Pressan - 17.11.1988, Qupperneq 15
Fimmtudagur 17. nóvember 1988
15
spáin
vikuna 13. október — 19. nóvember
(21. mars — 20. aprílj
Þér finnst freistandi að vera svolítið
óréttlátur við ákveðnar aðstæður, en þú
gerir ekki rétt i að nýta þér þessar að-
stæður til að komast áfram á annarra
kostnað. Að öllu jöfnu ertu persóna sem
hægt eraðtreystaog því orðspori er best
fyrir þig að viðhalda.
(21. apríl — 20. niaij
Vissulega hefur þér tekist að halda lífi
þínu I sæmilegri reglu. En þú ættir hins-
vegar að lita nánar á fjármálin þvi þar er
vist ekki allt eins og það ætti að vera.
Reyndu að ná betrasambandi við þásem
þú ert háður i þessu efni, ef það tekst
mun þér auðnast að skapa þér heilbrigð-
ari fjármálastöðu I framtíðinni.
4»
i (21. maí — 21. jiiní)
Einmitt nú er góður tími fyrir þig að
leggja aukna áherslu á einkalifið. Þú
ættir I rikari mæli að taka frumkvæði
gagnvart vinum og fjölskyldu. Ef þú glat-
ar þessu frumkvæði getur það haft af-
drifaríkar afleiðingar fyrirvináttu þinaog
samband við annað fólk.
(22. jtíni — 22. jiilíj
Þú hefur sterka þörf fyrir lúxus, sem
kemur illa niður á fjárhagsstöðu þinni.
Innst inni er þér fullljóst að þú ert alltof
kærulaus I fjármálunum.Taktu þértakog
neitaðu þér og öðrum um eitt og annað
sem hingað til hefur þótt sjálfsagt.
Vandamál sem þarfnast töluverðrar
umhugsunar hefur komió upp og til þess
að sigrast á þvi þarf til fulla einbeitni og
sjálfsafneitun, en málið er fyrst og
fremst að koma sér að verki. I náinni
framtið muntu standa frammi fyrir að-
stæðum sem krefjast fljótrar og öruggr-
arákvörðunartöku og munu valdaþérerf-
iðleikum.
(23. ágiisl — 23. sept.J
Um þessar mundir vinnurðu að verk-
efni, en þú ert nokkru lengra frá lausn
þess en þú heldur sjálfur. Misstu samt
ekki þolinmæðina þvi slíkt skilar þér
engu.
(24. sept. - 23. okt.)
Það er svo sem ekkert stórkostlegt að
gerast þessa dagana. Á hinn bóginn er
hvunndagurinn þér ágætur, margt smátt
sem þú gerir með fjölskyldu og vinum
þessa dagana færir þér ríka ánægju. Af
þeim sökum er geðlag þitt gott og stutt
i brosið. Þú ættir að deila þessari
ánægju með manneskju sem ekki stend-
urjafnvel um þessar mundir. Reyndu að
komast hjá því á þessari stundu að taka
ákvarðanir sem gætu reynst afdrifaríkar.
(24. okt. — 22. nóv.J
Undir þaó síðasta hefur þú átt við
nokkurt heilsuleysi að striða og að auki
verið nióurdreginn vegna skammdegis-
ins. Þú þarfnast þess nokkuð að sleþpa
burt úrhversdagsleikanum og um leið að
geta horft á hann úr fjarlægð. Því miður
er ekki liklegt að þú getir tekið þér frí á
næstunni, en láttu það ekki hafa frekari
áhrif á þig.
(23. nóv. — 21. des.J
Næsta framtíð mun einkennast af
rikum geðsveiflum hjá þér og þú verður
að reynaað geraeitthvað I þvi að ná betri
stjórn átilfinningunum. Dragðu þig frek-
ar I hlé en að ota þér fram, segóu fátt en
hyggðu hátt. Óheppileg ummæli á tím-
um sem þessum gætu valdið hinum
mesta misskilningi og orðið þér dýr-
keypt þegar fram i sækir, ekki síst meö
tillití til þess hvernig þú hefurkomiðfólki
fyrir sjónir að undanförnu. Reyndu að
vera dipló — þaö borgar sig oft.
(22. des. — 20. jamiarj
Ef, algerlega óvænt, þú lendir I erfiðri
aðstöðu I þessari viku skaltu ekki leiða
hugann aö þvi að leita þér hjálþar. Eina
leiðin er að standast þessi átök án þess
að taþa nokkru af sjálfsálitinu. Nýtt
áhugamál hefur rekið á fjörur þinar og
gagntekió þig, þetta mun mjög svo ein-
kenna framtiðina.
(21. janúar — 19. febriiar)
Samspil stjarnanna lofar góðu bæöi
fyrir samband þitt við vini og — ekki síð-
ur — á rómantlska sviðinu. Þú getur
horft fram á margar ánægjustundir með
nýjum vinum. Persónaþinermeira aðlað-
andi sem stendur en oft áður og það
skaþar grundvöll fyrir náin og hlý kynni.
