Pressan - 17.11.1988, Side 16
RK5HT EYE
IfUDOLOGY*
EYES SHOW OUR
ENTIRE BODY’S HEALTH
The ins, or colored part of our eyes, is a
miniature map of the entire faody. Iridol-
ogyílr-id-ol-ð-gy) is the ancient science of
monitoring the health of all of our body parts
by studying the iris' colorful map. Research
shows this 800 year old science helps you:
* Spot health problems-before you feel pain.
* See what nutrition is lacking in yourfood.
* Spot inheritedweakareas & pastinjuries.
* Oetermine how well the body is healing
past and current probtems.each week.
TO USE THIS CARO: Hold riptit eye m card
under persons dght eye. Mateft spots in eye
to same area on card To use on yoursdf.
use same position of card & tookat retedion
of both in mirror. Repeat for íeft eye.
<CoMimml o*t mw S«Smi ® ■
©■ 1983Jan Zv&ekss. 2m EcMtion C
Þetta er kort yfir þau
svæði likamans, sem
endurspeglast i aug-
um okkar. Með hjálp
þess sjúkdómsgrein-
ir David Calvillo fólk-
ið, sem til hans leit-
ar, og gefur þvi síöan
góð ráð varðandi
mataræði og annað.
Lausleg þýðing á
leiðbeiningum með
augnkortinu: Auga-
steinninn er eins og
kort af líkama okkar.
Sú aðferð að lesa
upplýsingar um
heilsufar fólks úr
augum þess hefur
verið notuð i 800 ár.
Hún gerir okkur
kleift:
• að uppgötva
heiisubrest áður en
við verðum áþreif-
anlega vör við
vandamálið
• að sjá hvaða fæðu-
tegundum við fáum
ekki nóg af
• að koma auga á
meðfæddaweik-
ieika og gamla
kvilla
• að sjá hversu vel
líkamanum gengur
að læknast af því,
sem hrjáir okkur.
Bandarískur Apache-indíáni hefur lœknað fjölda Islendinga af ýmsum
kvillum með því að lesa úr augum þeirra
SPEGILL LIKAMANS
Fjöldi íslendinga hefur leitað til ungs banda-
rísks manns af indíánaœttum, sem stundar
lœkningar í Chicago. Hann sjúkdómsgreinir
fólk með því að horfa í augu þess — og hefur
náð undraverðum árangri.
David Calvillo. Sextán ára fékk hann þann úrskurð að hann ætti þrjá til sex
mánuði ólifaða.
Samkvæmt máltækinu eru aug-
un spegill sálarinnar. Eða livað?
Sumir þeirra, sem stunda óhefð-
bundin læknavísindi, segja augun
endurspegla ástand líkama okkar.
Einn þeirra er David Calvillo, sem
starfar í Chicago í Bandaríkjunum,
en margir íslendingar þakka hon-
um alfarið bata á ýmsum kvillum.
David er 34 ára gamall Apache-
indíáni og starfar sem grasa- og
næringarsérfræðingur. Hann
stundaði nám í lækningum — eða
heilunaraðferð — með notkun
nudds, ljóss, hita, kristalla, strauma
og annarra náttúrulegra afla. Þó
spilar einnig annað inn í lækningar
Davids. Næmleiki, sem ekki verður
lærður af bókum. Sjálfur vill hann
hins vegar sem minnst tala um þann
þátt málsins. En vinir hans hér á ís-
landi segja David hafa dulræna
hæfileika. Á því sé enginn vafi.
Þessi ungi maður á ótrúlega sögu
að baki, samkvæmt heimildum
hinna íslensku vina hans. Sextán
ára fékk hann lifrarkrabbamein og
fékk þann úrskurð hjá fjórum sér-
fræðingum á mismunandi sjúkra-
stofnunum að hann ætti í mesta lagi
eftir að lifa í þrjá til sex mánuði. Þá
tók pilturinn til sinna ráða og fór í
„hreinsunarkúr", sem samanstóð
af hveitigrassafa og ýmiss konar
hrásafa. Og viti menn. David lifði
og krabbameinið hvarf!
Eftir margra ára nám í heilunar-
skðlá hóf David störf við náttúru-
lega heilsuráðgjöf í Chicago. Hann
beitir þeirri óvanalegu aðferð við
sjúkdómsgreininguna að lesa úr
augasteinum sjúklinganna. Auga-
steininum er skipt niður í svæði,
eins og klukku, og hvert þeirra
táknar ákveðinn hluta líkamans.
Séu blettir eða aðrar misfellur á
einhverju svæðinu gefur það til
kynna hvað aniar að viðkomandi
líkamshluta.
Eftir sjúkdómsgreininguna gefur
David sjúklingunum leiðbeiningar
varðandi mataræði og lifnaðar-
hætti og bendir þeint á jurtalyf og
seyði, sem komið geta að gagni.
Hann er t.d. á þeirri skoðun að fólk
eigi ekki að þurfa að taka inn
vítamíntöflur. Það sé mun hollara,
ef líkaminn getur unnið öll bætiefni
úr fæðunni. Sjálfur er David
grænmetisæta, án þess þó að það
fari út í þær öfgar að hann fordæmi
endilega allt kjötát. Hann telur t.d.
eðlilegt og sjálfsagt að við íslend-
ingar borðum hið margrómaða
lambakjöt okkar.
