Pressan - 17.11.1988, Qupperneq 14
14
Fimmtudagur 17. nóvember 1988
TÆKNIOG ÞJÓNUSTA
í ÞÍNA ÞÁGU!
Fyrir um hálfri öld, er Einar J.
Skúlason hóf verslunarrekstur í
Reykjavík, voru hvorki tölvur né
rafdrifnar rit- eða reiknivélar á boð-
stólum. Styrjaldarástandið á meg-
inlandi Evrópu varð sífellt alvar-
legra og skipasamgöngur til íslands
því erfiðar. Fjárhagur íslenskra
heimila var bágur sem og efnahagur
landsins í heild. Það þurfti því mikla
áræðni og framsýni til að stofna og
reka fyrirtæki í þá daga.
Með framsýnina að leiðarljósi
hefur fyrirtækið Einar J. Skúla-
son siglt í gegnum súrt og sætt,
kreppur sem breytingar. En þrátt
fyrir ótrúlega örar tæknibreytingar
og mikla framþróun á verslunar-
sviðinu er einn þáttur í starfsemi
fyrirtækisins sem ekki hefur breyst.
Sá þáttur hefur verið einn lykilþátt-
urinn í velgengni fyrirtækisins
gegnum tíðina, nefnilega vönduð og
góð þjónusta.
Einar J. Skúlason hf. býður ein-
ungis fyrsta flokks vörur og
þjónustu sem þróast hefur í sam-
skiptum við ánægða viðskiptavini í
hálfa öld. Meira en 60 sérþjálfaðir
starfsmenn leitast við að þjóna sem
best hinum fjölmörgu viðskiptavin-
um fyrirtækisins. Ef þú þarft á
tölvum, skrifstofutækjum, hugbún-
aði, kerfisþróun eða rekstrarvörum
að halda, er Einar J. Skúlason hf.
fyrirtæki sem þú getur lagt traust
þitt á. Einkunnarorð okkar eru:
Tækni og þjónusta í þína þágu!
Hjá Einari J. Skúlasyni hf. fást öll tæki og rekstrarvörur til nútíma skrifstofuhalds s.s.
tölvur, jaðartæki, hugbúnaður, ritvélar, reiknivélar, Ijósritunarvélar og búðarkassar.
Eirmr J, Bkúlason hf,
Grensásvegi 10, sími 68-69-33