Rósrauð rómantikin vakir yfir vötnum.
(20. febriiar — 20. marsj
Þú verður að temja þér að líta aðstæð-
ur, fyrirbrigði — jafnvel fólk — hlutlaus-
ari augum og einbeita þér að praktíkinni
þrátt fyrir að þér hafi ekki tekist aö rækja
skyldur þinar sem skyldi að undanförnu.
Innan skamms verða á lifi þinu breyting-
ar til hins betra.
/ þessari viku:
HEILDARYFIRBRAGÐ:
Lófinn er afskaplega blandaöur
ogeigandi hanserbæöi undiráhrif-
um frá tungli og mars. Honum ligg-
ur mikiö á þegar framkvæmdir eru
annars vegar, en úthaldið og seigl-
an eru ekki alltaf til staöar.
GREINDARLÍNAN (1):
Þessi maöur hefur sterkt ímynd-
unarafl og vissa tilhneigingu til aö
vera þunglyndur. Hann virðist bæði
hafa hæfileika til aö fara út á sviö
mennta- og menningarmála og I
stjórnun. Alls kyns skipulagsstörf
ættu t.d. vel vió þennan mann.
007
(karl) f. 25.07.1933.
pressupennar
Morgunfrúin
Amman teygði sig yfir afann sem
vaknaði ekki við vekjaraklukkuna
lengur. Hann gat ekki viðurkennt
hve heyrninni hafði hrakað og hafði
klukkuna sín megin. Hún reyndi að
láta það ekki ergja sig, en veittist
það æ erfiðara eftir því sem morg-
unskapið varð verra. Hún ýtti við
honum og hann rakaði sig meðan
hún hitaði kaffi. Þau töluðu ekki
saman á morgnana. Þessi morgunn
heyrði til undantekninga og hann
sagði: Þú ert ógreidd. Hún setti hár-
ið upp, fór úr sloppnum og í hvers-
dagskjól. Hana svimaði sem
snöggvast þegar hún náði í óhreinu
sokkana hans undir rúm, en það
leið fljótt hjá. Hún byrjaði verkin
sín alltaf á að þvo. Þau áttu ekki vél
og hún vildi hana ekki, hafði kom-
ist af án hennar hingað til og þvott-
urinn orðinn sama og ekki neitt.
Hendurnar þoldu illa heitt sápu-
vatnið, svo hún hafði það volgt. Á
leiðinni niður í kjallara skaust kött-
ur konunnar á annarri hæð hjá.
Amman hrökk við og þrýsti sér að
veggnum. Allt frá því köttur á
næsta bæ beit hana sem barn
hræddist hún ókunnuga ketti. Af-
anum var illa við ketti og nú hafði
hún ekki átt kött i fjórtán ár. Afinn
hafði losað þau við hann með
hnerrum og uppgerðarofnæmi.
Kjallaragólfið var ískalt. Hún hafði
gleymt að fara í inniskóna en lét sig
hafa það. Henni varð kalt með
hendurnar í volgu vatninu og fann
að árans kvefið var á leiðinni.
Um morguninn rigndi af og til og
örstutta stund náði sólin að verma
blöð morgunfrúarinnar. Amman
dútlaði við heimilisstörf og heklaði
ofurlitið. Barn var á leið í heiminn.
Afinn las eftir því sem hann gat, en
þreyttist fljótt og stóð upp til að
hvíla sig, kveikti á útvarpinu,
horfði út í portið og settist aftur
niður. Hann teygði sig í bréf frá
gömlum vini, sem nú var sendiherra
í París, og las það einu sinni enn. í
því var ekkert markvert, aðeins
fréttir síðasta árs af fjölskyldunni
og nokkrar gamansögur sem höfðu
á sér þann blæ að vera margsagðar.
í lok bréfsins var setning sem afinn
áttaði sig ekki fyllilega á og var úr
samhengi við innihaldslaust bréfið.
Eitthvað í þá átt að heimurinn væri
nú loks að eldast. Afanum þótti
heimurinn hafa verið að eldast frá
upphafi, jú sérstaklega á þessari
öld. Eða var heimurinn kannski
ekki einmitt að yngjast?
Hádegisverðurinn var fábrotinn,
hnífur rakst i glas, diskarnir fóru í
vaskinn og afinn ræskti sig. Þeir
voru loksins búnir að koma sér
saman um stjórnina — var það eina
í fréttunum sem afinn lagði eyrun
eftir, en áttaði sig svo á því seinna
um daginn að hann hafði ekki
minnstu hugmynd um ráðherrastól-
ana, og þegar hann hugsaði um
rödd hins nýja forsætisráðherra átt-
aði hann sig ekki á hver það var sem
hafði tjáð von sína um lausn á þeim
brýna vanda sem nú steðjaði að
íslensku þjóðinni og þjóðfélaginu í
heild. Erna hringdi til að spyrja
hvort þau vanhagaði um eitthvað.