David hefur fengið fólk héðan
frá íslandi í meðferð við alls kyns
sjúkdómum, bæði minniháttar og
lífshættulegum. Og rnargir fullyrða
að þeir eigi honum heilbrigði sína
að þakka i kjölfar slíkrar meðferð-
ar. Einkum er það starfsfólk Flug-
leiða, sem Davíð hefur meðhöldlað,
enda á það auðvelt nteð að komast
til Bandaríkjanna fyrir hagstætt
verð. PRESSAN hefur m.a. frétt af
íslendingum, sem leituðu til hans
vegna nýrnaveiki, liðagiktar, vöðva-
bólgu, krabbameins, astma, melt-
ingartruflana og blæðinga í ristli —
svo eitthvað sé nefnt. En lækningin
byggist að sjálfsögðu mikið á því
hvað sjúklingurinn sjálfur er tilbú-
inn að leggja á sig við að fara eftir
fyrirmælum þessa óhefðbundna
læknis.
„ÞETTA PASSAÐI
NÁKVÆNILEGA HJÁ
H0NUM“
PRESSAN náði tali af tveimur
íslenskum konum, sem leitað hafa
til Davids Calvillo. Önnur þeirra er
Unnur Stefánsdóttir, flugfreyja hjá
Flugleiðum. Hún lýsir samskiptum
sínum við hann á eftirfarandi hátt:
„Þetta var mín fyrsta reynsla af
óhefðbundnum lækningum, en ég
fann strax að David var afskaplega
næmur. Ég held, að hann sé hrein-
lega skyggn...
Það var óskaplega skrítin reynsla
að láta horfa í augun á sér í nokkrar
minútur og segja sér siðan í grófum
dráttum hverjir mínir veiku og
sterku punktar væru hvað varðar
heilsufar. Þetta passaði alveg
nákvæmlega hjá honum! Og það
kom mér auðvitað á óvart hvernig
hann gat lesið þetta allt saman út úr
augunum.
Éftir greininguna lét David mig
fá jurtir, sem hann sagði að ég
þyrfti á að halda, og leiðbeindi mér
með ýmislegt. Ég tók þetta alvar-
lega og reyndi að fara nákvæmlega
eftir ráðleggingum hans. Lagði mig
verulega fram við að breyta um
mataræði og annað slíkt. Og ég
fann strax mun á mér!
Mér finnst David alveg stórkost-
Iegur, enda hef ég farið oftar en
einu sinni til hans. Hann aðstoðaði
mig m.a. við að hætta að reykja
með því að láta mig hafa ákveðið te,
en auðvitað verður maður sjálfur
að hafa rétta hugarfarið. Það getur
enginn hætt reykingum fyrir mann!
Það er hægt að drekka jurtaseyði
endalaust án nokkurs árangurs, ef
maður er ekki sjálfur staðráðinn i
að hætta. David getur bara hjálpað
til á þann hátt að gera þetta svolítið
léttbærara með því að minnka löng-
unina á meðan versta tímabilið
gengur yfir. Hann stuðlar líka að
hugarfarsbreytingu hjá þeim, sem
koma til hans. Vekur þá til umhugs-
unar um ýmislegt varðandi eigin
líkama."
BÓLGURNAR HURFU
Seinni viðmælandi okkar baðst
undan nafnbirtingu. En hún hafði
svipaða sögu að segja:
„Ég fór til Davids ásamt nokkr-
um öðrum íslendingum og mér
fannst það alveg meiriháttar! Hann
þekkti okkur ekki neitt, en það, sem
hann sagði, var allt alveg hárrétt.
Hann ráðlagði okkur ýmislegt
varðandi náttúruvítamín, eftir því
hvað amaði að, og ég hef reynt að
fara að ráðum hans. Þó hef ég
kannski ekki verið alveg nægilega
dugleg við það... samt finn ég mik-
inn mun á mér.
David sagði strax við mig, að ég
væri með sogæðabólgu. Ég hafði
lengi átt við það að stríða að bólgna
í hálsinum og var hrædd um að vera
komin með æxli. En hann sagði
sem sagt að þetta væru sogæðarnar
og ráðlagði mér að breyta alveg um
mataræði. Hann leggur mikið upp
úr grænmeti og ávöxtum og vill að
maður búi allt soð til sjálfur. Kaupi
ekkert tilbúið í búð með einhverjum
aukaefnum. Þetta gerði ég og bólg-
urnar hurfu gjörsamlega!
Þessi læknisaðferð er auðvitað
skrítin og ég hefði aldrei trúað
þessu, nema af því ég reyndi þetta
sjálf. Það er bara verst hve erfitt er
að lifa algjörlega eftir þessu og
breyta alveg um mataræði. Mér
hefur ekki tekist það, en svona
reynsla gerir það að verkum að
maður fer að hugsa öðruvísi. Og
veliíðanin lætur ekki á sér
standa...“