAF UPP í SKATTSKULÐIR" „Barnabætur eru alltaf teknar upp í skattskuldir. Það eru engar undantekningar frá því,“ segir Gestur Steinþórsson, skattstjóri í Reykjavík, en vísaði að öðru leyti á gjaldheimtuna. Guðmundur Vignir Jósefsson gjaldheimtustjóri: „GJALDHEIMTAN ER EKKI LÁNASTOFNUN“ „Það gildir sú almenna laga- regla að ef menn verða gjaldþrota geta þeir ekki reiknað með að skuldirnar falli niður eins og sum- ir virðast reikna með. Ef einstakl- ingur verður gjaldþrota er það segir ung, ein- stæð móðir sem stendur i baráttu við gjaldheimt- una. Fyrirtæki hennar var lýst g jaldþrota á sið- asta ári en gjald- heimtan heldur áfram að inn- heimta upp i skattskuldirnar. matsatriði hvort haldið er áfram að innheimta. Málið getur legið þannig fyrir að skuldin sé talin óinnheimtanleg og ónýt og þá er það allt afskrifað. Þetta er mats- atriði í hverju tilfelli,“ segir Guð- mundur Vignir Jósefsson, gjald- heimtustjóri í Reykjavík. Guðmundur segir að það heyri til undantekninga að skuld sé felld niður hjá gjaldheimtunni. „Ef maður sem lent hefur í gjald- þroti er t.d. áfram á launum eru litlar líkur á að skuldin sé felld niður vegna gjaldþrotsins. Ef það er haldið áfram að inn- heimta og einstaklingur fær svo- kallaðan ívilnandi skatt, þ.e. barnabætur, barnabótaauka eða vaxtaafslátt, þá gengur það auð- vitað upp í skuldina,“ segir hann. „Bankarnir hafa aðra aðstöðu til að semja um lán til einstaklinga sem hafa lent í gjaldþroti, en gjaldheimtan er ekki lánastofnun, hún er innheimtustofnun, og þ.a.l. virkar þetta öðruvísi. Við verðum að fara eftir þeim inn- heimtureglum sem hér gilda. Þær gefa engan möguleika á að búa til skuldabréf fyrir eftirstöðvum af vangreiddum gjöldum. Opinber skattheimta getur ekki hugsað eins og lánveitandi að þessu leyti. Bankarnir geta hins vegar leitað þeirra leiða sem þeir telja heppilegasta þegar þeir semja við skuldunauta sína,“ seg- ir Guðmundur. Ragnar Hall, skiptaráðandi hjá borgarfógeta: „MENN VERÐA EKKI SKULDLAUSIR MED GJALDÞROTSÚRSKURDI' „Almennu reglurnar eru þær að kröfur sem lýst er í þrotabú fyrnast á tíu árum eftir að skipta- meðferð á búinu lýkur. Það er mikill misskilningur þegar fólk telur sér trú um að það geti gengið hér inn og fengið gjaldþrotsúr- skurð og farið svo skuldlaust út aftur,“ segir Ragnar Hall, skipta- ráðandi í Reykjavík. „Ef einstaklingur er með einka- firma eða sameignarfélag þá ber hann persónulega ábyrgð á öllum skuldum þess eins og um hans eig- in skuldir væri að ræða. Ef hann er hins vegar hluthafi í hlutafélagi ber hann ekki ábyrgð á skuldum þess nema hann hafi skrifað upp á skuldaviðurkenningu um sjálf- skuldarábyrgð. Munurinn er því sá að tilvist hlutafélags lýkur með gjaldþrotaskiptum á búi þess og fullnustu verður ekki leitað hjá einstökum hluthöfum, hvort sem þeir hafa átt mikið eða lítið í fé- laginu, nema þeir hafi sjálfir tekið á sig ábyrgð á skuldunum. Ég á ekki von á að gjaldheimtan standi í ólöglegum innheimtuaðgerð- um,“ segir hann aðspurður um hvort ríkið geti stöðvað barna- bætur og aðra ívilnandi skatta til gjaldþrota einstaklinga. ERU MVNDIRNAR ALLAR SKAKKAR? Glöggt er gests augað og allt það. Það þarf reyndar ekkert sérstaklega glöggan útlending til að koma auga á