Einn pott af mjólk og rúgbrauð.
Hendur þeirra snertust af tilvilj-
un við kaffiborðið og þau hrukku
við, hún roðnaði og hann brosti. Þá
brosti hún líka og hann tók um
hönd hennar. Þetta undarlega and-
artak varði aðeins augnablik, en
hann minntist þess stöðugt síðan.
Kaffið var heldur veikt.
Erna leit inn með mjólkina og
rúgbrauðið, var með Ásu litlu með-
ferðis, þær voru að fara að sækja
Önnu Dís sem beið spennt með sög-
ur af fyrsta skóladeginum. Ása vildi
ekki fara í skólann, það voru
hrekkjusvín þar. Hún gleymdi þeim
fljótt þegar afi tók hana í fangið og
las fyrir hana úr ævintýrabókinni
stóru, í stólnum undir morgun-
frúnni. Erna talaði alvarlega við
ömmuna inni í eldhúsi um veikind-
in, en amman eyddi talinu, þetta var
ekkert. Erna gafst fljótlega upp,
enda að verða of sein að sækja
Önnu Dís.
Það var farið að bregða birtu um
eftirmiðdaginn og afinn vildi
kveikja Ijós. Amman andmælti
ekki, en lét á sér skiljast að það væri
óþarfi og vitleysa. Síminn hringdi,
en þegar afinn hrópaði já halló var
þar enginn.
Skyndilega fór að rigna og amm-
an fór að tala um barnið sem var á
leiðinni í heiminn og átti ekki föð-
ur, því foreldrarnir höfðu aldrei
elskað hvort annað og vildu nú ekk-
ert með hvort annað hafa. Ja, ef ég
lófalestur
TUNGLHÆÐ (2) OG VENUSAR-
HÆÐ (3);
Þessar hæöir viröast, ef marka
má Ijósritið, mjög þéttar og þykkar.
Þaö bendir til þess aö maðurinn sé
svolitiö sveiflukenndurog stundum
fljótfær. En hann er næmur fyrir því,
sem gerist í kringum hann, og getur
verið ástríöuf ullur og ágengur.
Hann hefur einnig næmi fyrir tón-
list og hljómum.
Þetta er metnaöargjarn maöur,
sem vill komast áfram.
LÍFSLÍNAN (4):
Þaö gæti hafa verið erfitt timabil
í lifi þessa manns, þegar hann var
milli fertugs og 45 ára aldurs. Þetta
gætu hafa veriö einhverjir utanaö-
komandi erfióleikar, sem raskaö
heföu umhverfi hans.
Þessi maður hefur verió svolitió
bundinn fööurhúsunum og átt erfitt
meó að slíta sig lausan. En milli tvi-
tugs og þrítugs hefur hann haft
ágætt tækifæri til aö koma sér
áfram. Einhverjar breytingar veróa
siðan á lífsmunstrinu um 39 til 43
áraaldurinn. Um fimmtugt hefst svo
mikilvægt tímabil í tengslum við
fjölskyldumál, sem veröa honum
ofarlega í huga. Stefna hans í lifinu
um þessar mundir gæti þvi tengst
heimili og fjölskyldu.
Maóurinn þarf ef til vill aö gæta
vel að sjóninni, en einnig að æöum
og æöakerfi. Hann ætti ekki aö taka
hlutina jafnalvarlega og hann gerir,
en hann skortir sjálfstraust og þaö
veldur ýmsum erfiöleikum.
á að segja eins og er finnst mér að
þau ættu að taka saman, þó ekki
nema barnsins vegna.
Þau eru æskan, sagði afinn,
leyl'ðu þeini að njóta herinar. Barn-
ið verður ekki verra.
Þú átt gott, sagði amman við af-
ann, að elska æskuna. En liún kann
ekki lengur að elska. Ekki eins og
við.
Afinn horfði tómlega á rigning-
una skella á rúðunni, ruggaði sér
hægt og talaði í takt við hreyfing-
una. Að elska. Kunnum við að
elska? Til að elska verður að elska
allt og alla. Þú segist ekki geta elsk-
að æskuna.
Amman stóð upp og kjagaði
fram í eldhús. Eftir stutta stund
kom hún í gættina og sagði: Það er
annað.
Afinn ruggaði sér og hristi höf-
uðið hægt. Hann vildi ekki karpa
um einskisverða hluti.
Hann huggaði sjálfan sig með því
að þegar um alvarleg mál væri að
ræða réði hann. Alvarlegu málin
urði æ færri í seinni tíð.
Amman vökvaði morgunfrúna.
Þau fóru snemma að sofa, en ein-
hverra hluta vegna var honum órótt
og gat ekki sofnað. Hann vildi ekki
deyja í svefni. Helst að morgni til,
því morgunbirtan gerir allt svo
fallegt. Mér er sama hvar og hve-
nær, sagði hún. En ef ég fer á undan
þér, vökvaðu þá frúna af og til.