Pressan - 17.11.1988, Side 14

Pressan - 17.11.1988, Side 14
14 Fimmtudagur 17. nóvember 1988 TÆKNIOG ÞJÓNUSTA í ÞÍNA ÞÁGU! Fyrir um hálfri öld, er Einar J. Skúlason hóf verslunarrekstur í Reykjavík, voru hvorki tölvur né rafdrifnar rit- eða reiknivélar á boð- stólum. Styrjaldarástandið á meg- inlandi Evrópu varð sífellt alvar- legra og skipasamgöngur til íslands því erfiðar. Fjárhagur íslenskra heimila var bágur sem og efnahagur landsins í heild. Það þurfti því mikla áræðni og framsýni til að stofna og reka fyrirtæki í þá daga. Með framsýnina að leiðarljósi hefur fyrirtækið Einar J. Skúla- son siglt í gegnum súrt og sætt, kreppur sem breytingar. En þrátt fyrir ótrúlega örar tæknibreytingar og mikla framþróun á verslunar- sviðinu er einn þáttur í starfsemi fyrirtækisins sem ekki hefur breyst. Sá þáttur hefur verið einn lykilþátt- urinn í velgengni fyrirtækisins gegnum tíðina, nefnilega vönduð og góð þjónusta. Einar J. Skúlason hf. býður ein- ungis fyrsta flokks vörur og þjónustu sem þróast hefur í sam- skiptum við ánægða viðskiptavini í hálfa öld. Meira en 60 sérþjálfaðir starfsmenn leitast við að þjóna sem best hinum fjölmörgu viðskiptavin- um fyrirtækisins. Ef þú þarft á tölvum, skrifstofutækjum, hugbún- aði, kerfisþróun eða rekstrarvörum að halda, er Einar J. Skúlason hf. fyrirtæki sem þú getur lagt traust þitt á. Einkunnarorð okkar eru: Tækni og þjónusta í þína þágu! Hjá Einari J. Skúlasyni hf. fást öll tæki og rekstrarvörur til nútíma skrifstofuhalds s.s. tölvur, jaðartæki, hugbúnaður, ritvélar, reiknivélar, Ijósritunarvélar og búðarkassar. Eirmr J, Bkúlason hf, Grensásvegi 10, sími 68-69-33

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.