ýmislegt sem við íslendingar sjáum ekki svo glatt sjálfir. Enda erum við kannski engir heimsmeistarar í sjálfsgagnrýni, þótt við getum gert grín að sjálfum okkur i þröngum hópi samlanda. Út- lendingar sem fara á skemmti- staði og diskótek á íslandi taka til dæmis eftir því hvað íslenska þjóðin dansar illa. Ekki það að dansmennt sé á miklu hærra plani í útlandinu, heldur eru ís- lendingar svo frakkir að eðlisfari (eða drukknir?) að fólk sem aldrei myndi voga sér út á dans- gólf í útlöndum stígur hér dans eins og heilt þjóðdansafélag. Skoðiði bara dansgólfið i Þjóð- leikhúskjallaranum á laugar- dagskvöldi... Islendingar býsnast yfir því hvað umferðin í Reykjavík sé svakaleg. Útlendingar taka ekk- ert eftir þvi. Þeir hafa séð það verra. Hins vegar veita þeir því athygli að göturnar og gang stéttirnar i höfuðborginnni eru þaktar tyggjói sem þjóðin hefur skyrpt út úr sér á viðavangi, já rétt eins og dúklagðar með gömlum tyggjóklessum. Ekki mikil prýöi að því. Annað sem útlendingar sjá, en við sjáum alls ekki, eru mynd- irnar sem hanga á veggjunum okkar. Þær eru allar skakkar. Viö erum auðvitað alin upp við skakkar myndir og veitum því ekki neina eftirtekt þótt þær séu skakkar. Það er okkur í blóð bor- ið að myndir séu skakkar á veggjum. Útlendingar velta því hins vegar fyrir sér hvort öll þjóðin sé með sjónskekkju, hvort hér gangi án afláts yfir jaröskjálftarsem færi allt úr lagi eða hvort íslendingar kunni ein- faldlega ekki að hengja upp myndir. Eða hvort þeim sé alveg sama. Nattúrlega eru flestir út- lendingar svo kurteisir að það flökrar ekki aö þeim að vekja athygli ínnfæddra á þessari yfir- gengilegu skekkju; en hins veg- ar má oft sjá ferðamenn snigl- ast varfærnislega i kringum þær myndir sem þjóðin hefur hengt á veggi sér til yndisauka. Þeir eru þá sennilega að bíða færis á áö geta rétt þær af — svona þangaö til i naésta jarð- skjálfta... -EH Aftur af „höstlerum" ÍSLENSKIR HÖSTLERAR tSsSiHl „MnftalteUjur fyrtr alnn mónuð liggja einhvers staðar fyrir ofan hundrað þúsund,'' segir við- mtalandi PRESSUNNAR. SSfíÉi- rsæsSíSKS ~~Í£ÍEk IsásMuáT ióíéer' ÍS3XirSKTSTSiS!. I síðasta tölublaði PRESSUNNAR birtist viðtal við svo- kaliaðan „höstler“ — mann sem spilar ballskák upp á pen- inga. A einum stað í greininni segir hann eftirfarandi um þá u.þ.b. tíu aðila, sem hann telur stunda þetta að stað- aldri: „Margir fara í Mosfellsbœ og til Keflavíkur og þeir alhörðustu jafnvei til Akureyrar. “ Af þessu tilefni skal það skýrt tekið fram, að alls ekki er þar með verið að halda því fram að billjardstofur á framangreindum stöðum látiþað viðgangast að menn spili upp á peninga. Viðmœlandi blaðsins sagði einfaldlega, að einhverjir einstaklingar úrþessum litla hópi hefðu reynt að fara út úr bœnum til að „höstla", án þess að fullyrða nokk- uð um hvort þœr ferðir hafi verið til fjár eður ei. Við eftirgrennslan kom hins vegar í Ijós, að það er ekki alls kbstarrétt /tjá viðmœlanda okkarað einungis sé spilað um peninga í ballskák og snóker sé „allur miklu virðulegri og enginn peningar íhonum“ Samk vœmt heimildum okk- ar er snóker nefnilega ekki síður spilaður upp á peninga en billjard — jafnvel enn frekar.

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.